Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1999, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
Fréttir
DV
Sjálfstæðismenn í borgarráði:
Spurt um
kostnað við
Japansför
Júlíus VífUl Ingvarsson borgar-
fulltrúi lagði fram fyrirspurn á
fundi borgarráðs í fyrradag fyrir
hönd sjálfstæðismanna um Japans-
ferð Ingibjargar Sólrúnar Gisladótt-
ur borgarstjóra, Alfreðs Þorsteins-
sonar, formanns stjómar Orkuveitu
Reykjavíkur, og fylgdarliðs nýlega.
Júlíus óskaði eftir upplýsingum um
heildarkostnað af ferðinni, sundur-
liðun á því hvemig sá kostnaður
skiptist upp í hótelkostnað, risnu-
kostnað og ferðakostnað og hvernig
greiðsla þessa kostnaöar skiptist
milli borgarsjóðs og
Orkuveitu Reykja-
víkur.
Júlíus Vífill
spurðist einnig fyr-
ir um kostnað
borgarinnar vegna
starfa verkfræð-
inga frá bresku
ráðgj afarfyrirtæki
að þróunaráætlun
fyrir miðborgina.
Upphaflega voru
greiddar 12 milljónir fyrir tiltekna
Júlíus Vífill
Ingvarsson.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri þegar hún lagði upp í fræga ferð
sem plönuð var af Mltshubishi.
vinnu en allt umfram það sam-
kvæmt reikningum, þannig að
heildarupphæðin mun vera tals-
vert hærri. „Vinnu þeirra lauk um
síðustu áramót og ég vil vita hver
niðurstaðan varð,“ sagði Júlíus í
samtali við DV.
-SÁ
Jóhann A. Jónsson:
Ánægður að
málinu er lokið
„Þótt samningurinn sýnist
rýr, er ég nokkuð ánægður með
að málinu er lokið, því ég sé
ekki hvenær við hefðum fengið
botn i málið ef það hefði ekki
gerst núna“ segir Jóhann A.
Jónsson útgerðarmaður á Þórs-
höfn um samninginn við rússa
og norðmenn um veiðarnar í
Barentshafi.
„Við höfum staðið frammi
fyrir því núna að semja eða
leggja málið á hilluna um ein-
hvem tíma. Sókn okkar t þers-
sar veiðar hefur farið minnk-
andi síðustu árin og það er
hætta á því að það heföi frekar
fjarað undan okkur en að staða
okkar þarna hefði styrkst.
Samningurinn sjálfur en
hinsvegar þannig að það virð-
ast allir óánægðir með hann.
Spumingin er bara sú hvort við
áttum einhverja möguleika á að
fara lengra í þessu máli. Það er
ekki einfalt að meta samning-
inn góðan eða slæman, en það
Jóhann A. Jónsson.
hefði heldur ekki veriö auðvelt
fyrir okkur að láta bara ráðast
með framhaldið" segir Jóhann.
-gk
Afmæli Vísis.is:
Allir vilja með
til London
Árið 1999 verður ferðaár hjá Elínu
Margréti Kristinsdóttur, 21 árs starfs-
manni á Grandaborg. Elín hafði þegar
keypt sér ferð til Benidorm hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn þegar hún
vann fjögurra daga ferð til London í
Afmælisveislu Vísis.is á Netinu. Elín
er mikili netverji, heimsækir Vísi
daglega og varla dregur úr þvi núna
þegar hún hefur dottið svona hressi-
lega í lukkupottinn. Aðspurð hverjum
hún hyggst bjóða með sér til London
segir Elín: „Það hafa allir sem ég hef
hitt boðist til að koma með mér, en ég
býst við að ég bjóði Agli,
kærasta mínum, með mér og að
við forum í skemmti- og versl-
unarferð til London í haust.“ í
gær var dregin út ferð til París-
ar og hlaut Heiða Óskarsdóttir
þann vinning. Alls hafa nú um
14000 manns komið í Vísisaf-
mælið, hver að jafnaði um
þrisvar og hálfu sinni, þannig
að skráningar ahs hafa verið
um 49.000. Vísisafmælið heldur
áfram til 21. apríl þegar upplýst
verður á Vísisvefnum hver
vinnur Daewoo Hurricane
sportbílinn. Billinn verður
dreginn út 20. april og verður að
taka þátt fyrir þann tíma tO að
eiga möguleika á að vinna
hann. Næsti ferðavinningur sem dreg-
inn verður út er til Punta Reina á
Mallorca og verður hann dreginn út
• 16. apríl.
Elín Margrét Kristinsdóttir vann ferð til
London í afmælisveislu Vísis.is. Á myndinni
afhendir starfsmaður Samvinnuferða-Land-
sýnar henni vinninginn.
Vitlausasta fólkið
Eitthvert gagnlegasta innleggið í --------
kosningabaráttuna fram að þessu eru
ummæli Guðmundar Ólafssonar, lekt-
ors í Háskólanum, þess efnis að i
Samfylkinguna hefði nú safnast sam-
an „allt vitlausasta fólkið í efnahags-
málum í landinu".
Þessu greindi lektorinn frá í sam-
tali við Sjónvarpið. Fyrir það fékk
hann að vísu ávítur frá yfirmönnum
sínum, en ummælin verða ekki aftur
tekin, enda hent á lofti, jafnt af Sam-
fylkingarmönnum sem andstæðing-
um þeirra.
Þetta mun áreiðanlega lífga upp á
annars afar daufa kosningabaráttu og
í staðinn fyrir að ræöa um landsins
gagn og nauðsynjar, eins og menn
neyðast stundum til í pólitík, gefst
frambjóðendum og flokkum færi á I
jiví aö hefja skarpa umræðu um jiað I
hvort Guömundur hafi rétt fyrir sér I
eða ekki.
Spurningin snýst nefnilega ekki I
um það hverjir hafa vitlegast til mál-
anna að leggja - heldur um hitt, hver sé vit-
lausastur þeirra sem gefa kost á sér.
Þeir hafa til að mynda deilt um það að undan-
fomu, Geir Haarde og Össur Skarphéðinsson,
hvort í viðskiptahallanum tifi tímasprengja og
hvort hallinn sé meiri eða minni. Geir segir að
Össur viti ekki hvað hann sé að tala um og Öss-
ur segir að fjármálaráðherrann sé svo vitlaus að
hann viti ekki einu sinni hve viðskiptahallinn sé
mikill.
Davíð Oddsson hræðist ekki samstjórn Sam-
fylkingar og Framsóknar vegna þess að efnahags-
tillögur Samfylkingarinnar eru svo vitlausar að
þær nái ekki nokkru tali. Þorsteinn Pálsson seg-
--------- ir að tillögur í efnahgsmálum frá
„gáfnaljósum" í Háskólanum séu svo
vitlausar að þær séu ekk einu sinni
svEma verðar. Og svo mætti áfram
telja.
Stjómmálabaráttan snýst um það
að segja kjósendum hver sé vitlausast-
ur og þessi sé vitlausari en hinn og sá
sem segir að aðrir séu vitlausir er síð-
an sakaður um að vera vitlaus í vit-
leysunni um að aðrh- séu vitlausari en
sá sem er vitlaus.
Og allt sem sagt er er vitlaust og nú
er sem sagt farið að mæla það í hóp-
um hverjir séu vitlausastir og lektor-
inn í Háskólanum hefur greinilega
reiknað það út að í Samfylkingunni sé
allt vitlausast fólkið.
Þetta er kannske of mikið sagt,
vegna þess að Dagfari hefur grun um
að í hinum flokkunum leynist nokkr-
ir sem séu að minnsta kosti jafn vit-
lausir og þeir vitlausu í Samfylking-
unni og svo má heldur ekki gleyma
----- kjósendum, sem eru áreiðanlega vit-
lausastir allra, þegar kemur að þvi að kjósa. Þeir
kjósa nefnilega alltaf vitlaust og kosningarnar
verða því ómark því það er vitlaust kosið og þeir
vitlausustu kosnir af því að það er vitlaust stillt
upp af vitlausu fólki sem hefur ekki áttað sig á
því hverjir eru vitlausastir.
Dagfari
Kall tímans
í ræðu Margrétar Frímannsdótt-
ur á stórfundi Samfylkingarinnar í
Háskólabíói talaði hún i löngu máli
um kall tímans." í auglýsingu sem
birt var í Mogganum
daginn eftir skoraði
Margrét Sjálfstæðis-
flokkinn á hólm og
enn var það undir
fyrirsögninni kali
tímans. í kjördæmi
Margrétar á Suður-
landi velta menn
vöngum yfir því
hver þessi kall sé
sem Margréti verður svo tíðrætt
um. Tæpast telja menn það geta verið
Jón Gunnar Ottósson, eiginmaður
Margrétar, sem þykir með unglegri
mönnum. Hafa menn helst komist að
þeirri niðurstöðu að „kall tímans"
hljóti að vera meðframbjóðandi henn-
ar, Lúðvik Bergvinsson....
Kjósið mig í fullt starf
Það vakti mikla athygli á framboðs-
fundi á Siglufirði á dögunum að Árni
Gunnarsson, 2. maður á hsta Fram-
sóknarflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra, marg-
sagði fundarmönnum
að ef þeir kysu Fram-
sóknarflokkinn væru
þeir að kjósa sig í
fullt starf á Alþingi
en ef þeir kysu Sjálf-
stæðisflokkinn
væru þeir að kjósa
Vilhjálm Egilsson
í hálft starf þar sem
hann sinnti öðru starfi jafnhliða þing-
mennsku. Ámi mun hafa lagt mikla
áherslu á að þingmannsstarfið væri
fullt starf en ekki hlutastarf. Þessi
framsetning Áma, og að vahö stæði
milli hans og Vilhjálms, þykir stað-
festa að framsóknarmenn séu ekki aht
of vissir um að halda tveimur mönn-
um í kjördæminu. Hins vegar er vitað
um svipaðan „titring" innan raða
sjálfstæðismanna ...
Upp til handa og fóta
Verið var að sýna nýja íslenska
Hummer-rútu í vikunni og var Finn-
ur Ingólfsson viðskiptaráðhema viö-
staddur. Átti að mynda ráðherrann
við jeppann. En
skyndilega varð að
gera hlé á
frumsýninguO. Tíð-
indamaður Sand-
korns á staðnum seg-
ir Finn hafa bmgð-
ist illa við þegar til
stóð að sefja stórt
merki frá Ailra-
handa hf. á bílinn.
Ástæðan er sögð sú aö einstaklingar
tengdir fyrirtækinu hefðu tengst mjög
Alfreð Þorsteinssyni í prófkjöri
framsóknarmanna á dögunum en þar
var mikið plottað og bandalög mynd-
uð. Segja menn þetta merki um að
ekki sé gróið um heilt milli þeirra fé-
laga eftir prófkjörsslaginn. Sú túlkun
hlaut síðan byr undir báða vængi þeg-
ar í ljós kom að Alfreð var víðs fjarri
þegar kosningamiðstöð Framsóknar á
Hverfisgötunni var vígð á laugardag...
Hjálpin niður
Uttekt Fókuss á sundlaugum höf-
uðborgarsvæðisins, undir fyrirsögn-
inni Siglingakort sundmannsins,
vakti mikla athygli. Þar vora sund-
laugarnar dæmdar
eins og veitingahús
eftir viðmóti starfs-
manna, búningsklef-
um, flottu kvenfólki,
pottaslúðri og
fleiru. Sundlaugar-
stjórinn í sundlaug
Seltjamarness var
svo ánægður með
að laugin sú skyldi fá hæstu
einkunn að opnan úr Fókusi var
römmuð inn í silfraðan ramma og
hengd upp á vegg þar sem áður vom
leiðbeiningar um hjálp í viðlögum.
Stendur sundlaugarstjórinn nú hróð-
ugur viö opnuna og sýnir gestum ...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @£f. is