Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Page 16
16
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________1>V
Engir meöaljónar
- sýnishorn íslenskra milljarðamæringa
Karlmannsnafnið Jón hef-
ur um aldir verið svo al-
gengt á íslandi að tvö al-
geng máltæki í íslensku
vísa til þess. Annað fjallar
um muninn á Jóni og séra
Jóni og þá vísað til þess að
áður voru hinir vígðu
hafnir yfir almúgann. Svo
er enn en ekki þarf vígslu
til. Hins vegar er talað um
að hinn eða þessi sé eng-
inn meðaljón og þá er átt
við að hann skari fram úr
því venjulega. Einnig er
talað um meðaljóninn
sem einhvers konar sam-
nefnara fyrir meðal-
mennsku.
í árslok 1999 voru 5.583
karlmenn á íslandi sem
heita Jón að fyrsta nafni.
Þetta eru nýjustu tölur frá
Hagstofunni og ekki gott
að átta sig á því hvort
Jónum fjölgar eða fœkkar.
Þeir sex Jónar sem fjallað verð-
ur um í þessari grein eru sannar-
lega engir meðaljónar því þeir eru
fulltrúar Jónanna í bók sem heit-
ir íslenskir milljaröamæringar
eftir Pálma Jónasson fréttamann
sem nýlega kom út hjá Almenna
bókafélaginu. Þar er fjallað um
auðæfi 51 íslendings, 13 kvenna
og 38 karla sem talin eru eiga
meira en einn milljarð eða þús-
und milljónir í persónulegum
eignum.
Byggingameistarinn
í Byko
Jón Helgi Guðmundsson, for-
stjóri Byko eða Byggingarvöru-
verslunar Kópavogs, er sam-
kvæmt bókinni góðu enginn
meðaljón því auðæfi hans eru tal-
in vera um sex milljarðar og er þá
varlega áætlað. Þar vegur auðvit-
að þyngst eignarhlutur Jóns í
versluninni en hann á einnig
nokkurn hlut í ijárfestingarfélag-
inu Gildingu og lítinn hlut í
deCODE. Þetta gerir hann að ein-
um auðugasta manni landsins.
Byko var stofnað 1962 þegar
Jón Helgi var 15 ára. Það sem
hófst í litlu geymsluhúsnæði er
orðið að stórveldi sem teygir anga
sína um ísland, Lettland og Rúss-
land. Fyrir utan verslunina sjáifa
sem enn er þekktasta andlit fyrir-
tækisins mætti minna á Elko sem
Byko rekur í samvinnu við
norska verslunarkeðju. Uppbygg-
Jón Helgi Guömundsson í BYKO
Hann geröi fjölskyldufyrirtækið
að viðskiptastórveldi og
er milljarðamæringur.
ing og vöxtur fyrirtækisins er að
miklu leyti verk Jóns Helga sem
segir að kyrrstaða sé aldrei val-
kostur.
Jón er giftur Bertu Bragadóttur
og þau eiga þrjú börn, Steinunni,
Iðunni og Guðmund Halldór á
aldrinum 33 ára niður í 24 ára.
Bissnesmaðurinn í Bónus
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, vill áreiðanlega ekki
láta kalla sig meðaljón. Hann hóf
feril sinn sem léttadrengur undir
stjórn föður síns Jóhannesar
Jónssonar í matvöruverslun SS í
Austurveri og reyndar var afi
hans verslunarstjóri líka. Jón Ás-
geir var í Verslunarskólanum í
kennaraverkfalli og Jóhannes fað-
ir hans atvinnulaus þegar þeir
stofnuðu fyrstu Bónusverslunina
í Skútuvogi og hann hefur sjálfur
sagt að hann hafi lært meira í
verslunarrekstri á nokkrum dög-
Jón Ásgeir Jóhannesson í Baugi
Einn afyngstu milljarðamæringum é
íslandi. Fémáll við fjölmiðla en sýnir
styrk sinni úti á markaönum, enda
öflugur við samningaborðið.
um í Bónus en á þremur árum í
Versló.
Jón Ásgeir er meðal auðugustu
og yngstu milljarðamæringa
landsins. Auðæfi hans eru mæld í
milljörðum þótt erfltt sé að meta
raunvirði fyrirtækja á markaði.
Hann hefur fyrir löngu tekið öll
völd í fyrirtækinu og faðir hans
komið sér þægilega fyrir í aftur-
sætinu.
Fyrirtæki hans hasla sér völl í
Bandaríkjunum, Bretlandi,
Skandinavíu og heilu verslunar-
keðjurnar öðlast nýtt líf í höndum
hans. Hann er fámáll við fjöl-
miðla, talinn mjög öflugur við-
skipta- og samningamaður og
þykir ekki hafa farið troðnar slóð-
ir i sínum geira.
Jón Ásgeir er fráskilinn. Hann
á þrjú börn með Lindu Margréti
Stefánsdóttur sem heita Ása
Karen, Anton Felix og Stefán
Frans á aldrinum 11 niður í 4 ára.
Kaupmaöurinn í Nóatúni
Jón I. Júliusson, kaupmaður og
fyrrverandi eigandi Nóatúns, hef-
ur aldrei verið neinn meðaljón.
Hann fæddist 1925 vestur á Hell-
issandi og lærði vélstjórn og var í
siglingum árum saman. Hann tók
pokann sinn 35 ára og fór að
vinna í versluninni Þrótti í litlum
skúr við Borgartún hjá kunningja
sínum.
Hann keypti félagann út haust-
ið 1960 og fyrsta Nóatúnsverslun-