Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999
23
- Nicolas Anelka - stjarna fyrsta áratugar 21. aldarinnar?
Hann varð tvítugur á sunnudag-
inn. Samt hafa fáir knattspyrnu-
menn afrekað það á öllum sínum
ferli sem hinn franski Nicolas An-
elka á þegar að baki.
Nicolas Anelka er helsti marka-
skorari eins frægasta knattspyrnu-
félags heims, Arsenal. Hann er Eng-
landsmeistari og bikarmeistari með
félaginu, skoraði í bikarúrslita-
leiknum síðasta vor, hefur unnið
sér sæti í fremstu víglínu hjá heims-
meistaraliði Frakka og skorað tvö
mörk gegn Englendingum á sjálfum
Wembley-leikvanginum í London.
Anelka er í hópi markahæstu
manna í ensku A-deildinni og er lík-
legur til að halda sér þar út þetta
tímabil. Framtíðin er björt,
hans frægðarsól ætti að
skína skærast á
fyrsta áratug
nýrrar aldar.
„Skjótari
en
inn
unum sagðist hann ekki eiga neina
vini og eftir æfingar færi hann bara
heim og hlustaði á tónlist. Hann
keypti sér íbúð í Norður-London og
býr þar ásamt Claude bróður sín-
um, sem einnig er umboðsmaður
hans.
Þarf að hlaupa eins og
hundur
Þá hafa ummæli hans um hina
hollensku félaga sína, Dennis Berg-
kamp og Marc Overmars, verið
gripin á lofti en hann hefur sakað
þá um að gefa ekki á sig boltann.
Um Overmars sagði Anelka
fyrir skömmu að hann gæfi
bara á sig sendingar þar
sem
hann þyrfti að hlaupa eins og hund-
ur um allan völl.
En innan vallar hefur Anelka lát-
ið verkin tala. Hann hefur hlaupið
eins og hundur á eftir sendingunum
frá Overmars og skorað hvert glæsi-
markið á fætur öðru. Hraði hans og
útsjónarsemi eru með ólíkindum og
þessi piltur hefur burði til að verða
einn sá allra besti í sinni stöðu.
Erfiðustu tímarnir að baki,
segir Bergkamp
Dennis Bergkamp er á því að erf-
iðustu tímamir séu að baki hjá An-
elka. „Hann er enn mjög ung-
ur. Hann leikur listir sínar á
einu stærsta leiksviði
heimsins, flarri heim-
kynnum sínum, og gerir
það mjög gott. Hann nýtir
fleiri færi en i fyrra, og
skorar mikilvæg mörk á
mikilvægum augnablikum."
Michel Hidalgo, fyrrum
landsliðsþjálfari, sagði eftir leik-
inn við England að Frakkar
væru búnir að leysa
sóknarvandræði sín fyr-
ir næsta áratuginn.
Fékk gæsahúð á
Wembley
Raymond Kopa,
einn frægasti knatt-
spyrnumaður Frakka
og stjarna í bronsliði
þeirra á HM 1958,
sagði á sama tíma:
„Ég fékk gæsahúð
þegar ég fylgdist með
honum á Wembley. Um
langt árabil hefur okk-
ur vantað sóknarmenn
í hæsta gæðaflokki.
Guði sé lof að við höf-
um fengið Anelka. Nú
er Frakkland með full-
komið landslið."
att viö AneiKa.
Því fengu varnar-
menn íslenska 21-árs
landsliðsins að kynn-
ast á Akranesi síð-
asta haust þegar An-
elka var gabbaði tvo
þeirra með einni
hreyfingu og skoraði
fallegt mark.
Heimþrá og
klaufaleg ummæli
Það hefur ekki verið
hljótt um þennan franska
pilt á Highbury því hvað
eftir annað hafa komið upp
sögur um að hann þjáist af
heimþrá og að honum lyndi
ekki við aðra leikmenn liðsins.
Anelka hefur verið klaufalegur í
samskiptum sínum við fjölmiðla og
sagt ýmislegt sem hann hefði betur
átt með sjálfum sér. Þar af leiðandi
hafa komið upp vangaveltur um að
hann sé að fara hingað og þangað.
Einn daginn er hann á leið til Spán-
ar, þann næsta er allt
í góðu gengi og
hann segist
ætla að
ljúka
fjög-
Þurfti stundum að
hasta á hann
Það hefur lengi verið
ljóst að Anelka
ætti framtíð
fyrir sér í
knatt-
spyrnunni.
Það sást strax þegar hann lék sér
með bolta á götum Trappes, út-
hverfis Parísar-borgar. Andre
Merelle, þjálfari hans hjá unglinga-
liðinu Clairefontaine, sagði strax
fyrir nokkrum árum:
„Stundum þarf að hasta á hann til
að hann sýni alla sína snilli. Hæfi-
leikar hans eru ótakmarkaðir, hann
hefur hraðann, kraftinn og tækn-
ina.“
Wenger storkaði franska
kerfinu
Arsene Wenger, hinn franski
framkvæmdastjóri Arsenal, aflaði
sér ekki vinsælda í heimalandi sínu
þegar hann samdi við Anelka í febr-
úar fyrir tveimur árum. Hann braut
franskar reglur sem kveða á um að
ungir leikmenn skuli skrifa undir
sinn fyrsta atvinnusamning við það
félag sem ól þá upp. Wenger taldi
hins vegar að þessar reglur brytu í
bága við Bosman-dóminn, sem
heimilar leikmönnum að fara
óhindrað á milli landa innan Evr-
ópubandalagsins.
Anelka var í unglingaliði Paris
St. Germain og hafði fengið eitt og
eitt tækifæri sem varamaður með
aðalliðinu, en ekki meira en það.
Hann var óánægður með sinn hlut
hjá félaginu, hafnaði því að skrifa
undir atvinnusamning og vildi fara
til Arsenal þegar það bauðst. Að
lokum gaf Paris SG eftir, Arsenal
greiddi franska félaginu umsamdar
skaðabætur og komst hjá málaferl-
um.
Ruddi brautina fyrir fleiri
unga Frakka
Anelka var ánægður, Wenger var
ánægður, en eftir sátu Frakkar og
máttu horfa á marga af sínum efni-
legustu leikmönnum streyma úr
landi í kjölfarið. Ungir franskir
knattspymumenn hafa íjölmennt til
ftalíu og Englands, og Arsenal bætti
síðan gráu ofan á svart i samskipt-
um sínum við Frakkana á síðasta
ári með því að semja við 15 ára
franskan pilt, Jeremie Aliadiere, til
sjö ára. Hvort þar er annar Anelka
á ferð verður tíminn að leiða i ljós.
-VS
ingi sínum hjá
Arsenal.
Einmana
eftir æfingar
Anelka viður-
kennir að hann sé oft
einmana í London. Á dög-
Nicolas Anelka hefur gert það gott,
bæði í búningi Arsenal og í franska
landsliðsbúningnum. Hann varð tvítug-
ur á sunnudaginn og framtíðin virðist
björt. Reuter
íþróttir
Eí*r' ÍNGlflHD
A-deild:
Manch.Utd 29 17 9 3 65-30 60
Arsenal 29 15 11 3 40-13 56
Chelsea 28 14 11 3 41-23 53
Leeds 29 14 9 6 45-26 51
Aston ViDa 29 12 8 9 39-34 44
Derby 29 11 11 7 31-28 44
West Ham 29 12 7 10 32-39 43
Wimbledon 29 10 10 9 33-41 40
Liverpool 28 11 6 11 52-37 39
Tottenham 29 9 12 8 34-34 39
Newcastle 29 10 8 11 38-39 38
Middlesbro 28 8 12 8 37-39 36
Sheff.Wed. 29 10 5 14 35-32 35
Leicester 28 8 10 10 28-37 34
Coventry 29 8 7 14 31-40 31
Everton 29 7 10 12 22-32 31
Charlton 29 6 10 13 33-40 28
Blackbum 29 6 9 14 29-41 27
Southampt. 29 7 5 17 27-56 26
Nott.For. 29 4 8 17 26-57 20
Markahæstir:
Michael Owen, Liverpool........16
Dwight Yorke, Manch.Utd........16
Andy Cole, Manch.Utd...........15
Nicolas Anelka, Arsenal .......13
Dion Dublin, Aston Villa.......13
Jimmu Floyd Hasselbaink, Leeds 13
Robbie Fowler, Liverpool ......12
Hamilton Ricard, Middlesbro .... 11
Dennis Bergkamp, Arsenal ......10 »
Marcus Gayle, Wimbledon........10
Alan Shearer, Newcastle........10
Ole Gunnar Solskjær, Man.Utd . . 10
Gianfranco Zola, Chelsea.......10
Laugardagur 20. mars:
Arsenal-Coventry
Blackburn-W imbledon
Leeds-Derby
Nottingham For.-Middlesbrough
Southampton-Sheflield Wed.
West Ham-Newcastle
Sunnudagur 21. mars:
Aston Villa-Chelsea
Manchester United-Everton
B-deild
Sunderland 37 24 10 3 71-22 82
Ipswich 37 21 7 9 53-25 70
Bradford 36 20 7 9 63-36 67
Birmingh. 37 19 10 8 58-30 67
Bolton 36 17 13 6 67-47 64
Wolves 35 15 10 10 50-35 55
Watford 37 14 12 11 51-50 54
WBA 37 15 8 14 61-58 53
Sheff.Utd 36 14 11 11 57-54 53
Huddersf. 37 14 11 12 53-59 53
Grimsby 33 14 7 12 34-36 49
Norwich 36 12 12 12 50-51 48
Cr.Palace 37 11 13 13 49-58 46
Tranmere 37 10 15 12 50-51 45
Stockport 37 10 14 13 43-47 44
Portsmouth 37 10 12 15 49-57 42
Barnsley 36 9 15 12 42-43 42
Swindon 37 10 10 17 51-63 40
QPR 36 9 10 17 37-47 37
Port Vale 35 10 5 20 38-64 35
Oxford 37 8 11 18 36-59 35
Bury 36 7 13 16 29-51 34
Bristol C. 35 5 14 16 43-65 29
Crewe 34 7 8 19 40-67 29
Markahæstir:
Lee Hughes, WBA...............30
Marcus Stewart, Huddersfield ... 20
Lee Mills, Bradford...........20
Þriðjudagur 16. mars:
Bury-Wolves
Crewe-Grimsby
Laugardagur 20. mars:
Barnsley-Wolves
Bristol City-Bradford
Crewe-Oxford
Crystal Palace-Grimsby
Huddersfield-Birmingham
Norwich-Portsmouth
QPR-Swindon
Sheffield United-Port Vale
Stockport-Tranmere
Sunderland-Bolton
Watford-Bury
WBA-Ipswich
Barnsley og Tottenham mætast í 8-
liða úrslitum bikarkeppninnar í
kvöld.
Leicester og Tottenham mætast í úr-
slitaleik deildabikarsins sunnudag-
inn 21. mars.