Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
I>V
Fréttir
Útgjöld Tryggingastofnunar vegna lyfjakostnaðar:
Aukast um milljarð
króna frá ári ti I árs
- bólgueyðandi tískulyf hefur rokið upp í sjötta sæti á sölulistanum
Aukinn lyfjakostnaöur er að sliga
Tryggingastofnun og stefnir í að út-
gjöld muni vaxa um heilan milljarð
milli ára. í fyrra voru útgjöldin um
3 milljarðar króna en samkvæmt
áætlunum fyrir þetta ár verður upp-
hæðin fjórir milljarðar króna. Geng-
isþróun á þarna nokkurn hlut að
máli en einnig eru dæmi um að
ávísað sé á tiskulyf sem eru 4 sinn-
um dýrari en sambærileg lyf. Mark-
aðsstarf lyfjafyrirtækjanna verður
æ umfangsmeira og lýsa læknar
áhyggjum yfir stöðu mála.
Björn Þorláksson
blaðamaður
„Það er mjög mikil aukning hjá
okkur sem skýrist að hluta til áf
gengismálum. Hins vegar er lyfja-
verð hæst hér á Norðurlöndunum
og á sama tíma og það er afsakað
með smæð markaðarins hefur orðið
ótrúlegur vöxtur hjá lyfjafyrirtækj-
um hérlendis. Þau eru alltaf að bæta
við sig fólki í markaðsmálum og það
liggur við að fyrir hvert nýtt lyf sem
kemur á markað sé ráðin mann-
eskja í að markaðssetja það. Ein-
hvers staðar verður að taka peninga
fyrir þessu og þeir hljóta að taka þá
í gegnum verðið,“ segir Inga J. Arn-
ardóttir, lyfjafræðingur hjá Trygg-
ingastofnun.
Hún segir að „klínískt" sé stund-
um lítill eða enginn munur á dýru
lyfi sem leysi gamalt og ódýrt af
hólmi. Þó geti aukaverkanir verið
minni en slíkt nýtist aðeins örfáum.
DV hefur upplýsingar um bólgueyð-
andi verkjalyf sem kom á markað
árið 1999. Það mun orðið 6. vin-
sælasta lyfið á íslandi og einkum
markaðssett vegna þess hve það hef-
ur litlar aukaverkanir á maga.
„Kostnaður Tryggingastofnunar
hefur meira en tvöfaldast á þessu
ári bara vegna þessa eina lyfs. Það
er réttlætanlegt að gefa áhættuhóp-
um það en ekki almenningi," segir
Inga. Lyfið er fjórum sinnum dýr-
ara en eldra lyf sem gagnast í öhum
tilvikum nema undantekningartil-
fellum. Dagskammturinn er 160
krónur í stað 40 króna.
Rúsínan í pylsuendanum
Alkunna er að lyfjafyrirtæki
standi fyrir endurmenntunarnám-
skeiðum fyrir lækna og segir ís-
lenskur læknir, sem hefur kynnt sér
þessi mál náið að lyfjafyrirtækin
velji oft lækna sem séu vilhallir fyr-
irtækjunum. Þeir haldi erindi og
rúsínan í pylsuendanum sé oft og
tíðum boðsferðir. í fyrra hafi t.d.
verið farið til New York með hóp af
læknum og í september sl. hafi hóp-
ur íslenskra lækna farið í ferð til
Lyfjakostnaður vex
Aukinn lyfjakostnaður er að sliga
Tryggingastofnun og stefnir í að út-
gjöid vaxi um heilan milljarð milli
ára.
Frakklands á vegum lyfjafyrirtækis.
„Óháð því hvort fyrirlestraröðin
hafi verið gagnleg verður þetta til
þess að markaðssetningin er óbeint
borguð af Tryggingastofnun. Maður
þekkir þetta helst hjá heimilislækn-
unum en það er þó ekki einhlítt.
Það er varla hægt að fara í Leifsstöð
án þess að hitta hjartalækna, öldr-
unarlækna eða taugalækna í bunk-
um,“ segir læknirinn.
Kristján Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri hjá sjúkratrygginga-
sviði Tryggingastofnunar, segir að
stofnunin sé aðalgreiðandi lyfja og
eftir því sem læknar ávísi meira á
dýrari lyf aukist útgjöld stofnunar-
innar. Um boðsferðir lyfjafyrirtækja
Húsnæöislaus Reykvíkingur:
Sækir um gjafsókn gegn borginni
Ekki verður séð aö Félags- ráðuneytis, þar sem hann
þjónustan í Reykjavík sé að ej óskar eftir slíkri málsmeð-
vinna aö lausn í húsnæðis- 0 ■ HJÉÍ| ferg j stefnu Alexanders
málum fyrir umbjóðanda I | ^■1 Bjönis Gislasonar á hendur
minn þrátt fyrir hans skelfi- lI'* . ig JBll borgaryfirvöldum. Alexander
legu aðstæður. Það er slæm éÉ i mm hefur lengi verið húsnæöis-
lausn að senda manninn í laus og sagði sína sögu fyrir
meðferð þegar hann þarf ekki skömmu í helgarviðtali DV.
á slíku að halda. Þetta segir |BB\k Alexander, sem hefur ver-
efnislega í bréfi Guðmundar .. . ið húsnæðislaus í sex ár, hef-
St. Ragnarssonar lögmanns til Björrf Chslason. ur len8Í átt við vímuefna-
gjafsóknamefndar dómsmála- ’ vanda að stríða auk þess að
glíma við geðræna erfiðleika og
HlV-smit. Hann hefur hrakist stað
úr stað og getur ekki vænst þess að
fá leiguíbúð fyrr en eftir tvö ár. Tel-
ur lögmaðurinn, að því er fram kem-
ur í bréfi hans, þetta sýna að Alex-
ander hafi ekki fengið lögboðna að-
stoð til að lifa eðlilegu lífi en „heim-
ili er einn af þeim hornsteinum sem
til þarf að geta lifað eðlilegu líft“,
eins og orðrétt segir í bréfi lög-
mannsins. -sbs
fyrir íslenska lækna segir Kristján
að fyrir komi að starfsmenn Trygg-
ingastofnunar fari til útlanda í emb-
ættiserindum og þá séu sjaldnar en
ekki læknar á vegum lyfjafyrirtækj-
anna í sömu flugvél. Hann nefnir
sem dæmi að starfsmaður stofnun-
arinnar hafi rekist á 5 íslenska
lækna sem hafi gist á dýrasta hóteli
Stokkhólms í boði lyfjafyrirtækis.
„Út I hött“
Guðbjörg Alfreðsdóttir, stjórn-
andi hjá Pharmaco, segir að lyfja-
fyrirtækin standi fyrir margvíslegu
fræðslustarfi en það sé út í hött að
halda því fram að Tryggingastofn-
un taki óbeint þátt í herkostnaði
lyíjafyrirtækjanna til að kynna nýj-
ar afurðir.
„Lyfjafyrirtækin eru að mark-
aðssetja sína vöru eins og annað
fólk. Okkur er þröngur stakkur
skorinn hvað varðar kynningu
lyfja. Samkvæmt lögum megum við
aðeins kynna lyf fyrir heilbrigðis-
stéttum, læknum, lyfjafræðingum,
hjúkrunarfræðingum og slíkum.
Það er engin rúsína í pysluendan-
um,“ segir Guðbjörg.
Hún bendir jafnframt á að oft sé
ódýrara að bjóða íslenskum lækn-
um til útlanda á kynningar en að fá
erlenda sérfræðinga hingað til
lands. „Siðareglur lyfjahóps Sam-
taka verslunarinnar segja allt sem
segja þarf um vinnulag okkar. Allt
byggist á samvinnu lækna og lyfja-
fyrirtækja og það má alveg eins
segja að það lækki lyfjakostnað í
landinu ef þeir sem skrifa út lyf
njóta betri fræðslu um áhrif
þeirra," segir Guðbjörg.
Læknum ofbýður
Bylgja er uppi víða um heim
meðal lækna sjálfra gegn áróðri
lyfjafyrirtækja. Þeir telja almennan
trúverðugleika stéttarinnar í hættu
en óyggjandi er samkvæmt könn-
unum að fylgni er milli friðinda og
tilvísana í lyfjaheiminum. Læknar
hafa stofnað netsíður til varnar
þessari þróun og kemur fram á
einni þeirra að ítalskir heimilis-
læknar hafi að meðaltali fengiö 450
heimsóknir frá lyfjakynnum í
fyrra. -BÞ
S-Þingeyj arsýsla:
Kynningarfund-
irnir að hefjast
Samstarfsnefnd um sameiningu
fjögurra sveitarfélaga í S-Þingeyjar-
sýslu hefur dreift upplýsingabæk-
lingi til kjósenda í sveitarfélögun-
um þar sem fjallað er um niðurstöð-
ur af starfi nefndarinnar og tillögur
hennar. Efnt verður til kynningar-
funda í öllum sveitarfélögunum
vegna kosninganna um sameining-
una en kosið verður 3. nóvember.
Sveitarfélögin fjögur sem um er
að ræða eru Bárðdælahreppur,
Hálshreppur, Ljósavatnshreppur og
Reykdælahreppur og ef sameining-
in verður samþykkt í kosningunni
þann 3. nóvember verður til sveitar-
félag með um 740 íbúa.
Kynningarfundirnir verða í
Barnaskóla Bárðdæla nk. sunnudag,
kl. 20.30, á mánudag í Ljósvetninga-
búð, kl. 20.30, á miðvikudag á
Breiðumýri, kl. 20.30, og á Illuga-
stöðum fimmtudaginn 25. október,
kl. 20.30. -gk
FSA verði styrkt
Þuríður Back-
man, alþingismað-
ur Vinstri grænna,
hefur sent Jóni
Kristjánssyni skrif-
lega fyrirspurn um
styrkingu Fjórð-
ungssjúkrahússins
á Akureyri. Þuríð-
ur spyr hvort ráð-
herra hyggist beita
sér fyrir því að
komið verði á fót kennslu í dreifbýl-
islækningum við Fjóröungssjúkra-
húsið á Akureyri. Hvort ráðherra
muni beita sér fyrir fleiri stöðugild-
um sérfræðinga við Fjórðungs-
sjúkrahúsið til að sinna m.a. far-
þjónustu. Hvort ráðherra ætli að
beita sér fyrir því að komið verði á
náms- og kandídatsstöðum við
Fjórðungssjúkrahúsið og hvort
samið verði við FSA um þjónustu
við sjúkraflug. -BÞ
Þuríður
Backman.
Stúdentaráö vill
svör frá ráöherrum
Stúdentaráð samþykk.ti á fundi í
fyrrakvöld áskorun til ráðherra
menntamála og fjármála að svara
mótmælum stúdenta við fyrirhug-
aðri hækkun innritunargjalda. Tvær
vikur eru síðan formaður Stúdenta-
ráðs afhenti menntamálaráðherra
tæplega 3200 undirskriftir stúdenta
þar sem þess var krafist að hækkun
innritunargjalda yrði dregin til
baka.
í yfirlýsingu frá Stúdentaráði seg-
ir jafnframt að yfirvöld háskólans
verði hvött til að mótmæla hækkun-
inni og halda fast við stefnu sína.
Solnrgangur o
H
i
AKUREYRI
Víðast léttskýjað
NA 5-8 m/s og lítils háttar skúrir á
austanverðu landinu og allra nyrst en víöa
léttskýjaö annars staðar. Hiti 3 til 11 stig,
hlýjast á Suðurlandi.
Sólariag í kvöld 17.51 17.33
Sólarupprás á morgun 08.36 08.28
Síödegisflóö 20.47 12.59
Árdegisflóö á morgun 09.11 01.20
Skýfsngíír á vsÆanáJaiuni
15
^VINDÁTT
10°
'J\viNDSTYRKUR I metrum á sekúndu XFROST HEIÐSKÍRT
O £> O
IETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAO
w 'W? fvCjs
RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓKOMA
W* 4* =====
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR ct/Ar. RENNINGUR ROKA
O -Jilí JiMiU
Notum góða veöriö
Þótt liðið sé langt á haust er
veöur enn milt. Því höfum við enga
afsökun fyrir því aö halda okkur innan
dyra um helgina. Förum í göngutúra,
grillum og kaupum ís.
Skýjað og rigning af og til
Austlæg átt, 5-8 m/s. Súld eöa rigning víða austan til. Á vestanveröu
landinu verður skýjað og rigning af og til suövestanlands. Hiti 5 til 11
stig. Mildast sunnan til.
EEEBiláttf
Vindur: \
S-8m/. \ ?
Hiti 5" til 11» WW
Austlæg átt, 5-8 m/s.
Súld eöa rigning víöa
austan til. Á vestanverðu :
landinu verður skýjaö og
rigning af og til suövestan- ;
lands. Hiti 5 til 11 stig.
Vindur:
5-8 ^ itrf/ !
Hiti 5” til 11» "WíW j
Austan átt, 5-8 m/s. Súld
eöa rigning austan tll. Á
vestanveröu landlnu veröur
skýjaö og rlgning af og til ;
suövestanlands. Hiti 5 tll
11 stlg.
Vindur:
5-8
Hiti 5”
Austlæg átt, 5-8 m/s.
Súld eöa rigning víöa
austan tll. Á vestanveröu
landinu veröur skýjaö og
rigning af og tll suövestan-
lands. Hitl 5 tll 11 stlg.
AKUREYRI þoka 0
BERGSSTAÐIR skýjaö 4
BOLUNGARVÍK skýjaö 4
EGILSSTAÐIR alskýjaö 6
KIRKJUBÆJARKL. súld 8
KEFLAVÍK þoka 6
RAUFARHÖFN skýjaö 6
REYKJAVÍK léttskýjaö 9
STÓRHÖFÐI rigning 9
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBLIN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEWYORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
skýjaö 10
hálfskýjaö 14
léttskýjaö 8 12
súld 10
léttskýjað 4
alskýjaö 19
þokumóöa 17
mistur 21
þokumóöa 14
alskýjaö 8
skýjaö 14
léttskýjaö 5
léttskýjaö 15
hálfskýjaö 15
súld á síö. klst. 4
rigning 16
léttskýjaö 19
léttskýjaö 26
heiösklrt 8
skýjaö 1
skýjaö 9
hálfskýjaö 21
skýjaö 17
þokumóöa 12
hálfskýjaö 1
léttskýjaö 2
K.Vfóún1: w . vtl u t a ti v, mti..'; L‘íh