Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Page 6
6 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 x>v Fréttir Rjúpnaveiöitímabilið er hafið og ýmislegt gengur á eins og venjulega: Utanvegarakst u ri nn aðalvandamálið - og það að menn eru með of mörg skot í byssunum, segir veiðistjóri „Það er tvennt sem er fyrst og fremst vandamál varðandi islenska skotveiðimenn. Það er utanveg- arakstur þeirra og það hversu margir þeirra eru ekki með „pinn- ann“ í byssunum og eru því með 5 skot i byssunni en ekki þrjú eins og löglegt er,“ segir Áki Ármann Jóns- son veiðistjóri. Rjúpnaveiðitímabil- ið er hafið og eins og venjulega gengur mikið á, menn eru að týnast og leitarsveitir kallaðar út, utanveg- arakstur er stundaður með tilheyr- andi gróður- og landskemmdum og menn fara ekki að reglum varðandi skotaQölda í byssum sinum. „Ég varð sjálfur vitni að utanveg- arakstri á Öxarfjarðarheiði og það er óskemmtilegt að horfa upp á þetta. Það þarf aukna löggæslu og hert viðurlög við þessum ófógnuði og sjálfsagt kemst eftirlitið ekki í al- mennilegt lag fyrr en farið verður að sinna þvi úr lofti. Mér hefur dott- ið í hug hvort ekki væri upplagt að taka upp samvinnu við Landhelgis- gæsluna um að sinna þessu eftirliti, það yrði miklu virkara og flugmenn Gæslunnar fengju um leið æfinga- flug,“ segir Áki Ármann. Hann segir að allt of margir veiðimenn séu ekki með „pinn- ann“ í byssum sínum sem þýðir aö þær taka 5 skot í stað þriggja eins Áki Ármann Sigmar B. Jónsson. Hauksson. og leyfilegt er að hámarki. „Þeir sem eru að gera þetta eru að kalla yfir sig að farið verði að „krumpa" byssurnar svo þær taki alls ekki meira en þrjú skot. Menn hafa heldur ekkert við fleiri skot að gera því það er ekki nema 1-2% skotveiðimanna sem hafa hæfni til að 4. og 5. skot komi að einhverjum notum,“ segir Áki Ármann. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags íslands, segir að ástandið sé ekki eins slæmt og margir telja. „Það eru engar stór- fréttir aö þegar þúsundir manna fara upp til fjalla og heiða að skjóta við slæm skilyrði eins og voru núna í byrjun skuli 2-3 menn týn- ast i smástund. Það sem er hins vegar vandamál er utanvegarakst- urinn en hann er stundaður af jeppamönnum allt árið um kring, Veiöimenn eöa stórskotaliö? „Ofmargir veiöimenn eru ekki meö „pinnann“ í byssum sínum sem þýöir aö þær taka 5 skot í staö þriggja eins og leyfilegt er, “ segir veiöistjórí. ekki bara af rjúpnaskyttum. Við í mínu félagi höfum bent á það árum saman að eina leiðin til að stunda þetta er að taka upp eftirlit úr þyrlum, fyrr næst ekki að hafa tök á þessum ósóma." Sigmar B. Hauksson segir að það sé ófyrirgefanlegt að menn séu að skjóta af byssum í sumarhúsa- byggð eins og fréttir eru um. „Þeir sem það gera eru vitleysingar sem ætti að hýða á almannafæri." -gk Séra Gunnlaugur í Heydölum vill leggja niður embætti tveggja vígslubiskupa: Valda kirkjunni erfiðleikum „Reynslan af því að hafa tvo vígslubiskupa í sérstökum embætt- um á Hólum og í Skálholti veldur kirkjunni fremur erflðleikum en að efla hana,“ sagði séra Gunn- laugur Stefánsson, sóknarprestur I Heydölum, í samtali við DV í gær. Hann hefur að undanförnu kynnt hugmyndir sinar um að leggja niö- ur tvö embætti vígslubiskupa í landinu og ræddi þetta mál meðal annars á dögunum á héraðsfundi presta og leikmanna austur á Eið- um. „Embættin eru afar verkefna- snauð og dýr, kosta 10 milljónir hvort á ári, og þau gera yfirstjórn kirkjunnar þunglamalega og flókna,“ sagði séra Gunnlaugur. ur Stefánsson. Séra Siguröur Siguröarson. Hann segir enn fremur að emb- ætti þessi hafi staðið í vegi fyrir því að efla embætti prófasta en ríkur vilji sé innan kirkjunnar til að efla prófastsdæmin um land allt. Séra Gunnlaugur segir að vígslu- biskupar hafi ver- ið settir á íslandi á sínum tíma til að varðveita biskups- vígsluna í landinu, þannig að ekki þyrfti til þess að koma að biskups- efni neyddist til að sækja vígslu til út- landa. „Það var fremur sjálfstæðis- og þjóðernismál að hafa tvo vígslubiskupa við hlið bisk- ups,“ sagði séra Gunnlaugur Stef- ánsson. Hann segir að embætti vígslubiskupa hafi verið vandræða- mál í kirkjunni um nokkurt skeið. Slíkt gerist oft um embætti og stöð- Séra Bolli Gústavsson. ur sem eru verkefnasnauð. „Það er mikilvægt núna að kirkj- an einfaldi stjórnarhætti sína, að þeir verði virkari og í nánara sam- bandi við fólkið í landinu. Ég tel að skref í þá áttina sé að leggja niður embætti vígslubiskupanna," sagði séra Gunnlaugur Stefánsson. Blaðið náði ekki til biskups i gær, hann sat Kirkjuþing, né heldur til Bolla Gústavssonar, vígslubiskups á Hólum. Séra Sigurður Sigurðarson vigslubiskup sagðist ekki vildi tjá sig. „Ég hef skoðanir á þessu máli en vil ekki tjá mig núna en það kemur dagur eftir þennan dag,“ sagði vigslubiskupinn í Skálholti. -JBP Áætlunarflug til Hafnar styrkt af ríkinu: Spyrjum um okkar stöðu - bæjarstjórinn á Húsavík segir enga þoku hafa verið á Húsavíkurvelli í gær Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra tilkynnti á ferðamálaráðstefn- unni á Hvolsvelli í vikunni að ákveð- ið hafi verið að bjóða út flugleiðina milli Reykjavíkur og Homafjarðar, en í því felst að ríkið mun styrkja flug á þessari leið. Það vekur athygli að ráðherra tilkynnir um styrk á þessari flugleið nánast sama dag og í ljós kemur að Húsvíkingar munu ekki fá það flug sem þeir voru að vonast eft- ir þar sem Flugfélagið Jórvík dró áætlun sína til baka, um skeið að minnsta kosti. Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, segir þessi tíð- indi tilefni fyrir Húsvíkinga og aðra á þessu svæði til að spyrja hvers vegna ekki sé hægt að styrkja flugleiðina þangað líka. Samgönguráðherra hafl á sínum tíma talað um að koma til móts við Húsvíkinga vegna verulegs viðbótarkostnaðar við að ferðast til Akureyrar í flug, en ekkert hafi bólað á slíku og Húsvíkingar hljóti að koma til álita varðandi flugstuðning eins og aðrir. Að sögn Jakobs Fals Garðarsson- ar, aðstoðarmanns samgönguráð- herra, er ólíklegt að flugleið eins og t.d. til Húsavíkur fái styrk af þessu tagi því til þess séu þessir staðir í of mikil nálægð við stórt þéttbýli eða flugvöll þar sem áætlunarflug er í gangi. Reinhard segir Húsvíkinga jafnframt spyrja sig að því hvort Húsavíkurvöllur sé í hlutverki óhreina barnsins hjá kerfinu vegna þess að menn virðist kerfisbundið sniðganga hann: „Menn hljóta að spyrja sig hver það er hjá Flugmála- stjórn eða Flugfélagi íslands sem stjórni því að það gerist, að í dag (gær) þegar ófært er til Akureyrar en fært til Húsavíkur, skuli flugvél- unum flogið aftur til Reykjavíkur. Það var hægt að lenda á Húsavík og flytja fólkið með bíl til Akureyrar. Við vorum með hátíð í dag í Borgar- holtsskóla þar sem skólinn var að fá verðlaun fyrir heimasíðugerð, og hingað áttu að koma formaður Heimilis og skóla og einhverjir fleiri að sunnan. Þessu fólki var snúið við á meðan við horfðum á heiðan himin inn allan Aðaldal yfir flugveflinum," segir Reinhard. -BG Umsjön: Höröur Kristjánsson netfang: hkrist@dv.is Klúður Mistök urðu við gerð Gallup-síma- könnunar sem nú stendur yfir um stjórnmálafylgi á Akureyri. Vinstri grænir lýstu furðu vegna vinnu- bragðanna enda gleymdist að telja þá upp sem valkost ef gengið yrði til kosninga nú. Ólafur Þ. Jónsson, betur þekktur sem „Óli kommi“, mun hafa gert harðorð- ar athugasemdir vegna þessa, enda eru Vinstri grænir eini flokkurinn sem lýst hefur yfir að þeir muni bjóða sig fram í næstu bæjarstjómarkosningum á Akureyri. Sagt er að Gallup hafi vart getað lent i verra klúðri. Óli kommi muni seint fyrirgefa slik mistök. Sjái menn ekki ljósið muni gamli vitavörðurinn ekki leggja mikið á sig til að leiðbeina Gallupmönnum næst þegar þá rekur upp á sker... Vill hægri beygju Til stendur að flytja á Alþingi framvarp til laga þess efnis að heim- ila ökumönnum að beygja til hægri á umferðarljósum á móti rauðu ljósi. Flutningsmenn tillögunnar era þeir Hjálmar Árna- son, þingmaður Framsóknarflokks- ins, og Vilhjálm- ur Egilsson, þing- maður Sjálfstæðis- flokksins, og er þetta í þriðja sinn sem málið er flutt. Athugulum pott- verjum þykja þetta mikil tíðindi. Hjálmar hafi hingað til látið nægja að aka beint af augum á grænu ljósi. Velta menn fyrir sér hvort hann verði bara ekki að flytja sig yfir í flokk Vilhjálms til að ná árangri. Þar hafi sjaldan vafist fyrir mönnum að taka krappar hægri beygjur ... Algjör brandari Grétar Þorsteinsson segir að rík- isstjórnin hafi brugðið á leik og haft afkomu launafólks í flimtingum í stað þess að svara efnislega gagnrýni sem sett var fram á efnahagsstefn- una. í heita pottinum skilja menn ekkert í þessari viðkvæmni Grétars. I raun hefði hann átt að taka undir hrossahláturinn með Davíð Odds- syni, Halldóri Ás- grímssyni og fé- lögum í ríkis- stjórninni. Þótt for- ystumenn ASÍ hafi talið sér trú um að hafa náð glimrandi samningum i síð- ustu kjarabaráttulotu, þá viti Davíð og Halldór betur. Margar stéttir launþega séu enn á launum sem eru hreinn brandari. Þau séu i það minnsta grátbrosleg ef ekki beinlínis sprenghlæileg... Spari húrrahrópin Kári Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, kynnti að vonum hróðugur nýjustu afrek fyrir- tækisins í genaleit arfgengra sjúk- dóma á dögunum. í vikunni gat líka að líta tíðindi af nokkurri uppsveiflu móðurfyrirtækisins deCODE á al- þjóðlegum flár- málamarkaði. Sagt er að hnussað hafi í eldri konum á Reykjalundi sem höfðu mikla trú á erfðafræðirann- sóknum Kára og fé- laga þegar fyrir- tækið fór á opinber- an markað. Þá hafl þær keypt bréf á nær 30 dollara stykkið. Síðan hafi þau snifsi hríðfallið í verði og fóru lægst niður í tæpa 6 dollara. Það sé því varla ástæða til mikilla húrra- hrópa þótt gengið hökti upp um einn eða tvo dollara. Enn vanti þrjá flórðu á að það nái upphaflegu verði. Ekki sé þá minnst á þá sem keyptu bréf á gráa markaðnum fyrir tvöfalda þá upphæð ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.