Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Síða 19
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 19 DV Helgarblað Sviðsljós Forfallinn Pacers- aðdáandi David Letterman, spjallþátta- kóngurinn frægi, hefur löngum þótt sérlundaður. Letterman, sem er annálaður stuðningsmaður körfu- boltaliðsins Indiana Pacers, hefur i áranna rás skemmt sjálfum sér á kostnað New York-borgara með því að lýsa þessari skoðun sinni opin- berlega í sjónvarpi fyrir fullum sal af áhorfendum frá New York. Eins og flestir vita þó styðja íbúar New York að sjálfsögðu Nicks-liðið eins og góðum jorkara sæmir. Stundum, þegar sá gállinn er á honum, tekur hann sig jafnvel til og bunar út úr sér heilu leikmannalistunum af gömlum hetjum liðsins og öðrum minni spámönnum öðrum til hrell- ingar. Um daginn keyrði hins vegar allt um þverbak þegar hann sendi einn af aðstoðarmönnum sínum út í búð í miðri útsendingu til að kaupa 34 treyjur, merktar liðinu. Aðstoð- armaður Lettermans, sem sat fyrir svörum að loknum þætti, sagðist ekki vita betur en David ætti bunka af slíkum treyjum heima fyrir og skildi þar af leiðandi ekkert hvað uppátækið átti að þýða. Með lífvörð á leikskólanum Spjallþáttastjórinn Rosie O’Donnell er á því að betra sé að vera en vera ekki grár fyrir jám- um þegar kemur að því að vemda afkvæmi sín. O’Donnell hefur látið í ljós þann eindregna vilja sinn að fjögurra ára sonur hennar fái vopnaðan lífvörð til að fylgja sér í leikskólann næsta haust. Rosie hefur í framhaldi af því sótt um byssuleyfi. Þegar Rosie var innt eftir þessu nefndi hún til sögunnar fyrirtækið sem umræddur lífvörð- ur starfar fyrir og sagði það hafa ráðlagt sér að sækja um leyflð. Hún hefur ekkert á móti þvi að þaulvanur öryggisvörður gangi um með byssu,“ sagði talsmaður O’Donnell. „Hann verður ekki vopnaður á meðan hann er á skóla- lóðinni." Skólayfirvöld hafa orðið við beiðni O’DonneU um að dreng- urinn komi í skólann í fylgd líf- varðar en Rosie hefur að undan- fömu fengið nafnlausar hótanir vegna stuðnings hennar við tak- mörkun á byssueign Bandaríkja- manna. Slegist um nasista Sjálfsagt kannast lesendur eitt- hvað við orðróm þess efnis að Jodie Foster hafi hug á að leika Leni Riefenstahl í samnefndri kvikmynd um ævi þessarar konu sem varð al- ræmd fyrir að starfa innan vébanda nasista í síðari heimsstyijöldinni sem áróðurskvikmyndagerðarmað- iu Hitlers. „Hún er ótrúleg kona - jafnskýr og faileg og hún hefur alltaf verið og með ótrúlegan lík- ama,“ segir Jodie um Leni sem er 97 ára gömul. Nýjustu fregnir herma hins vegar að nú sé komið babb í bátinn því þýskur kvik- myndagerðarmaður hefur einnig áhuga á að gera mynd um ævi Riefenstahl og hann er ekki á því að láta Foster komast upp með neitt annað. Hefur hann að eigin sögn samþykki Leni fyrir hugmyndinni og hefur hann falast eftir Oliver Stone til að leikstýra myndinni og Sharon Stone til að fara með aðal- hlutverkið. Með tölvuvæðingu og nettengingu fyrirtækja, stofnana og heimila hefur skapast ný heimsmynd þar sem fjarlægðir skipta ekki lengur máli. Þessi nýja heimsmynd kallar á nýjan Atlas. ACO kynnir sérstaka útgáfu af iBook, iBook Grafít með kröftugum 366 MHz G3 örgjörva, 64 Mb vinnsluminni og 6 Gb hörðum diski. Innbyggt geisladrif og 56k mótald og þú líður um Netið án nokkurrar fyrirhafnar. iBook Grafít sameinar kraftmikla vél og hönnun í hæsta gæðaflokki. 184.900 kr. stgr. sco Skipholti 21 • Sími 530 1800 • Fax 530 1801 • www.appie.is ! J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.