Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 DV % Fréttir Mál fjölfötluðu konunnar, Helgu, á skrið í kerfinu: Við reynum að leysa öll neyðartilvik - en sárvantar fjármagn, segir svæðisskrifstofa fatlaðra Svæðisskrifstofa um málefni fatl- aðra í Reykjavík mun strax á mánu- dag taka til athugunar mál fjölfótl- uðu konunnar, Helgu, sem DV sagði frá í gær. Björn Sigurbjörnsson framkvæmdastjóri segir að svæðis- skrifstofan leitist viö að leysa þau neyðartilvik sem upp koma. Svo verði einnig i þessu tilviki. Hins vegar vanti sárlega íjármagn. Fjár- lagafrumvarpið fyrir árið 2002 geri ekki ráð fyrir nægilegu fjármagni til að leysa þann vanda sem fyrir hendi sé. Þess vegna séu þessir löngu biðlistar til. Gera megi ráð fyrir að um 800 milljónir þurfi til að leysa vanda varðandi þá. í DV í gær var viðtal við Halldóru Eyjólfsdóttur, nær áttræða móður fertugrar konu, Helgu, sem er mongólíti. Helga hefur búið alla tíð hjá móður sinni, sem hefur verið einstæð móðir í 37 ár. Helga er íjöl- fótluð og á bæöi við líkamleg og geð- ræn vandamál að stríða. Henni hefur farið mjög aftur, þar sem hún hefur misst öll félagsleg tengsl og fær enga hæfingu vegna aöstæðna. Móðir hennar fær enga félagslega þjónustu. Helga hefur verið í um tíu ár á biðlista eftir plássi á sambýli. Björn segir að langir biðlistar séu DV-MYND HILMAR ÞÓR Til betri vegar Mál fjötföttuöu konunnar Helgu, sem er á myndinni ásamt móöur sinni, Halldóru Eyjólfsdóttur, viröast vera aö snúast til betri vegar. eftir mismunandi tegundum þjón- ustu fyrir fatlaða. Biðlistar séu lang- ir, bæði eftir skammtímavistun og búsetu. Hann kveðst nýlega hafa tek- ið saman biðlista eftir búsetu og á honum séu 114 manns. Taka verði fram, að þar með sé ekki sagt að hin- ir sömu hafi ekki einhver úrræði í dag. Hann kveðst ekki vilja né geta tjáð sig um málefni einstaklinga. „Þegar pláss losnar eða ný sam- býli verða til höfum við það að meg- inmarkmiði að reyna að vinna þannig að þeir fái þjónustuna sem helst þurfa þess,“ segir Björn. „Við höfum áhyggjur af því að við erum að þjónusta marga og leysum úr allra brýnustu málunum, en við fullnægjum ekki þörfinni." Nú eru tvö sambýli í byggingu og verða tilbúin á næsta ári. Þar bæt- ast við tólf ný úrræði. Umrædd sam- býli eru sérhönnuö utan um ákveð- inn hóp fólks með sértæka fötlun. „Síðan er horft til þess aö gera átak í að kaupa hús og breyta þeim,“ segir Björn. „Þetta getur orð- ið ef meiri fjármunir fást. En í dag sé ég einungis þessi tólf nýju úrræði á sambýlunum á borðinu. Ég sé ekki fleiri miðað við fjárlagafrum- varpið." -JSS Áhöfn Hólmaborgar fékk góðar móttökur viö heimkomuna í gær. Rjómaterta var borin fram til aö fagna enn einu ís- landsmeti skipsins. Elvar Aöalsteinsson forstjóri heilsaöi upp á áhöfnina og var aö vonum ánægöur. Hér tekur Jóhann Kristjánsson viö tertunni. 81 þúsund tonn á land: Hólmaborgin slær enn einu sinni íslandsmet Forsýning á frétt: LÍÚ ekki boðið Magnús Þór Hafsteinsson, fréttamað- ur Ríkisútvarpsins, sýndi nokkrum framámönnum í sjómannahreyfing- unni á miðvikudaginn myndina af brottkasti fiskiskpanna Báru og Bjarma sem sýnd var í Sjónvarpinu í fyrrakvöld. Þetta voru þeir Grétar Mar Jónsson, forseti Farmanna- og físki- mannasambandsins, Sævar Gunnars- son, formaður Sjómannasambands ís- lands, og þeir Arthúr Bogason og Öm Pálsson frá Landssambandi smábáta- eiganda. Forustumönnum Landssam- bands islenskra útvegsmanna var hins vegar ekki gefinn kostur á að sjá mynd- ina áður en hún var sýnd í Sjónvarp- inu. „Það er mjög eðlilegt að Magnús hafi sýnt Grétari Mar myndina, manni sem gengið hefur af ábyrgð um auðlindina, og kemur ekki á óvart," sagði Friðrik J. Amgrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Við hjá LÍÚ emm að reyna að vinna að því að koma í veg fyrir brott- kastið og það er ósköp eðlilegt að frétta- maöurinn hafi ekki verið að ómaka sig á því að sýna okkur þetta áður en það fór í fréttimar," bætti Friðrik við. -gk Lést í bílslysi Nafh mannsins sem lést í bílslys- inu á Nesjavalla- vegi þann 27. október sl. er Benedikt Orri Viktorsson. Bene- dikt var búsettur að Garðsenda 13 í Reykjavík. Hann Benedikt Orri var fæddur árið Viktorsson. 1967 -aþ Hólmaborgin kom inn til Eski- fjarðar um fimmleytið í gærdag með um 1100 tonn af kolmunna, sem fékkst í Rósagarðinum. Þetta mikla aflaskip er þar með búið að færa að landi um 81 þúsund tonn af hráefni það sém af er árinu að verðmæti kr. 534 milljónir króna. Hér er um að ræða langmesta aflamagn sem is- lenskt skip hefur fiskað á einu ári, bæði fyrr og síðar, og er því enn eitt íslandsmetið sem Hólmaborgin set- ur. Þessi árangur er þeim mun at- hyglisverðari með tilliti til þess að sjómenn voru í verkfalli í tæpa 2 mánuði í vor þegar góð kolmunna- veiði var og sjómenn annarra þjóða tóku þátt í af fullum krafi. Elfar Aö- alsteinsson, forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf., afhenti Jóhanni Kristjánssyni skipstjóra, sem nú leysir Þorstein Kristjánsson skip- stjóra af, veglega tertu í tilefni merks árangurs. Lét Elfar þess get- ið að þessi frábæri árangur skip- verja Hólmaborgar og Jóns Kjart- anssonar ætti stóran þátt í góðu gegni Hraðfrysithúss Eskifjarðar um þessar mundir. En áhöfn Jóns Kjartansonar fékk líka tertur fyrir að hafa komið með rúmlega 61 þús- und tonn að landi á árinu. -Regína Blaðib í dag Þrír deyja um borð í Tý íslenskir harmleikir Óhóflegt vald spillir óhóflega Michael J. Kami Hvernig getur ísland orðið ríkasta land heims? Hannes Hóimsteinn Gissurarson Pilsvargur í borgarstjóra- stólinn Erlent fréttaljós Innlent fréttaljós Gætið að mataræðinu! Leiöbeiningar fyrir draugabana Tvær landsliðs- uppskriftir Sá guli í eldhúsinu 100 þús. e-töflur í ár Evran breytir stöðu Ef bæði Danir og Bretar gerast aðilar að evrunni er staða okkar breytt og þá þurf- um við íslending- ar að taka málið upp og átta okkur á því hvernig hagsmunum Islands er best borg- ið. „í mínu starfi verð ég vör við mikinn þrýsting í þessa átt,“ seg- ir Valgerður Sverrisdóttir við Frjálsa verslun. SH í góðum málum Hreinn hagnaður SH fyrstu níu mánuði ársins nam nú 524 millj. kr. á móti 217 millj. kr. sama tímabil árið 2000. Heildartekjur námu 41,3 milljörðum króna á tímabilinu. SH vænti þess að hagnaður af á síðasta ársfjórð- ungi verði 60-80 millj. kr og heild- arhagnaður á árinu öllu verði nær 800 millj. kr. Athugi olíuverð Samtök iðnaðarins hafa óskað eftir því við iðnaðarráðherra að hún beiti sér fyrir að athugun á verðmyndun olíu hérlendis, sem staðiö hefur yfir síöasta árið, verði hraðað. Segir aö olíuverð á heimsmarkaði hafi lækkað mikið siðustu mánuði, en verðlækkanir hér heima hafi ekki verið á sama róli. Borgarstjóri blekkir Borgarstjóri er uppvís að blekk- ingum þegar hún talar um skatta- lækkanir i Reykja- vík, segir Kjartan Magnússon, borg- arfulltrúi Sjálf- stæðisflokks. Ver- iö er að breyta álagningarhlutfalli fasteignaskatta og holræsagjalds í Reykjavík, þegar fasteignagjöld hækka í samræmi við breytt fast- eignamat, segir hann. Erfitt hjá Kaupþingi Hagnaður Kaupþings hf. fyrstu níu mánuði ársins er 83 millj. kr. eftir skatta. Afkoman telst óvið- unandi en erfitt árferði á verð- bréfamörkuðum hefur sett mark sitt á afkomu félagsins. Arösemi eigin fjár er 2%. Lækkandi gengi á mörkuðum leiddi og til tap- rekstrar á þriðja ársfjórðungi. í steininn fyrir smygl Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun þrjá Keflvíkinga í fangelsi fyrir að smygla 1,7 kílóum af hassi til landsins frá Kaupmannahöfn. Mest af hassinu var falið á salemi í vél Flugleiða sem kom í byrjun febrúar til Keflavíkur, sagöi í frétt- um RÚV. Ekkert þokast Enginn árangur varð af óformlegúm samningafundi tón- listarkennara og sveitarfélaga sem haldinn var í gær. Næsti fundur í kjaradeilunni verð- ur á miðvikudag hjá Ríkissáttasemjara. Verkfall tón- listarkennara hefur nú staðið i 20 daga. Byltingartilraun Umræðunni um brottkast á fiski er stjómað af mönnum sem ætla að nota þá ólgu sem af henni leiðir til að breyta núverandi stjórnunarkerfí. Þetta hafa Eyjafréttir eftir Óskari Þórarinssyni, skipstjóra og útgerðar- manni i Eyjum. Hann telur brottkast minna nú en á ámm áður. -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.