Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Qupperneq 44
52 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 v Tilvera I>V íslandsmót skákfélaga: Mikill fjöldi stórmeistara í Vestmannaeyjum um helgina verður fyrri hluti íslandsmóts skákfé- laga, 4 umferðir af 7. Það er Ijóst að 3 félög koma til með að berjast um titil- inn, Taflfélagið Hellir og Taflfélag Reykjavíkur og Skákliðið Hrókurinn. Mörg félaganna hafa styrkt sig með útlendum skákmeisturum, flestir þeirra taka síðan þátt í Minningar- mótinu um Jóhann Þóri Jónsson. At- hygli vekur að nýliðamir, Hrókurinn, verða líklega með fimm til sex erlenda stórmeistara, Jaan Ehlvest, Eistlandi, Ivan Sokolov, Bosníu og Niðurlönd- um, Nick de Firmian, Bandaríkjun- um, Tékkann Jan Votova og Danann Henrik Danielssen. Með alla þessa jöfra ættu þeir að geta veitt marga skráveifuna. Það er að sjálfsögðu frá- bært að fá alla þessa keppni að utan, en að vera með aðaluppistöðu liðsins erlenda kemur mér spánskt fyrir sjón- ir! Þeir hverfa svo til sín heima. 75% liðsins eru sem sagt erlend. Engu að síður held ég að þetta efli íslenskt skáklíf, gáfulegra væri þó að halda al- þjóðleg mót til að efla skáklífið enn betur. En hégóminn ríður ekki við einteyming!! Við komumst á CNN fyr- ir vikið! En samkvæmt CNN (!) þá er Taflfé- lagið Hellir eða „Cave Chess Club“ sigurstranglegast. Ekki ætla ég að mótmæla því, en þó gæti sú spá farið í vaskinn eins og svo margar aðrar! En íslandsmót skákfélaga er sem sagt á netsíðu CNN. Vestmannaeyingar fá þarna góða auglýsingu, enda eiga þeir hana skilið, ég hef oft teflt í Eyjum og get vitnað um það að þar er frábært að tefla. Svo ekki sé minnst á fegurð eyjanna. Ég hlakka mikið til og það erum við margir um! Hvammstangabraut 27. Húsið er tvílyft steinhús og stendur við aðalgötu bæjarins. Á efri hæð er 5 herbergja íbúð, á neðri hæð er 2ja herbergja íbúð með eldhúskrók, snyrtingu með sturtu, þottahúsog sameiginlegur inngangur. Innbyggður bílskúr. Nýir ofnar og ofnastýringar. Nýtt gler í gluggum. Afhending strax. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 451 2460 UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háö á þeim sjálf- um sem hér segir: Jöklafold 23, 50% eh!„ Reykjavfk, þingl. eig. Guðjón Haukur Hauksson, gerðar- beiðendur Bjami Sigurgeir Guðjónsson, Hekla hf„ Sparisjóður vélstjóra og Toll- stjóraembættið, ftmmtudaginn 25. októ- ber 2001 kl. 13.30. Bræðraborgarstígur 5, 0101, 82,1 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð m.m. ásamt geymsl- um í kjallara merktar 0003 og 0004, Reykjavík, þingl. eig. Jónas Ingi Ketils- son, gerðarbeiðendur Eignarhaldsfélagið Kringlan hf„ Frjálsi fjárfestingarbankinn hf„ Landsbanki íslands hf„ höfuðst., og Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 24. október 2001 kl. 14.00. Klukkurimi 1, 0201, 3ja herb. íbúð, 1. frá vinstri á 2. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Carlotta Rósa Guðmundsdóttir, gerðar- beiðandi Ibúðalánasjóður, fimmtudaginn 25. október 2001 kl. 14.30. Klukkurimi 93, 0102, 2ja herb. íbúð, 2. frá vinstri á 1. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Laufey Símonardóttir, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður, Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis, útibú og Sparisjóður vél- stjóra, fimmtudaginn 25. október 2001 kl. 14.00. Grandagarður 8, 020101, stálgrindarhús, 276,2 fm lagerrrými á 1. hæð ásamt 66,7 fm milligólfi, Reykjavík, þingl. eig. Hamra ehf„ gerðarbeiðendur Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, og Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 24. október 2001 kl. 14.30. Lyngrimi 9, Reykjavík, þingl. eig. Jón Guðlaugsson, gerðarbeiðendur fbúða- lánasjóður og Lífeyrissjóðurinn Framsýn, fimmtudaginn25. október2001 kl. 15.00. Marargata 2, 010401, íbúð í rishæð, öll hæðin, inng. frá V-hlið með 3. h. m.m„ Reykjavík, þingl. eig. Centaur ehf„ gerð- arbeiðendur Fosshótel ehf. og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, fnnmtudaginn 25. októ- ber 2001 kl. 10.00. Kárastígur 3, 010101, 3ja herb. íbúð á að- alhæð í timburhúsi, Reykjavík, þingl. eig. Lúðvík Per Jónasson, gerðarbeiðandi Glitnir hf„ miðvikudaginn 24. október 2001 kl. 15.00. Klapparstígur 11, 0301, 2ja herb. íbúð í suðurhl. rishæðar m.m„ Reykjavík, þingl. eig. Jónína Salný Borgþórsdóttir, gerðar- beiðandi (búðalánasjóður, miðvikudag- inn 24. október2001 kl. 15.30. Nýlendugata 15B, 0002, íbúð í S-hluta kjallara, Reykjavík, þingl. eig. Ýmislegt ehf„ gerðarbeiðendur Fjármögnun ehf„ Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, fimmtudaginn 25. október 2001 kl. 10.30. Skólavörðustígur 17, 0001, kjallaraíbúð, þingl. eig. Öm Ingólfsson, gerðarbeið- endur Guðmundur M. J. Björnson og Tollstjóraembættið, fimmtudaginn 25. október 2001 kl. 11.30. Laugavegur 21, Reykjavfk, þingl. eig. Hljómalind ehf„ gerðarbeiðendur Hreins- un og flutningur ehf„ Lífeyrissjóður lækna, Tollstjóraembættið og Tollvöru- geymslan-Zimsen hf„ miðvikudaginn 24. október 2001 kl. 16.00. SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háö á þeim sjálf- um sem hér segir: Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign veröur háö á skrifstofu embættisins aö Skógarhlíö 6, Reykjavík, sem hér segir: Barónsstígur 3, íbúð á 2. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Jakob Adolf Traustason, gerð- arbeiðendur Almenna málflutningsstofan sf„ Hróbjartur Jónatansson, Jónatan Sveinsson og Reynir Karlsson, fimmtu- daginn 25. október2001 kl. 11.00. Flugvél TF-Tal sem er Cessna 206, nr. 802, þingl. eign. Sólbraut 5 ehf„ gerðar- beiðandi Tollstjórinn í Reykjavík, mið- vikudaginn 24. október 2001 kl. 11.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Vestmannaeyjar - um helgina veröur fyrri hluti íslandsmóts skákféiaga, 4 umferöir af 7. Minningarmót Jóhanns Þóris Jónssonar Minningarmót Jóhanns Þóris Jóns- sonar, einhvers mesta skákjöfurs sem ísland hefur alið, fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og byrjar núna á þriðju- daginn. Jóhann Þórir hefði orðið 60 ára 21. október, en mótið hefst 23. október. En við verðum margir sem minnumst Jóhanns Þóris i Eyjum á sunnudaginn. Þar hélt hann ein 3 helgarskákmót og alþjóðlegt skákmót 1985 að auki. Keppendalistinn á minn- ingarmótinu er langur og má sjá hann í heild sinni á vefslóðinni: http://www.strik.is/ut- strik.ehtm/www.skak.is/si/memori- al/ en meðal keppenda eru eftirtaldir, Ivan Sokolov 2658, Jaan Ehlvest 2626, Peter Heine Nielsen 2620, Jan Timm- an 2600, Hannes Hlífar Stefánsson 2575, Friðrik Ólafsson 2460, Ingvar Ás- mundsson 2359, Björn Þorsteinsson 2329 og Guðmundur Pálmason en hann hefur ekki tekið þátt í alþjóð- legu skákmóti í um 35 ár! Keppendur verða á bilinu 40-50 og mótið án efa stórkostleg skemmtun. Aðgangur er ókeypis og hefjast umferðirnar kl. 17. Það er bara að mæta og hvíla sig að- eins á sjónvarpstöðvunum, þetta er merkur menningarviðburður sem verður ekki endurtekinn! Sigurbjörn Björnsson sigraði á Haustmóti TR Sigurbjörn hlaut 9 vinn. í 11 skák- um. Björn Þorsteinsson varö annar með 8,5 vinn. Björn hlýtur nafnbótina Skákmeistari TR. Þetta er í 5. sinn sem Björn hampar titlinum en hann varð Skákmeistari TR síðast árið 1974 en einnig varð hann sigurvegari árin 1966, 1961 og 1960. Björn hefur ekki teflt kappskákir í mörg ár, en árangur hans hlýtur að gefa gömlu meisturun- um byr undir báða vængi. Þeir verða fleiri með á minningarmóti Jóhanns Þóris Jónssonar! Sigurbjörn var vel að sigrinum kominn, tefldi vel og af festu. Meö svona aöstöðu til skákar- innar getur hann ekki annað en bætt sig! Ingvar Þór Jóhannesson náði þriðja sæti, ánægjulegt að sjá sífellt bætast ný nöfn i íslensku skákflór- una! Hann á eftir að ná langt, keppn- isharkan og vinnan sem hann leggur í skákina skilar sér örugglega! Lokastaðan A-riðill: 1. Sigurbjörn Björnsson 9 2. Björn Þorsteinsson 8,5 3. Ingvar Jóhannesson 8 4. Arnar Gunnarsson 7 5. Davíð Kjartansson 6,5 6. Dagur Arngrímsson 5 7. Sævar Jóhann Bjarnason 5 8. Jón Árni Hall- dórsson 4,5 9. Júlíus Friðjónsson 3,5 10. Guðjón Heiðar Valgarðsson 3,5 11. Guðni Stefán Pétursson 3 12. Einar K. Einarsson 2,5 í B-ílokki sigraði Halldór Pálsson sem kemur mér ekki á óvart! Skiln- ingur hans á skák er mjög góður og hann er að komast í réttan takt við kappskákirnar. Lokastaðan B-ílokkur: 1. Halldór Pálsson 8 2. Jónas Jónasson 7 3. Guð- mundur Kjartansson 7 4. Bjarni Magnússon 6 5. Ólafur Kjartansson 6 6. Páll Gunnarsson 5,5 7. Halldór Garðarsson 5,5 8. Atli Antonsson 5,5 9. Kjartan Guðmundsson 5 10. Kristján Ö. Elíasson 3,5 11. Harpa Ingólfsdóttir 3,5 12. Valgarð Ingibergsson 3,5 í opna flokknum börðust tvær ung- ar stúlkur um sigurinn! Aldís Rún Lárusdóttir sigraði þó örugglega og það er góðs viti! Við erum margir sem viljum veg kvennaskákarinnar sem mestan og þetta er góður áfangi á þeirri leið. Anna Björg Þorgrímsdóttir öðlaðist dýrmæta keppnisreynslu og Hilmar Þorsteinsson er ungur og mjög efnilegur skákmaður. Lokastaðan Opni flokkurinn: 1. Al- dís Rún Lárusdóttirl0,5 2. Hilmar Þor- steinsson 9,5 3. Anna Björg Þorgríms- dóttir 8 4. Sturla Þórðarson 7,5 5. Aron Ingi Óskarsson 7 6. Örn Stefánsson 6 7. -8. Amljótur Sigurðsson og Arnar Sigurðsson 9.-10. Atli Freyr Kristjáns- son, Hjörtur Ingvi Jóhannsson 5 Fyrst ein skák frá haustmótinu! Hvítt: Bjöm Þorsteinsson Svart: Guðjón H. Valgarðsson Frönsk vörn. Haustmót T.R. (8), 10.10. 2001 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. Bd3 c5 5. e5 Rfd7 6. c3 Rc6 7. Re2 cxd4 8. cxd4 Db6. Þetta er gamla afbrigðið sem Bjöm þekkir auðvitað vel! Nú í dag er oftast leikið 8. f6. En ungu mennimir gleyma stundum að þeir eldri hafa verið með í skákinni lengi þó þeir hafi tekið sér svo sem einn áratug í frí! 9. Rf3 f6 10. exf6 Rxf6 11. 0-0 Bd6 12. Rc3 0-0 13. Hel Bd7 14. Bg5 Hae8 15. a3 Rd8? Hér er 15. Rg4 sjálfsagður leikur! 16. b4 RÍ7 17. Bh4. Hér voru einu möguleikarnir til að halda taflinu gangandi að leika, 17. Bf4 eða 17. Hc8. Nú lokar riddar- inn biskupinn inni. 17. -Bb8? 18. Hér kom Ríkharður Sveinsson, al- þjóðlegur skákdómari, til mín og hvíslaði: „Nú fórnar Bjössi!" Og auðvitað gerði hann það og lauk þar með skákinni á sinn hátt! 20. Bxh7+ Kxh7 21. Dh5+ Kg7 22. Dg6+ Kh8 23. Dxf6+ Kg8 24. Dg6+ 1-0. Birting þessarar skákar er hluti af sálfræðistríðinu í Eyjum, nú um helgina! Nei, þetta er eina tapskák Sigurbjarnar í mótinu og þar sem ég hef birt nokkrar vinningsskákir hans að undanfórnu er í lagi að sýna þessa skák með hástökkvara mótsins sem náði 3. sætinu og 100 Elo-stigum að auki! Hvítt: Ingvar Þór Jóhannesson Svart: Sigurbjörn Björnsson Skoski leikurinn. Haustmót TR (9), 12.10. 2001 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Rb4 9. a3 Ra6 10. b4 g6 11. Bb2 Bg7 12. g3 0-0 13. Bg2 He8 14. f4 f6 15. 0-0 fxe5. Ekki veit ég hvort þetta er það nýjasta í íræðunum í þessu afbrigði. „Nr. Uno“ Kasparov teflir þetta af- brigði oft með hvítu. Ingvar fylgist vel með og þaö margborgar sig. Hér tapar hann ekki peði beinlínis, svörtu mennirnir ná illa saman! 16.Hel e4 17. Rc3 Bb7 18. Bxe4 Df7 19. Dd3 d5 20. Bf3 Had8 21. c5! Rb8 Hvítur hefur yfirburðatafl! Hellismenn verða að finna eitthvað betra! 22. Hadl Ba6 23. Dd2 Bc4 24. Kg2 a5 25. Re2 axb4 26. axb4 Bxb2 27. Dxb2 Bxe2 28. Hxe2 Hxe2+ 29. Dxe2 He8 30. Dd2 De7 31. Db2 Rd7? Hér komu aðeins 2 leikir til greina: 31. Dg7 eða 31. h6. Næsti leikur sést úr innsta skúmaskoti hellis, ef réttur aðili er þar á ferð. 32. Hxd5! De6 33. Hd2 Hb8 34. He2 Df6 35. Dxf6 Rxf6 36. He6 Kf7 37. Hxc6 Re8 38. Bd5+ KfB 39. Ha6 Hxb4 40. Ha8 Ke7 41. Bc6 Hb2+ 42. Kh3 Rg7. Staða hvíts er ekki beysin. Ridd- arinn kemst aldrei til neins gagns. Næsti leikur hvíts er ágætur, en sjálfur hefði ég líklega leikið 43. Hh8 og tapað!? 43. Hc8 Re6 44. Bhl Kf6? Betra er 44. Kd7 45. Hh8 Rxc5 46. Hxh7 og hvítur stendur enn mun betur! 45. Bd5 Rxc5 46. Hxc7 Rd3 47. Hf7+ og mát! 1-0.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.