Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 I>V Helgarblað Vargur í vé(l)um Bókmennta- fræöingurinn Geir Svansson er á því aö um- fjöllunarefni Matrix sé ekki eins fjarstæöu- kennt og þaö kann aö viröast. Veruleikinn er sannarlega ekki allur þar sem hann er séður í fram- tíðartryilinum The Matrix, eða Fylkinu. Aðalsögu- hetjan, skrifstofu- blókin Anderson dagsdaglega en tölvuhakkarinn Neo í frístundum, fær snemma að vita að hversdags- leikinn sem hann lifir í, heimurinn eins og hann og samferðamenn hans skynja hann, er ekkert annað en „hula sem dregin er okkur yfir höfuð til að dylja sann- leikann" eins og ... skæruliðaleiðtog- inn Morfeus upplýsir Neo um. Sannleikurinn í Fylkinu er nefni- lega sá aö veruleikinn er sýndar- rými og eftirlíking í mögnuðu tölvu- forriti sem ofjarlar mannsins, gervi- greindar-tölvur og -vélar, hafa hann- að til þess að hafa ofan af fyrir úr- eltu lffsformi. Mannskepnan er nefnilega til einskis nýt á jörðinni lengur nema til að framleiða raf- magn fyrir vélarnar sem hafa ekki í aðrar auðlindir að sækja vegna skelfilegs ástands himins og jarðar. 1 þeim tilgangi er maðurinn klónað- ur og ræktaður í milljarðatali og viðhaldið i gervi-móðurlegi allan sinn líftíma. En tO að hámarka framleiðslu og auka endingu „raf- hlaðnanna" þarf að veita mannin- um huglæga fróun og blekkja hann með því að gefa honum „lausan tauminn" í sérhönnuðum sýndar- veruleika sem líkir eftir venjulegu borgarlífi á ofanverðri 20. öld. Vélunum tU ama er óværan þó enn til staðar; til er samfélag utan- legsmanna sem komist hefur undan og byggt sér borgina Síon á leynd- um stað í iðrum jarðar (kviði Gaju). Þama eru á ferðinni harðskeyttir veruleikasinnar sem hafna sýndar- verundinni og stunda skæruhemað gegn alræði vélanna. Leiðtogi þeirra er Morfeus en Neo er hvorki meira né minna en Messías veru- leikasinna: sá sem getur leitt bylt- inguna fyrir nýrri veröld gegn ríkj- andi vélöld. Velkomin í eyðimörk veruleikans Fylkið (sem gæti jafnframt heitið Fylgjan þar sem „matrix" þýöir einnig móðurleg) vekur spumingar um skynjun og upplifun okkar á samtímanum en einnig um framtíð- arhorfur mannsins. „Þú hefur lifaö í draumi, Neo,“ segir Morfeus þegar hann sýnir honum heiminn eins og hann lítur út í raun og við blasa kol- svartar rústir mengaðs og óbyggi- legs heims þar sem vélveran ræður ríkjum: „Velkominn í eyðimörk veruleikans." Er nema von að sum- ir vilji ekkert af þessari eyðimörk vita og stöku frelsingjar séu tilbún- ir, eins og Cypher í myndinni, að svíkja sinn Frelsara til að komast aftur í Fylkið/Fylgjuna og hvila ör- uggur i gervileginu, á sýndarvera- legu ímyndunarflugi í samlífrænu sambandi við „móður“ sína, vélina? Hugdettuna um eyðilegt ástand veruleikans sækja þeir Wachowski- bræður til franska menningarfræð- ingsins Jeans Baudrillards sem hef- ur haldið því fram að veruleikinn sé okkur horfinn en í stað hans komn- ar eftirlíkingar, raunverulegri sjálf- um „raunveruleikanum" sem sé þar með orðinn „ofurverulegur". Stað- hæfing Baudrillards um „eyðimörk veruleikans“ gerði hann frægan og alræmdan í lok áttunda áratugar- ins. (Um kenningar hans má lesa á íslensku í nýútkominni Atviksbók Reykjavíkur-akademiunnar og Bjarts: Jean Baudrillard: Frá eftir- líkingu til eyðimerkur.) Framtíðartryllir brœðr- anna Larrys og Andys Wachowskis, Matrix, vakti mikla athygli á liðnu ári fyrir hvort tveggja, tæknilega úr- vinnslu og allnýstárlega heimsmynd sem þar er dregin upp. í eftirfarandi hugleiðingu um (ný)manninn í „eyði- mörk veruleikans“ er leitt að því getum að téð- ar hugmyndir séu ef til vill ekki jafn ólíkindaleg- ar og í fyrstu kann að virðast. Þótt full ástæða sé til að taka menningarrýni Baudrillards alvar- lega er fráleitt að taka hana bókstaf- lega: Staðhæfingar hans um ofur- verulegt ástand raunverunnar verð- ur að skoða sem líkingamál til þess að „lýsa“ þeim fjölmiðlaða veru- leika sem við búum við; þá undar- legu veruleikafirrð sem við skynj- um t.d. þegar við horfum upp á hörmungar í beinni útsendingu (hugsanlega okkar eigin), í raun- tíma, í fullkomnu afskiptaleysi. í vissum skilningi upplifum við ekki dauðann (né lífið) lengur nema á táknrænan hátt, og varla það. Þótt bókstafleg útfærsla Wachowski-bræðra sé fjarlæg hug- myndum Baudrillards minnir hún á þá tæknilegu möguleika sem eru þegar fyrir hendi eða á næsta leiti, til dæmis hvað varðar alls konar sýndarverulega upplifun í tölvu- geimi (cyberspace) eða sýndarrými. Áður en langt um líður verður t.d. án efa hægt aö „beintengjast" tölv- unni og spóka sig um í sýndarver- und - með fullri vitund. Uppgangur gervigreindar Varla era allir tilbúnir að sam- þykkja að sú heimsmynd sem dreg- in er upp í Fylkinu sé hugsanlegur möguleiki. Að gervigreindar-vélar eða tölvur taki völdin af manninum, að tími hins viti boma manns líði einfaldlega undir lok. Er þessi gamli, meinti ótti mannsins við hið ólífræna ekki orðinn dálítið klénn? Er þetta ekki bara hálfhallærislegt skáldskaparbull? Ekki öldungis. Nýleg skrif ýmissa vísindamanna og hugsuða benda til annars. Kevin Warwick, prófessor í stýrifræði (cybernetics) við háskól- ann í Reading á Englandi, er einn þeirra sem telja að stutt sé í að gervigreindin, eða þróaðir tölvu- heilar, skjóti mannsheilanum ref fyrir rass. í bók sinni, í huga vélar- innar (London: Arrow 1998), spáir Warwick því að vélin muni taka manninum fram að vitsmunum um miðja öldina. Hún muni í framhald- inu öðlast vitund og þá sé þess skammt að bíða að hún taki af manninum völdin. Hann leiðir að því getum, ekki ólíkt Wachowski- bræðrum, að vélarnar muni ala manninn, erfðabættan og klónaðan að sjálfsögðu, sem eins konar hús- dýr til að sinna ýmsum verkum. Visindamaðurinn Ray Kurzweil þykist í bókinni Öld andlegra véla (London: Penguin 1999) vita að þeg- ar á fyrstu áratugum aldarinnar verði munur milli manns og vélar hverfandi, að gervigreindin öðlist þegar fram í sækir mannlegar vidd- ir, að sálin og silíkonflagan verði að lokum eitt. Um samruna manns og vélar hafa fjölmargir vísindamenn tjáð sig og hugleiðingar um hugsan- lega yfirtöku vélanna virðast settar fram í fúlustu alvöru. Hrollvekjandi staðleysuveröld Fylkisins er því kannski ekki algerlega út í bláinn? „Eins og í draumsýn bjargast Jer- úsalem" (Jes. 29.7) Öll von er samt ekki úti í Fylk- inu. Öðru nær: Þótt það bijóti dálít- ið í bága við svala ímynd kvik- myndarinnar byggist andspyrnan gegn alræði vélanna á (hjá)trúar- legri von og hálfgerðu fagnaðarer- indi. Myndin er gegnskotin kristn- um og goðsögulegum vísunum. Neo er beinlínis kallaður Kristur í myndinni og andspymukónan sem hann verður skotinn í ber nafn sem vísar í heilaga þrenningu, Trinity. Síon er ginnheilagt nafn á Jerúsal- em. Boðskapurinn er kannski helsti annmarki Fylkisins. Hugmynda- fræðilega jaðrar viö að hægt sé að kenna myndina við „nýaldarsam- krull“ sem (s)elur á æskudýrkun og hjátrúnni á eilíft (æsku)líf. Fylkið er hannað (hannandi) fyrir tölvu- leikjakynslóð sem á alltaf „einn kall eftir“ eða getur alltént byrjað nýjan leik þegar meldingin „Game over“ blikkar á skjánum. Þess vegna þarf Neo að rísa upp frá dauðum og öðl- ast eilíft líf í sýndarverundinni sem kölluð er Fylkið - aftur og aftur: að minnsta kosti i The Matrix 2 og ef til vill The Matrix 3.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.