Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Qupperneq 50
58 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 Tilvera 3Z>‘V t í i Fjölskylduhátíð Fjölskylduhátíð til minningar um Hafdísi Hlif Björnsdóttur og til styrktar rannsóknum á heila- himnubólgu verður haldin á stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 15 að tilhlutan Félags íslenskra leikara. Meðal þeirra sem koma fram eru Gunnar og Felix, Solla stirða úr Latabæ og Gleðiglaum- ur frá Bláa hnettinum. Klassík ■ SAMKOR KOPAVOGS I SALNUM Samkór Kópavogs heldur afmælis- tónleika í Salnum í dag í tilefni 35 ára afmælis síns og hefjast þeir kl. 16.00. ■ TÍBRÁ í SALNUM Tónleikar í TÍ- BRA-rööinni sunnudagskvöid kl. 20. Guðný Guömundsdóttir leikur á fiðlu og Peter Máté á píanó verk eftir Mozart, Arvo Párt, Hallgrím Helga- son, Saint-Saéns, Josef Suk og Wienlawski. ■ TÓNLEIKAR í ÁSBYRGI Tónleikar og dans meö ungu húnvetnsku Ijstafólki verða í félagsheimilinu Asbyrgi í dag kl. 15 á vegum Tónlistarfélags Vestur- Húnavatnssýslu. ■ UÓÐALESTUR HELLAS Gunnar Dal, Siguröur A. Magnússon, Kristján Árnason og Tryggvi V. Líndal lesa upp Ijóð í Lækjarbrekku 21. okt. kl. 14.30. Djass ■ GUITÁR ISLANCIO I BORGAR- BOKASAFNINU Boðið verður upp á djass í Borgarbókasafninu í Grófar- húslnu í dag klukkan 16 með tríóinu Guitar Islancio. Leikhús ■ BLÍÐRNNUR I dag verðúr leikritiö Blíöfinnur frumsýnt í Borgarleikhús- inu kl. 14. ■ BLESSAÐ BARNALÁN í kvöld frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikrit- ið Blessaö barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Sýningin hefst kl. 20. Fyrir börnin ■ LYGASOGUR I NORRÆNA HUS- INU Danski rithöfundurinn og teikn- arinn Carl Quist Moller segir börn- um nokkrar lygasögur í söguherberg- inu í Norræna húslnu, kl. 14. ■ ÆVINTÝRI STURLU Sturla Bööv- arsson samgönguráðherra les sögur fyrir börnin í söguherbergi Norræna hússins á sunnudag, kl. 13. Opnanir ■ HRINGRÁS VATNS OG SPEGL- AR I HAFNARBORG Sýningarnar Hringrás vatnsins og Speglar veröa opnaöar í sölum Hafnarborgar, Apó- tekinu og Sverrissal í dag kl. 15. ■ GURGMIÐLAÐUR MEGAS í NYLO Sýningin eða listþingið Omdúrman: Margmiölaöur Megas í Nýló er helgaö Megasi, Magnúsi Þór Jonssyni, ■ BYNHILDUR Á CAFÉ PRESTO Brynhildur Guömundsdóttir opnar í dag klukkan 15 sýninguna flökt [taktur einsemd snerting] á Cafe Presto, Hlíðasmára 15 i Kópavogi. ■ GERT/ÓGERT j ASÍ i dag klukk- an 1,6 veröur opnuö sýning á verk- um,Onnu Eyjólfsdóttur í Listasafnl ASI. I Asmundarsal: Ógert. í Gryfju: Gert. ■ UÓSMYNPASÝNING Liósmvndir frá síöari hluta 19. aldar úr miöbæ Reykjavíkur, aö líkindum teknar af Sigfúsi Eymundssyni, veröa til sýnis í dagí Borgarbókasafni, Grófarhúsi. Sjá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísl.ls Aftur með tónleika eftir erfið veikindi: Eins og batteríunum væri kippt úr mér - segir Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari „Ég er á móti því að heilsufar mitt sé notað sem auglýsing fyrir það sem ég er að gera,“ segir Guöný Guðmundsdóttir fiðluleikari sem annað kvöld kl. 20, þann 21. október, mun koma fram á Tíbrártónleikum í Salnum ásamt Peter Máté píanó- leikara. Tónleikarnir eru hennar stærsta verkefni eftir upp- risu úr erfíðum veikind- um sem hún hefur glímt viö síðustu tvö árin. Það var einmitt við undir- búning tónleika í Salnum 21. október 1999 sem hún varð snögg- lega að hætta allri spila- áriö því tilraunir hafi verið gerðar til að bæta heilsu hennar með lyfj- um og æðaútvíkkun. Eins og sinnisveik Hún segir að eflaust hafi litið svo út sem það hafi verið meira af vilja en mætti. Þar kom að skurðaðgerð var talin óumflýjanleg. „Ég lagðist undir hnífinn, aðgerðin tókst vel og eftir hana tók við endurhæfing á Reykja- lundi,“ segir Guðný. Hún fer ekki dult með aðdáun sina á læknavísind- unum og henni fmnst Reykjalundur stórkostleg stofnun. Þar verður ekki komist upp með neitt vol- æði. „Maður getur heldur ekki leyft sér annað en berjast og svo vex manni ásmegin með hveijum deginum sem liður,“ segir hún bros- andi. Aðspurð kveðst hún alltaf hafa reynt að vanda mataræð- ið, snið- ganga fitu og Qeira sem telst mennsku vegna þeirra veik- inda. Ekkert varð af þeim tónleikum en nú hefur hún sem sagt tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið og undirbúið glæsilega efnisskrá ásamt meðleikaran- um. Þetta heitir að standa sína plikt. Batteríunum kippt úr mér Eftir nokkrar fortölur viöurkenn- ir Guöný að það geti verið einhverj- um lesendum uppörvun að vita að hægt sé að sigrast á veikindum eins og þeim sem hún lenti í og leysir því frá skjóðunni: „Ég var bara í miðri æfingu í Salnum þegar ég settist niður og gat ekki spilað meir. Það var eins og „batteríunum" hefði verið kippt úr mér,“ byrjar hún sög- una. Hún kveðst í fyrstu hafa búist við að um ofþreytu væri að ræða en rannsókn hefði leitt í ljós þrengsli viö hjartað. „Læknar töldu þrengsl- in þó ekki svo alvarleg að þau ættu að valda allri þessari vanlíðan," seg- ir hún og kveðst hafa verið eins og jó jó inn og út af spítölum næsta DV-MYND GVA Fiöluleikarinn „Ég áttaöi mig á þvi aö maöur þarf yfirgengilegan kraft til aö spila á fiölu. Þaö gerir maöur ekki svo glatt nema „ganga á öllum“," segir Guö- ný Guömundsdóttir og ætlar sannar- lega aö sýna þann kraft á morgun. hún væri oröin sinnisveik. „Það er margt sem maður lærir á svona reynslu. Ég skil til dæmis núna að fólk getur verið á uppréttum fótum og litið þokkalega út en verið samt mikið veikt,“ segir Guðný og bætir við: „Ég áttaði mig líka á því að maö- ur þarf alveg yfirgengilegan kraft til að spila á fiðlu. Það gerir maður ekki svo glatt nema „ganga á öllum". Hún segist hafa reynt að spila smávegis á hverjum degi til að halda sér við en óholl- ustu. Nú passi hún enn betur upp á heils- una en áður, stundi líkams- rækt og gleymi ekki að hvíla sig. Stórhátíð Það gefur augaleið að stór- tónleikar eins og fram undan eru í Salnum eru sannkölluð stórhátíð fyrir Guðnýju sem nú hefur þessar hremmingar að baki. Enda hlakkar hún til. „Við Peter Máté ætlum að gera okkar besta, nú eins og áður, og ég get lofað því að efnisskráin er glæsileg," segir hún. Guöný og Peter hafa pilað mikið saman gegnum árin. Saman mynda þau Tríó Reykjavíkur ásamt Gunnari Kvaran, eiginmanni Guðnýjar. Tríóiö hefur komið fram nokkrum sinnum eftir að Guðný náði sér upp úr veikindunum og hún var komin á paO með Sinfóníunni fjórum mánuðum eftir skurðaðgerðina - upp á dag. Þar hefur hún tekiö aftur sæti sitt sem konsertmeistari en deilir því nú meö Sigrúnu Eðvaldsdóttur. Hún kveðst líka vera farin að kenna aftur, enda sé það eitt af hennar eftirlætis- viðfangsefnum. „Mér er nauðsynlegt að kenna," segir hún og bætir við: „það er svo gefandi og maður lærir svo mikið á því sjálfur." -Gun. The Price of Milk Maður, kona og beljur Nýsjálenska kvik- myndin The Price of Milk er einkennileg blanda af ævintýri og raunsæi,. villt í allri framsetningu en einstaklega sjarmerandi og dulúðug þegar best lætur. Ekki er ég viss um að aUir kunni að meta þá skrýtnu sögu sem borin er á borð fyrir okkur en aUir ættu að gefa henni tækifæri því hún er ekki að- eins fyndin útfærsla á sambandi manns og konu heldur einnig frum- leg og stendur upp úr hvað varðar útfærslu á sambandi milli raun- veruleika, ímyndunar og draums. Myndin gerist i sveit á Nýja-Sjá- landi (landslagið er þannig að hún gæti alveg eins gerst á íslandi). Rob og Lucinda eru ung og ástfangin og reka kúabú. Það læðist þó sá grun- ur að Lucindu að ást eiginmannsins sé að fjara út kynferðislega og sam- kvæmt ráðum vinkonu sinnar þá espar hún hann til dáða, gerir það að vísu ekki á réttum nótum. Upp frá því fer ýmislegt að gerast sem erfitt er að fá skýringar á, bæði fyr- ir Rob og Lucindu sem og áhorfend- ur. Inn í þann ævintýraheim sem kemur í kjölfarið koma mikið viö sögu frumbyggjar Nýja-Sjálands sem þarna er nánast hægt að færa upp á íslenska álfa. The Price of Milk er vel gerð og það að krydda hana með rússnesk- um tónverkum eftir fremstu tón- skáld Rússa gefur myndinni klass- ískt yfirbragð þó hún sé mjög svo nútímaleg i eðli sínu. Þaö er þó oft eins og leikstjórinn, Harry Sinclair, færist of mikið í fang með að láta gömlu ævintýraheföina fljóta inn í nútímann. -HK Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Harry Sinclair. Nýja-Sjáland 2000. Lengd: 90 min. Leikarar: Danielle Cormack, Karl Urban, Willa O'Neill og Rangi Motu, Leyfö öllum aldurshópum. Edges of the Lord ★★ Börn í stríöi Eftir aö hafa fylgst með hinum unga Haley Joel Osment þá leynist engum að hann er einstakur meðal barnaleikara, ótrú- lega þroskaður í leik sínum miðað við aldur. Og í nýjustu mynd sinni, Edges of the Lord, kemur þessi eig- inleiki hans vel í ljós. Það er samt ekki hann sem er eftirminnilegast- ur i kvikmynd sem lýsir lífi hjá nokkrum börnum í hersetnu Pól- landi í síðari heimsstyrjöldinni, heldur er það átta ára strákur, Liam Hess, sem meira að segja skyggir á Osment í hlutverki drengs, sem ákveður að hjálpa öllum með því að fara i fótspor Jesú Krists. Edges of the Lord, sem er gerð í samvinnu Pólverja og Bandaríkja- manna, er dramatísk örlagasaga. Osment leikur ungan gyðingadreng, sem bjargað er frá örlögum sínum af kaþólskri fjölskyldu. Þar dvelur hann sem einn af hópnum þó sumir hafi grun um uppruna hans. Mynd- in snýst aðallega um samskipti barnanna sín á milli, hvernig sum þeirra á ógeðfelldan hátt reyna að græða á hörmungum gyðinga á meðan önnur reyna að lifa lífinu eins vel og kostur er. Áður fyrr þegar tjaldið milli aust- urs og vesturs var sem þéttast komu oftar en ekki þungar, langar og ofur- dramatískar myndir úr austrinu og það lifir nokkuð af þeim glæðum í Edges of Lord. Hún er þrátt fyrir áhugaverðan söguþráð þung í allri framsetningu og nokkuð langdregin en er um leið áhrifamikil. -HK Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Yrek Bogayvicz. Bandarikin/Póland, 2001. Leikarar: Haley Joel Osment, Willem Da- foe og Liam Hess. Lengd: 94 mín. Bönn- uð börnum innan 16 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.