Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Qupperneq 45
53
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
DV Tilvera
Arkarmótið 2001:
„Helgarnir“ sigruðu
í tvímenningnum
Fyrsta Arkarmótiö í bridge fór
fram dagana 12.-14. október á Hótel
Örk í Hveragerði. Hótel Örk,
Bridgesamband íslands, Guðlaugur
Sveinsson, Stefán Garðarsson og
Sveinn Rúnar Eiríksson héldu mótið
en tilefnið var tíu ára afmæli íslenska
heimsmeistaratitilsins í sveitakeppni.
Mótið skiptist í tvo hluta, tvímenning
og sveitakeppni. Fyrrum heimsmeist-
urum var boðið og gerðu þeir góða
ferð sem mættu.
Tvímenningskeppnin var Monrad-
Barometer með þátttöku 38 para.
„Helgarnir", Helgi Jónsson og Helgi
Sigurðsson, sigruðu með nokkrum yf-
irburðum.
Þeir spiluðu á fyrsta borði allan
tímann sem þýddi í raun að þeir voru
allan tímann að spila við pörin sem
höfðu hæstu skorina. Sigurinn var
því verðskuldaður að öðrum ólöstuð-
um. Að launum hlutu þeir Arkarskál-
ina, farandbikar mótsins ásamt
150.000 krónum. Fyrrum heimsmeist-
arar, Jón Baldursson og Þorlákur
Jónsson, hlutu annað sætið og brons-
ið hrepptu nýbakaðir bikarmeistarar,
Ólafur Lárusson og Rúnar Magnús-
son.
I sveitakeppni mótsins tóku þátt 23
sveitir og spilaðar voru 7 umferöir
meö 8 spila leikjum. Sigurvegari varð
sveit fyrrum heimsmeistara sem spil-
aöi undir því „þjóðlega" nafni Okla-
homa. Guðlaugur R. Jóhannsson, Örn
Arnþórsson, Þorlákur Jónsson og Jón
Baldursson fengu einnig til varðveislu
veglegan farandgrip auk 120.000
króna.
Það var mál manna að aðstaða öll
væri til fyrirmyndar á Hótel Örk og
þar væri til staðar framtíðaraðstaða
til mótshalds.
Við skulum að lokum skoða eitt
spil frá tvímenningskeppninni með
„Helgana“ í aðalhlutverkunum.
N/0
4 ÁK83
* DG95
♦ 5
4 ÁG93
4 D2
K832
♦ 943
* 10764
4 G10974
V 107
♦ DG86
* 85
Þar sem Helgi Sigurðsson og Helgi
Jónsson sátu n-s en Símon Símonar-
son og Friðjón Þórhallsson í a-v gengu
sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
14 1 Grand 2 4 pass
4 4! dobl Allir pass.
Helgi Sigurðsson treysti dálítið á
„stuðið" þegar hann stökk í fjóra
spaða, þrír hefðu verið nóg, en suður
hefði hæglega getað átt kóng meira án
þess að dobla grandsögnina, eða jafn-
vel einspil. Alla vega þurfti Helgi
Jónsson að spila íjóra spaða doblaða.
Friðjón spllaði eðlilega út tígul-
þristi og Símon átti slaginn á kóng-
inn.
Möguleikar varnarinnar minnkuðu
talsvert við að sjá blindan og Símon
ákvað að bíða átekta og trompa út.
Helgi drap drottninguna á kónginn í
blindum og spilaði hjartadrottningu.
Símon gaf og bjó þannig til vandamál,
sem hann leysti ekki síðar í spilinu.
Friðjón drap á kónginn og spilaði
laufsexi. Helgi lét lítið úr blindum og
Símon átti slaginn á drottninguna.
Hann veit nú ekki hvort Helgi hefir
átt skiptinguna 5-1-4-3 eða 5-2-4-2. Ef
hann á þá fyrri getur hann beðið eftir
laufslagnum eða eftir atvikum tíg-
ulslag, annars verður hann að taka
hjartaásinn. Illu heilli spilaði hann
trompi og Helgi var fljótur að nýta sér
það. Hann átti slaginn, tók laufás og
trompaði lauf, trompaði síðan tigul,
spilaði laufgosa og kastaði hjartatíu.
Síðan kom hjartagosi, ás og trompað.
Sjö slagir á tromp, tveir á lauf og einn
á hjarta. Slétt staöið og toppur til
„Helganna".
Ef Símon drepur á hjartaásinn get-
ur Friðjón sagt frá lengdinni í hjarta-
litnum. Þar með veit Símon að hann
verður að spila laufkóng til að ná
laufslagnum áöur en hjartað verður
frítt.
Fyrstu þrjú pörin í tvímenningskeppninni
Rúnar Magnússon, Ólafur Lárusson, Helgi Sigurösson, Helgi Jónsson,
Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson.
(:
Ég hélt að þúj
værir að leika þérj
með Venna vinil ,
(■ Það er ég einmitt að'Y
gera. Ég er spaejarinn j
l sem kippir I þræðina og
' stíórna .
öðrum. •
og Venni vinur er -
njósnarinn sem kemúr
inn úr kuldanum þegar
ég hleypi hönum iit úr J
' ‘ (sskápnum.—‘‘