Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 12
12 Fréttir LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 DV Fyrrum liðsmenn Suður-líbanska hersins á hröðum flótta undan skæruliðum Hizbollah: Saka Israela um að hafa svikið sig Antoine Lahad var ekki í skapi til að tala við nokkurn mann. Þegar fréttamenn reyndu að ná sambandi við yfirmann Suður-líbanska hers- ins (SLA), leppsveita ísraela i sunn- anverðu Líbanon, þar sem hann sat að snæðingi á hóteli í ísraelska landamærabænum Metulla á mið- vikudag, stuggaöi ísraelskur lífvörð- ur hershöfðingjans þeim burt. Skal engan undra. Algjör upp- lausn ríkti meðal manna Lahads eft- ir skyndilega brottför ísraelska hersins frá Suður-Libanon, eftir 22 ára hersetu. Þúsundir liðsmanna hans og fjölskyldur þeirra voru flúnar yfir til Israels eða höfðu gef- ist upp fyrir skæruliðum Hizbollah mótþróalaust. ísraelsmenn stofnuðu SLA fyrir fimmtán árum, sáu honum fyrir vopnum og þjálfuðu liðsmenn hans, sem stjórnvöld i Líbanon líta á sem drottinsvikara. Frekar berjast en flýja Þear ísraelsmenn voru að undir- búa brottíor frá öryggissvæði sínu í Líbanon í vor, brottför sem átti að ljúka síðar í sumar, sagði Lahad að hann og menn hans, 2600 talsins, myndu frekar berjast en flýja af hólmi. Þegar ljóst var að brotthvarfið væri óhjákvæmilegt kallaði Lahad menn sína saman til fundar til að vita hvað þeir vildu gera. „Þeir sögðu mér að að þeir hefðu ekki barist í tuttugu og tvö ár til þess eins að yfirgefa eigur sínar og flýja til ísraels. Þeir vilja veita mót- spyrnu, verja sig. Þeir vilja ekki láta libönsk stjórnvöld teyma sig í fangelsi. ísraelar grátbiðja okkur um að koma en við viljum það ekki. Enginn vill vera flóttamaður í ísra- el,“ sagði Lahad í viðtali við franska blaðið Le Monde síðastliðinn sunnu- dag. % 4ééí|P; % «ir Aðeins þremur dögum síðar veitt- ist hann að ísraelskum stjórnvöld- um í viðtali við ísraelska útvarpið. „Við vorum saman í meira en 24 ár en þið tókuð ákvörðun um að fara burt á einum sólarhring," sagði Lahad. Þetta eru þakkirnar Hershöfðinginn fékk ekki hlýjar viötökur hjá mönnum sínum. Fyrr- um liðsmenn SLA hundskömmuðu hann fyrir hvernig komið var fyrir hersveitum hans. Svik eru orðið sem fyrrum liðs- menn SLA viðhafa oftast um skyndilega heimkvaðningu ísra- elsku hermannanna í vikunni. „ísraelar sviku okkur. Þeir sviku alla íbúana í suðurhlutanum," sagði Elie Mshantaf við fréttamenn Reuters eftir að hann og 161 annar liðsmaður SLA gafst upp fyrir lí- bönsku lögreglunni í bænum Mara- youn. Daher Rafael, 37 ára gamall fyrr- um félagi i SLA, var líka ómyrkur í máli um tsraelsmenn. „Við störfuðum saman í 25 ár, við úthelltum blóði okkar saman og þetta er sú viröing sem okkur er Sloppin yfir til Israels Kona frá sunnanveröu Líbanon fellir tár eftir aö hún komst yfir iandamærin til ísraels í vikunni. Hersveitir ísraeis í Suður-Líbanon fóru heim í skyndingu í vikunni meö þeim afleiöingum aö vopnaöar sveitir bandamanna þeirra, Suöur- líbanski herinn (SLA), leystust upp og liðsmenn þeirra lögðu á flótta eöa gáfust upp fyrir skæruliöum Hizbollah. Þús- undir fyrrum liösmanna SLA og fjölskyldur þeirra hafa leitaö hælis í ísrael síöustu daga. sýnd þegar yfir lýkur,“ sagði hann. „tsraelar gerðu það sem þeim var fyrir bestu en við sátum eftir með sárt ennið." Kona nokkur sem beið við landa- mærin í bíl sínum var heldur ekk- ert að skafa utan af því: „Líbanir og ísraelar eru hvorir tveggju hundar og við komumst hvergi," hreytti hún út úr sér. Lofu&u fullum stuðningi Shaalan Mustafa, liðsmaður SLA frá þorpinu Beit Lif, sagði blaða- manni Washington Post að hann hefði lagt á flótta á mánudagskvöld þegar skæruliðar nálguöust þorp hans eftir að hann og félagar hans höfðu látið vopn sín af hendi. Hann skildi eftir eiginkonu sína og sex börn. „ísraelar sviku okkur meira en Hizbollah," sagði hann. „Þegar við börðust við hryðjuverkamennina vissi ég að ísraelar stæðu með okk- ur. í dag sá ég að ekkert var að baki mér og að ísraelum er hjartanlega sama um hvað gerist. Þeir hafa kastað okkur í gin úlfanna. Við er- um komnir í blindgötu." Hinn 25 ára gamli Samer Aloush, sem skildi þriggja ára dóttur sína eftir í höndum móður sinnar í þorp- inu Yarin, sagðist hafa gert þau mistök að gerast bandamaður ísra- elsmanna. Aloush dvelur nú í flótta- mannabúðum sem ísraelsk stjórn- völd hafa komið upp á sumarleyfis- stað við Galíleuvatn. „Þeir lofuðu okkur hundrað pró- sent stuðningi, þeir sögðust ekki mundu yfirgefa okkur fyrr en her- sveitir Sameinuðu þjóðanna tækju við stöðvum okkar. Hið gagnstæða hefur hins vegar gerst. Þeir tróðu okkur upp i langferðabíla og komu með okkur hingað," sagði Aloush. Hann hefur ekki í hyggju að setj- ast að í ísrael, vill heldur fara til einhvers annars lands. Ekki leitað hefnda „Við erum ekki svikarar. Við vor- um að veria land okkar,“ sagði hann og bergmálaði þar skoðanir emnarra liðsmanna SLA sem segjast aðeins hafa verið að verja heim- kynni sín fyrir ágangi vopnaðra hópa Palestínumanna og síta- múslíma. ísraelskir embættismenn sögðu um miðja vikuna að flmm þúsund Líbanir hefðu flúið yfir til ísraels frá því skyndiflutningur ísraelsku hermannanna burt frá Líbanon hófst á þriðjudagsmorgun. Flóttamennirnir þurfa á læknis- aðstoð og annarri nauðsynlegri þjónustu að halda, svo og athvarf frá skæruliöum Hizbollah. Leiðtogar skæruliða hafa fullviss- að flóttamennina um að ekki verði gripið til hefndarráðstana gegn þeim fyrir samstarf þeirra við ísra- elska setuliðið síðastliðin 22 ár. En erfltt er að eyða ótta flóttamann- anna sem eru kristinnar trúar. Slátrað eins og sau&fé „Eina athvarfið sem ég vildi er frá Hizbollah. Þeir hefðu áreiðan- lega slátrað okkur eins og sauðfé," sagði John, 39 ára gamall fyrrum hermaður SLA, sem þorði ekki að segja fréttamanni Reuters fullt nafn sitt. John og fjölskyldu hans hafði ver- ið komið fyrir í tjaldborg í bænum Korazim þar sem útsýnið yfir Galí- leuvatn er stórkostlegt. Flóttamennirnir komu margir hverjir allslausir til ísraels, aðeins með fótin sem þeir voru í. Aðrir voru þó svo lánsamir, ef hægt er að kallað svo, að geta troðið ofan í eina ferðatösku. Eiginkona Johns, Geor- gette, var ein þeirra síðarnefndu. „Ég eyddi tuttugu árum ævinnar í að kaupa alls lags hluti og að byggja upp heimili. Sjáið núna hvað orðið er um mig,“ sagði Georgette þar sem hún sat í rykugum fótunum ofan á ferðatösku sinni. Yossi Beilin, dómsmálaráðherra ísraels, sagði að ísraelsmenn myndu gera aflt sem þeir gætu fyrir þessa fyrrum liðsmenn SLA sem lögðu á flótta. „Þeir sem vilja koma til Israels mega það og vera hér um tíma,“ sagði ráðherrann. John og Georgette og fjölskylda þeirra biðu eftir því að vera flutt frá Korazim til annars og betri staðar. „Ef guð lofar fáum við ísraelskan ríkisborgararétt," sagði John, fyrr- um liðsmaður Suður-líbanska hers- ins, bandamanna ísraela í Líbanon, og núverandi flóttamaður. Byggt á Washrngton Post, Le Monde, New York Times og Reuter. Hershöfðingi með engan her Antoine Lahad, yfirmaöur Suöur-líbanska hersins, var borubrattur fyrir skömmu og sagðist ætla aö verja sitt og sína eftir brottflutning ísraelskra hersveita frá Líbanon. Annaö hefur nú komiö á daginn, her hans í upplausn. Endalokum hersetunnar fagnað Fulloröin kona frá þorpinu Rumaysh fagnaöi Émile Lahoud þegar hann heimsótti héruöin sem ísraelar höföu hersetiö í 22 ár en yfírgáfu í skyndingu ívikubyrjun, nærri tveimur mánuöum áöur en fyrirhugaö var.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.