Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1999, Side 12
12
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 MlÞ~\T
Qtlönd
Skemmtilegar uppljóstranir í nýrri bók um sovésku leyniþjónustuna:
í fullu starfi við
að fleka konur
Margir hefðu sjálfsagt öfundað
John Symonds af starfi hans.
Symonds var um árabil á mála
hjá sovésku leyniþjónustunni KGB
þar sem hann hafði það hlutverk að
ferðast um heiminn og forfæra kon-
ur sem störfuðu við sendiráð vest-
rænna ríkja. Þannig tókst honum,
eins og til var ætlast, að véla út úr
konunum allrahanda upplýsingar
sem húsbændur hans í Moskvu sótt-
ust eftir.
Upplýsingar um njósnir Symonds
koma fram i nýrri bók, Sverðinu og
Erlent frétta-
Ijós
skildinum, eftir fyrrum skjalavörð
hjá KGB, Vasilí Mítrókhín, og
breska sagnfræðinginn Christopher
Andrew. Bókin hefur vakið gífur-
lega athygli i Bretlandi, kannski
ekki síst fyrir upplýsingamar sem
þar er að finna um hina 87 ára
gömlu og góðlegu langömmu,
Melitu Norwood, sem var einhver
mikilvægasti njósnari KGB í Bret-
landi, og jafnvel víðar, i flörutíu ár.
Lyginni líkast
Saga Symonds og ástarnjósna
hans er lyginni líkust, reyndar svo
lygileg að þegar hann gaf sig fram
við bresku leyniþjónustuna árið
1980 var honum vísað á dyr sem
„draumóramanni". Skjöl i vörslu
Mítrókhíns staðfesta hins vegar all-
ar upplýsingarnar sem Symonds
hefur veitt.
Symonds lenti í klónum á KGB
eftir að hann yfirgaf Bretland vegna
ákæru um spillingu í starfi. Hann
hafði verið lögregluþjónn. í viðtali
við breska sjónvarpið BBC, sem
verður sent út á morgun, sunnudag,
segir hann frá ævintýrum sínum.
Ástarlífsskóli KGB
„Mér var kennt að verða betri
elskhugi. Ég var kannski enginn
sérstakur elskhugi fyrir og þurfti
því á kennsku að halda. Það var
mjög huggulegt. Tvær fallegar kon-
ur komu til að kenna mér. Að því
loknu ferðaðist ég um allt og reyndi
að komast í kynni við og forfæra
stúlkur og konur i sendiráðum ým-
issa landa,“ segir Symonds í viðtal-
inu við BBC. Breska blaðið The
Guardian birti hluta viðtalsins á
dögunum.
Á sama tíma fékk Symonds
grunnþjálfun í njósnarafræðum, svo
sem um hvernig finna eigi ákjósan-
lega staði til að afhenda eða sækja
upplýsingar. Symonds þurfti líka að
liggja yfir alls slags tilbúnum ævi-
sögum sem oftast voru þess eðlis að
gera hann eftirsóknarverðari og
áhugaverðari í augum kvenfólksins.
„Þetta var leikur. Allir tóku þátt í
honurn," segir Symonds. „Bretar
sendu ritara sem agn. Rússar,
Bandaríkjamenn og Frakkar fylgdu
svo á eftir.“
HITACHI
Rafmagns
verkfæri
• Borvélar
• Borhamrar
• Slípirokkar
• Hleðsluvélar
• Sagir
• Nagarar
• Hersluvélar
• Juðarar
• Fræsarar
• Brotvélar
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Symonds segir að þetta hafi ekki
snúist um að hoppa upp í rúm með
einhverri konu og svo fram úr fimm
mínútum síðar.
Kynlífið var hörkuvinna
„Þeir sendu mér mjög fallegar
konur til að þjálfa mig upp í að
verða nærfærinn og tillitssamur
elskhugi. Þetta var hörkuvinna.
Þetta var ekki bara til að veita mér
kynferðislega ánægju. Þetta var
bara einn liður í löngu ferli að
heilla konuna, fá hana til að finnast
ég vera eini maðurinn í heiminum
landi.“
í bók sinni segir Mítrókhín að
Symonds hafi gegnt lykilhlutverki í
falli Willys Brandts Þýska-
landskanslara.
Sultan hennar ömmu
Allt þar til um síðustu helgi var
Melita Norwood aðeins þekkt fyrir
frábæra sultu sem hún bjó til á lát-
lausu heimili sínu í suðurhluta
Lundúna.
Rétt eins og Symonds iðrast sú
gamla einskis, nema þá helst alls
ónæðisins sem hún hefur valdið
Hver hefði trúað því að óreyndu að þessi góðlátlega gamla kona, bæði
amma og langamma, hefði verið einhver ötuiasti njósnari sovésku leyni-
þjónustunnar KGB á Vesturlöndum í fjörutíu ár? En þannig var það nú samt.
Breskir fjölmiðlar flettu ofan af Melitu Norwood í síðustu viku.
fyrir hana áður en reynt var að
plata hana til að taka skjöl úr pen-
ingaskápnum."
Á átta ára njósnaferli dró
Symonds hundruð kvenna úti um
allan heim á tálar. Hann leggur þó
áherslu á að þetta hafi verið mikil
vinna þvi hann hafl þurft að fara
varlega þegar hann reyndi að kom-
ast í kynni við þær, kynna sér venj-
ur þeirra og annað þar fram eftir
götunum. Eftir átta ár var hann þó
búinn að fá nóg, sneri heim og gaf
sig fram sem KGB-njósnara. En var
bara vísað á bug.
„Ég lifði góðu lífi,“ segir
Symonds. „Ég gekk í KGB og fékk
að sjá heiminn á fyrsta farrými. Ég
ferðaðist um allt fyrir verkefni mín
og skemmti mér vel. Ég bjó á bestu
hótelunum, fór á flottustu bað-
strendurnar, hafði aðgang að falleg-
um konum, ótakmarkað fé fyrir
mat, kampavín, kavíar og annað
sem ég girntist. Þetta er reynsla
mín hjá KGB. Ég iðrast einskis af
því að ég var neyddur til að flytja úr
öðrum, einkum þó fjölskyldu sinni,
eftir að flett var ofan af henni í fjöl-
miðlum. Breska leyniþjónustan
hafði lengi vitað af henni.
Norwood var aðeins 25 ára þegar
hún hóf að njósna fyrir Sovétríkin.
Ástæðurnar voru pólitískar því hún
var, og er, ákaflega vinstrisinnuð.
Að minnsta kosti safnaði hún ekki
digrum sjóðum fyrir áhættuna sem
hún tók fyrir KGB.
Segir ekki orð
Melita hafði starfað í fimm ár hjá
bresku málmrannsóknarfyrirtæki
þegar njósnir hennar hófust. Stofn-
unin vann þá við þróun kjarnorku-
vopn’abúnaðar Breta. Þegar hún
féllst á að vinna fyrir KGB hafði
hún verið gerð að ritara forstjóra
stofnunarinnar og hafði því aðgang
að fjolda viðkvæmra upplýsinga.
Norwood, sem þótti afspyrnugáf-
uð ung kona, kom leyndarmálum
Breta í hendur útsendara Moskvu-
valdsins á leynilegum fundum. Hún
neitar enn að ræða um hvemig hún
kom skjölunum í hendur Rússa og
einnig neitar hún að greina frá því
hver lokkaði hana til að starfa fyrir
KGB.
Hún heimsótti Rússland I síðasta
sinn árið 1979, í fylgd eiginmanns
síns, stærðfræðikennara sem lést
árið 1986. í þeirri ferð hafnaði hún
enn einu sinni að þiggja fé fyrir
njósnir sínar. Hún vildi bara að
Rússar fengju tækifæri til að standa
jafnfætis Vesturveldunum.
Smyglaði í sokkunum
Maðurinn á bak við uppljóstran-
irnar, Vasilí Mítrókhín, er orðinn
77 ára gamall og liflr í Bretlandi
undir fölsku nafni. Hann starfaði í
skjalasafni erlendrar deildar KGB í
höfuðstöðvunum i Moskvu frá ár-
inu 1956 þar til hann settist í helgan
stein árið 1984. Þar hafði hann að-
gang að leyniskjölum um starfsemi
leyniþjónustunnar á Vesturlöndum.
Straumhvörf urðu í lífi hins
trygga Mítrókhíns um miðjan átt-
unda áratuginn. Þá var hann orðinn
mjög vonsvikinn með kommúnista-
leiðtoga Sovétríkjanna, sem hann
hafði svo dyggilega þjónað allt sitt
líf, og reiður yfir þeim óhæfuverk-
um sem framin voru í nafni komm-
únismans.
Mítrókhin tók að smygla
leyniskjölum út úr höfuðstöðvunum
í sokkum sínum og annars staðar
innan klæða, skrifaði þau upp þegar
heim var komið og gróf þau siðan í
mjólkurflöskum og öðrum ílátum í
garði sumarhúss síns. Á tíu ára
tímabili tókst honum að smygla
þrjú hundruð þúsund skjölum.
Þegar Mítrókhín var kominn á
eftirlaun beið hann þolinmóður eft-
ir rétta augnablikinu til að stinga af
til vesturs. Tækifærið kom í ferð til
Lettlands árið 1992. Þangað tók
hann með sér þúsundir skjalaafrita
og hélt rakleiðis til bandaríska
sendiráðsins í lettnesku höfuðborg-
inni Riga. Hann fór fram á hæli í
sendiráðinu en Bandaríkjamenn
vísuðu honum á dyr þar sem þeir
töldu að skrifelsi hans væri fals .eitt.
Bretar trúöu honum
Bretar voru öllu opnari og tóku
við Mítrókhín. Hann var fluttur
mjög fljótlega til Bretlands, geflð
nýtt nafn og nýtt hús á leynilegum
stað og rífleg eftirlaun.
Ungur breskur leyniþjónustu-
maður var sendur til Moskvu til að
sækja afganginn af skjölum Mítrók-
híns. Hann gróf þau upp án nokk-
urra vandkvæða. Greinilegt var að
enginn hafði minnsta grun um at-
hafnir skjalavarðarins fyrrverandi
og enginn virtist sakna hans.
Breska blaðið Sunday Times seg-
ir að skjölin, sem voru grafin upp í
Moskvu, hafi verið send með
diplómatapósti frá breska sendiráð-
inu í Moskvu. Þau fylltu hvorki
fleiri né færri en sex kistur.
Mítrókhín segir í viðtali við
breska blaðið Times að það hafi tek-
ið hann nokkur ár að átta sig á
blekkingum kommúnismans.
„Þetta voru ekki nein skyndium-
skipti,“ segir hann. „Ég sá misræm-
ið milli þess sem þeir sögðu og hins
raunverulega lífs.“
Mítrókhín greinir frá njósnastarf-
semi KGB víðs vegar um heiminn í
bók sinni, meðal annars á Ítalíu, í
Frakklandi og Bandaríkjunum.
Byggt á Aftenposten, Jyllands-
Posten, BBC, o.fl.