Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Side 45
LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999
Abel Snorko býr einn
í kvöld sýnir Þjóðleikhúsið á
Litla sviðinu Abel Snorko býr
einn eftir franska leikritahöfúnd-
inn Eric-Enunanuel Schmitt sem
er eitt vinsælasta leikskáld
Frakka um þessar mundir. Leik-
ritið var frumsýnt í París fyrir
tveimur árum. Sýningin naut gíf-
urlegra vinsælda og verkið hefur
siðan verið sýnt i fjölda leikhúsa,
bæði innan og utan Evrópu. Leik-
ritið fjallar um ástina og það
verkefhi sem allir þurfa að takast
á við með einum eða öðrum
hætti; það að eiga samskipti við
aðra. Abel Snorko, heimsfrægur
nóbelsverðlaunahafi í bókmennt-
um, ákveður að veita blaðamanni
viðtal á eyjunni þar sem hann býr
einn, fjarri heimsins glaumi.
Fundur þessara bláókunnugu
manna verður upphafið að
óvæntu og mögnuðu uppgjöri.
Leikhús
Leikendur eru Amar Jónsson
og Jóhann Sigurðarson. Leikstjóri
er Melkorka Tekla Ólafsdóttir og
þreytir hún með þessu verki
frumraun sína í Þjóðleikhúsinu.
Franski leikritahöfúndurinn Eric-
Emmanuel Schmitt hefúr undan-
farin fimm ár átt fádæma vin-
sældum að fagna fyrir heimspeki-
leg leikrit sín, bæði í heimalandi
sínu sem og víðs vegar um heim-
inn. Árið 1993 sló leikrit hans Le
Visiteur rækilega í gegn í París.
Leikritið fékk þrenn Moliere-
verðlaun, ein eftirsóttustu leik-
listarverðlaun Frakklands.
Meðal barna- og unglingakóra
sem koma fram í Hallgrímskirkju
er Drengjakór Laugarneskirkju.
Jólin sungin út
Á morgun verður íjöld-
kylduguðsþjónusta í Hallgrims-
kirkju með þátttöku þriggja
bama- og unglingakóra, það er
Drengjakórs Laugameskirkju,
Bamakórs Bústaðakirkju og
Bama- og unglingakórs Hall-
grímskirkju. Kóramir syngja jóla-
lög einir og saman undir stjóm
söngstjóra sinna, Friðriks Krist-
inssonar, Jóhönnu Þórhallsdóttur
og Ingibjargar Gunnlaugsdóttur.
Auk kórsöngsins verður almenn-
ur söngur, siðasta tækifærið til að
syngja jólasálmana. Sr. Bjami
Karlsson hefúr hugleiðingu og
þjónar með sr. Jóni D. Hróbjarts-
syni við altarið.
Samkomur
Húnvetningafélagið
Húnvetningafélagið verður
með jólatrésskemmtun í Húna-
búð, Skeifúnni 11, á morgun kl.
15. Allir em velkomnir.
KFUM og KFUK100 ára
í dag em liðin 100 ár frá því
æskulýðsleiðtoginn mikli, sr.
Friðrik Friðriksson, stofnaði
kristilegt félag fyrir drengi,
KFUM. Af því tilefni efna KFUM
og KFUK til árshátíðar í aðal-
stöðvum sínum við Holtaveg í
Reykjavík í dag kl. 20. Fjölbreytt
dagskrá er í boði og sagan rifjuð
upp. Á morgun verður síðan há-
tíðarguðþjónusta í Dómkirkjunni
i tilefni af 100 ára afmælinu.
>
I
Léttskýjað vestan til
Fyrir sunnan og suðaustan land
er 975 mb aðgerðalítið lægðasvæði
sem þokast í norðausturátt en 1018
mb hæð er yfir Norðaustur-Græn-
landi. Um 400 km suðaustur af
Hvarfi er 965 mb kyrrstæð lægö sem
grynnist.
í dag er gert ráð fyrir norðaustan-
kalda eða stinningskalda og sums
staðar allhvössu. Súld eða dálítil
slydda af og til á annesjum norðan-
og austanlands. Súld eða rigning á
Veðrið í dag
Suðausturlandi en úrkomulaust og
allvíða léttskýjað vestan til. Hiti yf-
irleitt á bilinu 2 til 6 stig.
Veðríð kl. 12 á hádegi gær:
Akureyri
Akurnes
Bergstaöir
Bolungarvík
Egilsstaöir
Kirkjubœjarkl.
Keflavíkurflv.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfði
Bergen
Helsinki
Kaupmhöfn
Oslo
Stokkhólmur
Þórshöfn
Þrándheimur
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Halifax
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Jan Mayen
London
Lúxemborg
Mallorca
Montreal
Narssarssuaq
New York
Nuuk
léttskýjaö -2
skýjaö 6
skýjaö -3
skýjaö 2
skýjaö 3
hálfskýjaö 1
léttskýjað -2
léttskýjaö 2
skýjaö 6
skýjaö 8
frostúöi 0
þokumóöa 2
hrímþoka 0
1
skýjaö 7
skýj að -3
léttskýjað 14
skýjað 7
skruggur 12
þokumóöa 0
hálfskýjaö -14
hálfskýjaö 9
skýjað -15
þokumóöa 1
skúr 7
þokumóöa -1
alskýjaö -1
skýjaö 10
þokumóöa 1
skýjaö 15
þoka -20
alskýjað 5
hálfskýjaö -4
1
Tónlistarhús Kópavogs:
Salurinn hljómar
Meðal fjölmargra flytjenda I Tónlistarhúsi Kópavogs í dag er Caput-hópur-
inn.
í dag verður tekiö í notkun hiö
glæsilega Tónlistarhús Kópavogs
sem ömgglega á eftir að hafa mikil
áhrif á tónlistarlíf á höfuðborgar-
svæðinu. í tilefni opnunarinnar er
boöið til tónleika frá kl. 18-24 og er
aðgangur ókeypis.
Tónleikunum er skipt í sex hluta.
Á þeim fyrsta, sem hefst kl. 18, koma
fram Kór Snælandsskóla, Signý Sæ-
mundsdóttir sópransöngkona og
Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó-
leikari, Pétur Jónasson gítarleikari,
Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó-
leikari, Kvartettinn Rúdolf og
Hljómskálakvintettinn.
Skemmtanir
Kl.19 kemur ffarn Djasskvartett
ásamt Bergþóri Pálssyni, Auður
Hafsteinsdóttir leikur á fiðlu og
Guðríður St. Sigurðardóttir á píanó,
Steinunn Bima Ragnarsdóttir á pí-
anó, Kammerkór Kópavogs og Rús-
síbanamir.
Kl. 20 koma ffarn Camilla Söder-
berg, sem leikur á blokkflautu, og
Snorri Ö. Snorrason á lútu, Elísabet
F. Eiríksdóttir sópransöngvari og
Elín Guðmundsdóttir leikur á píanó,
Gréta Guðnadóttir á fiölu og Val-
gerður Andrésdóttir á píanó, Krist-
inn E. Ámason á gítar, Cammerarct-
ica og Hljómeyki.
Kl. 21 koma ffam Kristinn Snædal
Sigtryggsdóttir, sópran, og Þóra
Fríða Sæmundsdóttir, píanó, Unnur
María Ingólfsdóttir á fiðlu og Peter
Maté á píanó, Einar Kristján Einars-
son á gítar, Strengjatríó og Karla-
kórinn Fóstbræður.
Kl. 22 koma fram Sigurður Rúnar
Jónsson sem leikur á íslenska fiðlu,
Voces Thules, Ólafur K. Sigurðar-
son, bariton, og Tómas Guðni Bergs-
son á píanó, Guðný Guðmundsdóttir
á fiðlu og Gerrit Schuil á píanó,
Gunnar Kvaran á selló, Selma Guð-
mundsdóttir á píanó og Samkór
Kópavogs.
Kl. 23 koma fram Áshildur Haralds-
dóttir sem leikur á flautu og Iwona
Jagla á píanó, Snorri Sigfús Birgisson
á pianó, Finnur Bjamason bariton og
Gerrit Schuil á píanó, Caput-hópurinn
og Hamrahliöarkórinn.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2292:
Getur enga björg sér veitt
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi.
úagsönn
49
w *
Geimstrákurinn er öðruvísi og
sniðugur.
Geimstrákurinn
Ein af jólamyndunum i Sambíó-
unum er Star Kid þar sem segir
frá hinum 12 ára Spencer Griffith
sem á fullt í fangi með að halda í
við félaga sína í skólanum. Ekki
bætir það sjálfstraustið að vera
ástfanginn í aðalstelpunni í skól-
anum sem lítur ekki við honum.
Griffith er mikið einn þar sem
hann er alltaf í felum fyrir einum
skólafélaga sínum, stórum og
sterkum strák sem leggur
hann í einelti. Ekki
getur hann treyst á '////////
Kvikmyndir
fóður sinn sem vinnur
daga og kvöld. Breytingar verða á
tilveru Spencers þegar haxm verð-
ur vitni að því að geimskip brot-
lendir. Út úr geimskipinu stígur
rúmlega tveggja metra sláni sem
er mjög ólíkur jarðarbúum. For-
vitni þeirra hvors um annan gerir
það aö verkum að þeir tengjast
vináttuböndum og Spencer sér að
margt sem vinur hans getur gert
er honum ómögulegt og það kem-
ur honum til góða þegar stærri
strákar eru að atast í honum.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum;
Bíóhöllin: Practical Magic
Bíóborgin: Enemy of the State
Háskólabíó: The Prince of Egypt
Háskólabió: Tímaþjófurinn
Kringlubió: Star Kid
Laugarásbíó: Odd Couple II
Regnboginn: Rush Hour
Stjörnubíó: Álfhóll
Kammertónleikar
Á morgun verður Kammermús-
íkklúbburinn með aukatónleika í
Bústaðakirkju kl. 20.30. Tvö verk
verða leikin á tónleikunum. Fyrir
hlé verður fluttur kvintett op. 57
eftir Dmitri Shostakovich og eru
flytjendur Víkingur Heiðar Ólafs-
son, pianó, Ari Þór Vilhjálmsson,
fiðla, María Huld Sigfúsdóttir,
fiðla, Valgerður Ólafsdóttir, lág-
fiðla, og Steinunn Ambjörg Stef-
ánsdóttir, knéfiðla.
Tónleikar
Eftir hlé verður fluttur kvintett
í c-dúr op. 163 eftir Franz
Schubert. Flytjendur eru Álfheið-
ur Hrönn Hafsteinsdóttir, fiðla,
Hildur Ársælsdóttir, fiðla, Ari Þór
Vilhjálmsson, lágfiðla, Margrét
Ámadóttir, knéfiðla, og Sólrún
Sumarliðadóttir, knéfiðla. Næstu
tónleikar Kammerklúbbsins
verða síðan 31. janúar og verða þá
flutt verk eftir Beethoven, Ravel
og Brahms.
r*-
Gengið
Almennt gengi LÍ 30. 12. 1998 kl. 9.15
Einina Kaup Sala Tollaenoi
Dollar 69,260 69,620 70,800
Pund 115,980 116,580 116,970
Kan. dollar 44,630 44,910 46,120
Dönsk kr. 10,8880 10,9460 10,9120
Norsk kr 9,1970 9,2470 9,4210
Sænsk kr. 8,6010 8,6490 8,6910
Fi. mark 13,6340 13,7140 13,6450
Fra. franki 12,3600 12,4300 12,3750
Belg. franki 2,0091 2,0211 2,0118
Sviss. franki 50,6800 50,9600 50,3300
Holl. gyllini 36,7900 37,0100 36,8100
Þýskt mark 41,4700 41,6900 41,4800
0,041860 0,04212 0,041930
Aust sch. 5,8920 5,9280 5,8980
Port. escudo 0,4046 0,4072 0,4047
Spá. peseti 0,4872 0,4902 0,4880
Jap. yen 0,600400 0,60400 0,574000
írskt pund 103,000 103,640 103,160
SDR 97,330000 97,92000 97,690000
ECU 81,3300 81,8100 81,5900
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270