Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Page 46
54
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_____________________________
Þóra Jónsdóttir,
Túngötu 34, Siglufiröi.
85 ára_____________________________
Guðmundur F. Guömundsson,
Fellsmúla 18, Reykjavík.
Indriöi Einarsson,
Melum, Kjalarnesi.
75 ára_____________________________
Dóra María Ingólfsdóttir,
Álfheimum 4, Reykjavík.
Hagalín Þorkell Kristjánsson,
Þverholti 30, Reykjavík.
Otti Pétursson,
Orrahólum 5, Reykjavík.
60 ára_____________________________
Stefán Benediktsson,
Miklubraut 28, Reykjavík.
Helga S. Þorkelsdóttir,
Dalalandi 6, Reykjavtk.
Anna Garöarsdóttir,
Hraunbæ 156, Reykjavík.
Jón Halldórsson,
Lyngholti 10, ísafirði.
50 ára_____________________________
Skarphéöinn Pétur Óskarsson,
Víðihlíð 1, Reykjavlk.
Guörún Árnadóttir,
Álfatúni 3, Kópavogi.
Þórdís Guöjónsdóttir,
Dalsbyggð 7, Garðabæ.
Ólafur D. Torfason,
Tjaldanesi 17, Garöabæ.
Einar Guömundsson,
Borgarvegi 20, Njarövík.
Siguröur Steingrímsson,
Hávegi 26, Siglufirði.
Ásbjörn Jónsson,
Aðalgötu 42, Ólafsfirði.
Steinunn Skúladóttir,
Sílatjörn 2, Selfossi.
40 ára_____________________________
Nhan Thanh Thi Cao,
Meistaravöllum 23, Reykjavík.
Magnús Sverrisson,
Bústaöavegi 53, Reykjavlk.
Svava Aldís Viggósdóttir,
Bakkahjalla 1, Kópavogi.
Margrét Káradóttir,
Aratúni 26, Garöabæ.
Eiríkur Pálmason,
Hrannarbyggð 7, Ólafsfirði.
Arnfríöur Einarsdóttir,
Sandbakkavegi 4, Höfn í Hornaftröi.
Guöný Siguröardóttir,
Suðurhvoli, Vík.
Hjónin Tómas Guömundsson, sóknar-
prestur og fýrrv. prófastur í Árnessýslu,
og Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, iðju-
þjálfi hjá GÍ, eiga gullbrúðkaup í dag.
Þau eru erlendis.
Allt til alls
►I550 5000
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
Ástríður Thorarensen
forsætisráðherrafrú
Ástríður Thorarensen forsætis-
ráðherrafrú er fimmtug í dag.
Starfsferill
Ástríður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp i foreldrahúsum. Hún
lauk stúdentsprófi frá MH 1971, var
læknaritari í Reykjavík 1973-79 og
stundaði síðan nám í hjúkrunar-
fræði við HÍ sem hún lauk 1983.
Ástríður var hjúkrunarfræðingur
við Landspítalann á árunum
1984-90.
Fjölskylda
Ástríður giftist 5.9. 1970 Davið
Oddssyni, f. 17.1. 1948, forsætisráð-
herra og formanni Sjálfstæöis-
flokksins. Hann er sonur Odds
Ólafssonar, f. 11.5. 1914, d. 4.1. 1977,
læknis í Reykjavík, og Ingibjargar
Kristínar Lúðvíksdóttur, f. 28.4.
1922, húsmóður á Seltjarnarnesi.
Sonur Ástríðar og Davíðs er Þor-
steinn Davíðsson, f. 12.11. 1971, lög-
fræðingur í Reykjavik.
Bróðir Ástríðar er Skúli
Thorarensen, f. 6.12.1955, og á hann
tvö börn, Þorstein, f. 1979, og Hildi,
f. 1983.
Foreldrar Ástríðar: Þorsteinn
Skúlason Thorarensen, f. 12.5. 1917,
d. 11.1. 1997, borgarfógeti í Reykja-
vík, og k.h., Una Petersen, f. 11.3.
1921, d. 2.10. 1987, húsmóðir.
Ætt
Þorsteinn var sonur Skúla, b. á
Móeiðarhvoli í Hvolhreppi, bróður
Óskars, hreppstjóra á Breiðaból-
stað, fóður Eggerts, forstjóra BSR,
og Þorsteins útgefanda Thoraren-
sen. Skúli var sonur Þorsteins
Thorarensen, b. á Móeiðarhvoli
Skúlasonar, Thorarensen, læknis á
Móeiðarhvoli, Vigfússonar, sýslu-
manns á Hlíðarenda i Fljótshlíð,
Þórarinssonar, ættfóður Thoraren-
sensættar, Jónssonar. Móðir Skúla
læknis var Steinunn Bjarnadóttir,
landlæknis í Nesi, Pálssonar. Móðir
Steinunnar var Rannveig Skúladótt-
ir, landfógeta í Viðey, Magnússon-
ar. Móðir Þorsteins á Móeiðarhvoli
var Ragnheiður Þorsteinsdóttir, pr.
í Reykholti, Helgasonar og Sigríðar
Pálsdóttur, sýslumanns á Hailfreð-
arstöðum, Guðmundssonar.
Móðir Skúla á Móeiðarhvoli var
Sólveig Guðmundsdóttir, b. í Aust-
urhlíð, Eyjólfssonar. Móðir Sólveig-
ar var Guðrún Magnúsdóttir, alþm.
í Bráðræði í Reykjavík, Jónssonar
og Guðrúnar Jónsdóttur Hjaltalín.
Móðir Þorsteins borgarfógeta var
Ástriður Kjartansdóttir, hreppstjóra
á Þúfum í Vestur-Landeyjum, Ólafs-
sonar. Móðir Ástríðar var Kristín,
systir Sigurðar, hreppstjóra í
Skarðshlíð undir Eyjafjöllum, föður
Halldórs úrsmiðs, föður Sigfúsar
tónskálds. Kristín var dóttir Hall-
dórs, b. í Álfhólum í Landeyjum,
Þorvaldssonar, bróður Björns, föður
Þorvalds ríka á Þorvaldseyri.
Móðursystkini Ástríðar: Hans
kaupmaður, faðir Hildar forstjóra;
Bima, móðir Guðrúnar Agnarsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Krabba-
meinsfélagsins; Búi kaupmaður;
Lilja læknir og Margrét húsmóðir,
móðir Péturs Ormslev, fyrrv. knatt-
spyrnumanns. Una var dóttir Hans
Petersen, kaupmanns í Reykjavík,
sonar Adolfs Petersen, verslunar-
manns i Keflavík. Móðir Hans var
María Ólafsdóttir, hreppstjóra í
Hafnarfirði, Þorvaldssonar. Systir
Maríu var Metta Kristín, móðir
Ólafs, prófasts í Hjarðarholti, föður
Kristínar læknis, ömmu Þorsteins
heimspekings, Vilmundar ráðherra
og Þorvalds prófessors Gylfasona.
önnur dóttir Ólafs í Hjarðarholti
var Ásta, móðir Ólafs Ólafssonar
landlæknis. Þriðja dóttir Ólafs var
Guðrún, móðir Ólafs Björnssonar,
fyrrv. alþm. og prófessors. Sonur
Ólafs í Hjarðarholti var Páll, faðir
Ólafar myndhöggvara.
Móðir Unu var Guðrún Jónsdótt-
ir, b. á Brún, Hannessonar, bróður
Guðmundar læknaprófessors og
Páls á Guðlaugsstöðum, fóður
Björns, alþm. á Löngumýri og afa
Páls Péturssonar félagsmálaráð-
herra. Móðir Guðrúnar var Sigur-
björg, hálfsystir Þorgríms, afa Val-
borgar, fyrrv. skólastjóra, móður
Stefáns heimspekings, Sigurðar
hagfræðings og Sigríðar sendiherra
Snævarr.
Þau hjónin verða að heiman á af-
mælisdaginn.
Attræður
Jón Eiríksson
bóndi á Vorsabæ II á Skeiðum
Jón Eiríksson bóndi, Vorsabæ II,
Skeiðahreppi, er áttræður í dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Vorsabæ í Skeiða-
hreppi og ólst þar upp. Hann var við
nám í Héraðsskólanum á Laugar-
vatni 1939-41.
Jón stofnaöi nýbýlið Vorsabæ II
og hefur verið bóndi þar frá 1949,
síðustu árin aðeins með kartöflu- og
skógrækt.
Jón var oddviti Skeiðahrepps
1950-90 og i oddvitanefnd Laugarás-
héraðs.frá 1950, formaður nefndar-
innar frá 1958-90 og gjaldkeri
1990-2000. Hann var stjórnarformað-
ur og rekstrarstjóri læknamiðstöðv-
ar í Laugarási frá því hún var stofn-
uð 1971 og síðar heilsugæslustöðvar
þar til 1990, átti sæti i stjórn Sam-
taka sunnlenskra sveitarfélaga frá
stofnun 1969-80, var umboðsmaður
skattstjóra þar til það embætti var
lagt niður, og fulltrúi í stjóm Lands-
sambands kanínubænda og fulltrúa-
ráði Landssambands kartöflu-
bænda. Ennfremur var hann í
stjórnum Fínullar hf., Yleininga hf.
og Jarðefnaiðnaðar hf., var kosinn
gjaldkeri Afréttarmálafélags Flóa og
Skeiða 1963 og er þaö enn.
Fjölskylda
Jón kvæntist 24.6. 1949 Emelíu
Kristbjörnsdóttur, f. 13.1. 1926. For-
eldrar hennar voru Kristbjörn Haf-
liðason og k.h., Valgerður Jónsdótt-
ir, en þau bjuggu að Birnustöðum.
Börn Jóns og Emelíu eru Valgerð-
ur, f. 8.5. 1950, textílkennari í
Reykjavik en einkasonur hennar er
Jón Yngvi Jóhannsson, f. 12.5. 1972,
bókmenntafræðingur, kvæntur Sig-
þrúði Gunnarsdóttur ritstjóra og
eru börn þeirra Valgerður, f. 28.9.
1993, Silja, f. 10.3. 1998, og Steinunn,
f. 13.9. 1999; Eiríkur Jónsson, f. 8.10.
1953, stuðlastjóri hjá íslenskum get-
raunum og hestaljósmyndari en
kona hans er Hulda Nóadóttir, f.
27.2.1956, gangavörður, og em börn
þeirra Emelía Guðrún, f. 17.7. 1976,
efnafræöingur, og Haukur Brynjar,
f. 22.5. 1980, nemi i pípulögnum;
Björn, f. 21.9. 1955, bóndi í Vorsabæ
II en kona hans er Stefanía Sigurð-
ardóttir bóndi og em þeirra börn
Margrét, f. 1.5. 1986, Jón Emil, f.
3.4. 1991, og Sigurbjörg Bára, f. 12.5.
1995; Ingveldur, f. 30.10. 1962, dag-
móðir á Selfossi en maður hennar
er Guðmundur Ásmundsson skóla-
stjóri og þeirra böm eru Birgir, f.
27.10. 1985, nemi við FBS; Berglind,
f. 20.11. 1987, Davíð, f. 27.11. 1991, og
Hilmar, f. 23.8. 1999.
Systkinin Jóns: Ragna, f. 13.8.
1917, d. 3.12. 1998, maki Hermann
Bæringsson vélstjóri, nú látinn; Sig-
ursteinn, f. 14.5. 1919, d. 18.12. 1934;
Axel, f. 11.2. 1923, rafvélvirki, maki
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, nú látin;
óskírður drengur, f. andvana 12.6.
1925; Helga, f. 17.10. 1928, bóndi í
Vorsabæ; Friðsemd, f. 23.4. 1932,
maki Þórkell Björgvinsson, nú lát-
inn; Sigríður Þóra, f. 29.8. 1936,
maki Ágúst Sigurðsson.
Foreldrar Jóns: Eirikur Jónsson,
f. 13.4.1891, d. 28.3.1963, og Kristrún
Þorsteinsdóttir, f. 19.2. 1894, d. 25.6.
1966. Þau bjuggu i Vorsabæ
Ætt
Eiríkur var sonur Jóns, b. í
Vorsabæ, Einarssonar, b. á Syðri-
Brúnavöllum, Eggertssonar. Móðir
Eiríks var Helga Ragnhildur, systir
Vigdísar i Miðdal, ömmu Guðmund-
ar frá Miðdal, föður Errós en Vigdís
var einnig langamma Vigdísar
Finnbogadóttur. Helga Ragnhildur
var dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ,
bróður Margrétar, langömmu Sig-
ríðar, móður Vigdísar Finnboga-
dóttur. Eiríkur var sonur Hafliða,
hins auðga á Bimustöðum Þorkels-
sonar. Móðir Helgu Ragnhildar var
Ingveldur, systir Ófeigs á Fjalli, afa
Tryggva útgerðarmanns, afa Trygga
Pálssonar framkvæmdastjóra. Ing-
veldur var dóttir Ófeigs ríka á Fjalli
og ættföður Fjallsættarinnar, Vig-
fússonar. Móðir Ingveldar var Ing-
unn Eiríksdóttir, ættföður Reykja-
ættarinnar, Vigfússonar.
Kristrún var dóttir Þorsteins,
smiðs á Sæbóli, Teitssonar, á Ein-
arsstöðum á Eyrarbakka, Helgason-
ar. Móðir Þorsteins var Guðrún Sig-
urðardóttir, b. á Hrauni í Ölfusi,
Þorgrímssonar, b. í Ranakoti, Bergs-
sonar, ættföður Bergsættarinnar,
Sturlaugssonar. Móðir Kristrúnar
var Sigríður Eyjólfsdóttir, b. á
Grímslæk, Eyjólfssonar.
Jón verður að heiman á
afmælisdaginn.
Arínu eldri
Dr. Hannes Jónsson
sendiherra er 79 ára í
dag. Hannes lauk
bandarisku stúdents-
prófi 1946, BA-prófi í fé-
lags- og hagfræöi viö
______________Rutgers University
1948, MA-prófi í sömu greinum viö Uni-
versity of North Carolina, Chapel Hill
1949 og lauk doktorsprófi í þjóöfélags-
fræöi og þjóöarétti frá Vínarháskóla
1980.
Hannes var embættismaður í utanríkis-
ráðuneytinu frá 1954-89 er hann lét af
störfum. Hann var blaðafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar 1971-74, sendiherra
m.a. í Mosvku, Genf og Bonn og jafn-
framt í fjölda austantjaldsríkja og Afríku-
rikja og fastafulltrúi, m.a. hjá Samein-
uöu þjóðunum, EFTA og GATT.
Sonur Hannesar og k.h. Karinar Waag,
er Hannes sendiherra.
Kristín Halldórsdóttir,
fyrrv. alþingismaöur, er
62 ára í dag. Kristín
hefur verið skelggur
málsvari kvenréttinda
um áratugaskeið, var alþingiskona fyrir
Kvennalistann 1983-89 og aftur 1995,
var formaður þingflokks Samtaka um
kvennalista og formaður Feröamálaráös
1989-93. Eiginmaður hennar er Jónas
Kristjánsson, ritstjóri DV, og meöal
barna þeirra er Pálmi, fréttamaður og
höfundur bókarinnar um íslenska millj-
aröamæringa sem kom út nú á dögun-
um.
Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, er 61 árs í
dag. Hann lauk sveins-
prófi í húsasmíði og var
síöan trésmiður um ára-
Grétar var formaður í Trésmiöafélagi
Reykjavlkur 1978-97, formaður Sam-
bands byggingamanna og síðan
Samiðnar og hefur verði forseti ASÍ frá
1996. Það eru hins vegar ekki margir
sem vita að hann hefur sinnt fjölda
trúnaðarstarfa fyrir bindindishreyfing-
una, æföi spretthlaup hjá Ármanni á
sínum yngri árum og var um skeið í
landsliðinu í frjálsum
íþróttum.
Súsanna Svavarsdóttir,
rithöfundur og leiklistar-
gagnrýnandi, er 48 í
dag. Súsanna var í
Versló, stundaði nám
við Stevensons College of Further Ed-
ucation og nám í bókmenntafræði og
íslensku við HÍ. Hún hefur starfað við
fjölmiðla í hartnær tvo áratugi, lengst
af á Mogga. Þar skrifaði hún leikhús-
gagnrýni á níunda áratugnum sem oft
vakti meiri athygli en leikritin sem fjall-
að var um. Þá hefur hún sjálf samið
leikrit, erótískar smásögur og sitthvað
fleira. Nú er hún að leggja lokahönd á
ævisögu Diddúar: Ævisöguna í ár!