Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
I>V
Fréttir
Þing Vélstjórafélags íslands sett í gær:
Höfum ekki séö
digra sjóöi hjá LÍÚ
- segir Helgi Laxdal og gefur lítið fyrir að LÍÚ yfirtaki rekstur Vélskólans
Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra-
félags íslands, sagði á þingi félagsins,
sem hófst í gær, að það hafi vakið at-
hygli sína að megnið af tillögum,
bæði meirihlutans og minnihlutanna
í nefnd sjávarútvegsráðherra sem
endurskoðaði lög um stjórn fisk-
veiða, snerist um það fyrst og síðast
að leggja nýja skatta á þessa atvinnu-
grein. „Mitt mat er að á meðan grein-
in er ríkisstyrkt sé tæpast tímabært
að bæta við nýjum sköttum. Og eitt
er alveg víst að Vélstjórafélag íslands
hefur ekki orðið vart við, í kjara-
samningum við LÍÚ, að þar sé að
finna digra sjóði sem útgerðin er í
vandræðum með aö losa sig við.
Þvert á móti hefur sjálfsögðum kröf-
um okkar um íjárframlög til mála-
flokka sem aðrir launþegar njóta ver-
ið hafnað á þeirri forsendu að útgerð-
in hafi ekki ráð á viðbótarútgjöld-
um,“ sagði Helgi.
Helstu málin á þinginu eru
menntamál og skipulagsmál félags-
ins. Helgi gerði að umræðuefni við-
ræður LÍÚ og menntamálaráðuneyt-
isins um að LÍÚ yfirtaki rekstur Vél-
skólans. Hann lagði á það áherslu að
ef skólinn verður einkarekinn þá
komi Vélstjórafélag Islands og bæði
samtök kaupskipaútgerða og orku-
geirinn að þeim rekstri.
„Að mínu mati er Vélskóla íslands
vel stjómað vegna þess að hann hef-
ur mjög hæfum stjórnendum á að
skipa og ég tel það síst á færi LÍÚ að
miðla öðrum hvað varðar nútímalega
stjórnunarhætti, en þeir sem hafa
stjórnað þessum skóla, svo lengi sem
mig rekur minni til, hafa mátt búa
við endalausar ákúrur frá LÍÚ um að
allt sem þar fer fram sé annaðhvort
illa gert eða ónauðsynlegt," sagði
Helgi.
Hann sagði að á sama tíma og aðr-
ar menntastofnanir fái hvatningu og
stuðning frá þeim hluta atvinnulífs-
ins sem þær þjóna; þar sem sifellt er
sóst eftir víðtækari og meiri mennt-
un hafa þeir sem stjórna Vélskóla ís-
lands mátt búa við endalausa niður-
rifsstarfsemi frá LÍÚ. „Það er mín
bjargfóst skoðun að einhliða tengsl
við LÍÚ muni ekki fjölga nemendum
við skólann nema síður sé vegna ríkj-
andi neikvæðni i garð útgerðar fiski-
skipa nú um stundir," sagði Helgi.
Þingi félagsins lýkur í dag en þá er
m.a. á dagskrá stjómarkjör þar sem
sitjandi stjórn og formaður fá mót-
framboð. -gk
Einkarekstur vélstjóra
„Aö mínu mati er Vélskóla íslands vel stjórnaö vegna þess aö hann hefur mjög
hæfum stjórnendum á aö skipa," segir Helgi Laxdal, formaöur Vélstjórafélags
íslands en þingi sambandsins lýkur í dag.
Heimsþing JC:
Islendingur allra
manna mælskastur
Náttúruvernd:
Fyrstu drög
tilbúin í apríl
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra hefur svarað fyrirspurn
Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur
um gerð náttúruverndaráætlunar.
Kemur fram í svarinu að fyrstu
drög um slíka áætlun munu liggja
fyrir í apríl á næsta ári.
Samkvæmt lögum sem samþykkt
voru árið 1999 skal umhverfisráð-
herra eigi sjaldnar en á fimm ára
fresti láta vinna náttúruverndar-
áætlun fyrir landið allt og leggja
fyrir Alþingi. Sérstakur umsjónar-
hópur hefur verið stofnaður um
þessa vinnu, skipaöur forstjórum
Náttúruvemdar ríkisins, Náttúru-
fræðistofnunar íslands og starfs-
manni umhverfisráöuneytisins.
-BÞ
„Það er auðvitað stórkostleg til-
finning að komast á toppinn. Keppn-
in var hörö en umfram allt mjög
skemmtileg. Andstæðingar mínir
eru allir frábærir ræöumenn," sagði
Ingimundur K. Guðmundsson, en
hann náði i fyrradag þeim einstæða
árangri að verða heimsmeistari í
ræðulist einstaklinga á heimsþingi
JC. Heimsþingið fer fram í
Barcelona á Spáni.
Ingimundur, sem keppti fyrir
hönd Evrópu, átti í harðri keppni
við ræðumenn frá Kólumbíu, Ástr-
Ingimundur K. Guömundsson.
alíu og Nígeríu og hafði betur. Hann
kvaðst hafa verið í góðu formi í úr-
slitakeppninni auk þess sem hann
hafði með sér dyggan hóp stuðn-
ingsmanna að heiman.
Umræöuefni úrslitakeppninnar
var Frumkvöðlar í rekstri og sagði
Ingimundur ræðumenn hafa komið
víða við í ræðum sínum. Þetta er í
fimmta sinn á sex árum sem fulltrúi
frá íslandi keppir fyrir hönd Evrópu
á heimsþinginu; en í fyrsta sinn
sem hann ber sigur af hólmi.
-aþ
Landspítalalóð:
Þjófar sof-
andi í bíl
Tveir menn voru handteknir í
gærmorgun þar sem þeir sváfu vært
í bifreið á bílastæði Landspítalans
við Hringbraut. Mennirnir höfðu
augsýnilega staðið í ströngu um
nóttina því í bílnum fannst þýfi úr
þremur innbrotum.
Annar mannanna var einnig
handtekinn í fyrradag eftir að bif-
reið hans kom fram á eftirlits-
myndavélum á bílastæði í Reykja-
vík. Þar var brotist inn í nokkra
bíla og er maðurinn talinn hafa átt
þátt í þeim. -aþ
Seljahverfi:
Vopnabúr tek-
ið í geymslu
- í kjölfar átaka
Lögreglan í Reykjavík var kölluð
að húsi í Seljahverfi í gærmorgun.
Tveir ungir menn áttu í átökum og
sakaði annar hinn um þjófnað á
leikjatölvu. Mennirnir höfðu verið
að skemmta sér í bænum um nótt-
ina og hafði annar fengið peninga-
lán hjá hinum. Þeir gerðu með sér
samkomulag um að sá sem skuldaði
léti hinum í té leikjatölvu til trygg-
ingar á greiðslu. Hann afhenti síðan
tölvuna þegar heim kom en þá kom
í ljós að kunningi mannsins taldi
sig alltaf hafa átt tölvuna. Kom til
átaka milli mannanna og fór svo að
lögregla var kvödd á staðinn. Að
sögn lögreglu taldi húsráðandi ráð-
legast að lögregla tæki vopnabúr
sitt, átta haglabyssur og rifFil, í
geymslu enda ungu mönnunum
ekki treystandi til að vera innan um
slík tól sökum annarlegs ástands.
Enginn var handtekinn vegna máls-
ins en byssurnar verða geymdar hjá
lögreglu tímabundiö. -aþ
Óbreytt í norsk-
íslensku síldinni
Á aðalfundi Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins í London í gær var
ákveðin skipting veiðiheimilda úr
norsk-íslenska sildarstofninum en
talið var að Norðmenn myndu
reyna að knýja það fram að hluti ís-
lendinga á veiðum úr stofninum
yrði skertur þar sem ekki tókst að
veiða úthlutaðan kvóta í ár.
Norðmenn munu þó ekki hafa
verið mjög beittir þegar á reyndi og
varð niðurstaðan sú að í hlut Is-
lands koma 15%. Heimilað var að
veidd yrðu 850 þúsund tonn og
koma því um 130 þúsund tonn í hlut
íslands.
-gk
V»?ðllð i kvolH
m
3<
3^
3^
Lægir austan til síddegis
Minnkandi vestanátt vestan til er líöur á
morgunin, 15 til 20 um hádegi, en lægir
austan tii síödegis. Víöa él og hiti O til 5 stig,
hlýjast sunnan til.
gj&iáitiMÍtaitT o
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 16.43 16.14
Sólarupprás á morgun 09.43 09.42
Sí°isflóö 14.16 18.49
Ardegisflóö á morgun 03.03 07.36
SífýrlHgar á Vðöuriálúium
^VINDAH 10V-HITI 151 -10° ~*\VINDSTYRKUR ‘ \ ransr ! nntrum i uuwdii
H0OSKÍRT
O o
LÉTfSKÝJAD HÁLF- SKÝJAO SKÝJAO ALSKÝJAÐ
w %m
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
w =====
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
•jbíiShMi
Best að fara varlega
Þaö hefur veriö nokkuö hvasst og miklir
vatnavextir víöa á landinu. Þaö er því
um aö gera aö fara varlega ef menn
ætla aö ferðast eitthvað um helgina.
Síöan er líka alltaf bara hægt að vera
heima og slappa af.
Dálítil él
Fremur hæg breytileg átt. Dálítil él viö noröausturströndina en annars
skýjaö meö köflum. Frost 3 til 8 stig norðanlands en nálægt frostmarki
viö vestur- og suöurströndina.
Þiííiud
Vindur:
5-9 )
Hiti 7° «1 -0«
Su&austlæg átt og rlgnlng
eða slydda en sí&an
vestanátt og slyddu- e&a
snjóél. Hlýnandl ve&ur.
Su&austlæg e&a breytlleg
átt. Rlgnlng sunnan tll á
landlnu en slydda eða
snjókoma nor&anlands.
Hltl breytlst litift.
Su&austlæg e&a breytlleg
átt. Rlgnlng sunnan tll á
landlnu en slydda eða
snjókoma nor&anlands.
Hltl breytlst litlð.
AKUREYRI rigning ii
BERGSSTAÐIR rigning 8
BOLUNGARVÍK rigning 12
EGILSSTAÐIR skýjaö 10
KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK súld 8
RAUFARHÖFN skýjaö 6
REYKJAVÍK súld 9
STÓRHÖFÐI súld 9
BERGEN
HELSINKI snjókoma -2
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 3
ÓSLÓ léttskýjaö 2
STOKKHÓLMUR -1
PÓRSHÖFN skúrir 6
ÞRÁNDHEIMUR ALGARVE léttskýjaö 16
AMSTERDAM hálfskýjaö 6
BARCELONA skýjaö 13
BERLÍN snjóél 3
CHICAGO heiöskírt 0
DUBLIN skýjaö 4
HALIFAX skýjað 10
FRANKFURT skýjaö 5
HAMBORG hálfskýjaö 4
JAN MAYEN snjókoma 4
LONDON hálfskýjað 6
LÚXEMBORG skýjaö 3
MALLORCA léttskýjaö 17
MONTREAL alskýjaö 2
NARSSARSSUAQ skýjaö 1
NEWYORK hálfskýjaö 10
ORLANDO heiöskírt 13
PARÍS skýjaö 5
VÍN alskýjaö 6
WASHINGTON léttskýjaö 8
WINNIPEG léttskýjaö -2 LiUMI