Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Qupperneq 24
ðS , . OQO': í) H:10A0HAp')AJ
24________________________________________LAUGARDAGUR 6. MAI 2000
Helgarblað______________________________________py
Aldraður Keflvíkingur leitar réttar síns:
Lögreglan
á móti mér
- segir Jóhann Alexandersson sem mátti þola óvægna líkamsárás á heimili sínu
Keflvíkingurinn Jóhann Alexand-
ersson varð fyrir þeirri skelfilegu
reynslu veturinn 1996 að óður mað-
ur réðst inn á heimili hans og eigin-
konu hans, Kristínar Árdal Antons-
dóttur, og lét hnefana ganga á and-
liti hans. Jóhann hafði sjálfur uppi
á meintum brotamanni, sem var
engu að siður sýknaður i héraðs-
dómi Reykjaness. Jóhann skellir
skuldinni á lögreglu bæjarins sem
hann telur hafa markvisst unnið
gegn sér auk þess sem bæði dómari
og verjandi kunni að hafa verið
óhæfir.
Ólæti á neðri hæðinni
Jóhann, sem er 65 ára gamall ör-
yrki, hefur búið í Keflavík frá 1951.
Ásamt öðrum hóf hann að byggja
tvíbýlishúsið að Miðtúni 8 árið 1958
og þau hjónin hafa búið þar síðan
1960. Segir hann það hafa verið
vandræðalausan tíma allt þar til
nýir eigendur jarðhæðarinnar
fluttu inn í júní árið 1994: „Þá byrj-
ar þetta allt saman. Þótt þau búi hér
aðeins i tvö ár logar allt á milli
hæða og við þurfum að kæra hjónin
alls sex sinnum til lögreglu út af há-
vaða og látum, fylliríi og slagsmál-
um. Og þótt þrjár kærur eigi að
duga til þess að fólk sé borið út var
það nú ekki gert.“ Það er síðan á ár-
inu 1996 sem alvarlega fer að sjóða
upp úr hvaö eftir annað, að sögn Jó-
hanns. Hann kærði húsfreyjuna á
neðri hæðinni m.a. fyrir að hafa
hrækt og ráðist á sig úti í garði.
Vitni að atburðinum gaf sig fram
við lögreglu en Jóhann segir lög-
regluna ekki hafa aðhafst neitt með
það. Við annað tækifæri kærði
hann húsfreyjuna fyrir að reyna að
keyra sig niður eftir að hún hafði
slegið dóttur hans í andlitið: „Og
þetta vildi Þórir Maronsson, yfirlög-
regluþjónn í Keflavík, leysa með því
að við flyttum út - búin að búa
þama í friðsemd í tæp fjörutíu ár.“
Jóhann telur að lögreglan hafi vís-
vitandi þvælt og tafið kærurnar svo
niðurstaða þeirra yrði hjónunum á
neðri hæðinni hagstæð. Hann segir
enn fremur aö húsbóndinn á jarð-
hæðinni hafi þekkt til innan lög-
reglunnar og upplýsingar frá sér
hafi lekið til hans. Þá fullyrðir Jó-
hann að hann eigi til upptökur af
hortugheitum lögreglunnar í sinn
garð.
Kvöldið örlagaríka
Þegar Jóhann er beöinn að rekja
afdrif kvöldsins örlagaríka þann 15.
nóvember 1996 svarar hann: „Hús-
bóndinn á neðri hæðinni og vinnu-
félagi hans eru á meðal gesta í opn-
unarhófi á vegum Húsasmiðjunnar.
Eftir fagnaðinn sér konan mín þá
ganga niður götuna en verða við-
skila fyrir utan húsið, íbúinn held-
ur áfram en vinnufélaginn verður
eftir. Og meðan ég sit og tala við
bróður minn í símann læðist sá síð-
arnefndi finlega inn og gengur upp
stigann til mín - ég segi bróður mín-
um að bíða þvi kominn sé gestur -
en þá er vinnufélaginn kominn upp
að mér og segir: „Þama ert þú, hel-
vítið þitt. Nú er komið nóg.“ Þessu
næst kýlir hann mig í andlitið -
ókunnugur maðurinn. Höggin eru
tvö eða þrjú talsins og ég er vankað-
ur á eftir. Þessu næst rífur hann
símtólið og tekur að berja á mér
með því en til allrar hamingju taka
hendumar höggin en ekki höfuðið.
Þá kemur konan mín fram á hækj-
um, en hún er sjúklingur og öryrki,
og snýr hann sér að henni. Hún seg-
ist ekki trúa því að hann ætli að
ráðast á hana svona á sig komna og
er þá sem hann ranki við sér og
gengur út. Læknamir sögðu milli-
metra hafa skilið á milli lífs og
dauða." Jóhann leggur áherslu á að
orð vinnufélagans sýni svo ekki
verði um villst aö í árásinni felist
ákveðin skilaboð frá húsbóndanum
á neðri hæðinni.
Glópska lögreglunnar
Þegar kemur að þætti lögreglunn-
ar i Reykjanesbæ vandar Jóhann
henni ekki kveðjurnar og telur
hana hafa klúðrað rannsókninni af
bæði glópsku og ásetningi. Eftir
árásina hringdi Kristín, eiginkona
Jóhanns, í tengdason þeirra, Krist-
ján Gunnarsson, og það er hann
sem hringir síðan í lögregluna og
rekur Jóhann framgöngu hennar
svo: „Tengdasonur minn margbað
lögregluna um að sparka ekki allt út
í snjónum hér fyrir utan og eyði-
leggja þannig sönnunargögnin en
það gerði blessuð lögreglan, því
miður. Kristján þurfti einnig að þrá-
stagast í þeim til að fá rannsóknar-
lögregluna á staðinn sem tókst á
endanum þótt ekkert væri lengur á
sporunum að græða. Lögreglan fór
síðan ekki einu sinni á eftir íbúan-
um sem hafði brugðið sér niður í
bæ. Það fyrsta sem lögreglan gerir
er þriðjudaginn eftir en þá erum við
hjónin kölluð niður á lögreglustöð í
tveggja tíma yfírheyrslu og þó búið
að yfirheyra okkur á föstudags-
kvöldið til hálfþrjú um nóttina! All-
an tímann lagði lögreglan áherslu á
að blanda ekki saman árásinni og
hinum ákærunum sex. Spumingin
er af hverju, því þetta er nátengt. Ef
lögreglan hefði tekið kærurnar al-
varlega er óvist að ég hefði verið
barinn.” Við þetta má bæta að í
dómnum viðurkennir vinnufélag-
inn að erjur íbúa hússins hafi kom-
ið til tals af og til í vinnunni. Enn
fremur segist hann ekki hafa verið
með sjálfum sér vegna ótæpilegrar
drykkju og geta lítið sagt með vissu
um atburði kvöldsins.
Dylgjur frá yfirlögregluþjóni
Jóhann bar ekki fullt traust til
lögreglunnar og haföi því sjálfur
uppi á myndum úr veislu Húsa-
smiðjunnar og fann þar vinnufélag-
ann á mynd. í dómnum er það sagt
veikja framburð hjónanna að „sak-
===== f7c>/)/)u/H/i/i l /u'mcjöcj/iam l c/acj ==
Sumartilboö
Frá 3-—11- maí
rymum viö tilfyrir nýjum sumarvörum
10
afsláttur
af öllum vörum í versluninni
húsgögn
&
$
<1
i
Bæjarhrauni 12 Hf. • Sími 565 1234
Opið virka daga 10-18, laug. 10-16 ^