Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 8
Útlönd I>V REUTER-MYND José Bové Franski bóndinn er óþreytandi í bar- áttunni gegn hnattvæöingunni. Engin tengsl viö raunverukeikann Viðskiptaráðherrar Heimsviö- skiptastofnunarinnar (WTO) sem nú þinga í arabíska furstadæminu Katar verða ekki í neinum tengslum við raunveruleikann á fundi sínum. Svo segir aö minnsta kosti franski bóndinn og höfuðandstæðingur hnattvæðingarinnar, José Bové, sem er í Katar að fylgjast með fundahöldunum. „Það er augljóst að þeir eru ekki í neinum tengslum við veruleikann og að þeir munu tala um efnahags- lffið sem væri það sýndarveruleiki," segir Bové við frönsku fréttastofuna AFP. Ráðherrarnir ætla meðal annars að ræða nýja ráðstefnu um aukið viðskiptafrelsi en ágreiningur er um hvort of langt hafi þegar verið gengið eða ekki nógu langt. Um fimmtíu fulltrúar frjálsra fé- lagasamtaka efndu til hávaðasamra mótmælaaðgerða við upphaf fundarhaldanna í gær. Brestir komnir í Ijós í bandalagi Breskir ráðherrar hafa í einka- samtölum látið í ljós gremju yflr framgöngu Bandaríkjamanna í stríðinu gegn hryðjuverkamönnum og eru það fyrstu merkin um að brestir séu komnir í bandalag þjóð- anna tveggja. Að sögn breska blaðs- ins Guardian fer aðgerðaleysi bandarískra stjórnyalda í deilum Palestínumanna og ísraela mest fyr- ir brjóstið á Bretum. Þá eru Bretar algjörlega andvígir því að ráðist verði gegn írak, eins og margir vestra vilja. Bretar vita sem er að mjög mikilvægt er að hafa arabarík- in með í baráttunni gegn hryðju- verkum en í þeim er nú mikil and- staða við hemaðinn i Afganistan. Norðmenn íhuga að fara í mál gegn Sellafield Norsk stjómvöld íhuga að höfða mál á hendur Bretum til að þvinga þá til að draga úr losun geislavirkra efna frá kjarnorkuendurvinnslustöðinni í SeUafield, að því er Bror Yngve Rahm, formaður orku- og umhverfisnefndar ■norska Stórþingsins, sagði við frétta- ritara Reuters i gær. í síðasta mánuði gripu írar tU laga- legra aðgerða tU að stöðva áform Breta um að hefja rekstur verksmiðju sem á að framieiða blandað oxíð. Rahm sagði að nefnd hans myndi heimsækja Bretland og írland á nýju ári tU að ræða rekstur stöðvarinnar i Sellafield við yfirvöld. Norðurbandalagiö í Afganistan segist hafa náð merkum áfanga: Mazar-i-Sharif fallin eftir harða bardaga - Pentagon vill ekki staðfesta en segir fréttir uppörvandi Hersveitir Norðurbandalagsins sem berst gegn talibanastjórninni í Afganistan komust inn í borgina Maz- ar-i-Sharif í norðurhluta landsins síð- degis í gær eftir harða bardaga, að því er talsmaður stjórnarandstæðinganna sagði fréttamanni Reuters. FaU Mazar-i-Sharif, sem hemaðar- lega mjög þýðingarmikil borg, er án efa mikilvægasti áfangasigur Norður- bandalagsins í baráttu þess gegn tali- bönum frá því Bandaríkjamenn hófu loftárásir sínar á Afganistan þann 7. október. „Hersveitir bandalagsins lögðu undir sig flugvöUinn og fóru inn í borgina. Liðsmenn talibana eru lagðir á flótta í átt að Kabúl,“ sagði Ashraf Nadeem, talsmaður Norðurbandalags- ins, í símaviðtali við Reuters. Hann sagði að hersveitir stjórnar- andstæðinganna hefðu farið inn í borgina klukkan 18 að staðartíma. Abdul Rashid Dostum, hershöfðingi úr röðum stjórnarandstæðinga, sagði í samtali við tyrkneska sjónvarpsstöð REUTER-MYND Mótmælaaögeröir í Pakistan Gífurlegar mótmælaaögerðir gegn loftárásum Bandaríkjamanna á Afganistan voru í Pakistan í gær og skaut lögreglan aö minnsta kosti fjóra menn til bana. CNN að hersveitir sínar hefðu tekið öU völd í Mazar-i-Sharif. Dostum sagðist hafa misst 28 menn i átökunum um borgina og að rúm- lega 30 hefðu særst. „Við tókum meira en tvö hundruð fanga,“ sagði hann. Bandarískar herílugvélar gerðu harðar loftárásir á framvarðarsveitir talibana við Mazar-i-Sharif í gær til að veikja varnir þeirra. Þegar fréttamaður Reuters ræddi við talsmann Norðurbandalagsins var komið kvöld i Afganistan og því sagði hann ómögulegt að segja til um mann- faU í bardögunum. Bandarísk hernaðaryfirvöld vildu ekki staðfesta yfirlýsingar Norður- bandalagsins en sögðu upplýsingar sem þau höfðu vera uppörvandi. Undir kvöld í gær höfðu fulltrúar talibana ekkert tjáð sig um fuUyrðing- ar Norðurbandalagsins um faU Mazar- i-Sharif þaðan sem hægt er að stöðva aðflutninga til Kabúl. Fundi Alþjóöa viöskiptastofnunarinnar mótmælt Mótmælendur á Filippseyjum mótmæla fundi Alþjóöa viöskiptastofnunarinnar, WTO, fyrir framan bandaríska sendiráöiö í höfuöborginni Manila. Fundurinn er haldinn borginni Doha í Katar. Fundurínn hófst í gær og stendur í fimm daga. Viöskiptaráöherrar 142 landa ræöa þar lausn á fátækt og ágreining landanna vegna landbúnaðar, umhverfis ofl. Bush vill ekki hitta Arafat - ávarpa báöir allsherjarþing SÞ í New York um helgina segist ekki skilja viljaleysi Bush til að hitta Arafat. Það skjóti skökku við að hann hitti bara annan deiluaðila en hundsi hinn. Ófriðurinn heldur áfram á milli Palestinumanna og ísraela. Sam- kvæmt fréttum skutu ísraelskir hermenn heyrnarlausan Palest- Inumann til bana á meðan palest- ínskir byssumenn myrtu israelska landnemakonu. Condoleezza Rice, öryggisráð- gjafi George W. Bush Bandaríkja- forseta, lýsti þvi yfir í gær að Bush myndi ekki hitta Yasser Arafat, forseta Palestínu. Báðir verða staddir í New York um helg- ina til að vera viðstaddir allsherj- arþing Sameinuðu þjóðanna og munu ávarpa þingið. Rice sagði að meðan Arafat drægi ekki úr sam- böndum sínum við öfgahópa með- al Palestínumanna yrði ekkert af fundum milli leiðtoganna tveggja. Embættismenn í Palestínu sem og ráðherrar í öðrum arabalönd- um hafa lýst yfir vonbrigðum sin- um með þessa ákvörðun. Saud al- Faisal, utanríkisráðherra Sádi-Ar- abíu, segir afstöðu Bush gera geð- heilan mann bilaðan og sagði rik- isstjórn Sádi-Arabíu vera veru- lega vonsvikna með getuleysi Bandaríkjanna við að koma frið- arferlinu fyrir botni Miðjarðar- hafs aftur af stað. Skipulagsráð- herra Palestínu, Nabil Shaath, Fogh vísar gagnrýni á bug Anders Fogh Rasmussen, leiðtogi danska íhalds- flokksins Venstre, stendur fast á þeirri skoðun að tak- marka eigi fiölda fiölskyldusamein- inga og þvingaðra hjónabanda meðal innflytjenda og vísar gagnrýni flokksbróður síns á þá stefnu á bug. Sýnagóga vígð Fyrsta sýnagógan, eða bænahús gyðinga, sem hefur verið reist í austurhluta Þýskalands frá því á nasistatímabilinu, var vígð í borg- inni Dresden í gær. Húseigendur spara mikið Húseigendur i Danmörku spara rúma 25 milljarða íslenskra króna með því að hafa fasteignalán sín með breytilegum vöxtum, miðað við lán með fostum 7 prósent vöxtum, að sögn Jyllands-Posten. Chelsea Clinton móöguö Frægasti námsmaðurinn í hinum virta háskóla í Oxford, Chelsea Clinton, fyrrum forsetadóttir í Am- eríku, er móðguð út í breska skóla- félaga sína og finnst þeir hafa verið tilfinningasljóir gagnvart Banda- ríkjunum eftir hryðjuverkaárásirn- ar í september. Við öllu búnir Svisslendingar eru að undirbúa almannavarnaæfingu vegna hugs- anlegs kjarnorkuslyss og geisla- mengunar í kjölfarið. Mótmæli í íran Mótmæli gegn bókstafstrúar- stjórninni í íran hafa brotist út að undanfórnu á knattspymuleikjum í undankeppni heimsmeistaramóts- ins. Það þykir til marks um að farið sé að halla undan fæti hjá harðlínu- klerkunum í stjórninni. Stríðsglæpon gaf sig fram Herlögreglumaður úr röðum Bosníu-Króata, sem stríðsglæpa- dómstóll SÞ hafði ákært, gaf sig sjálfviljugur fram við króatísku lög- regluna í gær. Ákærð fyrir að ógna Karli Sextán ára skóla- stúlka sem lamdi Karl Bretaprins í andlitið þegar hann heimsótti Lettland á fimmtudag hefur verið ákærð fyrir að stofna lífi hans í hættu og á yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Með tilrækinu vildi stúlkan mótmæla hemaðinum í Afganistan. Þekkja ekki fána í sundur Danskir stjórnmálamenn eru greinilega ekki nógu vel að sér um fána bræðraþjóðanna, því flestir þeirra þekkja ekki mun á fánum ís- lands og Færeyja, að því er fram kom í þætti á danskri sjónvarpsstöð og færeyska blaðið Dimmalætting greindi frá i gær. JÍniDGESTOnE BLIZZAK Loftbóludekkin jf Lausnin í stað naglanna, Réttu dekkin fyrir ABS bremsurnar! í grafinu hér til hliðar má sjá að Bridgestone BUZZAK dekkin leysa nagladekkin af hólmi. Þessi niðurstaða sem fékkst í íslenkri prófun staðfestir niðurstöður prófana frá öðrum löndum: BLIZZAK - best í snjó og hálku! Frábær í snjó og hálku • Meiri stöðugleiki • Miklu hljóðlátari - Betri aksturseiginleikar • Minni eldsneytiseyðsla ' Aukin þægindi < Minni mengun - meiri sparnaður Grafið sýnir meðalbremsuvegalengd 3ja umferða á þurrum fs á 60 km/klst. dZXEEmXSI Lágmúla 9 • Sími 530 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.