Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
■|£P
1
§
m-
i
Tjíá
I '■
i
M-12 býöur fargjöld til
London
íslenska útvarpsfélagiö og
Samvinnuferðir/Landsýn hafa
gert með sér samning um ferðir
til London á sérkjörum fyrir M-
12 áskrifendur. Þeim gefst kost-
ur á flugfari til London á 6.900
kr. auk flugvallarskatta (13.800
kr. báðar leiðir) og geta flogið
heim frá völdum áfangastöðum
í Evrópu fyrir sama verð.
Flogið verður að morgni til
London með Boeing 747 þotu í
eigu Atlanta alla föstudaga á
tímabilinu mai til og með októ-
ber og aftur heim frá London á
mánudagsmorgnum. Þetta er
fjórða árið í röð sem íslenska
útvarpsfélagið og Samvinnu-
ferðir/Landsýn hafa samstarf
um að bjóða tryggum áskrifend-
um ÍÚ ódýrar ferðir til London.
Nýmæli er að í stað þess að
fljúga aftur heim frá London
geta áskrifendur valið aö fljúga
heim frá öðrum flughöfnum
hvenær sem er á samningstím-
anum á mjög hagstæöum kjör-
um, eða aðeins 6.900 kr. auk
flugvallarskatta. Þeir staðir
sem þar um ræðir eru skv.
Flugfrelsi Samvinnu-
ferða/Landsýnar; Kaupmanna-
höfn, Berlín, Frankfurt,
Múnchen, Zúrich, Basel, Mall-
orca, Alicante og Rimini.
Ferðatilboðin verða kynnt M-
12 áskrifendum sérstaklega síð-
ar í þessum mánuði en sala á
ferðunum er nú þegar hafin hjá
Samvinnuferðum/Landsýn.
Frítt inn í nýja
Tatesafniö
Það hefur ekki tíðkast í rúma
öld að hleypa almenningi inn i
þjóðarlistasöfn Breta án endur-
gjalds. Nú hillir undir breyt-
ingu þar á þvi brátt verður opn-
að nýtt nútímalistasafn á veg-
um hins virta Tatesafns. Nú-
tímalistasafninu hefur verið
fundinn staður í gamalli rafstöð
við ána Thames í London og
þar verða einvörðungu til sýnis
verk frá 20. öld, eftir meistara á
borð við Picasso, Dali, Matisse,
Warhol og Hockney.
Þá verður nafni safnsins
breytt úr Tate Gallery í Tate
Britain frá og með maímánuði
en þá er einmitt gert ráö fyrir
að nýja safnið verði opnað al-
menningi. Forráðamenn Tate-
safnsins eru hæstánægðir að
geta nú boðið fólki að skoða
safn án þess að greiða aðgöngu-
eyri en þeir segja ástæöuna
stóraukin framlög bresku
stjórnarinnar til safnsins.
Skemmtisiglingar um strandlengju og eyjar Austurlands:
Fjöldi hvala kom mest á óvart
Skemmtisiglingar með ferðamenn
hafa færst í vöxt á síðastliðnum
árum og æ fleiri sem sækja í þá
grein ferðamennskunnar. Einn
þeirra er Elís Pétur Sigurðsson sem
hóf að sigla með ferðamenn frá
Breiðdalsvík siðastliðið sumar við
ágætar viðtökur. Elís útskrifaðist
nýverið úr Stýrimannaskólanum
með svokallað pungapróf en það
veitir honum réttindi á 30 tonna
bát. Útskrift Elís er kannski merki-
legust fyrir þær sakir að hann er
sjötugur að aldri og hafði lítið sem
ekkert stundað sjó þegar hann
keypti skemmtiskipið Áka á síðasta
ári en báturinn tekur 22 farþega.
Það er óbilandi áhugi á ferðaþjón-
ustu sem rekur Elís áfram og ekki
síst viljinn til að efla atvinnulíf á
Breiðdalsvík en þar hafa menn
horft upp á mikinn fólksflótta hin
síðari ár.
Mokveiði á sjó
„Það er spennandi að byggja upp
ferðaþjónustu og það er svo margt
sem hægt er að sýna ferðamönnum
hér um slóðir. Síðastliðið sumar var
ég með tvær fastar ferðir, tveggja og
flmm stunda, um Breiðdalseyjamar
þar sem fólk gat virt fyrir sér sela-
slóðir og stórbrotið fuglalifið við eyj-
arnar Andey og Skrúð. Náttúrufeg-
urðin er óviðjafnanleg og það kom
okkur líka skemmtilega á óvart
hversu marga hvali við sáum í ferð-
unum,“ sagði Elís í samtali við DV.
Fuglalíflð á þessum slóðum minn-
ir um margt á Breiðafjörðinn. Þá
getur fólk stundað ýmsar veiðar;
farið á rjúpu, gæs, veitt lunda og
svartfugl að ógleymdri stangaveið-
inni. „Ég hef boðið farþegum min-
mn í sjóstangaveiði sem er alltaf
vinsæl. Mér eru minnisstæðir
italskir ferðamenn sem ég hitti á
bryggjunni á Breiðdalsvík í fyrra-
sumar. Þeir stóðu þar og voru að
reyna að veiða í soðið með litlum
árangri. Ég tók mig til og bauð
hópnum að koma með mér á sjó og
þar mokuðu þeir upp aflanum. Svo
Skemmtiskipið Aki tekur 22 farþega. Það siglir frá Breiðdalsvík um Breiðdalseyjarnar á hverjum degi yfir sumartím-
ann. Bæði er um fastar ferðir að ræða en fólk getur líka pantað sérferðir, sniðnar að sínum þörfum og áhuga.
Hafnareyja er sannkölluð drottningareyja. Á eynni var útræði stundað til árs-
ins 1886 og mjög góður útróðrarstaður frá náttúrunnar hendi. Þarna gerðu
margir prestar út og þeirra frægastur kannski séra Einar Sigurðsson í Hey-
dölum.
þegar við komum i land sá ég að
Italimir tóku til við að flaka fiskinn
og síðan var hann settur í frystikist-
ur sem þeir voru með í húsbílum
sínum. Aflinn hefur sjáifsagt dugað
í margar máltíðir á meðan á ferða-
laginu stóð. Þetta fannst mér til
mikillar fyrirmyndar og umhugsun-
arefni hvort Islendingar gætu ekki
gert meira af slíku sjálfir," segir
Elís.
Til stendur að stofna áhuga-
mannahóp um ferðamennsku á
Breiðdalsvík og tengja saman
bændagistingu, hestaleigu, göngu-
ferðir fjarða á milli og siglingamar,
svo eitthvað sé nefnt. Þá hyggst Elís
bjóða ferðamönnum, sem ferðast
með langferðabílum, að sigla á milli
Breiðdalsvíkur og Djúpavogs með
sér. Hvort tveggja tekur um klukku-
stund þannig að ferðamennirnir
tapa engum tíma en koma væntan-
lega ánægðir í land eftir siglingu 1
fallegu umhverfl.
Ferðin skipulögð með hjálp netmyndavála:
Umhverfis jörðina í áttatíu skrefum
Netið er til margra hluta nytsam-
legt og þá ekki síst þegar ferða-
mennska er annars vegar. Flestir
þekkja núorðið ýmsa tækni á Netinu
sem gerir mönnum til að mynda
kleift að ganga frá bókunum, leita
uppi ódýr fargjöld og áhugaverða
staði, svo eitthvað sé nefnt.
Enn einn möguleikinn sem Netið
hefur upp á bjóða eru heimasíður
sem byggjast á notkun netmyndavéla.
Frumkvöðull á því sviði mun hafa
verið kvikmyndagerðarmaðurinn
Brian Fury sem stofnaði fyrirtækið
EarthCam fyrir fáeinum árum. Á
heimasíðu fyrirtækisins, www.earth-
cam.com, er að finna yfir 5 þúsund
tengingar hingað og þangað um heim-
inn. Sjálfur hefur Fury sagt að kostir
netmyndavélanna séu einkum þeir að
myndimar em uppfærðar á nokkurra
sekúndna fresti og sums staðar er
jafnvel um lifandi myndir að ræða.
Þannig getur fólk ferðast til fjarlægra
staða í tölvunni heima og jafnvel nýtt
sér tæknina til að skipuleggja ferða-
lagið áður en lagt er af stað.
Fólk getur til dæmis fylgst með
umferðarþunga á hinum ýmsu stöð-
um, snjóalögum á helstu skiðastöðum
bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, líf-
inu í dýragörðum og svo mætti áfram
telja. Ein vinsælasta myndavélin hjá
EarthCam er hins vegar síða þar fólk
hefur sama útsýni og talið er að Lee
Harvey Oswald hafi staðið þegar
hann banaði John F. Kennedy, for-
seta Bandaríkjanna, í nóvember árið
1963.
Yngsti panda-
björninn í dýra-
garöinum í San
Diego nýtur
mikiila vinsælda
á Netinu en þar
birtast reglu-
lega nýjar Ijós-
myndir og frá-
sagnir af upp-
vextinum. Síma-
mynd Reuter
Hér á eftir eru nokkrar áhugaverð-
ar slóðir þar sem hægt er að skoða
heiminn með augum netmyndavéla.
Skemmtilegar
slóöir
• Á slóðinni www.sandiegozoo.org
er hægt að skoða tlýragarðinn í San
Diego og fylgjast með uppvexti yngsta
Pandabjarnarins, sem fæddist í ágúst
síðastliðnum og er enn of lítill til að
koma fyrir sjónir almennings sem
heimsækir garðinn.
• Ökuferð með leigubíl í New York
getur verið þreytandi en kosturinn
við að ferðast með slíkum hætti á
Netinu er auðvitað sá að fólk getur
horflð af síðunni þegar því hentar.
Slóðin er www.ny-taxi.com.
• Safariferð um nokkra skemmti-
garða Suður-Afríku er í boði á slóð-
inni www.africacam.com á Netinu.
• Verslunargluggar Blooming-
dales-stórverslunarinnar í New York
eru undir smásjánni á www.bloom-
ingdales.com
• Þeir sem vilja vita allt um snjó-
komu og snjóalög ættu að líta við á
síðunni www.lski.com/webcams.
• Ein skemmtileg að lokum.
Heimsreisa með því að smella áttatiu
sinnum á músina og myndirnar
dúkka upp hver af annarri á slóðinni
www.steveweb.com/80clicks.
-National Geographic Traveler
Stjömuskoðun í New York
Náttúrusögusafnið í New York,
American Museum of Natural Hi-
story, ætlar heldur betur að stækka
við sig á næstunni. Vígð verða ný og
stórglæsileg salarkynni þar sem gest-
um verður boðið að kynna sér
stjömufræði, stunda stjömuskoðun
og njóta almennrar fræðslu um al-
heiminn. Unnið hefúr verið að fram-
kvæmdum síðastliðin sex ár og ekk-
ert til sparað en áætlað er að kostnað-
ur sé ekki undir 210 milljónum dala.
Miðpunktur hins nýja stjömusafns
verður sjö hæða glerkúpull, 27 metrar
í þvermál og sá stærsti sinnar tegund-
ar í veröldinni, þar sem fólki verður
boðið að upplifa tilurð jarðarinnar
fyrir milljónum ára undir seiðandi
rödd leikkonunnar Jodie Foster. Önn-
ur Hollywoodstjarna kemur við sögu
í safninu því annars staðar í gler-
byggingunni munu gestir upplifa
geimferð og mun Tom Hanks lýsa
öllu sem fyrir augu ber.
Margt fleira áhugavert verður í
boði í nýja safninu sem verður onað
formlega þann 19. þessa mánaðar.
Nánari upplýsingar um safnið er að
finna á slóðinni www.amnh.org á
Netinu.