Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________33V
Hlín Agnarsdóttir rithöfundur
„Ég hef skrifað árum saman en það að skrifa er ekki það sama og að birta verk sín. Mér fannst ég einfaldlega ekki vera tilbúin fyrr en þetta.
Ég fékk hugmyndina að þessari bók 1997 og hef verið að skrifa hana síðan þegar ég hef ekki verið að vinna en ég þarf að vinna fyrir mér
þvt maður lifir ekki af ritstörfum. “
Höfudsynd að
vera leiðinlegur
- Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikskáld hlær að okkur
Þaö telst alltaf til tíðinda þegar rit-
höfundur sendir frá sér sína fyrstu
skáldsögu. Gagnrýnendur klappa föö-
urlega á kollinn á ungskáldinu og þaö
er líklegt að sagt sé aö verk þess lofi
góöu. Þegar fyrsta skáldsaga höfundar
lítur dagsins ljós þegar hann nálgast
fimmtugt eins og óð fluga og viðkom-
andi hefur þegar getið sér gott orö fyr-
ir ritstörf er málið ekki eins einfalt.
Hlín Agnarsdóttir sendir nú frá sér
sína fyrstu skáldsögu: „Hátt upp viö
Noröurbrún", sem Salka forlag gefur
út, en hún er sannarlega enginn ný-
græöingur á ritvellinum. Hlin hefur
skrifaö leikrit, smásögur og ljóð um
dagana og fengist viö ritstörf af marg-
víslegu tagi.
Sagan heitir Hátt upp við Norður-
brún og þar segir frá þerripíunni
Öddu ísabellu Ingvarz sem tekur fólk
með öll heimsins vandamál í þerapíu
í rúminu sínu og vex ekkert í augum.
Þetta er manneskja sem kallar ekki
allt ömmu sína.
Af hverju komstu ekki fyrr?
Ég hitti Hlín Agnarsdóttur yflr
kaffibolla og kleinuhring á Kaffi Rót
og dettur í hug aö spyrja hana hvern-
ig í ósköpunum standi á því að hún
hafi beðið svo lengi með að senda frá
sér skáldsögu. Var Halldór Laxness
ekki 17 ára þegar hann skrifaöi Barn
náttúrunnar?
Hlin horfir á mig með svipuðu um-
burðarlyndi og ég held að Halldór hafi
stundum sýnt blaðamönnum og
þeirra gáfulegu spurningum. Hún var
reyndar heimagangur á heimili
nóbelsskáldsins sem ein af vinkonum
dætra hans og segist hafa boriö gríð-
ariega virðingu fyrir honum og notar
þetta tækifæri til þess að rifja upp þau
orð skáldsins að hann ráðlegði engum
manni að leggja fyrir sig ritstörf. Það
væri afskaplega mikil vinna að vera
rithöfundur, að baki einni setninga
gætu legið margar andvökunætur, allt
átak höfundarins, útboö allra krafta
hans...eins og hann segir í ritgerðinni
um höfundinn og verk hans.
Ég er seinþroska
„Ég er náttúrlega óskaplega sein-
þroska. Hitt er einnig staðreynd að
konur eru seinni til að gefa út verk
sín en karlmenn. Þær hugsa sig betur
um áður en þær sleppa hendinni af
verkum sínum. Ég hef skrifað árum
saman en það að skrifa er ekki það
sama og að birta verk sín. Mér fannst
ég einfaldlega ekki vera tilbúin fyrr
en þetta.
Ég fékk hugmyndina að þessari bók
1997 og hef verið að skrifa hana síðan
þegar ég hef ekki verið að vinna en ég
þarf að vinna fyrir mér því maður lif-
ir ekki af ritstörfum,“ segir Hlin og
minnir mig á að Ibsen hafi ekkert
skrifað af viti fyrr en eftir fimmtugt.
„Konur skrifa mikið en þurfa meiri
hvatningu til þess aö birta verk sín.
Þetta er ekkert kvenréttindakjaftæði
heldur staðreynd."
Illkvittni, háð og orðalefkir
Ég vil halda því fram að Hlín hafi
valið sér það verkefni að skopast að
þjóð sinni allt frá því að hún skrifaði
hið eftirminnilega leikrit Láttu ekki
deigan síga, Guðmundur þar sem heil
kynslóð kennd við árið 1968 var dreg-
in sundur og saman í háði. Leikritið
skrifaði Hlin í samvinnu við Eddu
Björgvinsdóttur leikkonu upp úr eigin
smásögu, Beðið eftir byltingunni.
Sagan um Öddu gengur meira út á
að gera grín að samtímanum og við
reynum að greina kímnigáfu Hlínar
sem ég vil meina að greinist í 10%
orðaleiki, 60% háð og 30% illkvittni.
Hlín samþykkir þessa sundurliðun en
vill hafa skipti á orðaleikjunum og ill-
kvittninni, hún sé ekki nema 10% og
af saklausara taginu.Hún minnir líka
á að það sem einum flnnst fyndið er
öðrum rammasta alvara.
Lifum á áreitnum tímum
„Við lifum á áreitnum tímum.
Hraðinn og djöfulgangurinn er í senn
óþolandi en jafnframt mjög áhuga-
verður. Mér finnst samtíðarmenn
mínir og nútíminn óskaplega fyndin.
Fólk er oft svo hallærislega fyndið
þegar það er að leika hlutverkin sín
að það veit ekki hvað það er í raun
skoplegt. íslendingar eru afskaplega
módern þjóð en samfélagið hefur farið
fram úr sálarþroskanum og við erum
afar vanþroska tilfinningalega. Ef ein-
hver reynir að ræða um tilfmningar
eða skilgreina sínar tilfinningar er
maður umsvifalaust talinn væminn
og það er ekki gott.“
Höfuösynd
Eitt af því fjölmarga sem Hlín segir
um þjóð sína í þessu viðtali er að við
séum svo dugleg en óþolinmóð.
„Við viljum alltaf að hlutirnar ger-
ist strax. Það er ekkert nútímalegt við
að þurfa að bíða eftir því að manni
batni. Það er leiðinlegt og ef eitthvað
er höfuðsynd á okkar tímum þá er það
að vera leiðinlegur. Það er ófyrirgef-
anlegt.
Þegar ég var að alast upp var mér
innprentað að maður ætti að vera
duglegur. Sjálfsvirðing mín eins og
þjóðarinnar allrar hefur falist í dugn-
aði Ég hef verið dugleg að vinna, dug-
leg að mennta mig, dugleg að byggja
hús, dugleg að giftast og skilja og dug-
leg að finna ekki til.“
í sögu Hlínar bregður þekktu fólki
fyrir í aukahlutverkum. Sumir eru
lítt dulbúnir eins og Smári Klemens-
son hjá íslenskri gervagreiningu en
aörir eru einfaldlega þeir sjálfir. Hvað
má höfundur ganga langt í þessum
efnum?
„Maður má auðvitað nota þekktar
persónur sem þátttakendur í atburð-
um þar sem skáldsögupersónur eru í
aðalhlutverki. Forsætisráðherra og
biskup mega vera í minningarathöfn í
skáldsögu. En ég get ekki fjallað um
þá og líf þeirra á sama hátt og ég ræð
yfir skáldsagnapersónum, nema þeir
heiti öðrum nöfnum en þeir heita. „
Við erum fyndin þjóð
Ég þekki fólk eins og Öddu ísabellu
Ingvarz og ég þekki hana í svo mörg-
um. Hún er afskaplega órög við að
taka að sér hluti. Við erum svo brött
og athafnasöm, íslendingar. Við hög-
um okkur svo oft eins og við séum 2,8
milljónir en ekki 280 þúsund. Mér
finnst við afskaplega fyndin í allri
okkar athafnasemi og oflátungshætti
þegar ekkert vex okkur í augum og
við getum bókstaflega allt. Það er
þessi almættistilfinning sem svo
margir eru haldnir.
Sem barni var mér alltaf sagt að ég
ætti að taka heilsteypt fólk mér til fyr-
irmyndar. Ég var þá og lengi síðan að
reyna að átta mig á því í hverju það
fælist en er sennilega engu nær. Ég
held að nútíminn nenni ekki að hlusta
á heilsteypt fólk og kæfi rödd þess.
Það er svo skynsamt og varkárt og
þar af leiðandi leiðinlegt."
Svo segir Hlín mér frá sænskum
rithöfundi, Carinu Rydberg, sem
purkunarlaust notar sitt eigið líf og
náin kynni sín af misjafnlega þekktu
fólki í skáldsögum sínum sem hafa
verið mjög umdeildar. Mér veröur
ljóst að Hlín vill ekki ganga svo langt
og verður strax rórra.
Hverjir eru fyndnir?
En hvaða höfundar finnst Hlín vera
fyndnir?
„Ég er afar hrifin af breskum rit-
höfundi sem heitir Will Self. Hann
þykir afar kaldhæðinn og nastí og
afar umdeildur. Ég get ekki talað um
uppáhaldshöfunda án þess að nefna
Fay Weldon. Af íslenskum núlifandi
höfundum vil ég fyrstan nefna Guð-
berg Bergsson og svo hef ég afar gam-
an af Hallgrími Helgasyni. Hann hef-
ur líka gaman af mér. Mér hefur alltaf
fundist Halldór Laxness einn fyndn-
asti rithöfundur sem ég hef lesið á ís-
lensku. Hann skopaðist miskunnar-
laust að þjóð sinni. Hann gat alltaf séð
hana og lýst henni utan frá, af því
hann þekkti hana svo vel innan frá,
hafði lagt það á sig að kynnast henni
náið og vel. Mér finnst fyndnustu sög-
ur hans vera Atómstööin og Kristni-
hald undir jökli sem ég er nýbúin að
endurnýja kynnin við.“
Við verðum sammála um að oft
þorir fólk ekki að sýna hinar skop-
legu hliðar sínar þar sem ekki er
rúm fyrir grín í þess daglegu fram-
komu og komum við þar enn að
áhuga Hlínar á hegðun og framferði
fólks og mörkum þess í lífinu og
einkalífinu. Hún segir mér sögur af
námskeiðum sem hún heldur í leik-
list fyrir starfsfólk stofnana.þar sem
margir gargandi húmoristar koma í
ljós bak við jakkafötin eða sloppana.
Hún heldur því fram að finna megi
sérstök námskeið þar sem hjúkrun-
arfólki er kennt að gera að gamni
sínu. Það bætir heilsuna að hlæja
hafa þeir komist að sem stjórna í
heilbrigðiskerfinu.
Þetta er eitt af þessum viðtölum þar
sem afar margt óprenthæft berst í tal.
Sumt er ekki rúm til að fjalla um en
annað er aðeins fyrir tvö pör af eyrum
yfir tveimur kaffibollum.
PÁÁ
Ætlar að verða
söngkona
Fjöldi söngvara og söng-
kvenna eru að senda frá sér
sólóplötur þessa dagana og ein
þeirra er Jóhanna Guðrún Jóns-
dóttir sem er að gefa út aðra
plötu sína þrátt fyrir að hún sé
aðeins ellefu ára. Nýja platan
sem er komin í búðir heitir Ég
sjálf og þar fær Jóhanna til liðs
við sig einvalalið tónlistar-
manna. Meðal þeirra eru Gunn-
laugur Briem, Margrét Eir, Sig-
urður Flosason og Hera Björk.
Lesendur fá hér tækifæri til að
kynnast hinni hliðinni á Jó-
hönnu Guðrúnu.
Fullt nafn?
Jóhanna Guð-
rún Jónsdótt-
ir.
Fæðingar-
dagur og ár?
16 október
1990.
Bifreið?
Ég á nú eng-
en hins vegar
á ég brúnan, 6 vetra hest.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera?
Að syngja, hlusta á tónlist, eiga
góða stund með dýrunum mínum
eða horfa á góða videomynd með
íjölskyldunni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera?
Að taka til.
Uppáhaldsmatur?
Pastaréttir.
Uppáhaldsdrykkur?
Fanta.
Hvaða íþróttamaður flnnst þér
standa fremstur i dag?
Vala Flosadóttir.
Hver er fallegasta kona/karl
sem þú hefur séð fyrir utan
maka?
Ég á auövitað engan maka, en
bróðir minn, sem er fyrirsæta, er
rosalega myndarlegur.
Ertu
hlynnt/ur
eða and-
vig/ur ríkis-
stjórninni?
Þessi er ein-
um of erfið,
ég hreinlega
veit það
ekki.
Hvaða per-
sónu langar þig mest til að
hitta?
Christinu Aquilera söngkonu.
Uppáhaldsleikari?
Jim Carey.
Uppáhaldsleikkona?
Jennifer Lopez.
Uppáhaldstónlistarmaður?
Whitney Houston.
Uppáhaldsrithöfundur?
Kristín Steinsdóttir.
Uppáhaldsbók?
Saltfiskar í strigaskóm.
Uppáhaldsstjómmálamaður?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, vegna
þess að mér finnst hún svo klár
kona.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna?
Tommi í Tommi og Jenna.
Eftirlætissjónvarpsefni?
Survivor.
Á hvaða útvarpsstöð hlustarðu
helst?
Bylgjuna eða Létt 96,7.
Uppáhaldssjónvarpsstöð?
Skjár einn.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?
Steinunn Ólína.
skemmtistað-
ur? Sundlaug-
amar og Laser
Tag.
Stefnirðu að
einhverju
sérstöku í
framtíðinni?
Að verða
söngkona.
Hvað óttastu mest?
Slæmt fólk.
Hvaða eftirmæli viltu fá?
Að talað verði vel um mig sem
söngkonu sem hafi látið gott af sér
leiða.