Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Page 6
6
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
Fréttir
DV
Formaður Framsóknarflokksins á yfirstandandi flokksþingi:
Vextir verða að lækka
„Vextir verða að lækka á næstunni,
en það má ekki verða til að veikja
gengið. Ég tel því óhjákvæmilegt að
styrkja gengið með öðrum ráðum.“
Þetta sagði Halldór Ágrímsson, for-
maður Framsóknarflokksins og utan-
ríkisráðherra, m.a. i ræðu sinni á 26.
flokksþingi flokksins, sem hófst á Hót-
el Sögu í gær. Þingið er haldið undir
kjörorðinu „Framsókn - fyrir land og
þjóð.“
Halldór sagði í ræðu sinni vitað að
viðskiptahalli væri of mikill, of mikið
ijármagn færi úr landi og of lítið fjár-
magn kæmi inn í landið. Einnig væri
vitað að vextir væru of háir. Fyrirtæki
og heimili gætu ekki borið þá háu
vexti sem hér væru til langframa sem
væri langt yfir því sem tíðkaðist í ná-
grannalöndunum.
„Það verður að minnka fjármagns-
flæði út úr landinu og auka það inn í
landið,“ sagði Halldór um styrkingu
gengisins: „Ráðstafanir í þessa átt
verða að fela í sér hagstæðara
skattaumhverfl atvinnulífsins, meiri
þátttöku erlendra ijármálafyrirtækja
hér á landi, einfaldari reglur um er-
lenda fjárfestingu og sölu ríkisins á
hlutabréfum í ríkisfyrirtækjum
þannig að lífeyrissjóðir og aðrir hafl
næg tækifæri til að fjárfesta í landinu.
Aðhald í ríkisflármálum skiptir vissu-
lega miklu en það má ekki verða eina
aðgerðin því þá veikist velferðarkerf-
ið.“
Kvótakerfið áfram
Formaður Framsóknarflokksins
ræddi einnig atvinnulifið og afstöðu
sína í kvótamálum:
„Hagræðing er nauðsynleg til að at-
vinnulífið standist samkeppni og
tryggi aíkomu fólks og fyrirtækja,"
sagði hann. „En það er rétt að færri
halda hlut sínum og byggðimar eru
misvel settar. Á þá að snúa til baka og
leggja af kvótakerfi og annað skipulag
sem miðar að því að auka hagkvæmni
og skynsamlega nýtingu auðlinda?
Nei, það leysir lítið, en skapar ný
vandamál fólks, fyrirtækja og byggða.
Það má hins vegar bæta og breyta í
ljósi aðstæðna og sætta ólík sjónarmið
með sanngimi að leiðarljósi.
Við framsóknarmenn eigum að taka
þátt í slíkri sátt. Með það í huga hvött-
um við til starfs auðlindanefndar og
við eigum að flúka því verki.“
Halldór kom víða við í ræðu sinni
og ræddi m.a. um starf umræðunefnd-
ar um Evrópumál og framtíðartengsl
íslands við Evrópusambandið. Hann
kvaðst afar ánægður með það starf
sem nefndin hefði unnið. Virkir trún-
aðarmenn flokksins teldu ekki tíma-
bært nú að taka ákvörðun af eða á um
inngöngu í Evrópusambandið, en teldu
nauðsynlegt að láta á það reyna hvort
ekki mætti ná fram breytingum á
samningnum um Evrópska efnahags-
svæðið.
Evrópumálin
„Ég styð niðurstöðu nefndarinnar
um að vinna áfram að því að treysta
samninginn um Evrópska efhahags-
svæðið,“ sagði Halldór í ræðu sinni.
„Ég hef áður lýst áhyggjum minum í
þá veru að vægi hans innan hins evr-
ópska samfélags geti minnkað og hætt
sé við að hann tryggi ekki til framtíð-
ar hagsmuni okkar nægilega vel. Því
verðum við að vera undirbúin að taka
yfirvegaða ákvörðun um hvort og þá
með hvaða skilmálum við værum
hugsanlega tiibúin til að leita eftir
samningum við Evrópusambandið."
Varðandi einkavæðingu hér á landi
sagði Halldór að sér fyndist fátt mæla
á móti því, en flest með, að ríkið drægi
sig út úr þjónustu á fiármálamarkaði
og eftirléti hana einkaaðilum eða sam-
tökum þeirra. „Mér finnst sama máli
gegna um rekstur flarskiptaþjónustu á
borð við símann,“ sagði Halldór. „Mér
er hins vegar ekki sama hvemig það
er gert. Ekki má koma til einokunar á
þessum sviðum og ég tel að við verð-
um að tryggja að þjóðin öll geti notið
þeirrar þjónustu sem nauðsynleg er á
sambærilegu verði."
Formaöur í ræöustól
Halldór Ásgrímsson, formaöur Framsóknarflokkslns, flutti ræöu sína á flokksþinginu sem hófst i gær. Hann kom víöa
viö, ræddi m.a. efnahagsmál, atvinnumál, byggðamál og málefni fjölskyldunnar.
Flokksklemma
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra og Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráöherra meö þvottaklemmu sem
á stendur Hrifla.is sem er netfang
flokksins. Slíkum klemmum var
dreift á borö þingfulltrúa.
Tveir góöir
Guðni Ágústsson landbúnaðarráöherra
og Þráinn Valdimarsson á spjalli.
Dansaö á flokksþingi
/ upphafi flokksþingsins tóku Islandsmeistarar afyngri kynslóöinni í sam-
kvæmisdönsum nokkrar sveiflur viö mikil fagnaöarlæti þingfulltrúa.
Málin rædd
Þingfulltrúar á líflegu spjalli viö formann
sinn. Kannski væntanlegar kosningar á
þinginu hafi boriö á góma?
Fyrsta og annaö
Alþingismennirnir Kristinn H. Gunn-
arsson og Jónína Bjartmarz. Hann
er á sínu fyrsta flokksþingi, en Jón-
ína hefur setiö eitt þing áður.
Heiisaö a baoa boga
Tveir af þremur varaformannsframbjóöendum, Jónína Bjartmarz og Ólafur
Örn Haraldsson, heilsa samflokksfólki viö upphaf þings.
Kosningaspenna
Talsverð spenna ríkti þegar í gær á
flokksþinginu sem lýkur á morgun.
Fyrirliggjandi er kjör varaformanns
flokksins og ritara hans. Þrír era í
framboði til varaformanns: Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra, Jón-
ína Bjartmarz alþingismaður og Ólaf-
ur Öm Haraldsson alþingismaður. Um
ritaraembættið takast á Hjálmar Áma-
son alþingismaður og Siv Friðleifsdótt-
ir umhverfisráðherra. -JSS
______J6 i Umsjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Kem eftir kosningar
Sveitarstjómar-
menn á íslandi
hafa oft mikil sam-
i skipti. Þó farsimi,
i tölvur og faxtæki
leysi margan sam-
skiptavandann, þá
I halda menn áfram
að hittast. Sagt er
að Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, hafi átt brýnt erindi
við kollega sinn Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóra í ísafjarðarbæ. Var
Halldór hlaðinn önnum og átti því
ekki heimangengt. Hringdi hann því
í Ellert og bað hann að skutlast
vestur, hann hefði lausan tima í
dag, laugardag. Sagt er að Ellert
hafa svarað með þjósti: „Ertu vit-
laus maður? Ég fer ekki að koma
vestur fyrir helgina. Ég hef engan
tíma til að keyra til Reykjavíkur og
þaðan í flugvél vestur. Heldur bíð ég
fram á sunnudag eða mánudag. Þá
verða Reykvíkingar búnir að kjósa
flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni og
mikið styttra hjá mér að fara í flug
frá Keflavíkurflugvelli..."
Hagræöing
Fólksflótti af I
landsbyggðinni á í
undanförnum f
árum til höfuð-
borgarinnar hefur I
þann ókost að æ
erfiðara er að |
halda úti því þjón-
ustustigi sem'
æskilegt er. Nú hefur komið í flós að
vel má hagræða á þessu sviði sem
öðram. Pétur Einarsson, eigandi
Hótel Tindastóls á Sauðárkróki, hef-
ur nú upplýst um hagræðingarmái
þar í sveit. Þar hafa menn einfald-
lega sameinað rekstur hestaleigu
Björns Mikaelssonar yfirlögreglu-
þjóns, efhalaug Guðmundar Óla
Pálssonar varðstjóra og ökuskóla
Birgis Hreinssonar varðstjóra, und-
ir einn hatt lögreglustöðvarinnar á
Króknum. Tefla ýmsir gráupplagt
fyrir Pétur að kaupa löggustöðina og
sameina hótelrekstur og rekstur
gistiklefa á löggustöðinni. Þá yrði
hann í leiðinni yfirmaður þeirra sem
nú jagast í honum...
Kristinn út?
Kristinn H.
Gunnarsson er
sagður hafa stimpl-
að sig rækilega
inn í hugi og
hjörtu trillukarla
og landsbyggðar-
fólks með nýjasta
útspili sínu. Með
skýrslu Byggðastofnunar, sem Krist-
inn hefur fengið Harald L. Har-
aldsson til að gera um hræðilegar
afleiðingar kvótakerfisins, er Krist-
inn nú dáður í öllum bæjum lands-
ins, ekki síst Bolungarvík. Aðeins
einn galli er sagður á þessu plotti
Kristins, formaður Framsóknar-
flokksins er saltvondur yfir uppá-
tækinu. Kristinn er þarna að hnýta
i sjálfan móðurarf foringjans og það
kann ekki góðri lukku að stýra. Sagt
er að Kristinn þurfi í framhaldinu
allt eins að leita sér að öðrum flokki
og þá sé spuming hvort Steingrím-
ur J. sé til í að hressa upp á vin-
skapinn að nýju...
Æ, æ, hver datt?
Skoðanakönnun I
DV sýnir að enn j
fellur Samfylking-
in og hrapar í |
Reykjavík úr 29% I
í 16% frá síðustu |
sveitarstjórnar-
kosningum. Menn I
velta fyrir sér
ástæðum, en við síðasta hrap þótti
einsýnt að fall Ingibjargar Pálma-
dóttur í beinni sjónvarpsútsend-
ingu, þar sem Össuri láðist að
grípa, hafi skýrt fylgistapið þá. Nú
þykir erfiðara að leita skýringa en
sagt er að þegar Davíð Oddsson
frétti af nýju könnuninni, hafi hon-
um brugðið mjög og komið hlaup-
andi til Össurar og sagt: „Æ, æ,
hver af ráðherrunum var nú að
detta, Össur minn...?“