Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Side 14
14
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
Úrval notaðra vélsleða
í öllum verðflokkum
Polaris XCR cc800 98 760.000
Polaris XCR cc600 96 475.000
Polaris XCR CC440 93 320.000
Polaris Ultra cc680 96 465.000
Polaris 700RXC SP CC700 99 695.000
Polaris XCR CC440 96 450.000
Polaris Wide Trak CC500 98 495.000
Polaris RMK -tveggja manna CC700 98 650.000
Polaris XCR CC440 95 410.000
SkiDoo Grand Touring SE cc700 99 790.000
Notaðir sleðar með reynslu! iBOSCH |húsið
Opið í dag til kl. 16.00
Nú er besti sleóatíminn framundan. Vertu með!
Vélsleðar með meiru
Nú er besti sleöatíminn að fara í hönd og við ætlum að bjóða þeim sem
kaupa nýjan Polaris vélsleða af árg. 2001, 70-150.000 króna vöruúttekt
hjá Bræðrunum Ormsson eða umtalsverðan afslátt í krónum talið.
Hafió samband vió sölumenn okkar og fáið nánari upplýsingar um þetta
einstaka tækifæri til aö eignast sleóa með meiru.
Opið í dag til kl. 16.00
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Notaðir
Fréttir
I>V
; DV-MYND EVA HREINSDÓTTIR
Shellskálinn er ekkert augnayndi beinlínis, þaö er Blómaborg miklu frekar,
en í söluskála Shell er hægt að komast í hlýjuna snemma á morgnana og
seint á kvölqin. Samt eru farþegarnir ekki sáttir.
Óánægja morgunhrafna í Hveragerði:
Opin sjoppa í stað
lokaðs blómaskála
DV, HVERAGERDI:______________________
Akstursleiðir og afgreiðsla áætl-
unarbifreiða Austurleiðar SBS,
sem sér um áætlunarferðir milli
Hveragerðis, Selfoss og Reykjavík-
ur, tók breytingum innan Hvera-
gerðis sem gengu í gildi um mán-
aðamótin. Aðalbreytingin hjá
Austurleið er fólgin í því að við-
komustaður og þar með öll af-
greiðsla færist úr Blómaborg við
Breiðumörk í Shellskálann við
Austurmörk. Breytingarnar munu
vera gerðar í hagræðingarskyni
fyrir Austurleið en hafa samt kall-
að á undirskriftalista mótmæl-
enda.
Það eru nefnilega ekki allir á
eitt sáttir um breytingarnar. Þó
má geta þess að Shellskálinn er
opnaður kl. 6.45 á morgnana, en
fyrsta rúta til Reykjavíkur fer það-
an kl. 7. Þannig má leiða likum að
því að þeir sem starfa í Reykjavík
eða eiga erindi þangaö telji það
kost að geta beðið inni en Blóma-
borg er ekki opnuð fyrr en kl. 9.30.
Sömuleiðis mun Shellskálinn vera
opinn þar til síðasta áætlunarbif-
reið hefur þar viðkomu á kvöldin.
Hins vegar er úrval vöru meira í
Blómaborg og óneitanlega hlýlegra
þar innan um gróðurinn.
-eh
‘ftj:
DV-MYND SÆDÍS HELGA GUÐMUNDSDÓUIR
Sveitarstjórinn
Björg Ágústsdóttir er dugmikill sveitarstjóri og lætur ekki sitt eftir liggja og
setur timþriö þar sem það á aö vera.
Gámamóttökustöð
opnuð í Grundarfirði
DV, GRUNDARFIRDI:__________________
Fyrir skömmu var tekin í notkun
ný gámamóttökustöð i Grundarfirði
sem er rekin af sveitarfélaginu í
nýju athafnahverfi austast í þéttbýl-
inu. Stöðinni var valinn staður tO
bráðabirgða á lóð við Ártún en sótt
hefur verið um svæði við Hjallatún
skammt frá, þar sem ætlunin er að
stöðin verði frá og með næsta
hausti.
Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri
segir að með móttökustöðinni sé
komið á flokkun sorps og stefnt að
því að auka flokkun og endumýt-
ingu með timanum. Opnun stöðvar-
innar er liður í breytingum sem eiga
sér stað í sorpmálum sveitarfélags-
ins.
„Helsta breytingin er sú að í lok
síðasta árs hætti sveitarfélagið notk-
un gömlu sorphauganna í Hrafnkels-
staðabotni við Grundarfjörð og er
nú sorpið flutt á sameiginlegan urð-
unarstað Vestlendinga í Fíflholtum
á Mýrum. Nýmæli er einnig að sorp
er nú hirt vikulega í dreifbýlinu á
sama hátt og í þéttbýlinu en með
nýjum sorptunnum sem væntanleg-
ar eru á næstunni mun sorphirðing
fara fram á 10 daga fresti. Enn frem-
ur er verið að skoða möguleika á að
koma á flokkun á lifrænu sorpi á
heimilum í sveitarfélaginu til
heimajarðgerðar. Verður þá ákveðn-
um fjölda heimila boðið að taka þátt
í tilraun með þetta til að byrja með
og munu þær fjölskyldur flokka all-
an lífrænan úrgang sem til fellur á
heimilinu í sérstakan jarðgerðart-
ank sem þær fá til afnota. Slíkt
minnkar umfang sorps frá heimilun-
um verulega auk þess sem stuðlað er
að endurnýtingu úrgangs og um-
breytingu í nýtanlegan jarðveg og
mold,“ sagði Björg Ágústsdóttir,
sveitarstjóri í Eyrarsveit, í samtali
við DV. -DVÓ/SHG