Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 Helgarblað Allt upp úr súru og ekkert brauð „Það sem einkenndi íslenskt mataræði um aldir var salt- og kornskortur. Þetta leiddi til þess að Islendingar fóru að geyma mat í súr og um aldir neyttu þeir minna brauðs en aðrar þjóðir. Fyrir utan kornið vantaði líka bæði ofna og eldivið til baksturs. Þetta er í sjálfu sér góð geymslu- aðferð og mjólkursúrinn var síðan þynntur út og hans neytt sem svala- drykks. Um þetta höfum við örfá dæmi frá Noregi svo það er eflaust þaðan sem þetta hefur borist til Is- íands en þar var súrmatur og blöndudrykkja aldrei útbreidd." Þannig lýsir Hallgerður Gísladótt- ir, þjóöfræðingur á þjóðháttadeild Þjóðminjasafns íslands, því sem ein- kennir íslenska matarhefð. Hall- gerður er sennilega fróðust allra núlifandi um nákvæmlega þetta efni. Hún hefur starfað á þjóðhátta- deildinni í kringum 20 ár og sent spurningalista um mat og matar- gerð til þúsunda íslendinga. Drekkt í soðkatli „Satt best að segja er lítið vitaö um mataræði íslendinga á fyrstu öldunum af skrifuðum lýsíngum. Matur kemur varla við sögu i fom- sögunum nema þegar verið er að drekkja einhverjum í soðkatli eða rota hann með bjúga. Matur er svo hversdagslegur og algengur á hverj- um tíma að mönnum hefur ekki Hallgerður Gísladóttir, þjóðfræðingur á þjóðháttadeild Pjóðminjasafns íslands, lýsir íslenskri matarhefð þótt taka því aö segja sérstaklega frá honum. Við getum þó giskað á með nokk- urri vissu að mataræði íslendinga á miðöldum hafi verið nokkuð ólikt því sem síðar varð. Framan af mið- öldum voru mikil tengsl við útlönd og þá voru veður hér hlýrri en síð- ar varð og kornrækt meiri. Þess vegna má ætla að íslendingar hafi margir hverjir borðað líkt og Evr- ópubúar á miðöldum. Það er seinna sem komrækt hverfur nánast vegna harðinda og neysla korns verður hverfandi. Þannig vitum við að \ ostagerð lagðist næstum af, eftir að hafa verið ríkur þáttur í matargerð landsmanna á miðöldum." J Þegar flutningar til landsins juk- ust á 19. öld, í kjölfar iðnbyltingar, má segja að bylting hafi orðið og hinn forni íslenski matur varð í bakgrunni, en á hátíðis- og tyllidög- um borðuðu menn betur en þeir höföu oft gert áður. Kornmeti fór að flytjast til landsins og brauðneysla varð almenn á ný. Hvar er súrmaturinn minn? Það getur verið að okkur finnist stundum eins og hinn gamli ís- lenski matur sé horfinn af borðum landsmanna til hvunndags og birtist aðeins á þorrablótum og öðrum þjóðlegum hátíðastundum. Hall- gerður segir að því sé alls ekki þannig farið heldur sé ótrúlega mik- ið af fornum og þjóðlegum hefðum sem lifir góðu lifi með þjóðinni. „Árið 1998 var haldinn sérstakur dagbókardagur og við fengum landsmenn til þess að halda dagbók og senda okkur. Þetta var 15. októ- ber, þegar sláturtíð stendur sem hæst að fornum sið, og það kom skemmtilega á óvart að sjá hve margir sem héldu dagbók minntust á mat sem tengist þessari fornu árs- tíð og virtust vera að vinna í slátri og sláturgerð. Þó fékk maður það á tilfmninguna að þessi vinnubrögð væru almennari úti á landi en hér í þéttbýlinu." Blóðgrautur og fleira gott Hallgerður getur nefnt mörg' skemmtileg dæmi um foma siði sem lifa góðu lífi. Við berum saman þekkingu okkar á blóðgraut, sperðl- um, vindþurrkuðum magálum, reyktum bringukollum, sem eru soðnir sérstaklega til að hafa soðið út á skötuna á Þorláksmessu, og sið- ast en ekki sist svarfdælskt laufa- brauð. Hallgerður en handgengin svarfdælsku laufabrauði en hún er gift Árna Hjartarsyni, jarðfræðingi frá Tjörn í Svarfaðardal, en sú fjöl- skylda öll er rómuð fyrir þann vörð sem hún hefur ávallt staðið um fornar hefðir og þjóðlegar. Fyrir 25 árum var enginn veit- ingastaöur í Reykjavík og ævintýra- legasti matur sem íslendingar þekktu var körfukjúklingur með kokkteilsósu og ef til vill franskar kartöflur með. I dag er þessu á ann- an veg farið og varla verður þverfót- að fyrir matsölustöðum af öllu mögulegu tagi og fljótt á litið sýn- ■ ist lítill munur á þeirri matargerð sem Islendingar lifa við hversdags og þeim kosti sem aðrir Evrópu- eða Ameríkubúar nærast á. Er ekki hætt við að sérís- lenskar hefðir týnist í þessum fjöl- þjóðlega hrærigraut? Mun ekki hnattvæðingin á endanum tryggja öllum sama matseðil? Allir vilja eiga hefð „Það er svo sérstakt að einmitt við þessar aðstæður fara menn oft að leita til hefðanna og flnna aftur það sem er sérstakt fyrir þeirra menningu. Miðað við þann fjölda fyrirspurna um hefðbundna matar- gerð sem berst hingað inn á safnið held ég að það sé virkur og lifandi áhugi á þvi í landinu að varðveita islenska matarhefð og treysta hana í sessi. Rannsóknir frá Norðurlöndunum sýna að meðal aðfluttra þjóða þar öðlast matur frá heimalandinu al- veg sérstakan sess og mörg dæmi eru um að fornir réttir, sem al- mennt voru ekki á borðum í heima- landinu, öðlast alveg sérstakan há- tíðarsess meðal fólks sem býr í öðru landi. Ég held að okkur Islendingum sé í raun eins farið. Það vilja allir eiga sínar heföir og sína sérstöðu. Þetta höfum við séð héma innanlands hvernig átthagafé- --- löein á ** ■ /V Æ Wmu hofuð- ;" t borg- ar- Haldiö í hefðir „Mikiö af menningu okkar er fólgiö í matnum og hvernig viö matreiöum hann. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.