Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 Fréttir I>V T æknif r j ó vgunardeild: Viðkvæmt og erfitt mál - segir ráðherra „Ég geri mér fulla grein fyrir aö lokun tæknifrjóvgunardeildarinnar er bæöi viðkvæmt og erfitt mál fyr- ir marga. Eink- um er þetta slæmt fyrir þau pör sem þegar voru komin af staö í meðferðar- ferliö og eru nú sett í bið,“ segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra um þann vanda sem snýr að sjö hundruð pörum sem nú bíða þess að komast í tæknifrjóvgun á Landspítalanum. Tæknifrjóvgunardeildinni hefur verið lokað fram yfir áramót vegna þess að fjárveiting til lyfja við með- ferðir er uppurin. Ráðgert hafði ver- ið að hefja meðferð um áttatíu para á tímabilinu til áramóta en þeim meðferðum hefur nú verið frestað. Heilbrigðisráðherra segir lokun deildarinnar alfarið ákvörðun spít- alans og ljóst að tæknifrjóvgun er ekki meðal þeirra aögerða sem spít- alinn setur efst í forgangsröð. „Þetta eru einfaldlega staðreyndir sem blasa við. Ráðuneytið kemur ekki að ákvörðunum sem þessum en hins vegar er fjárskortur Landspít- alans í heild til skoðunar innan ráðuneytisins," segir Jón Kristjáns- son heilbrigðisráðherra. -aþ Sjá bls. 9 Jón Kristjánsson heilbrigöisráö- herra. Ýfingar á Ráðgjafarstofu: Símastúlkan við stjórnvölinn Ýflngar hafa verið síðustu daga á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Forstöðumaðurinn hefur verið í leyfi að undanfómu. Einn af ráðgjöfum stof- unnar, sem hefur í raun stýrt starfsem- inni á meðan, vildi að með formlegum hætti yrði frá því gengið af stjórn Ráð- gjafastofunnar hver skyldi vera stað- gengill forstöðumanns. Misklíð kom upp á stjómarfundinum þar sem Qalla átti um málið og í kjölfar þess fundar lét ráðgjafinn af störfum. Síðustu daga hefur símastúlkan á Ráðgjafarstofunni í raun verið í forsvari fyrir hinn dag- lega rekstur, en stjómarformaðurinn Ingi Valur Jóhannsson í félagsmáia- ráðuneytinu stýrt starfseminni í veiga- meiri málum. Staifsemi Ráðgjafarstofunnar hefur verið fjármögnuð meðal annars með framlögum banka og sparisjóða og hef- ur vilji félagsmálaráðuneytisis verið að fá þá með virkari hætti inn í starf- semina. Heimildir DV segja ennfremur að vilji fjármálastofnana hafi ennfrem- ur verið sá að starfsemi stofunnar færi sem mest fram í kyrrþey, en á það hef- ur bankamönnum nokkuð þótt skorta, skv. heimildum DV. Ekki náðist í stjómarformanninn Inga Val Jóhannssonar vegna þessa máls né heldur Pál Pétursson félags- málaráðherra. -sbs Sjö piltar á aldrinum 17 til 19 ára fyrir héraðsdómi: Ákærðir fyrir stór- felld bílainnbrot - brutust inn í 11 bíla á bílastæði Flugfélagsins í tveimur ránsferðum Sjö piltar, á aldrinum 17 til 19 ára, voru í gær ákærðir fyrir stórfelld innbrot í bíla á þessu ári og síðla síðasta árs. Sex piltanna voru viðstaddir þingfestingu málsins fyrir héraðsdómi í gær en sá sjö- undi, og sá sem kemur við sögu í flestum málanna, er staddur erlendis. Umfangsmesti þjófnaður- inn átti sér stað með tveggja daga millibili í apríl síðast- liðnum en þá létu fimm pilt- anna greipar sópa í bilum sem lagt hafði verið á bíla- stæði Flugfélags íslands við | Snorragötu. Aðeins einn sjömenning- anna tók þátt í báðum inn- brotsferðunum en hafði í bæði skiptin tvo félaga með sér. Fyrra tilvikið átti sér stað 14. apríl og brutu menn- imir þá rúður í fimm bílum og höfðu á brott með sér tvo geislaspilara, hátalara og magnara. Tveimur dögum síð- ar var aftur lagt upp í innbrots- Héraösdómur Reykjavíkur Ákæra á sjö unga menn, sem hafa játaö stórfelld bílainnbrot, var þingfest fyrir héraösdómi t gær. ferð og í þetta skiptið brutust þrír piltanna inn í sjö bíla á fyrrnefndu bílastæði. Eins og áður var fengurinn einkum fólginn í geislaspiluram, hátöl- uram og hátalarahillum. Auk þess er einn piltanna ákærður fyrir að hafa í félagi við þrjá menn gert tilraun í desember á siðasta ári til aö stela felgum ásamt hjólbörð- um af bifreið sem stóð við Vatnagarða. Sjömenningarnir koma mismikið við sögu og játuðu sex þeirra sök í öllum liðum í gær. Sex manns gera skaða- bótakröfur, alls að upphæð rúmar 550 þúsund krónur, á hendur piltunum en kröfurn- ar skiptast á hina ákærðu eft- ir brotum þeirra. Aðalmeðferð málsins fer fram fyrir héraðsdómi Reykjavíkur innan tíðar en með ákæruvald í málinu fer Hjalti Pálmason, lögfræðing- ur hjá lögreglunni í Reykja- vík. -aþ ; I MESCK DV-MYND KO Torkennilegt lykt Reykkafarar frá slökkviliöinu í Reykjavík voru kallaöir aö Rannsókna*stofnun fiskiönaðarins síödegis í gær. Starfs- menn stofnunarinnar hafa undanfarna viku fundiö torkenniiega iykt i geymslu hússins. Slökkviliðsmenn leituöu hátt og lágt, fjariægöu ýmis efni, en fundu ekki orsök lyktarinnar aö svo stöddu. Ekki var á feröinni grunur um miltisbrand heldur álitu starfsmenn aö sýruílát heföi hugsanlega getaö lekið. Héraðsdómur í máli ungs manns sem ákærður var fyrir að aka réttindalaus: Sýknaður þrátt fýrir meinta játningu - dómurinn átelur vinnubrögð við rannsókn og að játning var ekki færð til bókar Þrátt fyrir að lögregla hafi haldið því fram að ungur maður hafi eftir handtöku í apríl játað að hafa ekið bíl réttindalaus var hann í gær sýknaður af ákæru Lögreglustjórans í Kópa- vogi. Dómurinn átaldi vinnubrögð lögreglu ekki síst þar sem meint játn- ing var ekki færð til bókar, hvorki í svokallaðri varðstjóraskýrslu né í formlegri framburðarskýrslu ákærða. Einnig kemur fram í málinu að álita- mál var hvort ákærða hafði verið kynnt réttarstaða hans sem grunaðs manns og þar af leiðandi hefði honum ekki verið skylt að svara spurningum um sakarefnið nema að skýra satt og rétt frá. Héraðsdómur segir að einnig veki það athygli að lögreglu hafi ekki þótt grunsamlegt að eftir eftirfór hennar hefði annar maður sem var í umræddum bíl hlaupið inn í hús og læst þar að sér - lögregla hafi þar ekki talið ástæðu til að ræða við hann formlega eða skrá nafn hans í lögregluskýrslu. Laugardagskvöldið 14. apríl óku tveir lögreglumenn eftir Digranes- vegi en mættu þá ákærða í bíl ásamt tveimur öðrum ungum mönnum. Þeir ákváöu að hafa tal af ökumanninum, hófu eftirfor en misstu sjónar af bílnum áður en þeir komu að henni við verslunar- miðstöðina í Smáranum. Var hún þá mannlaus og fyrir lá að hvorug- ur lögreglumannanna sá hver hafði ekið henni. Vitni sögðu þrjá karl- menn hafa hlaupiö út úr bílnum, þar á meðal ákærði og Bandaríkja- maður sem hefði farið inn á salemi í húsinu og læst þar að sér. Þegar lögreglumennirnir ræddu við ákærða og annan íslenskan mann sem var í bílnum neituðu þeir báðir að hafa kannast við að hafa ekið. í skýrslu segir að þegar komið var með ákærða á lögreglustöðina hefði hann viðurkennt að hafa ekið bílnum sviptur ökurétti. Þar sagði einnig að hann hefði hótað lögreglu- mönnum líkamsmeiðingum. Þegar málið kom fyrir dóm neitaði ákærði sakargiftum og óskaði eftir að hinir tveir sem voru með honum í bílnum yrðu kallaðir fyrir dóm. Aðeins annar þeirra, íslendingurinn, var kallaður til vitnis, samkvæmt dóm- inum og bar hann að Bandaríkja- maðurinn hefði ekið og rangt væri að hann hefði játað aksturinn hjá lögreglu. Þar sem enginn sjónarvottur var að akstri ákærða og framangreind- um atriðum var ákærði sýknaður. Sakarkostnaður fellur á ríkissjóð. -Ótt Jarðgöngum frestað Ákveðið hefur verið að framlög til Vegagerðarinnar verði hálfum öðr- um milljarði lægri árið 2002 en ætlað var í vegaáætlun. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vísar til ijárlagafrumvarpsins þar sem gert er ráð fyrir minna fé til ný- framkvæmda en gert er ráð fyrir í vegaáætlum. Mbl greindi frá. Rússar í álvershugleiðing- um? Fulltrúar rússneskrar fyrirtækja- samsteypu eru hér á landi til þess að kynna sér möguleika á rekstri ál- vers. Þeir hafa farið um Eyjafjörð og skoðað aðstæður á Dysnesi í Árn- arneshreppi en þar er gert ráð fyrir stóriðju. RÚV greindi frá Auknir fordómar Að sögn Morgun- blaðsins eru vax- andi fordóma í garð múslíma sem bú- settir eru á íslandi eftir hryðjuverkin 11. september. Mestir eru fordóm- arnir í garð manna með arabískt yfirbragð. Innbrot í skartgripaverslun Samkvæmt fréttum á RÚV braut innbrotsþjófur rúðu í skartgripa- verslun í vesturbæ í nótt og hreins- aði skartgripi úr glugga hennar. Ekki er vitað hversu miklu var stolið. Enginn hefur verið handtek- inn vegna þessa. Ellefu ára með fikniefni Lögreglan í Kópavogi hafði fyrir skömmu afskipti af ellefu ára dreng vegna gruns um meðferð á fikniefn- um. Við húsleit heima hjá drengn- um fannst óverulegt magn fikniefna i eigu foreldra hans. Talið er að drengurinn hafi fundið efnin og ver- ið að fikta með þau. Mbl greindi frá. Loftbyssa á heimavist Svo virðist sem framhaldsskóla- nemar á Sauðárkróki séu byssuglað- ari en gengur og gerist. Lögreglan á Króknum hefur á skömmum tíma þurft að hafa þrisvar sinnum af- skipti af nemendum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vegna meðferð- ar skotvopna. Morgunblaði greinir frá því að nú síðast hafi loftskamm- byssa verið gerð upptæk á heima- vistinni. -Kip || b±+A helgarblað í Helgarblaði DV á morgun er birtur kafli úr óútkominni bók sem heitir Dag- bók dauðans þar sem rætt er við Atla Helgason lögfræðing sem varð við- skiptafélaga sínum að bana í öskjuhlíð 8. nóvember í fyrra. Atli lýsir í viðtali við bókarhöfund fikniefnaneyslu sinni, þætti hennar í voðaverkinu og erfiðri æsku sinni og uppvexti. Einnig er í blaðinu nærmynd af Björgólfi Guðmundssyni, fyrr- verandi forstjóra Haf- skips, sem hefúr marga íjöruna sopið í lifi og leik en er í dag talinn meðal rikustu manna íslands. í greinaflokki DV um íslenska harmleiki er sagt frá manni sem myrti eiginkonu sína seint á sjöunda áratugnum. DV flallar um fullnægingar kvenna, mikilvægustu störfm, hamingjuna og ræðir við Guðmund Hálfdánarson sagn- fræðing um endalok þjóðríkisins. Kol- brún Bergþórsdóttur ræðir við Ragnar Amalds um stjómmál og Ingu Bjamason leikstjóra um Dauðadans Strindbergs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.