Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
x>v
Fréttir
Verðbréfastofa gerir sjálfstæða greiningu á verðmæti Íslandssíma:
Telur Íslandssíma
stórlega vanmetinn
- óvenju undirmetiö á veröbréfamarkaði, að mati forstjóra Verðbréfastofu
Verðbréfastofa
hefur að eigin frum-
kvæði gert sjálf-
stæða greiningu á
verðmæti íslands-
sima og komist að
þeirri niðurstöðu að
fyrirtækið sé undir-
metið i augnablik-
inu. Sjaldgæft er að
Verðbréfastofa
vinni að greiningu á
fyrirtæki án þess að sérstakar að-
stæður séu fyrir hendi s.s. útboð.
Greiningin hefur verið send öllum
peningastofnunum landsins og segir
þar að Verðbréfastofa telji eðlilegt
gengi Íslandssíma vera 5,22. Það hef-
ur hins vegar hrapað úr 8,25 í útboð-
inu í sumar og niður í 2,60. Því verð-
ur ekki annað séð en að Verðbréfa-
stofa sé að mæla með kaupum í fyrir-
tækinu.
DV innti Jafet Ólafsson, forstjóra
Verðbréfastofu, eftir skýringum á
greiningunni og segir hann að upp-
haf þess megi rekja aftur í tímann.
Verðbréfastofa hafi lengi fylgst með
fjarskiptamarkaði og m.a. boðið í söl-
una á Landssímanum. Þá hafi gróft
verðmat verið gert á því fyrirtæki og
markaðinum í heild. í framhaldinu
hafi orðið sviptingar vegna bæði út-
boðs Íslandssíma og Landssíma.
Verðbréfastofa hafi tjáð sig um geng-
ið á Landssímanum og talið að tima-
setningin væri slæm. Álit þeirra
hefði uppskorið litlar þakkir hjá
einkavæðingarnefnd en fyrirtækið
hafi verið það langt komið með grein-
inguna á Íslandssíma og markaðin-
um í heild að menn hafi afráðið að
klára þessa vinnu nú. „Við tökum
reyndar hvorki verðmat á Tali né
Landssímanum en við teljum að
verðið á Landssímanum hafi verið
rétt,“ segir Jafet.
Jafet segir aðspurður að íslands-
ími sé góður fjárfestingarkostur í
augnablikinu en deila megi um þrjá
hluti í greiningu þeirra. Hve hratt
fyrirtækið nái markaðashlutdeild
hve mikil endurfjárfestingarþörfm sé
og hvaða ávöxtunarkröfur menn
geri.
- En er það hlutverk Verðbréfa-
stofu að pikka út eitt fyrirtæki af öll-
um þeim fjölda sem er á markaði og
hvetja til kaupa á því?
„Við erum í sjálfu sér ekkert að
hvetja fólk heldur erum við meðal
annars að nálgast þann hóp sem
keypti á sínum tíma i Islandssíma.
Hvert er raunhæft gengi fyrirtækis-
ins? Við teljum að það sé 5,22 en
hvenær það nær því má guð vita.“
-Er Íslandssími fjær markaðsgengi
en önnur íslensk fyrirtæki í augna-
blikinu?
„Já, nema kannski sum sjávarút-
vegsfyrirtækin."
Jafet segir að markaðurinn sé
heldur að rétta úr kútnum og menn
bíði bara eftir vaxtalækkuninni.
Verðbréfastofa á ekkert í Islands-
sima. -BÞ
Seyðisfjörður:
Sprengja í þokunni
- undir tók í fjöllunum
„Sprengjan var fyrir
fótum mér þegar ég gekk í
þokunni þarna á fjallinu,"
segir Gunnlaugur Frið-
jónsson, bæjarverkstjóri á
Seyðisfirði. Hann fann
sprengjuna þegar hann
gekk við annan mann til
rjúpna á svonefndum
Fellshala. Hún var á að
giska 40 sentímetrar á lengd og 10 á
breidd.
„Ég passaði mig á því að snerta
þetta ekkert enda grunaði mig að
sprengjan væri enn virk.
Ég tók niður GPS-punkta
og flýtti mér til byggða,"
segir Gunnlaugur. Hann
segist hafa fróðra manna
orð fyrir því að sprengj-
an sé frá stríðsárunum,
en þá var Seyðisfjörður
eitt helsta víghreiður
Breta á íslandi.
Sprengjusérfræðingar Landhelgis-
gæslunnar komu austur í gær og
sprengdu sprengjuna - og tók undir í
fjöllunum. -sbs
Hættulegar grjótblokkir á Vesturlandsvegi dvwynd gv
Vegfarendur hafa kvartaö vegna grjótblokka sem komiö hefur veriö fyrir á
Vesturiandsvegi. Ökumenn hafa bent á aö steinbiokkirnar eru ómerktar og
óupplýstar og því stórhættuiegar í myrkri.
Vill selja skotleyfi á sauðfé:
Ríkir lordar skjóti hornfagra hrúta
- hálendið á að vera friðsöm paradís, segir landbúnaðarráðherra og líst ekkert á hugmyndina
Skjótum kindurnar! MYND: EÓL-
Eyjólfur Guömundsson herjar á hreppsnefndir í Rangárvatiasýsiu um sölu á
veiðileyfum á sauöfé.
„Ríkir lordar og
barónar vOja ábyggi-
lega koma tO Islands
að skjóta sauðfé,“
segir Eyjólfur Guð-
mundsson, sem sent
hefur hreppsnefnd-
um þriggja sveitarfé-
laga í RangárvaOa-
Guðni sýslu óvenjulegt er-
Ágústsson. indi. inntak þess er
að selja ferðamönn-
um veiðileyfi á sauðfé og lengja með
því ferðamannatímann. Hreppsnefnd
Holta- og Landsveitar hefur þegar
tekið málið til frekari skoðunar og
vísað henni tO atvinnumálanefndar
sveitarfélagsins.
Hugmynd og vilji Eyjólfs, sem ætt-
aður er af þessum slóðum, er sá að
veiðimenn verði fengnir til þess að
granda ref og mink snemmsumars.
Sauðfé skjóti þeir svo á haustin. „Við
eigum að selja veiðOeyfi á fé sem þarf
aö skjóta hvort sem er, tO dæmis
gamlar koOóttar kindur og homfagra
hrúta. Sjálfsagt myndu margir hafa
áhuga á svona veiðiskap. VeiðOeyfin
mætti líka selja dýrt, dagurinn gæti
kostað á bilinu 50 til 100 þúsund," seg-
ir Eyjólfur sem þykir sjálfsagt að
sveitarfélögin í RangárvaOasýslu taki
þessa hugmynd til frekari skoðunar.
Hann segir veiðiskapinn líka geta ver-
ið búhnykk fyrir sauðfjárbændur,
enda hafi tekjur þeirra verið mikið að
dragast saman á undanfómum árum.
Aðspurður hvort ekki megi búast við
að svona veiðiskapur legðist illa í fólk
segir Eyjólfur að svo þurfl ekki að
vera. Að skjóta fé á færi sé ekki
ómannúðlegri aðferð en draga fé á uO-
inni um sláturhúsin þar sem skepn-
urnar séu aflífaöar með loftbyssu.
„Mér líst ekkert á þessa hugmynd,"
segir Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra og þingmaður Sunnlendinga.
„Sauðkindin er húsdýr og ég hef tekið
eftir því að ef skjóta þarf sauðkind í
sjálfheldu, til dæmis í gljúfrum, þá
særa slíkar aðgeröir alltaf þjóðarsál-
ina. Sama gildir ef skotnir eru hálf-
gerðir vOlisauðir sem ekki hafa náðst
í hús ámm saman, eins og gerst hefur
i Tálknanum fyrir vestan. Þess utan er
ég þeirrar skoðunar að á hálendi og af-
réttum þessa lands eigi menn helst
ekki að vera skjótandi aOt og aOa. Þar
á að vera friðsöm paradís," segir
Guðni.
Katrín H. Andrésdóttir, héraðsdýra-
læknir á Suðurlandi, tekur í svipaðan
streng og ráðherrann. Henni fmnst
þetta út í hött. „Það getur engin mein-
ing verið á bak við svona hugmynd.
Mér finnst þetta álíka gáfulegt og láta
sér detta í hug að bjóða íslendingum
hundakjöt í matinn." -sbs
Blair, bin og
Bush eru
sammála um
eitt
Erlent fréttaljós
Ferðaþjónusta
á hættutímum
Innlent fréttaljós
Konungur
fisksins í
Þýskalandi
Samúel Hreinsson
Leitin að
Napóleon og
Erró
DV vift Signu
15 ár með
Megasi
Þórunn Hrefna
f myrku vatni
Vatnaskrímsli
Plómur
Bestar milli
mála
Farþegum fækkar
Farþegum í mOlOandaflugi Flug-
leiða fækkaði um 16,5% í september
samanborið við sama mánuð í fyrra.
Farþegum í fluginu yfir Norður-At-
lantshaf fækkaði mest. AOur samdrátt-
urinn varð eftir 11. september. Farþeg-
um Flugfélags Islands fækkaði í sept-
ember um 17,6% og urðu 22.784.
Innbrot í Hafnarfiröi
Brotist var inn í íbúðarhús við
Hraunbrún í Hafnarfirði í gær og það-
an stolið skartgripum og talstöð. Þá var
farið inn i verslun B.T. við Reykjavík-
urveg í fyrrinótt og fjórum tölvum
stolið þar. Mikið hefur verið um nm-
brot i Hafnarfirði síðustu daga og ekki
síst hafa þjófar farið inn í bOa.
Burt meö verötryggingu
Starfsgreinasamband Islands telur
tímabært að verðtrygging lána verði af-
numin. Ályktun þess efnis var sam-
þykkt á aðalfundi sambandins í gær.
Segir að óeðlOegt sé að launafólk sé
gert ábyrgt fyrir gengislækkun og auk-
inni verðbólgu meö stórkostlegri hækk-
un á greiðslubyrði íbúðalána.
Frá Goða á Skjáinn
Kristinn Þ. Geirs-
son hefur verið ráð-
irm framkvæmda-
stjóri Skjás 1. Á hlut-
hafafundi í fyrirtæk-
inu í gær óskaði
Kristján Ra. Krist-
jánsson fjármála-
stjóri eftir lausn frá
störfum. Hann segir hlutverki sínu lok-
ið, tímabært sé að snúa sér að öðrum
verkefnum sem séu erlendis.
Starfsfólk kaupi bréf
Stjóm Eimskips hefur ákveðið að
auka hlutafé fyrirtækisins um aOt að
150 miOjónir króna með því að gera á
næstunni kaupréttarsamninga við
fasta starfsmenn þess og dótturfélaga
heima og heiman. Kaupréttarsamning-
ar þessir byggjast á kaupréttaráætlun
sem samþykkt hefur verið af Ríkis-
skattstjóra.
Halldór í austurvegi
EHalldór Ásgríms-
son fer í dag í opin-
berar heimsóknir tO
Japans, Kina og
Rússlands. HaOdór
mun í þessari ferð
sinni meðal annars
opna nýtt sendiráð ís-
lands í Tokyo, þar
sem verður og efnt til íslandskynning-
ar. I Rússlandi mun HaOdór funda með
Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússa.
Verkfall á mánudag
VerkfáO 620 tónlistarskólakennara í
Félagi tónlistarskólakennara og FlH
hefst á mánudag semjist ekki um helg-
ina. Nemendafélag Tónlistarskólans í
Reykjavík boöar kröfugöngu í Ráðhús-
ið á mánudag þar sem þeir ætla að lýsa
yfir stuðningi við kröfur kennara.
Skotiö í auga
Rjúpnaskytta í Þingeyjarsýslu fékk
hagl í auga í gær, og högl raunar viðar
í líkamann. Maðurinn var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, en
er ekki talinn í lifshættu. Slysið er talið
hafa hent með þeim hætti að tvær
skyttur voru að reyna að hæfa sömu
íjúpuna, aö því er fram kom í RÚV.
Byggöakvóti á smábáta
Ámi M.
Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra hef-
ur lagt fram frum-
varp sem felur í sér
breytingu á lögum
um stjóm fisk-
veiða. I fmmvarp-
inu er m.a. gert ráð
fyrir byggðakvóta handa smábátum í
þeim sjávarbyggðum sem em að miklu
leyti háðar veiðum þeirra. -SBS/aþ