Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Síða 23
23
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001_____________________________________________________
DV ____________________________________________ ___________Helgarblað
DV-MYND ÞÖK
Geir Svansson bókmenntafræðingur
Megas er náttúrlega miklu meira en poppsöngvari og popptextahöfundur - þó að merkimiðar festist illa á hon-
um. Hann skreppur alltaf undan stöðluðum skilgreiningum og það er eitt af því sem gerir hann svo merkilegan.
Hann færir sig alltaf út á jaðarinn og hefur eitthvað óþægiiegt í pokahorninu - fyrir alla.
Megas skuldar
engum neitt
- Geir Svansson
stýrir Omdúrm-
an - Margmiðl-
uðum Megasi í
Nýlistasafninu
andfasísk afstaða - en hann hefur
náttúrlega verið mistúlkaður
gegndarlaust i gegnum tíðina. Sem
dæmi má nefna þetta meinta níð
hans um Jónas Hallgrímsson sem
auðvitað er ekki níð heldur gagn-
rýni og háðsádeila á viötökurnar á
Jónasi og helgimyndasmíðina í
kringum hann. Megas er eflaust
heilmikill aðdáandi Jónasar. Hann
notar hins vegar háðsádeilu og
íróniu og brýtur markvisst niður
helgimyndir og helg vé. Síðan hef-
ur hann farið inn á mun erfiðari
sprengisvæði sem snerta kynlíf og
kynhegðun. Þegar lagið hans um
litla sæta stráka kom út - þá var
textinn skilinn á kolröngum for-
sendum og allt varð vitlaust."
Geir segir að alls konar fordóm-
ar blandist inn í fordæminguna á
Megasi á þessum tíma. Það sé eins
og fólk hafi neitað að skilja íróni-
una og gagnrýnina sem er innifal-
in í öllum hans textum. En gagn-
rýnin sé líka alltaf á einhverjum
mörkum - það sé aldrei hægt að
segja nákvæmlega hvert hún bein-
ist og það setji fólk úr jafnvægi.
Megas fékk verölaun Jónasar
Hallgrímssonar i fyrra en ekki
voru allir jafnánægöir með það.
„Hvers á Jónas að gjalda?" skrif-
uðu framkvæmdastjórar í Morgun-
blaðið. Einnig virtist tilsvar
Megasar, þegar hann var spurður
hvaða þýðingu verðlaunin hefðu
fyrir hann, fara í skapið á mörg-
um: „Bunch of money!“
Geir segir að þetta hafl verið
dæmigert fyrir Megas - hann
skuldi engum neitt.
„Hann lætur ekki festa sig í
ramma og þaö getur enginn verið
rólegur þegar Megas er annars
vegar. En þó að hann sé að fá verð-
laun við og við - vegna þess að það
er ekki hægt aö ganga fram hjá
honum - má ekki gleyma því að
hann hefur ekki fengið lista-
mannalaun í langan langan tíma -
sem er að mínu mati alger hneisa."
Vegglist undir áhrifum
„Þingiö er ekki fyrst og fremst
myndlistarsýning þótt það sé í Ný-
listasafninu,“ segir Geir þegar
talið berst aftur aö sýningunni.
„Texti og ýmislegt annað kemur
við sögu. í forsal á miðhæð og í for-
sal niðri verða myndverk og texti
Megasar í fyrirrúmi, í Gryfjunni
sjá aörir um vegglist - undir áhrif-
um frá Megasi - og á efri hæðinni
er sýnd myndlist eftir menn sem
Megas hefur mætur á. Það verður
málþing um list Megasar 10. nóv-
ember, hljómorðakvöld eru haldin
og út kemur heilmikU bók í ætt við
bókina sem gefin var út um Rósku
í fyrra.“
Þingið verður sett kl. 17 í Ný-
listasafninu, Vatnsstíg 3B, og
stendur tU 30. nóvember. Að því
stendur vefritið Kistan (kistan.is)
auk safnsins og sýningarstjórar
eru Geir Svansson og Hjálmar
Sveinsson ásamt Guðmundi Oddi
Magnússyni, Ósk VUhjálmsdóttur
og Þorvaldi Þorsteinssyni.
-þhs
Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg
og Akrafjallið geðbilað að sjá
en ef ég bió þig um aó flýja meö mér
til Omdúrman þá máttu ekki hvá
„Omdúrman er forn borg en hún
er líka „ekkistaður" í texta Megas-
ar, eins konar Langtbortistan, og
Megas býður okkur aö fylgja sér
þangað,“ segir Geir Svansson bók-
menntafræðingur. Omdúrman er
yfirskrift sýningarinnar Margmiðl-
aður Megas sem hefst í Nýlista-
safninu í dag. „Gestir mega að
sjálfsögðu hvá en ættu kannski
ekki aö reyna að skilja þingið með
alltof mikUli skynsemi heldur
nálgast það á forsendum Megasar."
Geir segir að honum hafl þótt
tímabært að Megas fengi verð-
skuldaða viðurkenningu. Hann og
nokkrir aðrir höfðu haft það á
prjónunum um nokkurt skeið að
gera eitthvað skemmtilegt með
verk Megasar og loks fengið þá
hugmynd að stofna til þings og aU-
ir hafi brugðist jákvæðir við. Meg-
as samþykkti verkefnið og styrkir
voru veittir frá Menningarborgar-
sjóði og menntamálaráðuneyti. En
hvers vegna Megas frekar en ein-
hver annar poppsöngvari?
„Hann er náttúrlega miklu
meira en poppsöngvari og
popptextahöfundur - þó að merki-
miðar festist iUa á honum,“ segir
Geir. „Megas skreppur aUtaf und-
an stööluðum skilgreiningum og
það er eitt af því sem gerir hann
svo merkUegan. Hann færir sig
aUtaf út á jaðarinn og hefur eitt-
hvað óþægUegt í pokahorninu -
fyrir aUa.“
Níft sem ekki var níð
Hvað er sérstakt við laga- og
textasmíðar hans að þínu mati?
„Það er svo ótalmargt. Hann
smiðar goðsagnir fyrir kynslóðir
eftirstríðsáranna og er gífurlega
mikilvægur okkar menningu. And-
ófið í textunum hans er í grunninn
Ullarkasmírkápur,
stuttar og síðar.
Heils árs kápur, þunnar
og þykkar,úlpur og
jakkar.
HlýlSID
Mörkinn 6 • sími 588 5518.
Opið taugardaga frá klukkan 10 til 15.
GaiJopii I ia§
Jd, -j y
Packard Bell
Heimilistilboð
Packard Bell iConnect,
heimilistölva og Sharp AJ-1805
prentari, saman á verði fyrir þig.
Stilltu þig!
28" BECO sjónvörpin eru komin
aftur. Fyrstir koma -fyrstir fá!
Verð aðeins 49.900
mm
SHARP
11. 0KT. -4. NOV. ■
■
Poppari vikunnar!
Þetta ómissandi hjálpartaeki
heimilisins á tilboði í dag.
Verðáður .
1S.6S4 12.900
EOZS
Tandurhrein tilboð
á þvottavélum,
þurrkurum, og
' V.,
uppþvottavélum
GimmEniifiii
í allan vetur!
Verð áður
7.357
^5.990
-ágmúla 8 • Slmi 530 2800