Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1999, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1999, Blaðsíða 54
36 ;> myndbönd LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 Í IV V > > s MYNDBWA LlJllljJjJ J jJJ % Kissed: Mp' i Hinn guðdómlegi koss WSSED Það era ekki margir kvikmyndagerðarmenn sem velja náriðla sem umfiöllunarefni í kvikmyndir sínar og sjálfsagt enginn sem hefúr dottið í hug að nálgast viðfangsefnið á þann hátt sem Lynne Stopkowich gerir í mynd sinni, Kissed, sem er byggð á bók eftir Barböru Gowdy. Sandra hefur verið heilluð af dauðanum frá þvi á bamsaldri. Hún fær vinnu á útfararstofu og lærir að smyija lik. Þar með gefst henni einnig tæki- færi til að fá útrás fyrir sínar ýtrustu þrár sem er að njóta ásta með likum ungra karlmanna. Hún kynnist síðan og stofnar til ástarsambands með læknanema. Hún er eiginlega hálfvolg í sambandinu en læknaneminn fær ástríður hennar á heilann og sekkur æ dýpra í þráhyggju og örvæntingu. Athafhir Söndru með líkunum eru aldrei túlkaðar á neikvæðan hátt held- ur sem eitthvað ólýsanlega gott og göfugt, nánast guðdómlegt. Þráhyggja læknanemans er hins vegar óheilbrigð, eins konar vanhelgun, og leiðir til nauðsynlegrar og fyrirsjáanlegrar tortímingar hans. Þrátt fyrir viðfangsefn- ið er myndin aldrei óþægileg á að horfa. Framsetningin er hæglát og ljóð- ræn án þess að vera langdregin og það verður að telja 75 mínútna lengd hennar í meira lagi hóflega. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Lynne Stopkowich. Aðalhlutverk: Molly Parker og Peter Outerbridge. Bandarísk, 1997. Lengd: 75 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ The Spanish Prisoner: Fangi eigin sögufléttu Joe Ross (Campbell Scott) er skarpur uppfinn- ingamaður sem á eftir að skapa fyrirtækinu sem hann vinnur hjá fúlgur fjár. Það gerir þó ekki vel við hann og þegar hann kynnist viðskiptajöfrinum Jimmy Dell (Steve Martin) ákveður hann að bjóða því birginn með aðstoð hans. Áður en tii þess kemur fær hann efasemdir um heiðarleika Jimmys og leit- ar því til bandarísku alríkislögregiimnar. Spuming- in er hvort Joe hefur roð við bragðarefnum Jimmy. Þetta er ein þeirra mynda sem ganga út á óvænta en þrælskipulagða fléttu. Hún virðist skotheld framan af og birtist í óvenju raunsærri umgjörð sem reynist þó bara yfirskin er á líður. Fléttan verður langsóttari með hverri mín- útu og í lokin verður hún að reiða sig bæði á hefðbundnar og afkáralegar leið- ir til að ljúka myndinni. Það sem á að vera helsti kostur myndarinnar er því í ákveðnmn skilningi einnig Akkilesarhæli hennar. Atburðarásin ætti þó að halda áhorfendum við efnið og finn leikarahópur skilar sínu þótt ekki séu nú ailar persónumar sannfærandi. Það er vonandi að myndin hleypi nýju blóði í feril Steves Martins sem var strandaður í blindgötu lítt skemmtilegra gam- anmynda. Sjálf myndin er ekki í ósvipaðri aðstöðu og Joe, bæði eiga í vand- ræðum með að leysa úr þeirri fléttu sem þau hafa komið sér í. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: David Mamet. Aðalhlutverk: Campbell Scott og Steve Martin. Bandarisk, 1997. Lengd: 110 mín. Öllum leyfð. -bæn Eve's Bayou: Pabbastelpa með skyggnigáfu * Kasi Lemmons er leikkona sem hefur ekki náð að slá í gegn þótt hún hafi fengið aukahlutverk í ein- hverjum myndum, þ. á m. The Silence of the Lambs. Hún reynir hér fyrir sér hinum megin við kvik- myndavélina, skrifar handritið og leikstýrir sinni fyrstu mynd, Eve’s Bayou. Myndin segir frá svartri efri m i östéttarfj ölskyldu og gerist sumarið 1962. Hin 10 ára gamla Eve dýrkar foður sinn en verður fyr- ir áfalli þegar hún stendur hann að framhjáhaldi. Smám saman koma í ljós dökku hliðamar á foður hennar jafhframt því sem hún þróar með sér skyggnigáfú. Þetta er ansi öflug saga sem Kasi Lemmons hefur í höndunum, saga sem býður upp á mikla möguleika á að spinna úr þáttum eins og framhjáhaldi, leyndarmálum og dularfullri mystík. Því miður kann hún sér ekki hóf og týnir sér í melódramatík og stílbrögðum sem missa marks. Frábær leikhóp- ur, þar sem allir ná að skapa sterkar og skýrar persónur, breytir því ekki að myndin er löng, langdregin og leiðinleg. Þegar titlamir fóra að rúila í lokin var ég dauðfeginn að þessu var loksins lokið. Kasi Lemmons hefur þar með tekist að eyðileggja mynd sem hafði allt til að bera til að verða sterkt og óvægið drama. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Kasi Lemmons. Aöalhlutverk: Samuel L. Jackson og Lynn Whitfield. Bandarísk, 1997. Lengd: 103 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ The Real Blonde: Kostulegt persónugallerí ~'J|| **★* Joe (Matthew Modine) er alvarlega þenkjandi leikari sem á litla framavon. Hann starfar ásamt fé- laga sínum Bob (Maxwell Caulfield) við framreiðslu- störf undir stjóm hins sérvitra Emst (Christopher Ll- oyd). Joe þykir sem hann sé kominn á botninn þegar Bob fær vel launað starf við sápuópera. Þar kemst Bob heldur betur í feitt þar sem mótleikonan er alvöra ljóska (Daryl Hannáh), en slíkan kvenkost hefur hann lengi þráð. Joe og kærasta hans til margra ára, Mary (Catherine Keener), eiga aftur á móti í nokkram samskiptaörðugleikum. Joe verður hreinlega að taka sig á ef ekki á allt að fara til andskotans. Þrátt fyrir ótrúlegan fjölda skemmtilegra persóna verður myndin aldrei samhengislaus. Tom DiCUlio, handritshöfundi og leiksfjóra, tekst af stakri snilld að þræða áhorfendur á milli ólíkra sviðsetninga. Allt útlit myndarinn- ar er með eindæmum vel útfært sem og þrælíyndnar og áhugaverðar sam- ræður. Þrátt fyrir styrk satírunnar verður myndin aldrei köld heldur hvíl- ir einhvers slags væntmnþykja yfir öllu saman. Þótt leikarahópurinn virki á yfirborðinu misjafn að gæðum tekst Tom að virkja hann af slíkum krafti að annað eins persónugallerí hefur ekki sést síðan í Short Cuts og Pulp Fict- ion. Besta mynd sem komið hefur á leigumar í langan tíma. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Tom DiCillio. Aðalhlutverk: Matthew Modine, Catherine Keener, Daryl Hannah, Maxwell Caulfield, Elizabeth Berkley, Christopher Llyod og Kathleen Turner. Bandarísk, 1997. Lengd: 101 mín. Öllum leyfð. -bæn Eðli og þróun samsærismynda Það sem gerir samsærismyndir áhugaverðari en ýmsar aðrar kvik- myndategundir eru hin sérstöku tengsl raunveruleika og skáldskap- ar sem móta þær. Oftar en ekki byggja þær (beint eða óbeint) á at- burðum er áttu sér stað í raun og veru og búa yfir mikilvægu póli- tísku vægi. Það er allt annað en auðvelt að stimpla myndir sem fialla t.d. um mögulegt launmorð á John F. Kennedy sem innihalds- lausa afþreyingu. Frumkvöðullinn John Frankenheimer er án nokk- urs vafa lykilmaður í tilurð tegund- arinnar. Hann gerði The Manchuri- an Candidate 1962 sem fiallaði um tilraun kommúnista til að ráða verðandi forseta af dögum. Það sem hefur þó gert myndina ódauðlega umfram annað er morðið á Kennedy 22. nóvember 1963, þar sem því svip- ar mjög til tilræðisins í myndinni sem var snarlega tekin úr umferð. Myndin varð nokkurs konar goð- sögn sem einungis útvaldir höföu barið augum þar til hún var loks tekin til endursýninga árið 1987. Hún hafði alls óafvitandi gert Kenn- edy-morðið að lykilþema samsæris- mynda. The Manchurian Candidate lagði fléttugrunn tegundarinnar en með Seven Days in May (1964) fullkomn- aði Frankenheimer lykilinntak hennar. Pólitísk ógn kvikmynda sjötta áratugarins var jafnan fólgin í kommúnistum, hvort sem þeir hugðu á innrás eða önnur fólsku- brögð og var The Manchurian Candidate hefðbundin hvað það varðaði. Ógn Seven Days in May kemur aftur á móti innan frá því það er sjálft herforingjaráð Banda- ríkjanna sem hyggst steypa forset- anum af stóli. Slík umfiöllun um herinn var með öllu óþekkt og ótt- uðust menn að myndin hefði slæm áhrif á ímynd Bandaríkjanna um heim allan. Gullöld Allar kvikmyndategundir eiga sína gullöld og eru samsærismyndir engin undantekning. Gullöld þeirra stóð á áttunda áratugnum og ein- kenndist af stigvaxandi gagnrýni á bandarísk gildi. Executive Action (1973) kenndi öfgafullum hægri- sinnuðum auðjöfrum um morðið á Kennedy. Ástæða tilræðisins var að mati myndarinnar fólgin í stuðn- ingi Kennedys við réttindabaráttu blökkumanna, samningum við Sov- étríkin um kjamorkutilraunabann og fyrirhugaðan brottflutning her- liðs frá Víetnam. Allt mikil pólitísk deilumál vinstri og hægri afla í Bandarikjunum. Tegundin náði list- rænu hámarki með The Parallax View (1974) sem sameinaði pólitíska gagnrýni spennandi atburðarás á magnaðan máta. Hún lýsir vonlausri baráttu einstaklinga gegn samsærisöfliun og býr yfir bölsýnni tón en þekkist alla- jafna í Hollywood- myndum. Ómögulegt reynist að koma upp um samsærið og kúg- un almennings/áhorf- enda er viðhaldið í lok myndarinnar. Hún gagnrýnir þó ekki stofnanir á borð við alrikislögregluna (FBI) og leyniþjónust- una (CIA) með bein- Enemy of the State. Ný samsærismynd sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. [Klassisk myndbönd All the Presidents Men ^ rjf ★★★* Máttur pennans ■0 *s iít i-’ • bí-ZáP' V -r’ Robert Redford í hlutverki blaðamannsins Bobs Wood- wards. Robert Redford hreifst af þeirri atburðarás er leiddi til afsagnar Ric- hards M. Nixons. Hann keypti kvik- myndaréttinn á frásögn blaðamann- anna Bobs Woodwards og Carls Bemsteins af rannsókn þeirra á Wa- tergate-innbrotinu sem endaði með því að forsetinn hrökklaðist úr Hvita húsinu árið 1974. Redford fékk Alan Pakula, sem hafði stuttu áður gert hina frábæru The Paral- lax View (1974), til að leikstýra myndinni. Sjálfur tók hann að sér hlutverk Woodwards en Dustin Hoffman hreppti hlutverk Bern- steins. All the President’s Men var síðan frumsýnd árið 1976 og varð öllum að óvörum önnur vinsælasta mynd ársins. Sagan segir að Ronald Reagan hafi „kennt“ henni um að demókratinn Jimmy Carter skyldi vinna forsetakosningarnar sama ár. Það merkilega þó við myndina er að hún skiptir sér litið af Nixon og endar löngu fyrir afsögn hans. Fyrst og fremst er fiallað um rannsóknir blaðasnápanna sem komast í fyrstu lítt áleiðis. Þeir kalla þó ekki allt ömmu sína og tekst að pína upp úr skelkuðum einstaklingum hvert raðspjaldið á fætur öðru sem mynda í heild sífellt stærra og spilltara valdskerfi Bandaríkjanna. Atburða- rásinni vindur að mestu fram í sam- ræðum og hefur Pakula sjálfur sagt að óvíst sé hvort að nokkur Hollywood-mynd búi yfir meiri samræðu-texta. Ótrúlegt nokk kem- ur þetta lítið niður á spennufengnu og þrúgandi andrúmslofti myndar- innar. Þrátt fyrir að blaðasnápamir hafi á endanum betur gegn „kerfinu” er andrúmsloft myndarinnar ekki já- kvætt frekar en í The Parallax View. Fyrir það fyrsta eru aðalper- sónumar ekki hetjur í eiginlegum skilningi sem áhorfendur geta tekið einhliða afstöðu með. í öðm lagi er á myndrænan máta lögð áhersla á smæð þeirra og fólks almennt en myndavélin rís rólega til himins hvað eftir annað og skilur persón- urnar eftir í ómannlegri maurabyggð. Sagan hefur svo auðvitað kennt okkur að brott- rekstur Nixons skipti næsta litlu. Það leið ekki á löngu þar til Ronald Reagan og Ge- orge Bush komu í Hvíta húsið með alla afturhaldssemi Nixons í farteskinu og meira til. All the Pres- ident’s Men sá fyrir að „kerfið” tæki litlum breytingum, og það er ekki síst þess vegna sem inntak hennar nær langt út fyrir Waterga- te-hneykslið. Fæst í Vídeóhöllinni. Leikstjóri: Alan Pakula. Aðalhlutverk: Robert Redford, Dustin Hoffman og Jason Robards. Lengd: 138 mín. Banda- rísk, 1976. -Björn Æ. Norðfiörð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.