Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
x>v
Fréttir
Breskir kjósendur
gáfu Blair langt nef
Lönguninn til að gefa Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, langt
nef var of freistandi. Milljónir kjós-
enda höfðu að engu viðvaranir hans
og kusu Rauða-Ken Livingstone
borgarstjóra Lundúna.
„Þetta hefur verið sóðaleg og
skammarleg barátta frá upphafi til
loka,“ sagði Livingstone þegar hann
greiddi atkvæði á fimmtudaginn í
Cricklewood í norðvesturhluta
Lundúna.
Maðurinn, sem eitt sinn kvaðst
hafa hitt fjöldamorðingja og at-
vinnudrápsmenn en samt aldrei
orðið hræddari en þegar hann hitti
Margaret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, varð borg-
arstjóri Lundúna þrátt fyrir allar
tilraunir tii að koma í veg fyrir kjör
hans.
Það vekur mikla athygli að
stefnulaus og peningalaus óháður
frambjóðandi en með umdeilda for-
tíð skuli hafa lagt að velli alla kosn-
ingamaskínu Verkamannaflokks-
ins.
Stærsti ósigur Blairs
Lundúnabúar urðu æfir þegar
Blair og félagar hans brettu kosn-
ingakerfinu þannig að atkvæði
venjulegra flokksfélaga vógu miklu
minna en atkvæði þingmanna og
verkalýðshreyfingarinnar. Vegna
þessa fyrirkomulags varð Frank
Dobson opinber frambjóðandi
Verkamannaflokksins. En hann
komst aldrei úr startholunum og í
kosningabaráttunni gerði hann ým-
is mistök sem styrktu Livingstone.
Margir höfðu talið að kosninga-
baráttan myndi afhjúpa meint fals
Rauða-Kens, sjálfhverfu hans og rót-
tækar skoðanir. En allar tilraunir
andstæðinga hans fóru út um þúfur.
Stjórnmálafræðingar segja að úrslit-
in séu stærsti ósigur Blairs hingað
til. Hann hafl algjörlega misreiknað
viðbrögð almennings.
Tony Blair lét á síðustu stundu
senda út um milljón bréf til þess að
reyna að fá kjósendur til að velja
frambjóðanda Verkamannaflokks-
ins, Frank Dobson. Að láta
Livingstone vinna væri það sama og
að hverfa aftur til gömlu stefnunnar
sem Blair tekur afstöðu gegn.
Blair viidi ekki vera á mynd
með Livingstone
Fullyrt var að Blair hefði um-
fram allt viljað komast hjá því að
láta mynda sig fyrir utan Down-
ingstræti við hlið Kens Living-
stones og þess vegna haldið til Norð-
ur-írlands. Þar var hann þegar
úrslitin voru tilkynnt.
Tvö dagblaðanna, sem eru vön að
styðja Verkamannaflokkinn, Daily
Mirror og Daily Express, kúventu á
síðustu stundu og hvöttu lesendur
sína til að kjósa frambjóðanda
íhaldsmanna, Steven Norris. íhalds-
blaðið Daily Telegraph birti fréttir
af öllum vitleysum vinstri manna
sem blaðið telur Ken Livingstone
bera ábyrgð á. I blaðinu The Sun og
í mörgum auglýsingum var sett
saman mynd af Livingstone og stytt-
unni af Churchill sem var útkrotuð
af óeirðaseggjum 1. maí. Texti við
myndina var svohljóðandi: Atkvæði
Eilíft sólskin
Lundúnabúum geðjast að Ken Livingstone, nýja borgarstjóranum sínum. Hann lofaöi þeim að þaö hætti að rigna kysu þeir hann.
með Livingstone er atkvæði með
þeim.
„Þetta hefur verið andstyggileg
barátta gegn mér,“ sagði Living-
stone á kjördag sem kvaðst hafa sett
sjálfan sig í fyrsta sæti og Frank
Dobson í annað sæti.
Þó svo að formleg völd borgar-
stjórans séu ekki mikil er staðan
mikilvæg. Fimm milljónir kjósenda
eru i kjördæmi hans. Það verður
mjög erfitt fyrir Tony Blair að taka
ekki tillit til skoðana borgarstjór-
ans.
Ótti Verkamannaflokksins
írauninni óttaðist Verkamanna-
flokkurinn meira það sem Rauði-
Ken gæti komið til leiðar á
landsvísu heldur en áætlanir hans í
Lundúnum. Vegna stöðu sinnar get-
ur hann gert stjómvöldum lífið leitt
með því að tjá sig um aflt mögulegt
sem völd hans ná ekki til eins og til
dæmis stefnu í utanríkismálum,
skattamálum, félagsmálum og rétt-
indum samkynhneigðra.
Menn þurfa ekki að annað en að
líta á afrekaskrá Livingstones frá
því hann var í forystu borgarráðs
Stór-Lundúna 1981 þar til þáverandi
forsætisráðherra, Margaret
Thatcher, leysti borgarráðið upp
1986.
Á þessu tímabili fékk hann viður-
nefnið Rauði-Ken og varð frægur
talsmaður vinstrisinnaðra í Verka-
mannaflokknum. Þá var flaggað
rauðum fána við ráðhúsið og
Livingstone bauð leiðtoga Sinn Fein
til Lundúna á meðan systursamtök-
in IRA gerðu sprengjuárásir og
drápu saklaust fólk á götum úti.
En Livingstone á heiðurinn af
einni af vinsælustu ákvörðunum
sem tekin hefur verið í stjórnmál-
um Lundúna. Hann lækkaði verð á
farmiðum í strætisvagna og neðan-
jarðarlestir.
Frá því 1987 hefur Ken Living-
stone setið á aftasta bekk í neðri
deild breska þingsins þar sem
Verkamannaflokkurinn hefur séð
til þess að hann hefur gengið um í
skuggadal. Hann borgaði fyrir sig
með því að bera þingið saman við
sögusafn. Þó væru ekki allir upp-
stoppaðir á þinginu.
Rauði-Ken hefur skipt um iit
Sumir segja að Rauði-Ken sé ekki
sá sami og hann var fyrir tuttugu
árum. Hann hafi breytt um lit.
Hann hafi lagt til hliðar haug af um-
deildum skoðunum og myndað sér
margar nýjar. Hann hefur meira að
segja lýst yfir stuðningi við evruna.
En hann er fyrst og fremst hann
sjálfur. Og Lundúnabúum geðjast
fremur að persónunni en stjóm-
málaskoðunum hans. Margir eiga
erfitt með að taka alvarlega viðvar-
anir um að hér sé á ferðinni hættu-
legur öfgamaður þegar hann ræðir
um þörfina á fleiri almenningssal-
ernum, hreinni og stundvísari
strætisvögnum og endurbótum á
neðanjarðarlestakerfinu.
Livingstone á fáa stuðningsmenn
á þingi. Þingmenn Verkamanna-
flokksins telja hann eigingjarnan og
óáreiðanlegan sérvitring sem ætli
sér ekkert annað en að koma eigin
hagsmunum á framfæri. Hann þyk-
ir að minnsta kosti ekki leiðinlegur
þar sem hann hafl rétta blöndu af
húmor og kaldhæðni.
Eins og Díana prinsessa sé
endurborin
„Gerið lífið skemmtilegra fyrir
Tony Blair, kjósið mig,“ hrópaði
Ken frá litla kosningabílnum sín-
um. „Það hættir að rigna ef þið kjós-
ið mig,“ kaflaði hann einnig. Prest-
ur meðal áheyrenda sagði að þeim
sem hlustuðu á Livingstone hlýnaði
að innanverðu. Almenningur er far-
inn að dýrka Livingstone. Það er
eins og að Díana prinsessa hafi lifn-
að við, endurfædd í slitnum, köflótt-
um íþróttajakka, stóð meðal annars
i breska blaðinu The Guardian.
Byggt á Reuter, DN, Aftenposten
o. fl.
Tony Blair í neöanjaröarlest meö frambjóöanda Verkamannaftokksins, Frank
Dobson. Blair misreiknaöi viöbrögö kjósenda.