Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV
Ferðaþjónusta í uppnámi á tímum hryðjuverka:
Sannkallaðir óvissutímar
- ekki má þó draga úr kynningarstarfsemi, segir ferðamálastjóri
Reykjavík. Má því í raun segja aö eini
bresturinn í þessari fallegu mynd hafi
til skamms tíma verið erfiðleikar í
flugsamgöngum innanlands af rekstr-
artæknilegum ástæöum. - Allt þetta
er nú í uppnámi, og allt vegna afleið-
inga af hryðjuverkaárás á Bandarík-
in.
Næststærsta atvinnugreinin
íslensk ferðaþjónusta gerði sér von-
ir um að tekjur greinarinnar yrðu
sem næst 50 milljarðar í ár, en aug-
ljóst virðist að nokkuð slái á þær töl-
ur. í tölum Þjóðhagstofnunar má sjá
að ferðaþjónustan hefur aukist jafnt
og þétt og tekjur af erlendum ferða-
mönnum eru orðnar meiri en tekjur
af stóriðju. Sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu hafa þær tekjur vax-
ið rétt um 1% á ári sem er svipaður
meðaltalsvöxtur og í stóriðju. Ferða-
þjónusta er þannig næststærsti út-
flutningsatvinnuvegur íslendinga, að-
eins fiskútflutningurinn er stærri.
Rugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli
Um 303 þúsund erlendir feröamenn komu til landsins í fyrra. I ár var fyrirfram búist viö allt aö 350 þúsund feröa-
mönnum. Erfitt er aö fá óyggjandi tölur um fjöldann nú þar sem útlendingaeftirlitiö er hætt aö telja feröamenn sem til
landsins koma. Þar verða feröamálayfirvöld því að treysta á tötur um skráningu gistinátta.
Hryðjuverkaárásin á Bandaríkin í
september hefur markað djúp spor á
líf manna um allan heim. Þá er sama
hvert litið er i viðskiptum, samgöngu-
málum og ekki síst ferðaþjónustu
heimsins. Ferðalög manna eru drif-
fjöður athafnalífs víða um lönd og í
sumum tilfellum helsta tekjulind ein-
stakra ríkja. Allt er þetta nú í upp-
námi og enginn veit í raun hvert
stefnir. Skaðinn er hins vegar þegar
orðinn gríðarlegur.
Á íslandi hafa menn á undanförn-
um, tiltölulega fáum árum verið að
átta sig á mikilvægi ferðaþjónustunn-
ar fyrir hagkerfið. Er svo komið að
þar er að finna einn vænlegasta vaxt-
arbrodd athafnalífsins. Þessi grein,
sem áður var hálfgerð hornreka eða í
besta falli litið á sem illnauðsynlega
þjónustu fyrir útlendinga sem leið
ættu hér um, er nú farin að skila um
50 þúsund milljónum í þjóðarbúið.
Þar af voru áætlaðar um 36 milljarða
króna tekjur vegna ferða útlendinga
til íslands á þessu ári.
Þúsundir íslendinga hafa lífsviður-
væri sitt af ferða-
þjónustu. Hafa
menn áætlað um
10 til 15 prósenta
aukningu á ári f
ferðaþjónustu
næstu 10 til 15
árin. Miklar vænt-
ingar hafa þvl ver-
ið gerðar tÍL grein-
arinnar. Undan-
farin misseri hef-
ur t.d. farið fram töluverð umræða
um nauðsyn þess að auka hér við
gistirými. Framkvæmdir eru í gangi
víöa um land varðandi stækkun hót-
ela og má m.a. sjá þess merki við Suð-
urlandsbraut í Reykjavík. Þar er nú
er unnið að stækkun Hótel Esju.
Mikil sókn hefur einnig verið í ým-
iss konar þjónustu við ferðamenn og
má þar t.d. nefna Bláa lónið, hvala-
skoðun, verslun og fleira. Þá hafa
menn reynt með góðum árangri að
laða að ferðamenn utan hefðbundins
ferðamannatíma. Þar hefur einstök
reynsla og þekking íslendinga í jeppa-
mennsku og fjallaferðum notið sín til
fulls. Ekki má heldur gleyma stærstu
flugeldasýningu heims um áramótin í
Magnús
Oddsson.
50 48,7
45
40
35
30
25
20
15
10
5
%
Helstu útflutningsafuröir
- hlutfall af vergri landsframleiðslu
44,6
12,9
i°,6 i
ra
S1 v. E «5
'2 fI
w i£ 5 ^
1998
13,4 14,0
1999
2000
Ferðaþjónustan er næststærsti atvinnuvegurinn
Þetta graf sýnir vel aö hlutfallsiegt umfang feröaþjónustunnar eykst.
Sömu sögu er aö segja af stóriöju. Útflutningur á sjávarfangi vegur hins
vegar sífeiit minna af vergri iandsframteiöstu í hlutfalli viö aörar greinar.
HHZŒÍ;:
Hörður Kristjánsson
biaöamaöur
Erlendum ferðamönnum fjölgaði
um 13% árið 1998 og um 15,3% 1999. Á
þessu ári gerði Þjóðhagsstofnun ráð
fyrir 10% aukningu. Fjöldi erlendra
ferðamanna árið 2000 var um 303 þús-
und, eða talsvert fleiri en öll islenska
þjóðin. Gert var ráð fyrir að þeir yrðu
enn fleiri á þessu ári, eða um 330 til
350 þúsund. Um tveir af hverjum
þrem ferðamönnum koma til landsins
á tímabilinu maí til ágúst. Heildar-
tekjur af erlendum ferðamönnum árið
2000 voru um 30,2 milljarðar króna.
Milljónir hafa misst vinnuna
Á ferðamálaráðstefnu, sem haldin
var á Hótel Hvolsvelli sl. fimmtudag,
var aðalmálið á dagskrá hvernig ætti
að bregðast við þessum óvæntu að-
stæðum. Að sögn Magnúsar Oddsson-
ar ferðamálastjóra, vita menn í raun
ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér.
Hann segir menn vita af uppsögnum
og af fyrirtækjum sem eiga f erfiðleik-
um vegna ástandsins viða um heim.
Líklega sé t.d. um ein milljón manna
þegar búin að missa atvinnuna í
ferðaþjónustu i Bandaríkjunum ein-
um. Hér á landi hefur einnig verið
gripið til ráðstafana, m.a. með upp-
sögnum hundraöa manna hjá Flug-
leiðum og Atlanta svo eitthvað sé
nefnt.
í biðstöðu
Menn virðast tvístígandi varðandi
hótelrekstur og byggingar á auknu
hótelrými hér á landi vegna ástands
heimsmála. Samt hafa fregnir ekki
borist enn af því að menn séu að
missa móðinn. Þó hefur frést að fjár-
festar sem hug höfðu á að kaupa Hót-
el Sögu og Hótel ísland af bændasam-
tökunum hafi dregið sig til baka af
einhverjum ástæðum. Hugmyndir
hafa verið uppi um að selja bæði hót-
elin saman en þau hafa verið rekin
samkvæmt rekstrarsamningi við hót-
elkeðju Radisson SAS.
„Ég held að ferðaþjónustufólk hér á
landi sé nú í biðstöðu. Menn vilja sjá
hvernig hlutirnir þróast," segir Magn-
ús. Hann telur að ferðaþjónustufólk sé
samt enn ekki farið að draga að sér
hendur í hótelrekstri.
„Þessir atburðir allir eru svo óaf-
markaðir í tfma og einnig landfræði-
lega. Þetta eru sannkallaðir óvissu-
tímar,“ segir Magnús Oddsson.
Ekki dregið úr kynningar-
starfsemi
Ferðamálastjóri segir gerð áætlana
í ferðaþjónusturekstri vera mjög erf-
iða viðfangs um þessar mundir. Hann
telur þó að fyrirtæki muni reyna að
halda sínu striki í kynningarmálum.
„Menn telja að það sé svarið og þá
á þeirri forsendu að hlutirnir fari ein-
hvern tfma í betra horf. Spurningin er
bara hvenær. Stóra málið á ráðstefn-
unni er að menn dragi ekki úr kynn-
ingarstarfseminni. Það væru röng
skilaboð. Frekar að reynt verði að
auka við og menn haldi ótrauðir
áfram kynningum," sagði Magnús
Oddsson.
Rmmtíu milljarðar
íslensk feröaþjónusta geröi sér
vonir um aö tekjur greinarinnar
yröu 50 milljaröar á þessu ári.
Hóflegt veiðigjald
Taka á upp hóflegt veiðigjald. Þetta
var samþykkt á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins sem lauk á sunnudag. Markús
Möller hagfræðingur sagði skilið við
flokkinn á fundinum þar sem tillögur
hans og fleiri um fyrningargjald náðu
ekki fram að ganga. Úrsögn Markúsar
voru einu ýfingamar á yfirborði fundar-
ins, en þar var Davíð Oddsson endur-
kjörinn formaður með rússneskri kosn-
ingu. Hann sagði flokkinn vel vopnum
búinn fyrir komandi kosningar.
Þung undiralda
Þung undiralda
er innan verkalýðs-
hreyfingarinnar
vegna ástandsins í
efnahagsmálum.
Þetta kom fram á
aðalfundi Starfs-
greinasambandsins
sem haldinn var í
vikunni. Hugmynd-
ir hafa verið uppi um uppsögn kjara-
samninga, sem Halldór Bjömsson, for-
maður sambandsins, lagðist þó gegn. í
ályktunum fundarins er lagt til að verð-
trygging lána verði afnumin.
í miltisbrandsrannsókn
Þingmennimir Tómas Ingi Olrich og
Magnús Stefánsson fóm í vikunni í
læknisskoðun vegna hugsanlegrar sýk-
ingar á miltisbrandi. Þeir vom staddir í
skrifstofubyggingu bandarískra öld-
ungadeildarþingmanna í Washington
þegar þangað barst bréf með miltis-
brandi. Hér heima hafa verið gerðar
ráðstafanir vegna miltisbrands, svo sem
á Ríkisútvarpinu.
Eyþór í borgarmálin
Eyþór Amalds
er albúinn þess að
verða leiðtogi Sjálf-
stæðisflokksins í
borgarmálunum.
Hann gaf þessa yf-
irlýsingu út
snemma í vikunni
eftir að heyrin-
kunnugt var gert
að hann viki úr forstjórastól hjá íslands-
síma. Við því starfi tekur Óskar Magn-
ússon lögmaður. „Borgin er fögur,"
sagði Eyþór við DV. Eyþór og hans
menn telja sig hafa stuðning flokksfor-
ystunnar i baráttunni um forystusætið.
Skagasumar
Skagamenn fullkomnuðu sigursum-
ar í fótboltanum með því að fá þrjú
stærstu einstaklingsverðlaunin í loka-
hófi KSÍ. Skagamaðurinn Hjörtur Hjart-
arson fékk gullskóinn og Gunnlagur
Jónsson var valinn besti leikmaður Is-
landsmóts karla. Olga Færseth var val-
inn besti leikmaður kvenna, efnilegust
vora talin Rósa Júlía Steinþórsdóttir og
Grétar Rafn Steinsson.
Brotið á þroskaheftum
Lagalegur réttur er brotinn á þroska-
heftum, skv. álitsgerð sem Ragnar Aðal-
steinsson hrl. kynnti á landsþingi
Þroskahjálpar. Þroskaheftir fá ekki þá
þjónustu sem þeim ber, en samtökin
hafa áður lýst yfir miklum vonbrigðum
með fjárlagafrumvarpið. Þau telja það
leiða til þess að biðlistar eftir lögbund-
inni þjónustu fyrir flölskyldur fatlaðra
muni enn lengjast. Þroskahjálp telur
koma til greina að höfða prófmál vegna
þessa.