Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Qupperneq 52
Helgarblað
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000_
DV
Frá Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn
Hann var valinn besti alþjóöaflugvöll-
urinn í könnun Alþjóölegu flugferöa-
samtakanna.
Kastrup
* besti flug-
völlurinn
- að mati ferðamanna
Alþjóðlegu flugferðasamtökin
(IATA) gerðu í fyrra könnun á flug-
stöðvum víða um heim. Lagðar voru
spumingar fyrir farþega sem vörðuðu
þætti á borð við aðstöðu á flugvöllun-
um, biðtíma eftir innritun, þjónustu og
viðmót starfsfólks flugfélaganna.
Einnig var spurt um þá þjónustu sem
aðrir aðilar veita á flugstöðvunum svo
sem veitingastaðir, bílaleigur og al-
menningssamgöngufyrirtæki. Alls
voru lagðar spumingar fyrir ferða-
»-«nenn á 57 stórum flugstöðvum á aust-
urströnd Asíu, Evrópu og Norður-Am-
eríku og kom Kastrup-flugvöllur í
Kaupmannahöfn best út þegar á heild-
ina er litið. í öðm sæti lenti Changi-
flugstöðin í Singapúr og í því þriðja
Vantaa-flugstöðin í Helsinki. Athygli
vekur að aðeins ein bandarísk flugstöð
er hópi þeirra tíu efstu og að þegar
spurt var um samgöngur milli flug-
stöðva og miðborga vom fjórar flug-
stöðvar af flmm efstu í Evrópu.
m Dýrara að ferð-
ast um Nepal
- stjómvöld hækka álögur á
ferðamenn
Stjómvöld í
Nepal taka nú
tvisvar sinnum
hærri gjöld af er-
lendum ferða-
mönnum sem
leggja leið sína
um vemdarsvæð-
in Annapuma og
Manaslu í vestur-
hluta iandsins.
Innfæddir þurfa
j^em áður ekkert
að borga fyrir að
ferðast um téð
svæði. Að sögn yf-
irvalda er gripið
til þessara ráðstafana í því skyni að
afla fjár fyrir vemdun svæðanna og
uppbyggingarstarf. Aðilar innan ferða-
þjónustunnar telja að hún muni líða
fýrir hækkanimar, einkum hafa þeir
sem standa að fjailaferðum lýst yfir
áhyggjum enda er landið afar vinsælt
meðal fjallgöngumanna hvaðanæva úr
heiminum.
Þýsku járabraut-
iraar kynna
nýja lest
- nær allt að 300 km hraða
í næstu viku taka Þýsku jámbraut-
imar í notkun nýja gerð af lest sem er
sú nútímalegasta og hraðskreiðasta
sem þær hafa yflr að ráða en gripurinn
getur náð allt að 300 km hraða á
klukkustund. Sá galli íylgir þó gjöf
Njarðar að til þess að ná fúllum hraða
verður lestin að vera á sérstökum
sporum en þau verða ekki tilbúin fyrr
en árið 2002.
Mount Everest
Nú verður örlítlð
dýrara fyrir
menn að prila
upp á Everest
eða önnur fjöll í
Nepal.
'yí£
Býrðu í Kaupmannahöfn?
Ertu á leiðinni ???
^www.islendingafelagid.dk
Wm
Borgarf jöröur eystri býr sig undir ferðamannasumar:
Veðurspáin gæti
ekki verið betri
- segir Helgi Arnfinnsson, framkvæmdastjóri Álfasteins
Ferðaþjónusta og fjöldi ferða-
manna til Borgarfjarðar eystri
eykst ár frá ári og standa vonir
heimamanna til þess að straumur-
inn muni enn aukast í sumar.
Landslag í Borgarfirði þykir með
afbrigðum fagurt og gönguleiðirn-
ar margar og fjölbreyttar í ná-
grenninu. íbúar Borgarfjarðar eru
tæplega tvö hundruð en ekki er
óalgengt að ferðamenn á svæðinu
séu mun fleiri þegar best lætur
yfir sumartímann. Mikil áhersla
er lögð á að bjóða fólki upp á
gönguferðir og að sögn Skúla
Sveinssonar, sem rekur gistiheim-
ilið Borg, geta ferðamenn fengið
góða ráðgjöf um gönguleiðir og
einnig eru trússferðir í boði. „Hér
er gríðarmargt að skoða og nægir
að nefna staði eins og Hvannagil í
Njarðvík, Álfaborg, smábátahöfn-
ina við Hafnarhólma, kirkjuna
með altaristöflu Kjarvals og margt
fleira. Þá hefur verið reist fyrsta
fuglaskoðunarhús landsins hérna
við frystihúsið og í fjörunni þar
fyrir neðan má gjama sjá margar
fuglategundir," segir Skúli.
Sextán stikaðar leiðir
íslenskir gönguhópar hófu fyrst
að heimsækja Borgarijörð í ein-
hverjum mæli árið 1990 og síðan
hefur fjöldi göngumanna aukist ár
frá ári. Ferðamannahópur Borgar-
fjarðar hefur síðustu fjögur árin
unnið skipulega að því að merkja
gönguleiðir og gefa út gönguleiða-
kort fyrir þá sem eru ókunnugir
svæðinu. Nú eru alls sextán
gönguleiðir stikaðar og í vikunni
var ferðamannahópurinn í sam-
starfi við Vegagerðina að koma
fyrir nýjum merkingum við upp-
haf hverrar leiöar; þannig að
göngufólk ætti ekki að vera í vafa
um að það sé á réttri leið.
„Sumarið í fyrra var gott en við
viljum gera enn betur í sumar.
Það er okkur gleðiefni að nýr skáli
verður vígður í Húsavík 22. júlí
næstkomandi en hann breytir
Náttúrufegurð eins og hún gerist best
Dyrfjöllin í fjarska og þorpiö Bakkageröi þar sem feröamenn fá notiö ýmiss konar þjónustu og afþreyingar.
■
Ferðaþjónusta í Borgarfirði
Skúli Sveinsson hefur rekið gistiheimiliö Borg frá árinu 1996 auk þess
aö vera leiðsögumaður fyrir hreindýraskyttur og veita ráögjöf
um gönguleiöir á svæöinu.
miklu fyrir þá sem ganga frá Loð-
mundarfirði til Breiðuvíkur. Við
stefnum líka að því að endurbæta
enn frekar merkingar á gönguleið-
unum og erum hvergi hætt þótt
sextán mismunandi leiðir hafi ver-
ið stikaðar," segir Helgi Arnfinns-
son, framkvæmdastjóri Álfasteins.
Hann segir jafnframt að dagskrá
sumarsins verði fjölbreytt og vel
verði tekið á móti ferðafólki. Um
verslunarmannahelgina verður
hinn árlegi Álfaborgarsjens sem
undanfarin ár hefur laðað hund-
ruð manna að. „Við erum bjartsýn
í upphafi sumars enda getum við
ekki annað eins og veðurspáin er.
Gamla veðurfólkið á Dalvík hefur
nefnilega spáð frábæru veðri hér
og jafnvel er talað um veðurmet
einhvem tima í sumar - og þá
ekki hvassviðri," segir Helgi.
-aþ
Sádi-Arabía
opnuð ferða-
mönnum
- veröa að fylgja vissum reglum
Stjómvöld í Sádi-Arabíu hafa
ákveðið að opna landið meira fyr-
ir erlendum ferðamönum en það
hefur hingað til verið að miklu
leyti lokað Vesturlandabúum og
öðrum sem ekki aðhyllast ís-
lamska trú. Fyrr á árinu voru
samþykkt drög að lögum sem
miða að þvi að veita ferðamönn-
um vegabréfsáritanir og nú þegar
hafa borist margar fyrirspumir
hvaðanæva úr heiminum. Þeir
sem vilja ferðast til landsins verða
þó að hlíta vissum reglum, til
dæmis er öll meðferð áfengis
bönnuð, ógiftu fólki er haldið að-
skildu og konum gert að ganga
með slæðu. Einnig fara stjómvöld
fram á að fólk ferðist um landið i
hópum á vegum sádi-arabískra
ferðaskrifstofa en sé ekki að þvæl-
ast þar á eigin spýtur.
Þeir staðir sem einkum er talið
að muni draga til sín ferðamenn
eru Asirhérað í suðausturhluta
landsins, Taif i vesturhlutanum
og Yanbu við Rauðahafið. Einnig
búast menn við því að pílagríma-
staðir verði vinsælir meðal ferða-
manna þó að borgimar heilögu,
Mekka og Medína, verði enn sem
áður lokaðar þeim sem ekki em
múslímar.
Gestakortið get-
ur borgað sig
- veitir aðgang að 19 stöðum auk SVR
Gestakortið
Veitir aögang aö 11 söfnum, sjö sundlaug-
um, Fjölskyldu- og húsdýragaröinum
og i vagna SVR.
Gestakort Reykjavíkur
hefur verið geflð út nýrri
útgáfu i tilefni þess að
Reykjavík er menningar-
borg Evrópu í ár. Kortið
veitir aðgang að ellefu söfh-
um, öllum sjö sundlaugum
borgarinnar, Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Laugar-
dal og einnig sem farmiði í
Strætisvagna Reykjavíkur.
Að sögn Vilborgar
Guðnadóttur, forstöðu-
manns Upplýsingamið-
stöðvar ferðamála, getur
Reykjavík nú státað af mjög hlið-
stæðu korti og er á boðstólum í
mörgum höfuðborga Evrópu.
„Tilgangur gestakortsins er að
gefa sem flestum aðgang að fjöl-
breyttri þjónustu og menningar-
starfsemi á hagstæðu verði. Gesta-
kortið er ætlað öllum, innlendum og
erlendum ferðamönnum og ekki síst
Reykvíkingum sjálfum. Það er ekki
erfitt að reikna út að gestakortið
getur margborgað sig fyrir fólk sem
vill njóta afþreyingar og menningar
á einum degi í horginni. Eftir heim-
sókn á SEifn, í sundlaug og tvær ferð-
ir í strætó er kortið búið að borga
sig og þá er nóg eftir sem hægt er að
gera,“ segir Vilborg.
Gestakortið fæst í Upplýsinga-
miðstöð Reykjavíkur við Banka-
stræti og því fylgir einnig handbók.
Gestakort í einn sólarhring kostar
900 krónur, 1200 í tvo sólarhringa og
1500 í þrjá sólarhringa. -aþ