Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 49
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
61
IOV
Tilvera
íslandsmót kvenna og yngri spilara 2001:
Sveit Hjördísar
Sigur j ónsdóttur
íslandsmeistari
Sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur
sigraði örugglega á íslandsmóti
kvenna í sveitakeppni sem haldið var
í Bridgehöllinni við Þönglabakka um
sl. helgi. Einnig tryggði sveit Sigur-
björns Haraldssonar sér íslandsmeist-
aratitil yngri spilara með þvi að sigra
sveit Frímanns Stefánssonar í 96 spila
einvígi um titilinn.
Góð þátttaka var í keppni kvenna,
14 sveitir, en aðeins mættu tvær sveit-
ir í flokki yngri spilara, sem er vissu-
lega áhyggjuefni. Ekki er einfalt mál
að bregðast við því, hugsanlega væri
hægt að hækka aldurstakmark en það
er neyöarúrræði.
Betra væri að reyna að koma
bridge að sem námsgrein í skólunum
og skapa þannig áhuga yngri kynslóð-
arinnar fyrir spilinu.
Röð og stig efstu sveita í kvenna-
flokki var þessi:
1. Sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur 251
2. Sveit Erlu Sigurjónsdóttur 230
3. Sveit Þriggja Frakka (Esther Jak.) 229
4. Sveit Soffiu Daníelsdóttur 206
5. Sveit Fjögralaufasmára (Unnur Sv.) 204
6. Sveit Bryndísar Þorsteinsdóttur 196
íslandsmeistarar kvenna 2001 eru
auk Hjördísar, Ragnheiður Nielsen,
Anna ívarsdóttir og Guðrún Óskars-
dóttir. Og íslandsmeistarar yngri spil-
ara eru Sigurbjörn Haraldsson, Heið-
ar Sigurjónsson, Ingvar Jónsson og
Ásbjörn Bjömsson. Þeir unnu einvíg-
isleikinn með 270-255 eftir jafnan leik
alian tímann.
Anna og Guðrún voru einnig
langefstar í fjölsveitaútreikningi með
1,88 impa að meðaltali i spili. í öðru
sæti urðu tvær konur að norðan i
sveit Norðan 5, Björk Jónsdóttir og
Stefanía Sigurbjörnsdóttir, með 1,09
impa að meðaltali í spili. Björk er eig-
inkona Jóns Sigurbjörnssonar,
bridgemeistara frá Siglufirði, og Stef-
anía systir hans. Og meðan ég man,
þá er Ingvar Jónsson sonur Bjarkar
og Jóns. Mikil bridgeætt á ferðinni
þarna.
En skoðum eitt spil úr kvenna-
flokki. Það kom fyrir milli sveita
Hjördísar og Norðan 5 i fimmtu um-
ferð.
V/Allir * KG8 * ÁK76
♦ G3 * ÁG107
* 932 N * 7654
V 83 V A » G2
♦ Á864 ♦ D9752
* 6432 * D9
* ADIO
V D10954
* KIO
* K85
Þar sem Hjördís og Ragnheiður
sátu n-s og Björk Jónsdóttir og Guð-
laug Márusdóttir a-v gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Noröur Austur Suöur
pass 1 grand pass 2 ♦*
pass 3 *** pass 4 grönd
pass 5 ♦*** pass 6 •»
pass pass pass
* yfirfærsla í hjarta
** fjórlitarstuðningur og hámark
*** Þrjú lykilspil
Austur spilaði út tígli, lítið úr
blindum og vestur fékk slaginn á ás-
inn. Hún spilaði meiri tígli og nú
þurfti bara að finna laufdrottninguna.
Hjördís tók fjórum sinnum hjarta og
þegar vestur henti einum tígli og einu
laufl var hún ekki í vafa.
Hún spilaði laufás og meira laufi.
Þar með var slemman unnin og n-s
fengu 1430.
Á hinu borðinu sátu n-s Ágústa
Jónsdóttir og Inga Jóna Stefánsdóttir
en a-v Guðrún og Anna. Norðankonur
fundu ekki laufdrottninguna og þar
með tapaðist slemman.
Verðlaunahafar
Guðmundur Ágústsson, forseti BSÍ, Hjördís Sigurjónsdóttir, Anna
ívarsdóttir, Guörún Óskarsdóttir og Ragnheiöur Nielssen.
Hðnn myndi leysa úi
^ vandanum ef hann
gaílt - en hann ef mem
( sérfræðmgur i aó
komasl í vandfaeði en
^ að raia úr f>e>rn' ^
Myndgátan hér
til hliðar lýsir
Oröasambandi.
Lausn á gátu nr. 2958:
Leikflétta