Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Qupperneq 12
12
Helqarblað
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
DV
Moldríkur fjölmiðlakóngur verður næsti borgarstjóri í New York:
Eltist við konur og
borðar góðan mat
Hann hefur yndi af leikhúsi og að
borða góöan mat en fátt veit hann
þó skemmtilegra en að eltast við
konur.
Eða eins og Michael Rubens
Bloomberg, nýkjörinn borgarstjóri í
New York, útlistaði það nánar í
blaðaviðtali fyrir nokkrum árum,
viðtali sem er oft vitnað til þessa
dagana:
„Við skulum orða það svona: Ég
er einhleypur, gagnkynhneigður
milljarðamæringur á Manhattan.
Hvað finnst þér? Þetta er blautur
draurnur."
Víst þykir að á næsta kjörtíma-
bili verði mjög eftirsótt að komast í
partíin í Garcie Mansion, embættis-
bústað borgarstjórans í New York,
ofarlega á austurhluta Manhattan.
Og ef eitthvað er að marka fyrri
áhuga nýja borgarstjórans á því að
blanda geði við samkvæmisljónin
og fræga fólkið sem slúðurdálkahöf-
undarnir nærast á, má ætla að veisl-
umar verði margar og glæsilegar.
Gaman úti á lífinu
Bloomberg ætlar að búa áfram í
fimm hæða raðhúsinu sínu, ekki
langt frá embættisbústaðnum sem
verður þá aðeins notaður til veislu-
halda og fyrir opinberar athafnir og
móttökur af ýmsu tagi.
Borgarstjórinn nýi er 59 ára gam-
all. Hann var kvæntur Susan nokk-
urri Brown en þau skildu árið 1993,
eftir nítján ára hjónaband. Honum
fannst víst nefnilega svo gaman úti
á lífinu, en henni greinilega ekki.
Saman eiga þau Michael og Susan,
tvær dætur sem nú eru 18 og 22 ára.
Bloomberg stærir sig af því að
hann og eiginkonan fyrrverandi séu
enn perluvinir. Reyndar svo miklir
vinir að hún og núverandi kærasti
hennar tóku þátt í kosningabarátt-
unni, svo og Emma, eldri dóttirin.
Frá því Bloomberg-hjónin skildu
fyrir átta árum hefur hann ekki set-
ið með hendur í skauti, heldur ver-
ið iðinn við að sýna sig með hverri
glæsikonunni á fætur annarri á al-
mannafæri. Hann var meðal annars
orðaður við söngkonuna Diönu
Ross úr Supremes og dansarann og
dansahöfundinn Ann Reinking, sem
eitt sinn var sambýliskona hins
virta danshöfundar Bobs Fosses.
„Eftir að ég skildi var ég með
sömu konunni í fimm ár. Ég var
með annarri konu - tveimur eða
þremur - i hálft ár eða ár hverri. Og
eftir þvi sem ég best veit munu þær
bera mér vel söguna, ef ykkur tekst
að fá þær til að segja eitthvað. Ég
vona það,“ sagði Bloomberg í viðtali
við New York-blaðið Daily News
snemma í sumar.
Núverandi kærasta Bloombergs
er Diana Taylor sem gegnir starfi
fjármálastjóra rafmagnsveitunnar á
Long Island. Hún starfaði við kosn-
ingabaráttuna, rétt eins og eigin-
konan fyrrverandi.
Kynferöisleg áreitni
Samskipti Bloombergs við konur
hafa ekki alltaf gengiö átakalaust
fyrir sig. Þrisvar sinnum hafa kon-
ur höfðað mál fyrir kynferðislega
áreitni þar sem því er haldiö fram í
málskjölum að innan fyrirtækis
Bloombergs, sem ber nafn hans,
hafi þrifist fjandsamlegt andrúms-
loft í garð kvenna þar sem kynferð-
isleg áreitni og annars konar niður-
læging kvenna viðgekkst.
Ein kvennanna heldur því fram
að þegar hún hafi sagt Bloomberg
að hún væri með bami, hefði hann
svarað því til að hún ætti að losa sig
við fóstrið. Hann neitaði þessum
ásökunum en féllst engu að síður á
dómsátt. Annarri málshöfðun var
síðustu árum hafði hann þó gefið til
kynna við vini sína að hann langaði
að breyta aðeins til og gera eitthvað
annað en að græða bara peninga.
Hann nefndi í þessu sambandi fjög-
ur störf sem hann hefði gaman af að
spreyta sig á. Hann hefði ekkert á
móti því að verða forseti Bandaríkj-
anna, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, bankastjóri Alþjóða-
bankans, eða borgarstjóri í New
York.
Hrifinn af Giuliani
Samstarfsmenn Bloombergs segja
að hann hafi gert sér grein fyrir því
að hann ætti ekki nokkra mögu-
leika á að verða forseti, fram-
kvæmdastjóri SÞ eða bankastjóri
Alþjóðabankans. En þaö sem réð þó
úrslitum um að Bloomberg ákvað
að reyna við borgarstjórastólinn var
árangur fráfarandi borgarstjóra,
Rudolphs Giulianis, í baráttunni
gegn glæpalýðnum sem þar hafði
vaðið uppi og sett svartan blett á
ímynd borgarinnar.
„Hann er virkilega hrifmn af því
sem Giuliani tókst að áorka,“ segir
Alfred Sommer, forseti lýðheilsu-
skóla Johns Hopkins-háskólans sem
kenndur er við Bloomberg vegna
rausnarlegra gjafa hans. „Þegar
hann leit i kringum sig tU að kanna
hvemig hann gæti látið gott af sér
leiða, var borgarstjóraembættið
augljóst takmark."
Fæddist á Valentínusardag
Bloomberg fæddist skammt frá
Boston í Massachusetts á Valent-
ínusardaginn 14. febrúar 1942. Að
loknum framhaldsskóla nam
Bloomberg við Johns Hopkins-há-
skólann og vann fyrir sér sem bíla-
stæðisvörður. Hann útskrifaðist síð-
ar frá viðskiptadeild hins virta
Harvard-háskóla.
Að námi loknu flutti Bloomberg
til New York árið 1966 og fór að
vinna fyrir fjármálafyrirtækið
Solomon Brothers. í sjálfsævisögu
sinni, sem kom út árið 1997, segir
hann frá því að í fyrstu hafi hann
fengið það verkefni að telja millj-
arða dala í skulda- og hlutabréfum í
funheitri bankahvelflngu, á nærfót-
unum einum saman.
Hringir daglega í mömmu
Eftir fimmtán ára starf hjá
Solomon Brothers, þar sem
Bloomberg komst til æðstu metorða,
var hann látinn víkja. Hann fór þó
ekki tómhentur því í sárabætur
fékk hann hvorki meira né minna
en tíu mUljónir doUara sem hann
notaði síðan til að stofna það veldi
sem hafa gert hann jafnauðugan og
raun ber vitni. Það er fjármálaupp-
lýsingafyrirtæki sem ber nafn hans
og sem stundar viðskipti í 126 lönd-
um, með átta þúsund starfsmenn.
Faðir Michaels Bloombergs vann
sem bókari í mjólkurbúi í
Massachusetts en hann lést á meðan
sonur hans var enn við nám i
Harvard. Móðir hans, Charlotte, sá
um heimilið. Hún er orðin 92 ára og
býr enn á æskuheimili borgarstjór-
ans verðandi. Og Bloomberg er góö-
ur sonur, að minnsta kosti segist
hann hringja í mömmu gömlu á
hverjum einasta morgni áður en
hann fer í vinnuna.
Byggt á New York Daily News,
Reuters og New York Times.
visaö frá og faUið var frá þeirri
þriðju.
Fyrir þremur árum sakaði
Bloomberg sjálfur fyrrum starfs-
konu um fjárkúgun eftir að hún
sagði að einn framkvæmdastjóra
fyrirtækisins hefði nauðgað sér og
að fyrirtækið hefði ekki brugðist
við með réttum hætti. Bloomberg
sagðist ekki reka minni til þess að
hafa lesið leiðbeiningar jafnréttis-
nefndar um kynferðislega mismun-
un og áreitni.
Michael Rubens Bloomberg er
Guölaugur
Bergmundsson
blaðamaður
með allra ríkustu mönnum í New
York. Auðævi hans eru metin á sem
svarar rúmum 450 miUjörðum is-
lenskra króna. Það sér því varla
högg á vatni þótt hann hafi eytt
rúmum flmm milljörðum af eigin fé
í baráttuna um borgarstjórastólinn.
Það er meira en nokkur maður hef-
ur nokkru sinni eytt i sambærilegri
kosningabaráttu.
Vildi breyta tll
Bloomberg, sem var stuðnings-
maður og velgjörðarmaður demó-
krataflokksins þar til í fyrra að
hann gekk til liðs við repúblikana
vegna glæstari framavona þar á bæ,
hefur aldrei áður tekið þátt í stjórn-
málum eða gegnt opinberu starfi. Á
I»—
Tveir unglingar drepnir í
skotárás í Jerúsalem
Palestínskur byssumaður gerði um
síðustu helgi skotárás á þéttsetinn
strætisvagn á fjölfórnum gatnamótum
í Jerúsalem, með þeim afleiðingum að
tveir ísraelskir unglingar létu lífið og
að minnsta kosti tólf særðust, þar af
fjórir alvarlega. Maðurinn stóð á
miðri götunni, lét skotin dynja á
vagninum og hætti ekki fyrr en ná-
lægir öryggisverðir höfðu skotið hann
til bana. Að sögn sjónarvotta var að-
koman hryliileg og sagði einn þeirra
að blóð hefði vætlað út úr vagninum.
Alríkislögreglan kallar
eftir hjáfp almennings
Bandarísk lögregluyfirvöld köll-
uðu um síðustu helgi, í annað skipti
á stuttum tíma, eftir hjálp almenn-
ings við að upplýsa hverjir beri
ábyrgð á miltisbrandssendingunum,
sem tröllriðið hafa Bandaríkjunum
að undanförnu. Þetta kom fram á
fundi sem Robert Múller, yfirmaður
FBI, átti með fréttamönnum á sunnu-
daginn, en þar sagðist hann vonsvik-
inn með lítil viðbrögð eftir fyrsta
hjálparkallið, þar sem lofað var millj-
ón dollara verðlaunum fyrir vísbend-
ingar sem leitt gætu til einhverrar
lausnar málsins.
David Trimble endurkjör-
inn á NorðuMrlandi
Til pústra og
óláta kom meðal
þingmanna í írska
þinginu eftir að
David Trimble var
endurkjörinn í
sæti forsætisráð-
herra heimastjóm-
arinnar í endur-
tekinni kosningu
sem fram fór á þriðjudaginn. Sýnir
framkoma einstakra þingmanna úr
röðum sambandssinna að ágreining-
urinn ristir enn dýpra en áður. „Svik-
ari“ og „svindlari" voru þau orð sem
voru efst í huga sambandssinna og
var þeim aðallega beint gegn Trimble
af andstæðingum friðarsamkomulags-
ins sem kennt er við fóstudaginn
langa.
95 særðust þegar bíl-
sprengja sprakk I Madríd
Níutíu og
fimm manns
særðust þegar
bilsprengja
sprakk á fjöl-
farinni götu i
Madríd, höf-
uðborg Spán-
ar, á þriðju-
dagsmorgun.
Talið er að basknesku skæruliða-
samtökin ETA hafi komið sprengj-
unni fyrir. Meðal þeirra sem slösuð-
ust í sprengingunni voru þriggja
ára telpa og móðir hennar, bresk
kona og embættismaður stjómar-
innar sem líklegt þykir að hafi ver-
ið skotmark tilræðismannanna.
Fjórir synir bin Ladens
berjast með talibönum
Samkvæmt frétt-
um al-Jazeera-sjón-
varpsstöðvarinnar í
Qatar starfa fjórir
synir hryðjuverka-
mannsins Osama
bin Ladens nú með
hersveitum tali-
bana innan Afgan-
istan, en stöðin
sendi í gær út myndbandsupptökur
sem sýna synina í herbúðum talibana.
Synimir heita Hamza, Mohammad,
Khaled og Laden og sjást á myndunum
innan um brak úr bandarískri þyrlu,
sem talibanar segjast hafa skotið nið-
ur á fóstudaginn, en talibanar segjast
hafa skotið niður tvær bandarískar
herþyrlur til þessa og drepið um 50
bandaríska hermenn.