Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2000, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2000, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 23 1>V Helgarblað iáíKÖCÖ ífHfgiW illli Hinn neikvæði nafn- háttur „að bíða“ plús nafnorðið „stofa“ fei- ur vitanlega í sér ein- hvern fastan tilveru- punkt þar sem fólk kemur saman af illri nauðsyn til þess eins að bíða. tekkborði sem er engan veginn nógu stórt til að rúma allan þann fjölda tímarita sem þekja borðið nær alveg. Þegar blöðunum er flett kemur í ljós að mörg þeirra eru í eldri kantinum, meðalaldur þeirra 2 til 3 ár og mörg hver rifln og snjáð eða þá að forsíð- una vantar. Mestmegnis eru þetta tískublöð fyrir konur, eins og Vogue og Decor, og einnig mataruppskrifta- blöð og íslensk kjaftablöð. Ómögulegt er að segja af hverju hlutfall kvennablaða er svona hátt en þess má þó geta að blaðamaður var eini karlmaðurinn á svæðinu fyrir utan lítinn dreng í fylgd móður sinnar sem engan veginn fékkst til að sitja kyrr og færði þvi örlítið líf í annars dauft andrúmsloftið á biðstof- unni. Þessi umræddi drengur hafði reyndar ekki mikið við að vera ann- að en að standa á stólnum og fleygja sér í fang móður sinnar því lítið er um leikfóng og þess háttar á biðstof- unni utan hið klassíska legókubbaborð með áfóstum stólum og fimm kubbum og einhverja 30 ára gamla draugasögubók - eins og læknabiðstofur af öllum stöðum eigi að ala á óttanum. Hinn mjúki og kiassíski stíll Á veggjum biðstofunnar hanga eft- irprentanir af landslagsmálverkum sem sýna úfið hraun, þoku og fleira sem hreinlega dregur fram depurð- ina í fólki. Stólamir eru brúnir leð- urkyns, bæði stakir, tví- og þríbreið- ir. Sessan er hæfilega mjúk, ekkert alltof þægileg þó, en stólamir bera þess merki að vera jafngamlir hús- inu eða þar um bil. Einhver myndi sjálfsagt hafa á orði hinn alkunna frasa að svona stólar væru ekki framleiddir lengur - þetta væri allt saman úr plasti í dag, sem reyndar er alveg rétt og að því leyti minna húsgögnin á biðstofunni á 3. hæð óneitanlega á mublumar á Mokka - sem er klassíker meðal kafEIhúsanna þar sem ekkert hefur breyst svo að segja frá þvi staðurinn var opnaður um miðbik síðustu aldar. Sætakosti biðstofunnar er þannig uppstillt að stólarnir mynda eins konar hring í kringum litla tekk- borðið með blöðunum. Af þeim sök- um sitja Qestir andspænis hver öðr- um og þú kemst ekki hjá því að ná augnsambandi við þá sem á móti þér sitja. Þetta getur oft reynst óþægi- legt, menn era óöruggir enda fjarri heimavelli og rétt ófamir til þess að ræða eitthvað persónulegt við mann- inn í hvíta sloppnum sem þeir vildu gjaman koma sér undan að gera. Þessi augnsambandsuppröðun, ef svo mætti kalla, er því ákaflega óhentug á biðstofum og verður eink- ar leiðinleg á biðstofunni á 3. hæð þar sem ekki er hægt að beita því ráði að mæna út um gluggann í stað- inn því framkvæmdir utan á húsinu með tilheyrandi stillönsum og örygg- isneti draga verulega úr útsýni. Á heildina litið er biðstofan þó ágæt og um margt betri en þær sem eru á hæðunum fyrir ofan og fengið hafa andlitslyftingu, að því leyti að hún er mýkri en hinar sem hafa þennan kalda stálstíl sem svo víða sést í dag. Leystur út með bæklingi um klamydíufaraldur Á biðstofu Húð og kyn eru fáir á ferli fyrir utan skrifstofudömurnar 1 glerbúrinu. Fyrir þá sem ekki vissu er betra að koma því á hreint að ekki er ætlast til þess að fólk komi hingað til að stytta sér stundir yflr skemmti- efni á meðan beðið er eftir við- kvæmri læknisskoðun enda fá tíma- rit í boði og mest er framboðið á bæklingum um kynsjúkdóma sem finna má í rekka uppi á vegg. í von um „syndaaflausn" eða lækningu er því réttara að hafa það hugfast að hér þurfa menn, líkt og í helvíti Dantes, að kveljast fyrir eigin syndir yfir lærdómsrikum lestri. Biðstofan er hreinleg, pastelbleik- ir tónar svífa yflr vötnum og hús- gögn eru nýleg sem gefur biðstof- unni ákaflega hlutlausan stofnana- blæ. Það er augljóst að hingað kem- ur enginn inn nema honum beri brýn skylda til og þá í mjög ákveðn- um erindagjörðum. Til marks um það er lævísi blaðamanns í vett- vangsathugun umsvifalaust tekið sem óframfæmi þess sem hefur eitt- hvað að fela og áður en hann nær að koma hinu rétta til leiðar er hann leystur út með bæklingi um klamydíufaraldur og vefslóð að heimasíðu Landlæknis um kynsjúk- dóma. 13 ára gamalt fréttabréf Hjartaverndar Að lokum er ómissandi annað en að heimsækja eina mest sóttu bið- stofu á landinu en það er slysadeild Borgarspítalans. Það fyrsta sem rek- ið er augun i eru matar-, gosdrykkja- og sælgætissjálfsalar i anddyrinu sem ekki er að finna á hinum tveim- ur biðstofunum. Fullvíst má þó telja að þetta sé einkum tilkomið vegna þess að hér þurfa menn oft að bíða lungann úr deginum, eða nóttunni ef þvi er að skipta, eftir að fá bót meina sinna. í sjálfsölum þessum má kaupa allt frá ópalpakka upp í örbylgjupopp, jafiivel þótt óljóst sé hvað pakki af ópoppuðu örbylgjupoppi nýtist mönn- um á ögurstundu. Biðstofan er ákaflega biðstofúleg á allan hátt. Hin rómaða augnsam- bandsuppröðun á stólum er ríkjandi hér sem annars staðar en það er bót í máli að sjónvarpsskermur er í einu homi biðsalarins sem gefur mönnum færi á að festa augun á öðru en þján- ingarbræðrum sínum. Blaðakostur- inn er hins vegar ákaflega rýr svo ekki sé meira sagt. Það er spuming hvort lestur á þriggja ára gömlu ein- taki af Nordisk Medicin deyfi sárs- auka sjúklingsins eitthvað meira en fréttabréf Öryrkjabandalagsins eða þá gatslitið eintak af Séð og heyrt. Víst má þó telja að lesandinn sé kominn í feitt þegar hann rekur aug- un í... haldið ykkur fast, 13 ára gam- alt eintak af fréttabréfl Hjartavemd- ar sem lítur út fyrir að hafa komið úr prentsmiðjunni í gær og skyldi engan undra. Reyndar var það svo að eina nýja blaðaeintakið á biðstof- unni var nýjasta eintakið af Spiegel sem var eins og álfur út úr hól með- al hinna blöðunganna. Nytsemfssjónarmið Segja má að nytsemissjónarmiðin ráði lögum og lofum á slysadeildinni sem annars staðar i heilbrigðisgeir- anum og á veggjunum eru skyndi- hjálparplaköt og tafla yfir öryggis- tæki sem fást hjá Rauða krossi ís- lands og Slysavarnafélaginu. Nyt- semissjónarmið slysadeildarinnar öðlast meira að segja nýtt gildi þegar eina listaverk biðstofunnar er skoð- að, ef listaverk skyldi kalla, sem er einhver vanskapnaður úr stáli sem festur er á vegginn og til þess eins gerður að klifra í og þar með hækka slysakostnað barnaijölskyldna. Fólk er á sífelldum þönum fram og aftur um ganginn, ýmist hoppandi af sjálfsdáðum eða upp í fangið á sínum nánustu. Það er kalt inni fyrir. Ráð- legt að taka með sér teppi enda stöð- ugur straumur inn og út um aðal- dyrnar sem hleypir köldu lofti með sér inn á biðstofu. Vettvangsathug- uninni er lokið. -KGP Coleman & ASY CAMP 3 tegundir til sýnis 00* næg bílastæói velkomin í nýjan & stórglæsilegan sýningarsal mmm byfleetwood. 7 vagnar til sýnis uppsettir í sal. 3 stærðir til sýnis xTnti^ rT7F*r*nr~o at^sss wnflði’ csaiapci Jbliner EVRÖ vagn á útisvæði Opíó alla helgina laugardag 11-16 Sunnudag 13-16 Grensásvegur 3 (skeífumegin) simí 533 1414 fax 533 1479 evro@islandia.is Heilsudýnur Svefnherbergishúsgögn Járngaflar Heiisukoddar Hl(fdardýnur Rúmteppasett Hágæða bómullarlök Sœngur Sœngurver Lampar Speglar TI.Einmestselda 1 iLduii heilsudýna á landinu Queen 69,900.- King 89,900.- Queen 89,900.- King 119,900.- Verð miðast við dýnu án ramma Chiropractic eru einu heilsudýnurnarsem eru þróaðar og viðurkenndar af amerísku og kanadfsku kíró- praktorasamtökunum. Yfir 32 þúsund kírópraktorar mæla því með Chíwpractic þará meðal þeir íslensku. A Vf K köh 1 l.isthúsinu Laugardal, sími 581 22; • Dalsbraut 1, Akureyri, simi 461 1150 • www.svetnogheiisa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.