Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
ferðir 6i,
Portúgatar laga
vegakerfið
Portúgal hefur löngum verið
þekkt fyrir eitt versta vegakerfi
heims og ekki nóg
portúgalskir bílstjórar
afar
slæmir.
Þjóðvegir
þykja
verulega
lélegir
víða enda
holóttir
og á
mörgum
stöðum
vantar
skilti til
að visa
þeim sem ekki rata veginn. Dán-
artíðni af völdum bílslysa í
Portúgal er ein sú hæsta i Evr-
ópu. Miklum fjármunum hefur
þegar verið variö í vegabætur og
nýlega var lokið við hraðbrautir
i kringum borgimar Lissabon,
Porto og Braga. Enn er þó mælt
með því við ferðamenn sem
hyggjast keyra um landið að þeir
fari varlega og verði sér úti um
gott vegakort áöur en lagt er í
hann.
Veitingar í flugvélabraki
Bandaríkjamenn hafa um
skeið verið hallir undir veitinga-
staði sem byggjast á einhverju
ákveðnu þema. Skemmst er að
minnast veitingahúsakeðjunnar
Planet Holly wood sem reyndar er
farin á hausinn og búið aö skella
í lás í útibúunum 32. Nýjasti veit-
ingastaöurinn þessarar tegundar
mun vera í Baltimore og kallast
einfaldlega Crash Café en þar er
byggt á hugmyndinni um flug-
slys. Veitingasalurinn er inni í
DC-3 þotu sem lítiu- út fyrir að
hafa brotlent á staðnum. Reykur
liðast út um stélið og allt ytra
umhverfi minnir á skelfilegt slys.
Innandyra eru síðan reiddar
fram veitingar eins og vera ber
en sjónvarpsskjáir sjá gestum
fyrir afþreyingu í formi frétta-
mynda af hroöalegum lestarslys-
um og byggingum sem springa í
loft upp.
Dýr stríösmaöur
Rauðbrúni stríðsmaðurinn á
myndinni er eftirlíking rúmlega
2000 ára gamallar styttu sem
fannst við gröf fyrsta keisara
Kína, Qin Shihuang, fyrir tilvilj-
un árið 1974. Bóndi nokkur var
að grafa á þessum slóðum þegar
styttan ásamt tveimur öðrum
kom skyndilega upp. Þótt um
einn merkasta fomleifafúnd í
sögu Kína væri að ræða fékk
bóndinn ekki mikiö fyrir sinn
snúð, eða tæpar 500 krónur í
verðlaun fyrir hveija styttu.
Pundurinn hefur hins vegar
gert það að verkum að borgin
Xian laðar til sín um eina og
hálfa milljón feröamanna á ári.
Minjagripaverslanir keppast síð-
an við að selja feröamönnum eft-
irmyndir stríðsmannsins og
kostar stykkið engan smáskild-
ing, eða rúmar 400 þúsund krón-
ur. Það er nokkuð hátt, ekki síst
ef horft er til þess hversu lítið
bóndinn fékk fyrir að finna hina
raunverulegu stríðsmenn.
Feneyingar fá annað Guggenheimsafn
Sjötta Guggenheimsafnið verðm-
brátt opnað í Feneyjum á Ítalíu. Þar
með verða Feneyingar þeirrar gæfu
aðnjótandi að státa af tveimur
Guggenheimsöfhum, rétt eins og
New York. Þá er Guggenheimsafn í
Berlín og fyrir stuttu var opnað
stórglæsilegt safn undir sömu
merkjum í Bilbao á Spáni.
Nýja Guggenheimsafhið verður í
gamalli tollstöð sem var reist á ofan-
verðri 17. öld og hefur verið gengið
frá leigusamningi til 99 ára.
Safninu er ætlað að einblína á
samtímalist í verkefnavali sínu. Pessa dagana er verið aö breyta gamalli tollstöö, sem var reist á ofanveröri
Gamla Guggenheim-safnið i Feneyj- ^°9 fll®*U®flt Guggenheimsafn í Feneyjum.
um hefur hingað til lagt mesta
áherslu á myndlist frá fyrri hluta
20. aldarinnar þannig að nýja safnið
ætti aö vera kærkomin viðbót fyrir
listunnendur.
Um tiu milljónir ferðamanna
heimsækja Feneyjar ár hvert og
kveðst ferðamálaráð borgarinnar
fagna hverjum nýjum stað sem
hugsanlega vekur áhuga ferðalanga.
Þar með kunni ferðamennimir að
dreifast meira en ásókn í Markúsar-
kirkjuna og á Markúsartorgið er
víst svo mikil yfir sumarið að til
stórvandræða horfir.
FERÐA SKRIFS TOFA,
REYKJA YIKUR
Aðalstræti 9 Sími: 552 3200 Fax: 552 9935 Netfang: ferd@ferd.is
mvw.ferd.is
kl. 13:00 og 16:00 sunnudaginn
13. febrúar.
Líttu við hjá okkur og kynntu þér
fjölbreytt úrval spennandi
ferðamöguleika á hagstæðu verði.
■ 111 "■ ■ ' 1.1 II I . I I I I ...
r
New York
Baltimore
Washington
Boston
Orlando
Minneapolis
Jamaica
Kúba
Bahama
Kýpur
Sri Lanka
Thailand
Bali
Maldiveyjar
Benidorm
Sitges
Mallorca
Albufeira
Krít
Barcelona
London
Kaupmannahöfn
Munchen
Dusseldorf
s Hamborg
! Pra9
| París
©
Sumarbæklingurinn
er kominn út!