Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV Flugstjórinn fékk ekki að fljúga Boeing-þotunni til landsins og það sárnaði honum svo mjög að hann fór með vélinni sem farþegi, ölvaður og í leyfisleysi. í kjölfarið var hann þvingaður til þess að segja upp, en undi því ákaflega illa. Hann lagði hatur á yfirmann sinn sem hann kenndi um alla sína ógæfu. Þetta varð til þess að flugstjórinn réðst ölvaður inn á heimili deildarstjórans og varð honum að bana með þremur skamm- byssuskotum. Stolt flugstjórans gerði hann að morðingja Kl. 04.35 fimmtudaginn 9. mai 1968 var hringt á lögreglustöðina í Reykjavík og beðið um aðstoð henn- ar á Tómasarhaga, vegna þess að maður með byssu hefði ráðist þar inn í hús. Er lögreglan kom á vett- vang var rúðan brotin í útidyra- hurðinni og á annarri hæö í húsinu lá maður á bakinu á gólfinu. Kona sem var í íbúðinni skýrði lögregl- unni frá því að eiginmaður hennar hafi orðið fyrir skotárás af hendi flugstjóra, sem hún nefndi með nafni, og sagði að hann væri farinn á brott. Var lífsmark með mannin- um, en hann var látinn þegar kom- ið var á slysavarðstofuna. Hafði hann verið skotinn þremur skotum. „Eg hef lengi ætlaö mér aö launa ykkur þetta“ í yfirheyrslu yfir konunni kom fram að þau hjónin höfðu vaknað við hávaða og maðurinn farið fram að athuga hvað væri á seyði. f sömu andrá heyrði konan skothvell og skömmu seinna nokkra í viðbót. Hún fór fram ásamt syni sínum á unglingsaldri og sáu þau að heimilis- faðirinn var í átökum við mann, sem hún tók þá ekki eftir hver var. Mað- urinn féll í gólfið en stóð síðan upp og gátu hjónin komið honum út i for- stofuna og niður stigann, en hann veitti viðnám og marghratt konunni utan í stigahandriðið, klóraði hana og veitti henni marbletti. Konan bar kennsl á manninn þeg- ar hann var kominn niður og bar hún að flugstjórinn hafi margsagt orðrétt: „Ég hef lengi ætlað mér að launa ykkur þetta“ áður en hann fór út úr íbúðinni. Þegar konan hugaði að manni sínum lá hann hreyfingarlaus á gólfinu. Strax var hafin leit að árás- armanninum. Kl. 04.49 hringdi vaktmaður á afgreiðslu Flugfélags íslands h/f á Reykjavíkurflugvelli á lögreglustöðina og bað um aðstoð vegna manns sem væri þar óður. Kom í ljós að þar var flugstjórinn. Hann hafði sagt við starfsmennina: „Sennilega er ég búinn að myrða mann“ og tekið upp vasahníf og otað honum að maganum á sér og talað um að „ljúka þessu hérna". Lögreglan kom á staðinn og hand- tók flugstjórann fyrir morðið á yfir- manni sínum. Hann veitti enga mótspyrnu. Sjálfsvirðingunni misboöiö 26. júní 1967 var merkur dagur í samgöngusögu þjóðarinnar og stór stund í 30 ára sögu Flugfélags fs- lands. Fyrsta Boeing-þotan í eigu fs- lendinga var væntanleg til lands- ins. Gestir á Reykjavíkurflugvelli voru Ásgeir Ásgeirsson, forseti ís- Þúsundir fögnuðu fyrstu Boeing-þotunni Merkur dagur í samgöngusögu þjóöarinnar og stór stund í 30 ára sögu Flugfélags Islands. Gestir á Reykjavíkurflugvelli voru Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands, Bjarni Benediktsson forsætisráöherra, fleiri ráöherrar og sendimenn erlendra ríkja. Flugstjórinn ógæfusami var um borö, drukkinn og í leyfisleysi, og hann sat í farþegasæti en ekki í flugstjórnarklefa, eins og vonir hans höföu þó staöið til. Þetta var undanfari mikillar ógæfu. og glaðst ákaflega þegar nefnt var að hann ásamt fleirum sem höfðu háan starfsaldur ætti að fá að fljúga vélinni heim og „brjóta þannig blað í sögu íslenskra flugmála", eins og hann sjálfur komst að orði. Nokkr- ir elstu flugmennirnir voru sendir í þjálfunarflug til Seattle í Bandaríkj- unum, en flugstjórinn ógæfusami komst þá að því að honum var ætl- að að hefja þjálfun með seinni hópnum og reiknaði út að þjálfun- arflugi hans yrði ekki lokið áður en þotan héldi heim. Flugstjórinn sagði síðar að þetta hafi sært sig verulega og þeim mun meira en ella, að skýrt hafði verið frá því opinberlega hér á landi að hann kæmi með þotunni til lands- ins. Var það ekki leiðrétt og skýrt frá þvi, að hann kæmi ekki með þotunni vegna óviðráðan- legra v*r frantib „sjálfsvirðingu minni var misboöið". Afarkostir Flugstjórinn varð svo reiður að hann hvarf úr þjálfunarfluginu ásamt öðrum flugstjóra sem líka hafði verið „hafður útundan" og þeir ákváðu að fara heim með þot- unni hvað sem tautaði og raulaði. Þeir mættu um borð áberandi ölv- aðir og sinntu ekki tilmælum um að fara frá borði, sögðust ekki fara nema með valdi. Yfirmenn ákváðu að verða ekki flugfélaginu til frek- ari minnkunar á þessum merkis- degi og leyfðu hinum drukknu flug- stjórum að sitja með í flugvélinni í stað þess að kalla til lögreglu. í kjölfar þessa atburðar, sem þótti alvarlegt agabrot, var báðum flugstjórunum gert að gera grein fyrir hegðun sinni skriflega. Flug- stjórinn, sem hér er fjallað um, sagðist í bréfinu hafa verið sár og leiður og hafa morÓht og ekki lent í nein- um árekstrum við farþega eða for- ráðamenn félags- ins öll þau ár og hann hefði ætíð hugsað fyrst um hag Flugfélagsins. Flugstjórarnir tveir voru á sér- stökum fundi í kjölfarið beðnir að afhenda Flugfélagi íslands uppsagn- arbréf sitt. Flug- stjórinn ógæfu- sami vildi alls ekki segja starfi sínu lausu en voru að lokum settir af- arkostir og neyddist til að láta að vilja yfirmanna sinna. Hann talaði seinna um „meðferð á sér“ og að hún hafi komið sem reiðarslag, þar sem hann teidi að áminning hefði verið nægileg. Þegar hann gekk af fundi varö honum að orði: „Þetta er ömurlegt hlutskipti." Hatriö óx meö mánuði hverj- um lands, Bjarni Benedikts- son forsætisráðherra, fleiri ráðherrar og sendimenn erlendra ríkja. Vélin hlaut nafnið Gullfaxi. Flugstjórinn hafði undirbúið sig vandlega fyrir þennan stórviðburð Dagblööin í maí 1968 „Morö aö yfirlögöu ráði eru oröin óhugnanlega tíö í Reykjavík, “ sagöi í einu blaðanna. „Á síöastliönum 11 mánuöum hafa veriö framin fjögur morö og er eitt þeirra enn óuþþlýst. “ ástæðna. „Framkoma öll og tillitsleysi var með endemum gagnvart mér í öllu þessu rnáli," sagði flugstjórinn seinna við yfirheyrslur og bætti við barist við tilfmningar sínar vegna þess að hann fékk ekki að fljúga þotunni eins og þó hafði verið ráð- gert. Hann tiltók að hann hefði starfað í 21 ár hjá Flugfélagi íslands Flugstjórinn fór að leggja fæð á deildarstjóra flugrekstrardeildar Flug- félags íslands en hann hélt þvi fram að starf hans hafi fyrst og fremst ver- ið að skipa flugmönnum í þjálfunar- Stoliö vopn Flugstjórinn haföi stolið byssunni af heimili kunningja síns ári fyrir voöaverknaöinn. Aö heiman frá sér hélt hann til deildarstjórans meö byssuna en áöur hlóö hann hana níu skotum. Sýnt þótti aö um ásetningsverknaö heföi veriö aö ræöa. hópa og það hefði því verið deildar- stjóranum að kenna að hann komst ekki í fyrsta þjálfunarhópinn. Hann sagði við yflrheyrslur að hatur hans hafi vaxið með mánuði hverjum. Jafn- framt gat hann ekki losnað við til- hugsunina um að fá sitt gamla starf aftur og leitaði allra leiða til þess þó að þær hafi engan árangur borið. Kvöldið fyrir morðið var flugstjórinn drukkinn í gleðskap og hitti mann sem hann hafði beðið að greiða götu sína i þessum efnum en fékk staðfestingu á því að ekkert hefði verið gert í hans málum og litlar lík- ur á því að hann yrði ráðinn til starfa á nýjan leik. Lauk því samtali með rifrildi. Flugstjórinn hélt siðan heim til sín, tók fram skammbyssu og hlóð hana níu skotum. Ók hann síðan vest- ur að Tómasarhaga í því skyni að hitta deildarstjórann og viðurkenndi flugstjórinn við yfirheyrslur að hafa haft byssuna með sér til að skjóta hann „ef svo bæri undir". Flugmaðurinn hlaut 16 ára fangels- isdóm, en sat aðeins inni í rúm 7 ár - frá 9. maí 1968 til 10. júlí 1975. -þhs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.