Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V Jeffrey Trail var myrtur með klauf- David Madison var skotinn í hnakkann. Lee Miglin var sagaður á háls. Willian Reese - var skotinn. Gianni Versace - var myrtur af ástæöu sem enn er ekki Ijós. Slóð dauðans lá að dyrum Versaces Síðasta laugardag var sagt frá morði kaupsýslu- manns sem framið var á Miami og var látið að því liggja að það tengdist morðinu á tískufrömuðinum Versace sem skotinn var í höfuðið á svipuðum slóðum. Út er komin bók um örlög Versace þar sem sýnt er fram á að dauðdagi hans tengist mafíunni. í greininni sem hér birtist er sagt gjörla frá morðinu og fleiri ódœðisverkum sem morðinginn framdi áður en hann gekk frá sjálfum sér. Tískuhönnuðurinn Gianni Ver- sace var skotinn til bana á tröppum villu sinnar, Casa Casuarina á Mi- ami, að morgni 15. júli 1997. Ungur maður á íþróttaskóm lædd- ist aítan að honum, dró skammbyssu úr bakpoka sínum og þrýsti henni að hnakka hönnuðarins og bölvaði á ítölsku og skaut tveim skotum gegn- um heilann. Tískukóngurinn valt niður mann- aratröppumar og lá dauður á gang- stéttinni með útlimina í allar áttir. Dauð dúfa lá við hlið hans. Var þetta maflumorð eða hefnd samkynhneigðs morðingja? Þeirri spumingu hefur ekki verið svaraö á trúverðugan hátt. Vissuiega stjómar mafían fataiðn- aðinum í New York en ekki liggja sannanir fyrir um hvort samtökin eiga líka ítök í hátískuheiminum þótt sumir telji það líklegt. Ekki lengur markaöshæfur Morðingi Versaces, Andrew Cun- anan, var samkynhneigður og hélt ranglega að hann væri haldinn eyðni. Við krufningu kom í Ijós að svo var ekki. En sú sannfæring hans að vera við dauðans dyr fyllti hann reiði sem braust út í morðæði og veittist hann að samkynhneigðum kynbræðmm sínum. Cunanan var með ítalska hönnuð- inn á heilanum. Hann taldi sig hafa hitt hann í San Francisco-óperunni árið 1990 og hafði iðulega orð á kunn- ingsskap þeirra í samkvæmum. Hann gerði líka mikið að þvi að ganga í nærfötum sem vom með vörumerki Versaces. Miklar breytingar urðu á lífi Cun- anans áriö 1997. Þá var hann orðinn skuldugur upp fyrir haus og hlaut ekki lengur náð fyrir augum ríkra homma, en fram að þeim tima seldi hann félagsskap sinn og var fylgi- sveinn og elskhugi sterkefnaðra karla sem haldnir vora samkyn- hneigð. í síðustu veislumáltíðinni sem hann tók þátt í meö vinum sín- um í San Diego sagðist harrn vera á förum og ætla að snúa sér að öðrum störfum sem síðar kom í Ijós að vora morð. Raðmorð Hann hélt til Minnesota og náði sam- bandi við fyrrum elskhuga sinn, upp- gjafaforingja í hemum, Jeffrey Trail, og bauð honum í kvöldmat 29. apríl 1997 í íbúð Davids Madisons sem var auðugur arkitekt og Andrew Cunanan sagði öllum sem heyra vildu að þeir heföu átt innilegt samband og ástríkt. í íbúöinni var haus Jeffreys Trails molaður með klaufhamri. Þegar David Madison kom heim síðar um kvöldið var hans beðið. 3. maí fannst lík hans í vatni 50 km norður af Minneapolis. Hann hafði ver- ið skotinn í hnakkann með verklagi launmorðingja. Þegar lögreglan rann- sakaði íbúð Madisons fannst lík Jef- freys Trails. Þar fannst einnig poki með nafni Andrews Cunanans og í hon- um kassi með byssukúlum af sömu gerð og Madison var skotinn með. Tíu skot vantaði í kassann. Þriðja hommalíkið fannst svo 3. maí. Það var af Lee Miglin, 73 ára gömium fasteignasala sem var auðugur af fé í lifanda lífí. Lík hans var í hans eigin bílskúr í auðmannahverfi í Chicago. Hann hafði verið pyntaður áður en sög var brugðið á háls honum. Á brjóstinu voru stungusár eftir garðkiippur. Sá grunur vaknaði að fasteignasal- inn heföi verið faðir eins af ástmönn- um Andrews en lögreglan hélt að þeir heföu hist fyrir tilviljun og að Lee Migl- in heföi verið myrtur í eigin bíl. Bíll Madisons fannst yfírgefinn þar skammt frá. Næsta fómarlamb var Wiiliam Reese, umsjónarmaður kirkjugarös í Pennsville í New Jersey. Hann hvarf 9. maí. Bíll Lee Miglins fannst skammt frá kirkjugarðinum en bill Reese var hvergi sjáanlegur. Þaðan hélt Andrew Cunanan til Mi- ami á Flórída til að deyða Gianni Ver- sace. Sjálfsmorö Skömmu eftir það dráp var óttast að Cunanan hefði myrt sjötta fóm- arlambið þegar sást til manns sem líktist honum hlaupa frá lúxusvillu. Þar inni lá líkið af eigandanum, dr. Silvio Alfonso, með buxumar á hæl- unum og skotsár á höföi. Getgátur voru um að hann heföi húkkað Cun- anan á hommabar og það kostað hann lífið. En engar sannanir liggja fyrir um að svo hafi verið og má því allt eins vera að morðingi doktors- ins gangi enn laus. Miðvikudaginn 23. júlí var lög- reglan á Miami kölluð aö smábáta- höfninni viö Indian Creek þar sem einhver sem laumast haföi um borð í húsbát skaut að umsjónarmanni bátahafnarinnar. Skyttur lögregl- unnar komu sér fyrir umhverfis bátinn, þyrla sveimaöi yfir og hund- ar og lögreglumenn umkringdu svæðið. Eftir fimm klukkustimda umsát- ur heyrðist skothvellur frá húsbátn- um. Ándrew Cunanan brá skamm- byssuhlaupi upp í sig og hleypti af. Haldinn moröæði Andrew Cunanan var haldinn morð- æði eftir að hann hélt sig vera kom- inn með eyöni. Helmingur andlits hans var horf- inn. Við hlið hans lá skammbyssa sem síðar kom í ljós að notuö var tU að myrða Versace og tvö önnur fómarlömb Cunanans. Mafíutengsl En dauði Andrews brá samt ekki ljósi á leyndardóminn um hver það var í raun og vera sem stóð að baki morðinu á Versace. Orðrómurinn um að hönnuðurinn hefði fallið fyrir hendi atvinnumorð- ingja VcU- hvorki sannaður né af- sannaður. Lögreglunni þykir ólík- legt að launmorðingi hafi notað svo stóra og öfluga byssu sem skotið var úr af örstuttu færi. Minni kúlustærö var líklegri tU að rúlla um í heila- hvelinu og drepa fómarlambið fljótt og vel. En með því að nota stóra kúlu og öfluga var sú hætta fyrir hendi að hún færi gegnum höfuðið og þá gæti sá sem myrða átti lifað af. Eftir sem áður útUokar lögreglan á Flórída ekki að um skipulagt mafíumorð hafi verið að ræða. Einkaspæjarinn Frank Monte hefur veriö yfirheyrður en hann vann áður fyrir Gianni Versace. Hann er l&a höfundur bókarinnar sem systkini hins myrta hefia málaferli út af. Einkaspæjarinn heldur því fram aö mafiuforingjar hafi fyrirskipað að myrða Versace og telur að skotin tvö í hnakkann séu vörumerki þeirra. Dauða dúfan við hlið líksins er líka skUaboð um hverjir voru aö verki. Venjulega er það spörfugl sem lagöur er við hlið þeirra sern mafían lætur myröa. Það er vamað- armerki tU þeirra sem eftir lifa og freistast tU að kjafta frá. Á mafiu- máli er það kaUað að syngja og því eru söngfuglar lagðir með likum. En dúfan hefur aðra merkingu sem er augljós þeim sem tU þekkja. Eigandi húsbátsins er Torsten Reineck, áberandi hommi sem flúði frá Þýskalandi þar sem hann á yfir höföi sér ákærur vegna fiársvika. Hann á það sammerkt með Gi- anni Versace að vera grunaður um skattsvik og stendur rannsókn yfir í þeim málum. Hugsanlegt er talið að þessir tvefr menn hafi stundað pen- ingaþvott fyrir mafíuna, eða hafi tengst slíkum málum á einn eða annan hátt. Er nú leitað eftir vís- bendingum um hvemig þeir tengj- ast mafíunni og hver öðrum, Þjóð- verjinn, ítalski hönnuðurinn og am- eríska hommameUan. Mörgum spumingum er enn ósvarað og ef til viU kemur aUur sannleikurinn aldrei í ljós. Húsbáturinn Alríkislögreglumenn bera lík Andrews Cunanan úr húsbátnum þar sem hann framdi sjálfsmorð eftir að hafa framið mörg ódæðisverk. Banvænn kokkteill Hjón sem eru kráareigendur í Bretlandi voru sýknuð af morðákæru. B. Gates var fast- ur viðskiptavinur á krá þeirra. Dag nokkurn var hann búinn að innbyrða margar bjórkoUur og var vel hífaður þegar hjónin buðu honum 27 pund ef hann gæti drukkið kokkteil í einum teyg. Stór koUa var fyllt af viskíi, gini, vodka, rommi og koníaki. Gates svolgraði þessu í sig og steinlá eftir afrekið. Kráareigend- ur gerðu grín að þvf að karUnn þyldi ekki kokkteilinn og lögðu hann upp á bekk þar sem hann fékk aö hrjóta í friði. En brátt hljóðnuðu hroturnar og Gates var hættur að anda. Var nú kallað á sjúkrabíl en ekki tókst að vekja fylliraftinn til Ufs á ný. Hjónin voru sýknuð af morð- ákærunni, en dómarinn úrskurð- aði að veitingaleyfið yrði tekið af þeim og þau fá ekki að reka krá það sem eftir er ævinnar. bílþaki Ungur mað- ur ók á mann á áttræðisaldri á vegi í York- shire og kastaðist sá fullorðni upp á þak bílsins og lá önnur hönd hans niður í gegnum sóllúguna og skorðaðist þar, svo að maðurinn á þakinu, sem dó þegar eftir árekst- urinn, hékk þar. Ungi maðurinn ók áfram og sinnti engum viðvörunum frá öðr- um vegfarendum sem reyndu aö benda á að maður væri á þaki fólksbílsins. Svona var ekið nokk- urra kílómetra leið þar til bllnum var lagt í bílastæði við krá. Þegar hafðist uppi á unga manninum sem ók á karfinn bar hann því við að hafa misst alla stjórn á sér þegar hann ók á manninn sem síðan losnaði ekki af þaki bílsins. Hann sagði að eina hugsun sín hefði verið að ná til föður síns til að fá hjálp. Morðingjaást Tveir fræg- ir morðingjar á ítah'u hafa farið fram á að fá að deila fangaklefa því þeir séu orðnir ástfangnir hvor af öðrum. TulUo Brigida afplánar 40 ára dóm fyrir að hafa myrt þrjú böm sín og eiginkonu. Mario Gargiulo myrti nána vinkonu sína og dótt- ur hennar. Fyrrum eiginkona Brigida lét blaðið hafa eftir sér innilegustu hamingjuóskir þegar tveir mestu óþverrar ítaUu felldu hugi saman og ætluðu að verja ævinni saman i Utlum fangaklefa. Barist í dauðadeild Desmond Jennings var dæmdur til dauða í Texas fyrir að hafa skotið tvær manneskjur til bana í eiturlyfiagreni árið 1993. Dómnum var svo fuUnægt i nóvember 1999. En þegar leiða átti fangann um ganga dauða- deildar fangelsisins og í klefann þar sem átti að taka hann af Ufi með eitursprautu neitaði Jenn- ings að fara með góðu og barðist um á hæl og hnakka. Fimm fanga- verðir áttu fullt í fangi með að koma Jennings áleiðis í dauða- klefann. Samt var hann bundinn á höndum og fótum og hélt samt áfram að berjast um eftir að búið var að leggja hann á bekkinn þar sem aftakan fór fram. Dauður á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.