Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Page 24
24
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V
DV-MYND HARI
Vill koma fólki á óvart
„Ég vil gera hluti á annan hátt en venja er til, “ segir Kami, „og á þaö líka viö um einkalíf mitt. Ég vil koma fólki á óvart. Þaö gerir lífiö skemmtilegra.
Fyrirtæki ættu aö leggja meira uþp úr því aö gera vörur sínar skemmtilegar. “
Óhóflegt vald spillir
mönnum óhóflega
- Michael J. Kami ræðir um heiminn eftir 11. september og tilgang lífsins
Michael J. Kami kom hér síðast
fyrir sextán árum, „áður en þú
fæddist," segir hann og glottir að
mér. Á þeim tíma hefur viðskipta-
líf heimsins verið i gríðarlegri
uppsveiflu. „Allur heimurinn hef-
ur breyst mjög mikið. Ákvarðana-
taka er fjórum sinnum hraðari nú
en áður, það sem áður var gert á
einum mánuði er ákveðið á einni
viku. Tæknin er 100 sinnum hrað-
virkari en áður og við notum tölv-
ur og samskiptatæki fjórum sinn-
um meira en áður. Milliríkjavið-
skipti hafa einnig fjórfaldast.
Hraði er mælikvarði á einstak-
ling, fyrirtæki og jafnvel þjóöir.
Ég er hrifinn af hraðri ákvarðana-
töku, hrööum breytingum og
hraða. Og það er ekki bara af því
að ég er orðinn gamall og ég verði
að flýta mér þvi ég hafi lítinn
tíma,“ segir Kami og hlær og
bendir á að það er ekki hægt að
vera íhaldssamur og hægfara vilji
fyrirtæki ná árangri á tímum
veldisvaxtar.
Sálarlíf neytandans
„Þegar uppgangurinn er svona
mikiU þá verða menn að átta sig á
því að hann getur ekki risið til
hins óendanlega," segir Kami
spurður um ástand heimsins eftir
11. september. „Einhvem tímann
hlýtur að vera sveigja á ferlinum.
Það sem gerðist 11. september var
harmleikur og þá varð brot á vaxt-
arkúrfunni. Fólk er hrætt og það
hefur áhrif á ferðalög og tóm-
stundir þess. Það hefur áhrif á
efnahaginn og hlutabréfamarkað-
inn. Og þvi hefðu hryðjuverka-
mennimir getað unnið stærri sig-
ur en felst í því að myrða fimm
þúsund manns. Þeir hefðu getað
vaidið efnahagslegri niðursveiflu
og það er mjög alvarlegt. Og ég er
með kenningu (það er bara kenn-
ing því ég hef enga kristalskúlu tU
að sjá framtíðina í) um að ef eng-
in hryðjuverk verða framin á
næstu þremur mánuðum þá muni
fólk gleyma (því minni fólks er
mjög lítið) og byrja aftur að ferð-
ast og kaupa hlutabréf. En ef
hryðjuverkamennimir ná að eyði-
leggja aðra byggingu, drepa nokk-
ur þúsund manns og breiða út
meiri miltisbrand eða, guð hjálpi
okkur, bólusótt þá geta þeir valdið
heimskreppu. Ef stríðinu í
Afganistan lýkur ekki með ein-
hverjum árangri þá mun það inn-
an skamms hafa áhrif á efnahags-
kerfi aUs heimsins. Flestar efna-
hagslegar breytingar byggjast á
sálarlífi neytandans og ef neytand-
inn er hræddur þá heldur hann að
sér höndum og þá verður heimur-
inn í „slow motion". Við verðum
að byggja upp sjálfstraust á næstu
þremur mánuðum um að ekki
verði ráðist á okkur aftur. Stjóm-
völd skilja það en hræðast að tala
um þetta.“
Kami segir ólíklegt aö þetta
ástand komi sérstaklega niður á
íslandi, telur raunar að ísland geti
nýtt sér ástand heimsmálanna, til
dæmis með því að vera eins konar
geymslustaður fyrir rafrænar
upplýsingar þar sem allir myndu
geyma afrit af tölvukerfum sínum.
„Þetta er viðskiptahugmynd sem
ég myndi vilja sjá fylgt eftir á ís-
landi. Ef íslendingar eru klókir þá
geta þeir grætt vel á ástandinu."
Friðhelgin rofln
Helduröu aó líf okkar muni
breytast í kjölfar hryöjuverkanna?
„Ég held að líf íslendinga muni
ekki breytast en i Bandaríkjunum
hefur líf venjulegs fólks breyst og
mun breytast,“ segir Kami og
bendir á þróunina í verndun
einkalífs fólks sem hann segir
ganga lengra í Evrópu en i Banda-
ríkjunum. „Eftir árásina verður
friðhelgi einkalífsins í öðru sæti á
eftir réttinum til að komast af. En
hvað þýðir það að vera með per-
sónuskilríki? í Bandaríkjunum
hefur það litla merkingu því þaö
er hægt að kaupa slík skilríki fyr-
ir fimm dali. Allir unglingar sem
vilja kaupa sér áfengi vita hvem-
„Ég er viss um að Bill
Gates fremur ekki sjdlfs-
morð þótt eign hans
minnki úr 100 milljörð-
um í 50 milljarða. Á viss-
um tíma lífsins verður
maður að hugsa heim-
spekilega. Þess vegna skil
ég ekki af hverju við-
skiptamenn vinna mikið,
líður illa, lemja börnin
sín og skilja við konum-
ar sínar fyrir peninga.
Vald spillir mönnum og
óhóflegt vald spillir
mönnum óhóflega. “
ig á að kaupa persónuskilríki. Það
veröur því að þróa líffræðileg
verkfæri til að nema fingraför,
andlit eða einfaldlega græða flög-
ur í fólk. Við verðum að geta
sannað hver maður er. Því fylgir
að upplýsingar verða að liggja fyr-
ir um stöðuna á reikningnum hjá
manni, hvort það eru hundraö
milljónir inni á reikningnum og
maöur vinni við skóburstun. Til
að auka öryggi okkar verðum við
að gefa eftir friðhelgi einkalifsins.
Það verður mikið áfaU fyrir
marga.
Sumir leggja mikið upp úr frið-
helgi einkalífsins, sumir em hlut-
lausir og aðrir segja; „af hverju
ekki? Ég hef ekkert að fela“. Ég
skil aftur á móti ekki þessa miklu
sálrænu þörf fyrir að vera nafn-
laus og óþekktur.“
Vinur Harley
Michael J. Kami gekk til liðs
við stjórn Harley-Davidson árið
1982 og er almennt álitið að hann
hafi ráðið úrslitum á erfiðum
rekstrarárum fyrirtækisins og
með hans hjálp hafi tekist að
koma fyrirtækinu á græna grein.
„Ég hef í nítján ár verið hjá
Harley-Davidson sem ráðgjafi og
sem vinur. Ég lít á ráðgjafarstörf-
in sem vináttu."
Ég vona að þú fáir greitt fyrir
vináttuna.
„Ja,“ segir Kami og réttir hægri
höndina kæruleysislega út í loftið,
„á mínum aldri eru peningar ekki
mikilvægir. Ég á peninga sem
endast þrjú æviskeið og ég er orð-
inn 79 ára. Vinátta og sú áskorun
sem felst í verkefninu er miklu
meira virði. Og Harley er tilflnn-
ingalegt fyrirtæki.
Harley var í vandræðum árið
1982 og ég tók þátt í að stofna eig-
endaklúbbinn HOG,“ segir Kami.
HOG er skammstöfun fyrir
Harley-Davidson Owners Group
en hog þýöir á ensku svín eða
göltur. „Og ég er göltur númer eitt
og í klúbbnum eru 700 þúsund
meölimir. Árið 2003 verður 100
ára afmæli Harley-Davidson og þá
ætlum við að halda mikla veislu
og vonumst til að þá verði félags-
menn orðnir fleiri en ein milljón."
Áttiröu Harley-Davidson áöur en
þú settist í stjórn fyrirtœkisins?
„Þegar ég settist í stjórn ákváö-
um við að allir þeir sem kæmu að
starfi fyrirtækisins ættu að aka
um á Harley-Davidson. Ef maöur
er ráðgjafi hjá Nestlé þá verður
maður aö gera svo vel aö borða
Nestlé-súkkulaði," segir Kami og
hlær 79 ára gömlum barnshlátri.
„Harley-Davidson er skemmtilegt
fyrirtæki."
Ekki jafngóð
Harley-Davidson-hjól eru ekki
borin saman við aðrar tegundir.
Spumingar um snerpu, hraða og
vinnslu í samanburði við japönsk
hjól eru sjaldnast uppi á borðinu.
Harley-Davidson-hjól eiga ekki að
fara hratt. „Við viljum ferðast
saman í hópum, drekka bjór sam-
an og skiptast á draumum. Það er
heimspeki Harley-Davidson. Þess
vegna eru líka þessi skrýtnu föt og
slagorð. Maður keyrir ekki BMW
með slagorð á skyrtunni sinni.
Þjóðverjarnir vilja það ekki.“
Kami neitar þvi ekki að það
hafi verið hans hugmynd að
stofna klúbbinn og efla vitund
Harley-eigenda um heimspeki
mótorhjólsins. „Við vildum undir-
strika tilfinningaböndin við hjól-
in. Það er skynsamlegt því hjólin
okkar eru ekki jafn góð og þau
japönsku. Og það heyrist hátt í
þeim - við elskum Harley-hljóðið.
Honda hefur framleitt vél sem er
nánast hljóðlaus. En núna hafa
þeir sett Harley-Davidson-hljóð í
vélina," segir Kami og bætir við
að ég ætti að fá mér mótorhjól. Ég
ákveð að geyma mér það enda
Kami gott dæmi um það að maður
getur alveg beðið til sjötugsaldurs-
ins með að fá sér mótorhjól.
Það er ekki hefðbundin ímynd
fyrirtækjaráðgjafa að þeysa um á
mótorhjóli, kannski imyndar mað-
ur sér þá frekar við skákboröið.
„Ég vil gera hluti á annan hátt en
venja er til,“ segir Kami, „og á það
líka við um einkalíf mitt. Ég vil
koma fólki á óvart. Það gerir lífið
skemmtilegra. Fyrirtæki ættu að
leggja meira upp úr því að gera
vörur sínar skemmtilegar. En þá
er spurt: „hvemig gerir maður
ljósritunarvél skemmtilegri?" Ég
veit ekki hvernig, en kannski
væri hægt aö þrýsta á hnapp og
einhver teiknimyndafigúra myndi
skjótast upp úr vélinni. Af hverju
erum við ekki mannlegri þegar
við upphugsum markaðsstefnu?"
Tilgangur lífsins
Maður sem er stöðugt að hugsa
um mannlegar þarfir og stefnu-
mótun hlýtur að hafa einhverjar
hugmyndir um tilgang lifsins.
Þess vegna hlýtur lokaspurning til
hans að vera:
Hver er tilgangur lífsins?
„Fyrst á maður að græða pen-
inga því það er brjóstumkennan-
legt að vera fátækur," segir Kami.
„Síðan á maður að hafa það gott
og njóta lífsins. Það er alveg sama
hvort maður á fimm milljónir eða
fimmtíu, maður boröar ekkert
meira og drekkur ekki fleiri vín-
glös. Óhófleg peningaeign gerir
manni lítið gagn. Ég er viss um að
Bill Gates fremur ekki sjálfsmorð
þótt eign hans minnki úr 100 millj-
örðum í 50 milljarða. Á vissum
tíma lífsins verður maður að
hugsa heimspekilega. Þess vegna
skil ég ekki af hverju viðskipta-
menn vinna mikiö, líður illa,
lemja bömin sín og skilja við kon-
umar sínar fyrir peninga. Vald
spillir mönnum og óhóflegt vald
spillir mönnum óhóflega.“
Segiröu þetta viö forstjórana
sem sœkja fyrirlestra hjá þér?
„Já, ég segi þeim að gegna ekki
störfum forstjóra nema í fimm ár.
Ef þeim gengur ekki vel þá ætti að
reka þá hvort sem er og ef þeim
gengur vel þá eiga þeir að gera
eitthvað annað, eitthvað fyrir
samfélagið eða sjálfa sig. En með
því aö sitja í sama fyrirtækinu og
segjast veröa að gera þetta fyrir
hluthafa eru þeir að segja að eng-
inn annar í heiminum geti fyllt
skarð þeirra. Það er mikill hroki.“
-sm