Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Page 29
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
29
Helgarblað
Dagur í lífi sauðkindar:
Hver er tilgangurinn
með þessu jarðlífi?
Ég vaknaði sársvöng í morgun
eftir að mig hafði dreymt gras. Þá
meina ég ferskt, grænt vallarsveif-
gras eins og það sem vex á túninu
kringum fjárhúsið á sumrin. Ekki
þetta ófétis rúllubaggahey sem við
lifum á þessa dagana. Það var
hörmuleg stund þegar sú heyverk-
vmaraðferð komst í móð í sveitun-
mn. Mér er alveg sama þótt það sé
fullt af fóðureiningum á kíló. Það
er vont. En ég er kind og þess
vegna ét ég.
Helsta umræöuefnið í krónni
þessa dagana er væntanlegur sauð-
burður. Munurinn á liggjandi fæð-
ingu og standandi fæðingu og
endalausar sögur af lystarleysi,
sinadrætti, andvökum og brjóst-
sviða. Ég hata þetta. Ég veit ekki
númer hvað lambið sem ég geng
með verður í röð þeirra lamba sem
ég hefl eignast. Það er alltaf sama
sagan. Ef þau hverfa ekki á
haustin þá gleyma þau manni
strax fyrsta veturinn sem þau eru
gemlingar á gelgjuskeiði og þá er
lokið öllu því sem getur talist eöli-
leg fjölskyldutengsl. Ég hefi veru-
legar efasemdir um tilganginn með
þessum stöðugu fæðingum. En ég
er kind og þess vegna eignast ég
lömb þótt það veki mér enga gleði
lengur.
Stundum flnnst mér ég vera orð-
in gömul og á mig sækja vangavelt-
ur um það hvort lif sé að loknu
„Sumar kindanna hafa
aldrei séð lifandi fullorð-
inn hrút og þekkja engin
eðlileg kynferðisleg sam-
skipti. Mér finnst þetta
ekki ásœttanlegt. Líf eins
og þetta hlýtur að leiða
til alls konar óeðlis, ófull-
nægju og tómleika á til-
finningasviðinu. Um
þetta þekkjum við sorgleg
dæmi úr þessu fjárhúsi.
En ég er kind og þess
vegna fangi hormóna og
boðefna. “
þessu. Sumir menn virðast halda
að við kindur vitum ekki að i flest-
um tilvikum erum við drepnar og
étnar. Þetta vita allar kindur. Mér
hefur alltaf fundist einhver hræsni
í gangi varðandi þetta mál. En ég
óttast ekki dauðann heldur efast ég
um að ég hafi leyst verkefni mín í
þessu lífi á fullnægjandi hátt. Ég
vil ekki fæðast aftur sem kind.
Hver vill það? Hundur eða köttur
væri strax betra. Þeir eru þó ekki
étnir. Maðurinn er lokatakmarkið.
Hann er æðstur. En ég er kind og
hef ekkert vit á trúarbrögðum.
Sem betur fer er fengitíðin langt
að baki. Við, nokkrar eldri kind-
umar, vorum að segja þeim yngri
frá þeim tímum sem hrútar voru
raunverulegur þáttur í lífi okkar.
Það var áður en svamparnir og
samstilling sæðinga komst í tísku.
Sumar kindanna hafa aldrei séð
lifandi fullorðinn hrút og þekkja
engin eðlileg kynferðisleg sam-
skipti. Mér ftnnst þetta ekki ásætt-
anlegt. Lif eins og þetta hlýtur að
leiða til alls konar óeðlis, ófull-
nægju og tómleika á tilfinninga-
sviðinu. Um þetta þekkjum við
sorgleg dæmi úr þessu fjárhúsi. En
ég er kind og þess vegna fangi
hormóna og boðefna.
Við fengum óvenju góðan fóður-
bæti með heyinu um kvöldið eftir
alveg sérlega langan og leiðinlegan
dag sem leið hægt við jórtur og
veðurhljóð. Nú erum við að fara að
sofa og ég ligg í sama hominu og
ég er vön. Ég borðaði afskaplega
vel og mikið vegna þessa en
áhyggjur af holdafarinu skyggja
svolítið á vellíðan mina. Mér
fmnst ég alveg eins og hlussa.
Samt tókst vetrarrúning óvenju
vel. Ég hafði vit á að liggja kyrr og
slapp við skurfur og toppa eftir
klippumar. Ég veit vel að ég er
ekki óskaplega loðin og er auðvit-
að dálítið sver vegna komandi
sauðburðar og veit að ég þarf að
borða eins mikið og ég get. En ég
er kind og þess vegna vil ég líta vel
út. -PÁÁ
London
með Heimsferðum
-alla fimmtudaga í sumar
Heimsferðir tryggja þér lægsta verðið til London í sumar með beinu flugi
alla fimmtudaga í sumar. Þú getur valið um helgarferðir, flugsæti eingöngu,
flug og bíl eða flug og hótel, en við bjóðum fjölda góðra hótela í hjarta
London á frábæru verði. Tryggðu þér lága verðið meðan enn er laust.
Verðkr. 7.900,-
Flugsæti, önnur leiðin.
Skattar, kr. 1.830., ekki innifaldir.
HEIMSFERÐIR
Verðkr.14.2UU,-
Flugsæti fram og til baka. Austurstræti 17, 2. hæð,
Skattar, kr. 3.790., ekki innifaldir. 595 1000, www.heimsferdir.is
Ég gerði bara það
sem Gaui litli sagði
mér að gera....
8. Maí hefjast í
World Class 8-vikna
aðhaldsnámskeið
með Gauja, Bubbu
og Hrafni.
Ný námskeið
með breyttum
áherslum
...og a
16 vikum
missti ég
30 kg!
Þetta allt er innifalið
Hjólaspuni 3 til 5 sinnum í viku.
Vaxtamótun með iþróttarkennara
Ýtarleg kennslugögn.
Við bjóðum upp á:
Morguntíma, eftirmiðdagstíma
og kvöldtíma.
Vigtun - Fitumæling.
Matardagbækur. Margra ára reynsla okkar
Hve.jlnd'möir: tryggir þér frábæran árangur
Fjöldi mataruppskrifta.
Einka viðtal við Gauja litla.
Slómó Tae Bo með Hrafni Fribjörns.
Viðtal viö næringarráögjafa.
Æfingarbolur og vatnsbrúsi.
f>rir heppnir fá frítt á næsta námskeið.
Ótakmarkaður aðgangur að World Class.
REYKJAVÍK
jkráning stendur yfir núna
”896 1298
Salatbarinn
nja ctta
0 AUSTURV0LL