Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999
Fréttir
Upplýsingar um fegrunarlækningar Áma Björnssonar:
Ætlar að standa vorð
um læknaskýrslurnar
„Ég tel að þama sé um brot á
mannréttindum að ræða, og það er
reyndar aillur þessi lagabálkur um
erfðagreininguna" segir Ámi Bjöms-
son, fyrrverandi yfirlæknir í lýta-
lækningum við St. Jósepsspitalann í
Hafnarflrði um áratuga skeið. Hann
hefur skrifað stjórn sjúkrahússins
bréf þar sem hann krefst þess að
sjúkraskrár um fegrunarskurðlækn-
ingar, sem hann framkvæmdi á árun-
um 1966 til 1994, verði ekki látnar af
hendi í miðlægan
gagnagrunn á
heilbrigðissviði.
Lögfræðingar spít-
alans spá í stöð-
una, enda segist
Ámi fara lengra
með málið ef spit-
alinn getur ekki
varið læknaskrár sínar.
Ámi segir að allar upplýsingar um
fegrunarskurðlækningar séu við-
Árni Björnsson,
fyrrverandi yfir-
læknir í lýtalækn-
ingum, vill trygg-
ingu fyrir að upp-
lýsingar um sjúk-
linga sína fari ekki
í gagnagrunn.
kvæmar. Þvi vilji
hann standa vörð
úm læknaskýrsl-
ur sínar. Honum
beri að gera það,
ella eigi hann á
hættu að verða
lögsóttur af sjúk-
lingum, rétt eins
og Esra Pétursson geðlæknir fyrir
skemmstu, sem birti trúnaðarmál
um sjúkling.
Ámi segir að gagnagrunnurinn sé
í besta falli gagnslaus, en í versta
falli skaðlegur. Hann breyti engu um
það að hægt sé að framkvæma allar
þær vísindarannsóknir sem hugsan-
legt er að gera á íslendingum án þess
að hann komi til. Sjálfur hafi hann
tekið þátt í slíkum rannsóknum.
„Það að hafa ekki miðlægan
gagnagrunn hefur aldrei verið okkur
fiötur um fót,“ sagði Ámi Bjömsson
við DV. -JBP
Sýslumaður
misskilinn
Vegna misskilnings við
vinnslu fréttar um snjóflóð á
ísafirði, sem birtist í DV í gær,
skal tekið fram að Ólafur Helgi
Kjartansson
sýslumaður
ítrekaði
aldrei fyrri
ummæli sín
um að hann
hefði varað
bæjarstjóm-
ina á ísafirði
við að endur-
reisa skíða-
svæðið á
Seljalands-
dal. Þær viðvaranir eru frá ár-
inu 1995 og voru ekki endur-
teknar í fréttaviðtali sem átt
var við sýslumann. Er beðist
velvirðingar á þessum mis-
skilningi.
Ólafur Helgi
Kjartansson.
TO.W.SBEKZ
Brotist var inn í úra- og gullsmíðaverslunina Jón og Óskar á Laugaveginum í fyrrinótt. Talsverðum verðmætum var
stolið úr giugga. Sá sem þarna var að verki braut gat í rúðuna og teygði sig síðan inn. DV-mynd Sveinn
„Stolni“ billinn reyndist á verkstæöi
DV, Dalvík:
Nú í vikunni var tilkynnt til lögregl-
unnar á Dalvík að bíl heföi verið stolið
í norðurbæ Dalvíkur. Lögreglan brá
skjótt við og hóf leit. Fór hún um allar
götur á Dalvík og inn á Árskógsströnd
og tilkynnti auk þess atburðinn til lög-
reglu á Akureyri og Ólafsfirði.
Þrátt fyrir víðtæka eftirgrennsl-
an spurðist ekkert til bílsins. Eig-
andi hafði beðið foður sinn, sem
var á leið til Akureyrar, aö svipast
um eftir bílnum. En áður en hann
fór af stað þurfti hann að koma við
á Vélaverkstæði Dalvíkur. Og viti
menn. Þar stóö bíllinn fyrir utan.
Eigandinn snaraði sér á verk-
stæðið og krafðist skýringa á vem
bílsins þar. Runnu þá tvær grímur
á starfsmenn. Tjáðu þeir eigandan-
um að um morguninn hefði verið
hringt og óskað eftir að sóttur yrði
straumlaus bíll í norðurhluta bæj-
arins og honum komið í ökuhæft
ástand. Þeir sóttu bílinn og fannst
reyndar undarlegt að hann skyldi
rjúka í gang.
En niður á verkstæðið var farið
þar sem skipt var um kerti og plat-
ínur og bíllinn yfirfarinn hátt og
lágt. Eigandi bílsins varð hálf-
klumsa við en það hýmaöi yfir hon-
um þegar honum var tjáð að hann
þyrfti ekkert að borga.
-HIÁ
Niðurskurður aukavinnu
hleypir illu blóði í lögguna
- lögreglufélagið krefst svara frá Georg Lárussyni varalögreglustjóra
„Sífelldar uppákomur hjá
Lögreglunni í Reykjavík á
undanfömum misserum
hafa ekki verið til þess falln-
ar að bæta starfsandann hjá
lögreglumönnum i Reykja-
vík. Hugsanlegur niður-
skurður á aukavinnu hjá
lögreglunni, vegna hins
mikla fjárhagsvanda sem við
er að glíma i dag, hefur
hleypt illu blóði í lögreglu-
menn, ekki síst vegna þess
hvernig hann er tilkominn,"
segir Óskar Bjartmarz, for-
maður Lögreglufélags
Reykjavíkur, í harðorðu bréfi til Ge-
orgs Kr. Lárussonar varalögreglu-
stjóra.
Lögreglumenn krefjast svara af
Georg Kr. Lárussyni vegna viðtals
við hann í DV 25. febrúar síöastlið-
inn, um 120 milljóna króna yfir-
keyrslu embættis Lögreglustjórans í
Reykjavik á síðasta ári. Þeir segja að
Georg hafi með orðum sínum valdið
úlfúð hjá lögreglumönnum
svo ekki sé meira sagt. Lög-
regluféjag Reykjavíkur
skrifaði. Georg bréf strax
daginn eftir, á laugardegi,
og vildi svör við tveim atriö-
um sem fram komu. Engin
svör hafa borist enn, þrem
vikum síðar.
„Hinn almenni lögreglu-
maður í Reykjavík kannast
ekki við „sjálfvirka út-
keyrslu aukavinnu“,“ segir
Óskar Bjartmarz í bréfi
sínu. Hann segir að Georg
skuldi þeim lögreglumönn-
um svar, „sem á síðasta ári stóðu í
ströngu niöri í miðbæ á helgamótt-
um, sem áttu ekki nema örfáa frí-
daga í hverjum mánuði meðan álag-
ið var sem mest á síðasta ári vegna
mannfæðar, sem með mikilli vinnu
og dugnaði héldu uppi öflugri lög-
gæslu í borginni, sem af mikilli ár-
vekni í starfi stuðluðu að fjölgun
upplýstra afbrota," eins og segir orð-
Óskar Bjart-
marz, formaður
Lögreglufélags
Reykjavíkur,
stór orð.
rétt i bréfi Óskars.
Óskar segir það vekja furðu sína
að eftir að Ríkisendurskoðun
gerði úttekt á embættinu í maí í
fyrra, og uppgötvaði að þar vant-
aði 115 milljónir í reksturinn, að
þá virðist ekki hafa veriö tekið til-
lit til launahækkana og ógreiddra
reikninga frá fyrra ári og fleiri at-
riða. Óskar segir að þegar umræddar
115 milljónir hafi borist frá ríkis-
sjóði, þá hafi Georg sagt sjálfur að
fjárhagsvandi emb-
ættisins væri leyst-
ur. „Aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra,
sem á þessum tíma
var eins og „grár
köttur" á lögreglu-
stöðinni nær dag-
lega, hafði uppi stærri orð um sama
efni sem ekki verða eftir honum höfð
hér.“ Óskar spyr varalögreglustjór-
ann hvort Georg hafi í maí í fyrra
verið að blekkja lögreglumenn
þegar hann fullyrti að fjárhags-
Georg Kr.
Lárusson, vara
lögreglustjóri,
þarf að svara
sínum mönn-
um.
vandinn væri
að baki, eða
hvort
honum
öðr-
um hafi
orðið á í
messunni,
til dæmis í
bókhaldi
embættisins.
-JBP
Stuttar fréttir ðv
Kveikt í skúr
Eldur kom upp í „bílskúrsræfli",
eins og lögreglan í Hafnarfirði orðaði
það, við Álftanesveg seint í gærkvöld.
Slökkviliði tókst allgreiðlega að
slökkva eldinn. Talið er víst að kveikt
hafi verið í. Vísir is. sagði frá.
Arnþrúður ekki með
Amþrúður
Karlsdóttir, vara-
þingmaður Fram-
sóknarflokksins í
Reykjavik, hafhaði
í gærkvöld áskorun
Fijálslynda "flokks-
ins um að leiða list-
ann á Norðurlandi eystra fyrir al-
þingiskosningarnar í vor. RÚV
greindi frá.
Laun lægri á Akureyri
Akureyringum hefúr fækkað að und-
anfómu og laun þar eru allt að 15%
lægri en í Reykjavík. Þetta kom fram á
fundi á atvinnumálanefndar á Akur-
eyri í gær. Sjónvarpið greindi frá.
Burt með styrkina
ísland lagði í gær fram yfirlýsingu
um umhverfislegan og viðskiptalegan
ávinning af því að afnema ríkisstyrki
í sjávarútvegi á ráðstefnu alþjóðavið-
skiptastofiiunarinnar WTO í Genf.
Sjónvarpið sagði frá.
Vilja endurbyggja
Áhugamenn um skíðaiðkun á Isa-
firði sem reistu skíðalyftur á Selja-
landsdal í sjálfboðavinnu vilja end-
urreisa þær. Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri á ísafirði, segir að menn
muni gefa sér góðan tíma áður en
ákvárðanir verða teknar um framtíð
skíðasvæðisins á Seljalandsdal. Stöð
2 sagði frá.
Á móti mismunun
54% þeirra sem þátt tóku í at-
kvæðagreiðslu á Vísi.is vora and-
snúnir því að fólk á landsbyggðinni
greiddi lægri skatta og að afborgan-
ir þess af námslánum yrðu minni.
Yfir 4000 greiddu atkvæði. Einungis
eitt atkvæði er talið frá hverri tölvu
í atkvæðagreiðslu á Vísi.is.
Kjósendur blekktir
Alls engra breyt-
inga er að vænta í
stjóm fiskveiða
nema kvótaflokk-
amir sem fara með
ríkisvaldið fái að-
vöran sem þeir
skilja t kosningun-
um i vor. Ályktun landsfúndar SjáJf-
stæðisflokks sé umbúðir ætlaðar til
að blekkja kjósendur, segir i yfirlýs-
ingu frá flokki Sverris Hermannsson-
ar, Frjálslynda flokknum.
Háskóli á Hvanneyri
Bændaskólanum á Hvanneyri
verður breytt í landbúnaðarháskóla
samkvæmt lögum sem samþykkt
vora á Alþingi rétt fyrir þingfrestun.
Samkvæmt þeim verður boðið upp á
almennt búnaðamám við skólann
en meginhlutverk hans verður að
útskrifa fólk með BS, MS, eða dokt-
orsmenntagráður. RÚV greindi frá.
Aöstoð viö fórnarlömb
Rauði kross íslands hefúr sent 25
milljónir króna til starfs Alþjóða
Rauða krossins í þágu fórnarlamba
jarðsprengna í írak og Bosníu. Þá er
ætlunin að verja 60 milljónum á
næstu íjóram áram til að byggja
heilsugæslustöðvar í Mósambík í
samvinnu við Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands.
Byggt viö háskóla
Bjöm Bjamason
menntamálaráð-
herra, Geir H.
Haarde fjármála-
ráðherra og Þor-
steinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á
Akureyri, undirrit-
uðu í gær sam-
komulag um flármögnun bygginga-
framkvæmda við skólann fyrir 400
milljónir króna næstu fjögur árin.
Morgunblaðið greindi frá.
Óku greitt
Lögreglan í Kópavogi stöðvaði í
gærkvöld og nótt 11 ökumenn fyrir of
hraðan akstur, þeirra á meðal fimmt-
án ára pilt sem hafði tekið fjölskyldu-
bilinn ófijálsri hendi. Morgunblaðið
greindi frá. -SÁ