Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1999, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1999, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m.-vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgalds. Meiri kjarni og minna hismi Auglýsingastríð kosningabaráttunnar fer seint og hægt af stað. Framsóknarflokkurinn þjófstartaði með hrinu um efndir fyrri kosningaloforða. Herferðin fór fyr- ir lítið, því að upp komst að forsendurnar voru falsaðar. Flokkurinn hafði breytt orðalagi gömlu loforðanna. Samfylkingin auglýsti, að frambjóðendur hennar væru góðir við börnin sín, sem sjálfsagt er fróðlegt, en kemur engum á óvart. Græna vinstrið hefur birt eina auglýs- ingu um röð fræðslufunda í umhverfismálum, svokallaða Græna smiðju, sem minnir á gömlu leshringina. Sjálfstæðisflokkurinn er í gömlum og grónum siðum eins og Græna vinstrið og birtir hefðbundnar auglýsing- ar um röð funda, þar sem fundarefnið er það, sem flokk- urinn leggur helzt til kosningabaráttunnar, Davíð Odds- son. Samt eru bara rúmar þrjár vikur til kosninga. Framsóknarflokkurinn er byrjaður á nýjum pakka af gaspri fyrir fávita. í þetta sinn felst innihaldið í kosn- ingaloforðum, þar sem Framsóknarflokkur næstu ríkis- stjómar lofar hátíðlega og lið fyrir lið að bæta fyrir brot Framsóknarflokksins í núverandi ríkisstjóm. Samkvæmt kenningunni um, að heimur versnandi fari, ætti Framsóknarflokkurinn að vera að moka inn fylgi út á mikil loforð og mikið hismi í kosningabarátt- unni. Kannanir sýna hins vegar, að enginn flokkur á við meira fylgistap að stríða en FramsóknarfLokkurinn. Kannski er ekki allt fengið með ímyndunarfræðingum og umbúðum. Ef til vill gagnast bezt að fara gömlu leið- irnar, senda mönnum stefnuskrár í pósti og auglýsa fundi um menn og fræðslu um málefni. Að minnsta kosti virðast ekki allir vera dottnir í poppað hismið. Ýmislegt á eftir að gerast á næstu þremur vikum. Óhjákvæmilegt er, að flokkarnir fari að herða róður og auka brambolt. Sú lýsing, sem hér að ofan hefur verið gefin af upphafi baráttunnar, þarf ekki að vera rétt lýs- ing á baráttunni allri, þegar upp er staðið. Athyglisvert er, að kosningabaráttan er sýnilegri í efn- isvali fjölmiðlanna en í auglýsingunum. Á vegum fjöl- miðla eru haldnir kosningafundir í ljósvakanum og birt- ar greinar um einstök kjördæmi, viðtöl við oddamenn framboðslista og sagt frá stefnumálum. Allt þetta efni fjölmiðlanna er undantekningarlaust undir óhlutdrægri ritstjórn og reynir að gera öllum jafn- hátt undir höfði. Það hjálpar kjósendum meira en auglýs- ingaefnið, sem sumpart kastar raunar ryki í augu þeirra. Lýðræðið virkar í fjölmiðlunum árið 1999. Hér í blaðinu höfum við fylgzt með ferðum frambjóð- enda og munum gera það áfram næstu vikur. í dag hefst úttekt á baráttu í einstökum kjördæmum með efni um Reykjanes og Norðurland eystra. Bein lína með odda- mönnum flokkanna hefst viku síðar í blaðinu. Eigin umfjöllun fjölmiðlanna um kosningarnar veitir auglýsingum stjórnmálaflokkanna aðhald. Erfitt er fyrir stjórnmálaflokka að halda úti skipulögðum blekkingum, sem stinga í stúf við heiðarlega efnismeðferð. Þannig stungu fjölmiðlar gat á sögufölsun Framsóknar. Ýmis teikn er um, að hefðbundnar kosningabombur ráðherra springi illa og jafnvel í höndum þeirra sjálfra. Margir kjósendur eru ekki ekki vitlausari en svo, að þeir sjá gegnum einkennilega tímasett upphlaup ráðherra, til dæmis í heilbrigðismálum og fiskveiðisamningum. Við getum raunar mælt eftir hlutfalli kjarna og hismis, málefna og blekkinga í kosningabaráttunni, hvort þjóðinni hefur miðað fram eftir vegi í þroska. Jónas Kristjánsson Kári Stefánsson og iæknar funda. - „Af hverju efnum við ekki til raunverulegra frjálsra viðskipta? Þá gæti Kári boðið í genin mín í kapp við aðra. Og arðurinn fer til þess sem á verðmætin mín.“ Tvíburar allra landa, sameinist! in á að Kári á að fá mestu verðmætin gef- ins. Það á ekki að borga fyrir heilsufarsupplýs- ingar þjóðarinnar. Rík- isstjórnin ætlar að gefa Kára genin okkar. Gjafmildi ráðherra Það verður ekki tölum talið hve örlátir ráð- herrar okkar eru. Þeir eru jólasveinar einn og níu. Þeir hafa allt þetta kjörtímabil gefið ríkis- fyrirtæki í stórum stíl, næst á dagskrá er Landssíminn. Ráðherr- unum íinnst gaman að gefa. Og vegna þess að þeir trúa á einkafram- — „ Við lifum í markaðssamfélagi, eins og kemur fram í stöðugum hlutabréfafréttum. En því miður fá bara sumir að vera með, aðrir ekki. Lítil athygli hefur verið vakin á að Kári á að fá mestu verðmætin gefins. Það á ekki að borga fyrir heilsufarsupplýsingar þjóðarinnar. Kjallarinn Ármann Jakobsson íslenskufræðingur Það er sérstakt hvernig íslenskum umræðum tekst að snúast alltaf um keisarans skegg. Dæmi um það er sápuóperan um miðlæga gagna- grunninn sem nú er orðin íslensk lög. Um þetta hefur verið skrifaður fjöldi greina. Deilt hefur verið um dulkóðun og per- sónuvernd og mannréttindi geð- sjúkra og þar fram eftir götunum. Aðalatriði máls- ins hefur hlotið minni umfjöllun, sú staðreynd að nú eru sjúkdómar orðnir að féþúfu. Búið er að mynda hlutabréf um krankleika manna og kvilla. Kári og félagar ætla að verða milljónerar á því að rannsaka mein manna. Það er mikil nýjung sem hefur ekki ver- ið rædd sem skyldi. Okkar þjóðfélag er einsýnissamfélag. Stöðugt fjölg- ar sjálfsögðum sannindum, æ færri skoðanir eru leyfðar. Mál eru einfaldlega tekin af dagskrá, sett i bann. Og ein af þessum bönnuðu skoðunum er að ekki megi búa til stórgróðafyrirtæki um lækningar og vísindi. Við lifum í markaðssamfélagi, eins og kemur fram í stöðugum hlutabréfafréttum. En þvi miður fá bara sumir að vera með, aðrir ekki. Lítil athygli hefur verið vak- takið fær það aðalgjaflrnar. Halli í Andra lenti i jólakettinum þegar Síldarverksmiðjurnar voru gefn- ar. Nú fær hann áburðarverk- smiðju í staðinn. Kári fær heil lög og sjúkrasögurnar okkar í kaup- bæti. Eru þetta eðlileg viðskipti? Eiga viðskipti ekki að snúast um kaup og sölu frekar en gjafir? Hvað með eigendur genanna? Hvað fáum við sem eigum genin? Nú er ég tví- buri og genin mín örugglega mik- ils virði fyrir Kára. Og talsvert um ættgenga sjúkdóma í ætt minni. Af hverju efnum við ekki til raunverulegra frjálsra við- skipta? Þá gæti Kári boðið í genin mín í kapp við aðra. Og arðurinn fer til þess sem á verðmætin mín. Komum sjúkdómum í verð! Þeir sem hafa verið mest veikir hafa hjálpað læknavísindum mest. Á þeim hafa verið gerðar til- raunir, þeir hafa prófað lyfln. Þeir hafa lagt til sjúkrasögur og blóð- sýni og alls kyns vísindaleg gögn. Þetta hafa þeir gert ókeypis, vegna þess að tilgangurinn var sá eirnrað finna lækningu. Það var áður en læknavísindi urðu hluta- félög. Áður en menn ætiuðu að græða á annarra manna genum. Því var eitt sinn lofað að sælir væru hógværir og myndu landið erfa! Það skyldi þó ekki vera að sú tíð sé runnin upp? Sjúkdómar okkar voru eitt sinn aðeins bölv- un og óþægindi. Er ekki kominn tími til að koma þeim i verð? Það eru víst engin lagaákvæði gegn örlæti ráðherra. Ráðherrar hafa eflaust endalausan rétt tU þess að gefa eignir skattborgar- anna og genin þeirra með, tU að koma hjólum atvinnulífsins af stað. En ef ráðherrarnir vilja koma hér á raunverulegum einkabisness ættu þeir að hætta þessari gjafastefnu og fara að selja. Ef mín gen eru verðmæti krefst ég hluta af. Ég vU ekki vera með í þeim gagnagrunni ókeypis. Og ég hvet alla tU að segja sig frá, sér- staklega tvíbura og þá sem bera áhugaverða arfgenga sjúkdóma. Látið hryggð ykkar snúast í fagn- að og seljið genin ykkar tU dr. Kára. Tvíburar aUra landa, sam- einist! Ármann Jakobsson Skoðanir annarra Anarkistar „Anarkistaforinginn reyndist vera snyrtUegur lag- legur KFUM drengur, sem virtist í öUum aðalatrið- um á sama máli og Finnur Ingólfsson og hinir í Húmanistaflokknum! Hann var hvorki með vélbyssu undir borðinu né tattó í andlitinu. Hann var ekki einu sinni með spreybrúsa til að búa tU smá grafflti í beinni. Það þaif mikið tU að láta Anarkistafélagið í MH, virka hörkulegt." Garri í Degi 14. apríl Rafrænt afgreiðslukerfi „Ætla má að þessar og aðrar tækninýjungar, sem eru að ryðja sér tU rúms í fjármálaþjónustu séu und- anfari byltingar á þessu sviði. Augljóst er að í þess- ari tækni felst stórkostleg hagfæðing í bankastarf- semi. Smátt og smátt mun starfsfólki fækka og fjár- málastofnanir munu ekki þurfa jafn mikið húsnæði undir sína starfsemi og nú.“ Úr forystugreinum Morgunblaðsins 14. apríl Klámmyndbönd „Þarna eru því tveir hópar manna í þjóðfélaginu sem gera fátt annað en neyta skaðlegs myndefnis, Hið alvarlega er auðvitað að annar hópurinn er lög- reglan sjálf sem á að vernda almúgamanninn fyrir þeim sem orðnir eru skaðlegir umhverfl sínu, m.a. vegna ytra áreitis eins og myndbandagláps. En hver verndar lýðinn ef lögreglan missir stjórn á sér eftir myndbandaglápið? Hlýtur ekki skálmöld að renna upp á íslandi í kjölfar þessa hræðUega myndbanda- máls?“ Úr Vefþjóðbviljanum 14. apríl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.