Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Qupperneq 37
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999
37
Verk eftir Kristínu ísleifsdóttur.
Tákn og
tungumál
Nú standa jdir tvær sýningar í
Listasafni ASÍ. Myndlistarmenn-
imir Kristin ísleifsdóttir og Sigrid
Valtingojer sýna verk sín saman í
Ásmundarsal og í Gryfju Lista-
safns ASÍ við Freyjugötu.
Kveikjan að verkum Kristínar
eru málshættir sem hún flokkar
niður eftir orðum eöa inntaki og
veltir fyrir sér einkennum ís-
lenskrar kímni. Verkin eru unnin
í leir og málm og á þau er þrykkt
með silkiþrykkstækni.
Sýningar
Kristín hefur haldið nokkrar
einkasýningar á íslandi og i Jap-
an. Hún hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum erlendis, aðal-
lega á Norðurlöndunum og í Jap-
an. Kristín er stundakennari við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands.
Listakonan stundaði nám í
japönsku og hönnun í Japan og út-
skrifaðist 1979 sem hönnuður frá
Tokyo Designers College.
Sýningamar era opnar frá kl.
14-18 alla daga nema mánudaga
og lýkur þeim 28. mars.
Mót lands-
vinafélaga
Opinn fundur á vegum Vináttufé-
lags íslands og Kanada verður hald-
inn miðvikudaginn 17. mars kl.
20.30 í Norræna húsinu. Eftirfar-
andi tólf vináttufélög á Islandi við
önnur lönd munu kynna stefnur
sínar og starfsemi:
Norræna húsið, Norræna félagið
á íslandi, Vináttufélag íslands og
Kanada, Þjóðræknisfélag íslend-
inga, íslensk-ameriska félagið,
Grænlensk-íslenska vinafélagið
Kalak, Afliance Francaise, German-
ía, Grikklandsvinafélagið Hellas,
Dante Allighieri-stofnunin á íslandi,
Kínversk-íslenska vinafélagið og ís-
lenska-japanska félagið.
Samkomur
Eldri borgarar
í Garðabæ
Sóknamefnd Garðasóknar hefur í
samvinnu við Félag eldri borgara í
Garðabæ ákveðið aö hafa safnaðar-
heimilið Kirkjuhvol opið fyrir starf-
semi eldri borgara í bæjarfélaginu
og bjóða jafhframt upp á margs kon-
ar afþreyingu. Þama er um að ræða
aðstöðu fyrir boccia-spil, pútt,
bridge, vist og lomber.
Dagblöðin liggja frammi og er
heitt á könnunni.
Opið er mánudaga til fóstudaga
kl. 13-15. Ennfremur er sérstakur
tími fyrir boccia-spil með leiðbein-
anda alla fimmtudaga kl. 10-12.
Barn dagsins
í dálkinum Bam dagsins era
birtar myndir af ungbörnum.
Þeim sem hafa hug á að fá birta
mynd er bent á að senda hana í
pósti eða koma með myndina,
ásamt upplýsingum, á ritstjóm
DV, Þverholti 11, merkta Bam
dagsins. Ekki er síðra ef barnið á
myndinni er í fangi systur, bróður
eða foreldra. Myndir era endur-
sendar ef óskað er.
Hattur og Fattur
Loftkastalinn ftumsýnir
á miðvikudaginn Hatt og
Fatt, Nú er ég hissa, sem
er söngleikur fyrir hörn.
Hattur og Fattur eru
tveir grænir kallar sem
era svo fúrðulegir að fúll-
orðið fólk sem sér þá í
fyrsta skipti heldur að það
sé komið með slæma
flensu. Þeir koma frá
plánetunni Úridúx og eru
að kanna málin hér á jörð-
inni. Þeir geta ýmislegt
sem jarðarbúar geta ekki
svo sem að gera sig ósýni-
lega.
Leikhús
Guðmundur Ingi Þor-
valdsson leikur Hatt.
Hann útskrifaðist frá Leik-
listarskóla íslands í fyrra-
vor og fór m.a. með aðal-
hlutverk í spennumynd-
inni Sporlaust. Felix Bergsson leik-
ur Fatt. Felix er öllum krökkum að
góðu kunnur síðan hann var um-
sjónarmaður Stundarinnar okkar
auk þess sem hann var um tíma for-
söngvari Greifanna.
Valur Freyr Einarsson og Pálína
Hattur og Fattur. Ljósm. Ari Magg
Jónsdóttir leika systkinin Óla og
Rósu sem lenda í miklum ævintýr-
um í leikritinu. Davíð Þór Jónsson
leikur hrekkjusvínið Gumma. Stein-
unn Ólafsdóttir leikur mömmuna og
Sigurdór Heimir Albertsson leikur
pabbann.
Þórhallur Sigurðsson er leik-
stjóri, Vignir Jóhannsson hannar
leikmynd og búninga, Sigurvald
Helgason og Bjöm Helgason hanna
lýsingu, ívar Ragnarsson stýrir
hljóði og Kristín Thors (Systa) sér
um fórðun.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Veðríð í dag
Þykknarupp
á Norðurlandi
Næsta sólarhring verður hæg
austanátt og léttir til norðanlands
en þykknar smám saman upp sunn-
an til. í dag verður austankaldi og
slydda eða rigning með köflum
sunnanlands en allhvasst og rigning
eða súld í kvöld og nótt. Vaxandi
suðaustanátt og gert er ráð fyrir aö
þykkni upp á Norðurlandi í kvöld
og að í nótt verði dálítil snjókoma
með köflum. Veður fer hlýnandi.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austangola og léttskýjað en þykknar
smám saman upp. Síðdegis verður
dálítil slydda með köflum en í kvöld
og nótt verður suðaustankaldi og
rigning. Veður fer hlýnandi.
Sólarlag í Reykjavík: 19.30
Sólarupprás á morgun: 7.41
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.55
Árdegisflóð á morgun: 6.12
Akureyri alskýjaö -A
Bergsstaöir léttskýjaö -7
Bolungarvík léttskýjaó -5
Egilsstaðir -4
Kirkjubœjarkl. skýjaö 0
Keflavíkurflv. skýjaö 2
Raufarhöfn alskýjaö -3
Reykjavík skýjað -3
Stórhöföi skýjað 2
Bergen rigning og súld 4
Helsinki heiöskírt -10
Kaupmhöfn alskýjaö 1
Ósló snjókoma 0
Stokkhólmur 0
Þórshöfn alskýjaö 4
Þrándheimur skýjaö 4
Algarve hálfskýjaö 13
Amsterdam þoka í grennd 2
Barcelona léttskýjaó 11
Berlín rign. á síö. kls. 1
Chicago léttskýjaö 1
Dublin léttskýjaö 8
Halifax rigning 7
Frankfurt léttskýjaö 2
Glasgow súld 10
Hamborg þokumóöa 2
Jan Mayen kornsnjór -4
London léttskýjað 3
Lúxemborg léttskýjaö 3
Mallorca hálfskýjaó 13
Montreal léttskýjaó -4
Narssarssuaq skýjaö -5
New York heiöskírt 1
Orlando heiöskírt 8
París þokumóöa 4
Róm þokuruöningur 9
Vín rign. á síð. kls. 2
Washington léttskýjaö 2
Winnipeg heiöskírt -1
Ófært um
Breiðdalsheiði
Á Vestfjörðum er þæfingsfærð á Steingrímsfjarð-
arheiöi og einnig er þæfingsfærð á Brekknaheiði á
Norðausturlandi. Á Austurlandi er ófært um Breið-
Færð á vegum
dalsheiði. Að öðra leyti era vegir færir en allvíða
er talsverð hálka.
Systir Silju og
Sunnu Rutar
Þessi myndarlega
stúlka fæddist á Landspít-
alanum 6. desember kl.
20.45. Við fæðingu var
hún 4.110 grömm og 54
Barn dagsins
sentímetrar. Stúlkan hef-
ur fengið nafniö Dóra Líf.
Foreldrar hennar era
Adda Sigurjónsdóttir og
Garðar Halldórsson. Dóra
Líf á tvær systur, Silju, 16
ára, og Sunnu Rut, 7 ára.
Fjölskyldan býr í Kópa-
vogi.
Grísinn Babe lendir í hinum ýmsu
ævintýrum.
Babe
Babe: Pig in the City er fram-
hald myndarinnar Babe þar sem
grísinn vildi verða fjárhundur. I
nýju myndinni verður Babe óvilj-
andi valdur að því að húsbóndi
hans slasast og verður óvinnufær.
Reikningamir hlaðast upp og frú
Hogget ákveður að fara þá leið að
lána Babe í sirkus. Tvíeykið verð-
ur strandaglópar á leiðinni og fær
inni á hóteli þar sem dýr era
meirihluti hótelgesta.
Babe kynnist hinu miskunnar-
lausa lífi stórborgarinnar þar sem
hver er sjálfum sér
_____22i_y///////z
Kvikmyndir
'ÉljjlÉ-
mennska hans á þó
eftir að gera hann að
foringja dýranna - með hjálp
grimmasta hunds sem Babe hefur
kynnst á sinni svínaævi.
Góðlega svínið lendir í hinum
ýmsu ævintýrum á meöan kvik-
myndahúsagestir sitja i sætum
sínum.
George Miller er leikstjóri. Að-
alhlutverk eru i höndum Magda
Szubanski, James Cromwell,
Mary Stein og Mickey Rooney.
Nýlegar myndir:
Bíóhöllin: Patch Adams
Regnboginn: La vita e bella
Bíóborgin: Lock Stock and two
Smoking Barrels
Háskólabíó: Hillary and Jackie
Stjörnubíó: Divorcing Jack
Laugarásbíó: Patch Adams
Krossgátan
h 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11 12
13 14
15 16 17
18 19 20
21
Gengið
Almennt gengi Ll 16. 03. 1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 72,030 72,390 69,930
Pund 116,670 117,260 115,370
Kan. dollar 47,140 47,440 46,010
Dönsk kr. 10,5270 10,5850 10,7660
Norsk kr 9,1450 9,1950 9,3690
Sænsk kr. 8,7540 8,8020 9,0120
Fi. mark 13,1520 13,2310 13,4680
Fra. franki 11,9210 11,9930 12,2080
Belg. franki 1,9384 1,9501 1,9850
Sviss. franki 48,9400 49,2100 49,6400
Holl. gyllini 35,4800 35,7000 36,3400
Þýskt mark 39,9800 40,2200 40,9500
ít. lira 0,040390 0,04063 0,041360
Aust. sch. 5,6830 5,7170 5,8190
Port. escudo 0,3900 0,3924 0,3994
Spá. peseti 0,4700 0,4728 0,4813
Jap. yen 0,611300 0,61500 0,605200
Irskt pund 99,290 99,890 101,670
SDR 98,300000 98,89000 97,480000
EC0 78,2000 78,6700 80,0800
t
Lárétt: 1 skýr, 6 mynni, 8 hlaupa, 9
tryllt, 10 matarveisla, 11 tilkall, 13
prettar, 15 þræta, 17 spil, 18 hand-
legg, 20 bilun, 21 þjáningar.
Lóðrétt: 1 undirfóral, 2 dánar, 3 óp,
4 vegg, 5 mánuður, 6 belti, 7 gim-
stein, 12 frjálsar, 13 hristingur, 14
karlmannsnafn, 16 skaut, 19 skóli.
Lausn á síðustu krossgát:
Lárétt: 1 heimild, 8 rið, 9 öður, 10
ótukt, 12 gó, 13 lurk, 14 aur, 16
freista, 19 linka, 20 róm, 21 nauð.
Lóðrétt: 1 Hrólfur, 2 eitur, 3 iður, 4
mökkinn, 5 ið, 6 lugu, 7 dró, 11
taska, 15 rauð, 17 eim, 18 tau, 19 ló.
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 „