Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 41
49
r
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
I>V
Helgarblað
ímyndunaraflið
sent á flug
- Pars Pro Toto sýnir þrjú verk á Stóra sviðinu
DV-MYND BRINK
Pars Pro Toto
„Það er mikilvægt aö áhorfandinn geti skapaö sína eigin sögu. Dans er sér-
staklega vel til þess fallinn að fá ímyndunaraflið á flug. Viö viljum frekar
fantasíu en niöurnjörvaöa sögu. Þaö má ekki taka skögunarþörfina burtu. “
Árið 1985 tóku nokkrir dansarar
og leikhúsfólk sig saman um stofn-
un dansleikhússins Pars Pro Toto.
Meðal stofnenda var Lára Stefáns-
dóttir sem endurvakti dansleik-
húsið árið 1997 meö manni sínum,
Guðna Franzsyni. í næstu viku
sýnir Pars Pro Toto á Stóra sviði
Þjóðleikhússins þrjú dansverk:
Elsu, Langbrók og Lady Fish and
Chips. Lára hlaut í sumar fyrstu
verðlaun fyrir Elsu á alþjóðlegri
danshöfundakeppni í Helsinki en
hin verkin eru eftir Láru og
Guðna. „Við höfum unnið þau í
sameiningu, bæði tónlist og dans,“
segir Lára. „Kóreografían er mín
en við flytjum verkin bæði og
erum með dúett í Langbrók og
Lady Fish and Chips.“
Og Guðni, sem er þekktastur
sem tónlistarmaður,dansar lika.
„Já og vinir okkar hafa verið
reglulega impóneraðir yfir dans-
stílnum. Hann er vel sviðsvanur
enda fékk hann góöa reynslu sem
tíkin í Sjálfstæðu fólki," segir Lára
og Guðni hnýtir aftan í: „Ég reyni
þrátt fyrir hálkuna að skokka á
hverjum degi til aö ná inn magan-
um.“
Örlagavaldurinn
Langbrók var unnin sem tónd-
ansmynd í Gerðubergi og flutt árið
1998. Það var í litlu rými og í raun
lítil tilraun. í Danmörku var það
sýnt á norrænni danshátíð og
vakti talsverða athygli og þótti
mörgum þetta vera mikil saga.
„Það eru tvær meginlínur í
dansi,“ segir Guðni. „Annars veg-
ar þar sem mynstur hreyfinganna
og táknmál er ráðandi en enginn
saga er á bak við og hins vegar
söguballet þar sem bakgrunnurinn
er saga. Það má segja að Langbrók
hafi sögubakgrunn þótt hún sé
gerð á abstrakt-hátt. Hallgerður og
Njála liggja á bak við en fyrst og
fremst er þetta leikur að tilfinn-
ingum og mannlegum kenndum."
Ólíkt Langbrók þá er Elsa ekki
söguballett. „Elsa sækir innblást-
ur í finnskan tangó sem heitir
Elsa - örlagabarn. Þau eru tvö í
verkinu, Hlín Diego Hjálmarsdótt-
ir og Guðmundur Elías Knudsen.
Hún er örlagavaldurinn í lífi karl-
mannsins," segir Lára. „Verkið
reynir mjög á dansarana og tækni
þeirra, þetta er keyrsla frá upphafi
til enda. Þegar verk eru sérstak-
lega samin fyrir keppni þá verður
að teygja sig langt.“
Skápandi áhorfandi
Lady Fish and Chips er ekki
saga en þó mjög persónuleg.
„Verkið kviknaði út frá sam-
nefndu kvæði Jónasar Árnason-
ar,“ segir Guðni sem árið 1995 tók
þátt í tónleikum í Borgarleikhús-
inu þar sem hann lék með Keltum
lög Jónasar Árnasonar. „Við not-
um eitt laganna þar sem Jónas
syngur sjálfur þennan texta.“ Lára
dansar sóló viö sönginn um kon-
una sem seldi Bretanum „fish and
chips“ og ýmislegt annað. „Við
göngum út frá þessu lagi,“ segir
Lára, „en horfum á það út frá sam-
hengi við íslensku þjóðina og leit-
umst við að segja sögu hennar frá
upphafi til nútímans." í verkinu er
komið að landmyndun, skrifandi
elskendum, þjóðskáldum og
teknói. Til dæmis flytur Guðni í
verkinu nytt lag sitt við Ég bið að
heilsa eftir Jónas' Hallgrímsson.
Þau vilja þó ekki gefa of mikið
uppi um efni dansins: „Það er mik-
ilvægt að áhorfandinn geti skapað
sina eigin sögu. Dans er sérstak-
lega vel til þess fallinn að fá
ímyndunaraflið á flug. Við viljum
frekar fantasíu eri niðurnjörvaðá
sögu. Það má ekki taka sköpunar-
gleðina í burtu. Þetta er eins og
með músík; um leið og gefið er
upp með orðum hvað tónlistin
þýðir þá er búið að festa einbeit-
inguna á viss atriði frekar en að
hver og einn taki verkin og geri að
sínu. Dans og tónlist krefst þess af
áhorfandanum að hann taki þátt í
sköpuninni."
Til að undirstrika þessa eigin-
leika dans og tónlistar þá eru lok
Langbrókar hálfgerð hugleiðsla;
áhorfandanum er gefið tækifæri
til að skapa verkið í huga sínum
og eins er það i Lady Fish and
Chips.
Hálfgeröur heimilisiðnaöur
íslenskur nútímadans hefur ver-
ið á mikilli siglingu að undan-
fömu eins og sést til dæmis á
glæsilegum árangri Láru í
Helsinki. Guðni bendir á að dans-
inn sé á máli sem er öllum þjóðum
skiljanlegt. „Við höfum farið víða
með sýningar, til Portúgals,
Eystrasaltslandanna, Suður-Afr-
íku og fleiri landa,“ segir Guðni.
„Þetta er mjög einfalt, við erum
bara tvö, ég tuðra í rörin mín,
Lára dansar og sviðsmyndin er I
einum kassa. Þetta er lítið fyrir-
tæki, hálfgerður heimilisiðnað-
ur.“
Og heimilisiðnaðurinn mun
halda áfram og i nánu samstarfi
við önnur fyrirbrigði sem eru
leidd af Guðna, Caput-hópnum og
Rússibönum en þeir síðarnefndu
leika í Kristalsal milli þátta í sýn-
ingunni í næstu viku. „Núna er
dansinn í forgrunni og músikin
bakkar hann upp,“ segir Guðni
og trúir mér fyrir því að
dansópera sé á teikniborðinu.
„En dansinn verður áfram í
forgrunni og við ætlum að vinna
næsta verk á elektrónískan hátt
þar sem Lára verður raftengd;
skynjarar verða tengdir við
vöðva hennar og rafboð verða
send inn í tölvu og þannig skapa
hreyfingar hennar tónlistina."
En áður en kemur að því er
gott að hita upp meö þvi að sjá
danssýningu Pars Pro Toto á
Stóra sviði Þjóðleikhússins 13. og
14. nóvember.
HaMhrarkiMlk oy itluððllar
#tetlegur jóíamarkaöur
Til stendur að setja á laggirnar mjög
áhugaverðan jólamarkað í salarltynnum Þinghus
Café í Hveragerði (gamla Hótel Hveragerði) frá
1. desember til 24. desembei^- marltað með sem
breiðast úrval af jólavörum.
Boafs áiiasga á a© tvyggja sér teis haffl
samband vlð EK3®!®m í sfera 483 5212,
'SS 4<M>3 1357 @S)a
á netfangié slaeagasv®mme«iia Js
Ið þurfum dlbreytingu
TVeystu sambandió
með fjölbreyttum óstarleikjum
í Ljúfum ástarleikjum er greint frá örvandi
leikjum þar sem koma við sögu ýmis hjálpartæki
ástarlífsins eins og vatn, tól og tæki, matur
og myndbandsspólur.
Bókin fr rikuiígo
skrej-u fjósmymium
jlj
JPV ÚTGÁFA
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík
Sími 575 5600
Jpv®jpv.is
www.jpv.is
nMmmwmBBBm
ANNE HOOPER
Meiraprófs
99.900kr. js
Nœstu námskeib
13. nóv. - 12. des.
10. jan. - 8. feb.
12. feb.-l 1. mars
Kennslubifreiöar:
Leigubifreiö: Nissan Terrano II, sjálfskiptur.
Vörubifreiö: Volvo FL 10, 2x4ra gíra.
Hópbifreiö: Benz 0303, 6 gíra.
Skráning ísímum 581 1919, 892 4124 og 822 3810
Nasta
námskeibheht
13 nove«iDer-
Örfá sœti laus
Ath! Nú greiöa verkalýösfélög allt
aö 40.000 kr. afnámskeiöi.
Skráöu þig núna!
Síbasta námskeib fylltist!
IÖKUSKÚLI
s
MJ Ktlij ■ fjJnJI AIIKIN ÖIUIUI I I INbl
1.1:11:111111111:111 Vlllllllill 111:111 IIIIPIIIiTlllll
Jl