Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Page 19
19
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
53 V_________________________________________________________________________________________________Helgarblað
en þegar vinir manns komast upp í
hátignina þá getur maður ekki ver-
ið að liggja á dyrabjöllunni hjá
þeim.“
Söng nallann með Kjartani
og borðar með Hannesi
„Við Kjartan Gunnarsson vorum
líka heilmiklir vinir í den og erum
enn í öllu hæglæti. Ég fór í afmælið
hans um daginn og lenti fyrir ein-
skæra tilviljun við borð númer 13
hjá krata og framsóknarmanni,
reyndar sérstökum prýðismönnum
báðum. Mig grunar að Kjartan hafi
boðið en einhver annar raðað til
borðs. Best gæti ég trúað því að ég
sé eini maðurinn sem hef fengið
Kjartan til að syngja International-
inn. Þannig var að við vorum á
heimleið eftir einhverja aksjón, lík-
lega þegar við vorum á öðru ári i
háskólanum. Við erum neðst í Tún-
götunni þegar við sjáum tvo róttæk-
lingaleiðtoga koma á móti okkur.
Ég hnippi í Kjartan og segi: Nú
syngjum við nallann fyrir þá. Hann
var til og við tókum strikið og sung-
um við raust einhver tvö eða þrjú
erindi meðan við rigsuðum fram
hjá þeim. Þeir urðu alveg stjarfir og
reyndu ekki að stoppa okkur eða
tala, en gláptu bara á eftir okkur
þar til við beygðum inn i Garða-
strætið. Það var kvöldið sem ég
söng nallann með Kjartani - ætli
það hafi ekki verið tiltölulega fátíð
forréttindi. En ég fékk aldrei að
vera með í hasar. Ég var til dæmis
ekki með þegar hann stal Stúdenta-
félagi Háskólans fyrir framan nefið
á vinstri mönnum og faldi það fyrir
þeim í ein tvö ár. Sennilega hefur
hann álitið að ég væri of mikill
skátadrengur fyrir svoleiðis og
kannski var eitthvað til í því.“
Annar stórvinur forsætisráð-
herra, Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson, er kunningi Markúsar: „Við
Hannes erum saman í matarklúbbi.
„Mér finnst hundleiðin-
legt að berja á vinum
mínum, og flestir vinir
mínir eru í Sjálfstœðis-
flokknum. En ég ætla að
reyna mitt besta til að
kvótamálið leysist far-
sællega fyrir land og
þjóð. Þegar það er út-
kljáð rata ég sjálfsagt
heim ef annað er í
þokkalegu lagi, ég tala
nú ekki um ef flokkur-
inn rifjar upp stofn-
skránafrá 1929 “
Hannes þolir mér allt nema kvóta-
hagfræði og gagnrýni á Davíð og
þess vegna er þetta stundum hávær-
asti matarklúbbur í bænum. Ég
vona bara að Hannes telji sig ekki
tilneyddan að hætta að mæta. Hann
er interessant og það skiptir meira
máli en að hann er hornóttur og yf-
irgangssamur og sleppir ekki orð-
inu nema nauðugur."
Davíð Oddsson og Geir Haarde
hafa báðir sagt að vonandi skili
Markús sér aftur til flokksins. Á
hann von á því að svo verði?
„Mér finnst hundleiðinlegt aö
berja á vinum mínum, og flestir vin-
ir mínir eru í Sjálfstæðisflokknum.
En ég ætla að reyna mitt besta til að
kvótamálið leysist farsællega fyrir
land og þjóð. Þegar það er útkljáð
rata ég sjálfsagt heim ef annað er í
þokkalegu lagi, ég tala nú ekki um
ef flokkurinn rifjar upp stofnskrána
frá 1929. Þaö væri eitthvað nýtt ef
þeir færu að afþakka atkvæði."
Afmælishátíð á SKJÁEINUM
Þau Elma Rósný, Pétur, Arnar Már, Guðmundur Helgi,
og Þóra Rún eiga öll tvegqja ára afmæli í daq ásamt
SKJÁEINUM. Það má með sanni segja að síðastliðin
tvö ár hafi verið viðburðarík, afmælisbörnin hafa öll
braggast vel og framtíðin er björt.
í tilefni afmælisins býður SKJÁREINN íslendingum
upp á margvísleg skemmtilegheit:
• Frá kl. 08.00 til 20.30 er ókeypis í Árbæjarlaug.
• Frá kl. 10.00 til 13.00 er ókeypis fyrir börn 3-9 ára í nýja
Ævintýraland Kringlunnar.
• Frá kl. 13.00 til 16.00 er ókeypis í Go-Kart í nýju Karthöllinni
í Borgartúni 31.
• Frá kl. 20.00 til 23.30 ókeypis pylsur í Pylsuvagninum á
Lækjartorgi .
• Kl. 16:00 geta Akureyringar smellt sér í Nýja bíó í boði
SKJÁSE/NS á myndina Princess Diaries.
(Miðasalan opnar kl. 13:00.)
í kvöld og fram eftir nóttu verða svo SKJÁSEINS
fagnaðir á helstu skemmtistöðum borgarinnar;
Vegamótum, Prikinu, Húsi málarans og Hverfisbarnum.
Á Skjánum verður haldið upp á afmælið alla helgina.
Við bjóðum upp á alíslenska afmælishelgi og sýnum
valda, íslenska þætti framleidda af SKJAEINUM á
undanförnum tveimur árum. Hver man ekki eftir Nonna
Sprengju, Rósu, Leyndardómum Skýrslumálastofnunar
og fleiri athyglisverðum þáttum...
Til hamingiu með afmælið áhorfendur
og góða skemmtun!
SKJÁREINN - alltaf ó