Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Page 32
32 Helgarblað LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 J>V Harmoníkan nýtur vaxandi vinsælda meðal yngra fólks: Upp úr öldudalnum tónlistin sé því komin upp úr öldu- dalnum eftir að áhugi á henni hafði lverið lítill síðan á bítlatímanum þegar rafmagnsgítarar og rokk voru það sem öllu máli skipti. Matthíasi Kormákssyni, 19 ára gömlum nemanda í Menntaskólan- um í Reykjavík, hefur verið lýst sem björtustu voninni í íslenskum harmoníkuleik. Þótt Matthías sé imgur að árum hefur hann spilað á harmoníku í 8 ár. -KGP Bragi Hlíðberg Braga þarf ekki aö kynna fyrir iands- mönnum. Hann hefur getiö sér gott orð fyrir túlkun og flutning á klass- ískri harmoníkutónlist. Harmoníkan hefur notið stigvax- andi vinsælda sem hljóðfæri hér á landi undanfarin ár. Þar ræður einna mestu um að yngra fólk er í vaxandi mæli að að taka ástfóstri við nikkuna og nú er svo komið að margir af færustu og efnilegustu harmoníkuspilurum landsins eru í yngri kantinum. Nöfn eins og Karl Jónatansson, Bragi Hlíðberg, Reyn- ir Jónasson o.fl. halda vissulega merkjum tónlistarinnar á lofti og munu gera áfram. Þó er merkilegt til þess að hugsa að ekki eru svo ýkja mörg ár síðan ungliðastarf meðal harmoníkuspilara lá svo að segja niðri. Hafa margir á orði að harmoníku- Karl Jónatansson Karl hefur um árabil veriö ötull kennari og boöberi harmoníkutónlistar á íslandi. Hann hefur bæöi kennt Matthíasi Kormákssyni og Ásu Margréti Eiríksdóttur. Ungur harmoníkusnillingur: Bjartasta vonin á S Islandi „Ég hafði alltaf mikinn áhuga á harmoníkutónlist alveg frá því ég var lítill drengur," segir Matthias aðspurður um hvaðan áhuginn á jafn óvenjulegu en um leið hefð- bundnu hljóðfæri hafi komið. „Frændi minn spilaði á harm- oníku og ég hafði alltaf gaman af að hlusta á hann þegar ég fór í sveit- ina,“ segir Matthías jafnframt sem fékk fyrstu harmoníkuna 11 ára gamall. Matthías lærði fyrst i stað hjá Viðari Hörgdal en flutti sig fljótlega yfir til Karls Jónatanssonar þar sem hann lærði á harmoníku allt þar til fyrir þremur árum að Matthías fór í einkakennslu hjá flnnskum harm- oníkusnillingi, Tatu, sem þykir einn sá færasti f heiminum. Hjá Tatu lærði Matthías í eitt ár. Keppti í Finnlandi I nóvember í fyrra dró svo til tið- inda þegar Matthíasi bauðst að taka þátt í alþjóðlegri keppni harm- oníkuleikara þar sem hann stóð sig með prýði þótt ekki hafi hann unn- ið til verðlauna. Keppnin fólst í því að leika verk Pietros Frossini en það munu vera margslungin verk og ekki á færi hvers sem er að túlka þau og spila svo sómi sé að. Matthí- asi tókst það hins vegar með ágæt- um og ber að geta þess að meðal keppnislanda voru Finnland og Rússland en í þessum löndum hefur mikil rækt verið lögð við harm- oníkutónlistina og þar eru meira að segja sérstakir tónlistarskólar og akademíur sem sérhæfa sig í harm- oníkutónlist og því augljóst að bak- grunnur keppenda var ekki sá sami. Og hvað er svo fram undan hjá þessum unga harmoníkusnillingi? „Það er svo sem aldrei að vita hvað ég geri. Ef mér býðst að fara erlendis í tónlistarnám gæti ég svo sem vel hugsað mér það þó að ég viti náttúrlega að það er ekki mikið að gera á íslandi fyrir harmoníku- leikara og óvíst hvort ég gæti haft atvinnu af því hér heima,“ segir Matthías sem vill einbeita sér að að klassískri harmoníkutónlist. -KGP Matthíasi Kormákssyni hefur veriö lýst sem björtustu voninni í íslenskri harmoníkutónlist. Aóspuröur segist Matthías vel geta hugsaö sér aö leggja land undir fót og læra harmoníkutónlist erlendis. Ása Margrét ásamt systur sinni Hrafnhildi Heklu. Ingunni Erlu, vantar á myndina. Harmoníkan er fjölskylduhljóðfæri: Þrjár systur um nikkuna - móðir þeirra einnig komin með bakteríuna Til marks um það hve harm- oníkan hefur sótt á má nefna sem dæmi þrjár systur úr Reykjavík og móður þeirra sem ailar spila á harmoníkur. Þær Ása Margrét (18), Ingunn Erla (16) og Hrafnhild- ur Hekla (12) spila allar á harm- oníku og hafa gert um árabil. „Þetta byrjaði allt á því að ég og Inga fengum harmoníku saman í jólagjöf fyrir svona fimm árum,“ segir Ása Margrét, harmoníkuspil- ari og nemandi í 5. bekk Mennta- skólans í Reykjavík. Ása Margrét segir þær systur hafa æft á yngri árum en nú sé minna æft og meira spilað opin- berlega. Hrafnhildur Hekla fylgdi svo fordæmi systra sinna og nú er móðir þeirra, Ragnheiður Guð- mundsóttir, einnig farin að spila á nikkuna. Ása Margrét tekur alls ekki und- ir þá skoðun að harmoníkan sé erfltt hljóðfæri en þess ber þó að geta að systurnar þrjár spila allar á píanó og það gerir Ása Margrét reyndar enn. „Hrafnhildur Hekla æfir mest á harmoníkuna af okkur þremur en fyrir mig skipti píanóið mestu - harmoníkan er bara svona með. Ég gríp í hljóðfærið við sérstök tækifæri ásamt kennara mínum, Karli Jónatanssyni - mestmegnis á jólaböllum og í Árbæjarsafni," segir Asa sem um tíma spilaði einnig á böllum í Glæsibæ en Glæsibær er eins konar Mekka fyrir unnendur góðrar harmoníku- tónlistar. En er ekki erfitt að spila á harm- oníku, sérstaklega þar sem hún er svo þung? „Nei, ég get nú ekki sagt það. Þær eru náttúrlega léttari fyrir böm, í kringum 10 kíló, og svo þyngjast þær og eru stærstar og þyngstar í karlaflokki," segir Ása Margrét sem hefur fullan hug á að leggja rækt við nikkuna, þótt ekki sé nema til að halda kunnáttunni við. -KGP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.