Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Page 50
58
__________________________________________LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
Tilvera j>V
SKEMMTiKVOÚ) I YMI Þau Bern-
haröur Wilkinson og Margrét
Pálmadóttir, sem eru gestgjafar,
ásamt kórum sínum, Söngsveitinni
Fílharmóníu og Vox femlnae, á
,» skemmtikvöldasyrpu í tónlistarhús-
inu Ymi sem gengur undir nafninu
Laugardagskvöld á Gili.
JAÐIRINN LEIKLESINN Leiklestur
mun fara fram á Utla sviði Borgar-
leikhússins á Föðrunum eftir
Strindberg í dag kl.17.
TÓNLEIKAR í HÖLLINNI
Hátíöakór Vestmannaeyja og
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna,
ásamt einleikurunum, Helgu
Bryndísi Magnúsdóttur og Védísi
Guömundsdóttur, undir stjórn
Guömundar H. Guöjónssonar halda
tónleika í Höllinnl, Vestmannaeyjum
í dag kl. 16. Einsöngvari er Anna
Cwalinska.
SCHUBERT OG SÚKKULAÐI Á
þriðju Tíbrártónleikunum í Salnum
% sem verða á morgun, kl. 16.30
leiðir Mlst Þorkelsdóttir tónskáld
áheyrendur til fundar við Schubert.
Síðan verða magnaðir
Schuberttónleikar og að þeim
loknum veitingahússkynning.
. PÁLL ÓSKAR OG MONIKAPáll
Oskar og Monika Avendroth, ásamt
strengjasveit, halda aukatónleika í
Háteigskirkju á morgun, 11.
nóvember kl. 20.30.
KARLAKÓR Á HOFSÓSI OG
SIGLUFIRÐI Karlakór Eyjafjaröar
heldur söngskemmtanir I dag í
Höfðaborg á Hofsósi kl. 14 og í
Sigiufjaröarkirkju kl. 17. Með
kórnum er þriggja manna hljómsveit,
skipuð þeim Rafni Sveinssyni, Birgi
Karlssyni og Eiríki Bóassyni en
píanóleikari er Sólveig Anna
Jónsdóttir og stjórnandi kórsins
Björn Leifsson.
Markaður
HÁNPVERK A EYRARBAKKA Stór
handverksmarkaöur verður haldinn í
félagsheimilinu Staö, Eyrarbakka á
morgun, sunnudag, frá 14 til 18.
Opnanir
n GALLERI HLEMMUR Kl.16 í dag
opnar myndlistarkonan llmur Stef-
ánsdöttir sýninguna CommonNon-
sense i galleri@hlemmur.ls ,
Þverholti 5.
" n LISTASAFN KÓPAVOGS Kl. 15 í
dag opna þrjár myndlistarsýningar í
Listasafni Kópavogs.
n ÁSTIN OG LÍFH) í STRAUMI
Birgir Siguröson opnar sýningu í
Listamiöstööinni Straumi sunnan
álversins kl. 16. Sýningin ber nafnið
Ástin og lífiö.
.....
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Þjóðleikhúsiö frumsýnir á
morgun, hinn vinsæla leikþátt
Karíus og Baktus í fyrsta sinn.
Þeir félagar eru þekktir fyrir að
herja á tennur fólks. Það eru
Brynhildur Guðjónsdóttir og
Stefán Jónsson sem fara með
hlutverk hrappanna, leikstjóri er
J María Reyndal og Jóhann G.
Jóhannsson hefur umsjón með
tónlistinni. Sýningin er á
Smíðaverkstæðinu, hefst kl. 15
og tekur um hálftíma
Klassík
Hvernig getur ísland orðið ríkasta land í heimi?
Island sem alþjóð-
leg fjármálamiðstöð
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson með nýja bók
Hannes Hólmsteinn
Er ekki betra aö ísland alþjóöavæðist en Evrópuvæöist? Er ekki betra aö ísland
veröi alþjóöleg fjármálamiöstöö sem hafi opna leiö til Vesturheims eins
og opna leiö til Evrópu?
- Hvernig á ísland að verða ríkasta
land í heimi?
„Með því að lækka skatta á fyrirtæki
til að laða þau að landinu. Fjöldinn all-
ur af erlendum stórfyrirtækjum og ein-
staklingum sem hafa fjármagn er reiðu-
búinn til að ávaxta það á íslandi, nú
þegar þrengir að hjá Evrópusamband-
inu og ýmsum öðrum stofnunum. Þama
liggja möguleikar íslands. Þjóðin er vel
menntuð, landið er á miðju Atlantshafi,
samgöngur eru greiðar, tækniþekking
mikil, stjómarfar er stöðugt og landið
hefur gott orð á sér. Þess vegna hefur ís-
land að sumu leyti meiri möguleika en
ýmsar aðrar fjármálamiðstöðvar."
- Nú er rætt um niðursveiflu i efna-
hagslífinu, jafnvel kreppu.
„Það er eitt af því sem gerir þetta
verkefni tímabærara og brýnna. Ein af
meginástæðum þess að við þurfum að
ráðast í myndarlegar skattalækkanir er
að annars gæti niðursveiflan orðið
býsna kröpp. Það er enginn vafi á því að
teikn era á lofti um að hér sé árferði að
versna. Það sem ríkið á einmitt að gera
í versnandi árferði er að örva atvinnu-
lífið með því að lækka skatta og afstýra
atvinnuleysi, þannig að fyrirtækin þurfi
ekki að segja upp fólki. Það þarf að efla
fyrirtækin og um leið geta þau greitt há
laun. Því hærri sem launin verða því
meiri verður neyslan og því meiri verð-
ur eftirspumin og því hraðar snúast
hjól atvinnulífsins."
- En geta íslendingar ekki náð jafn
góðum árangri með því að ganga í Evr-
ópusambandið?
„Það vill svo til að þær þijár þjóðir
sem standa utan Evrópusambandsins
em einhverjar þær ríkustu í heimi:
Noregur, Sviss og ísland. Það er ekki
ávísun á auðlegð að vera í Evrópusam-
bandinu. Er ekki betra að ísland al-
þjóðavæðist en Evrópuvæðist? Er ekki
betra að ísland verði alþjóðleg fjármála-
miðstöð sem hafi opna leið til Vestur-
heims eins og opna leið til Evrópu? Eig-
um við ekki einmitt að nýta okkur sér-
stöðu okkar og gera hana að féþúfu í
orðsins jákvæðustu merkingu. Evrópu-
sambandið er að þrengja að fyrirtækj-
um, þar em mjög kostnaðarsamir fé-
lagsmálabálkar teknir í lög og jafnaðar-
menn sem vilja háa skatta em víðast
við völd. Þetta myndar ákveðið tækifæri
fyrir okkur. Að sjálfsögðu eigum við að
halda góðu sambandi og vináttu við
Evrópusambandið og Evrópusambands-
þjóðimar, en það þýðir hins vegar ekki
að við þurfum að ganga í Evrópusam-
bandið."
Ljón, bjarg og baráttumaður
- Víkjum að allt öðm. Þú átt nána
vini meðal valdamestu og mest áber-
andi einstaklinga í Sjálfstæðisflokknum.
Mig langar til að biðja þig um að segja
mér hvemig þú myndir lýsa nokkrum
þessara manna fyrir ókunnugum. Bytj-
um á Davíð Oddssyni.
„Davíð Oddsson er sterkur sem ljón
og kænn sem refur. Hann er í senn hlýr
maður og harðskeyttur. Hann er mikill
vinur vina sinna og óvinur óvina sinna.
Hann hefur þroskast í glímunni við
sjálfan sig og hefur stækkað við hvetja
raun. Það er þessu þjóðfélagi mikil gæfa
að hafa jafn öflugan forystumann og
Davíð við stjómvölinn og honum hefur
farist stjómarforystan einstaklega vel
úr hendi. Mér finnst því meira tii um
Davið sem ég kynnist honum betur. Ég
hef kynnst honum mjög vel og get full-
yrt að heiðarlegri, heilsteyptari og
hreinlyndari mann er ekki hægt að
finna. Ég get tekið mér í munn það sem
sagt var um annan mann einu sinni:
„Hann er hreinlyndur sem hvita-
bjöm“.“
- Hvað viltu þá segja um Kjartan
Gunnarsson?
„Kjartan Gunnarsson er bjargið sem
aldrei bifast. Hann er sérstaklega traust-
ur og fastur fyrir og hefur hljóðláta,
þægilega nærvem. Þeir sem starfa með
honum taka ósjálfrátt að bera traust til
hans, enda vinnur hann menn á sitt
band með hægðinni og heiðarleikanum.
Hann hefur mjög góða kímnigáfu og er
skemmtilegur í góðra vina hópi, er
reyndar ekkert sérstaklega mannblend-
inn eða félagslyndur en mjög áhugasam-
ur um félagsmál og stjómmál í víðustu
merkingu orðsins. Hann er ótrúlega
næmur fyrir nýjungum og er opinn og
víðsýnn í huga. Hann er þrumu ræðu-
maður en kemur sjaldan fram opinber-
lega, ekki af því hann sé feiminn heldur
miklu frekar af þvi að hann hefur enga
innri þörf til að vera í kastljósinu."
- Svo er það töffarinn Jón Steinar
Gunnlaugsson.
„Jón Steinar Gunnlaugsson er um-
fram allt baráttumaður. Hann er
ástríðufúllur hugsjónamaður, sérstak-
lega rökvís og fáa menn þekki ég sem er
jafn lagið að orða hugsun sína skýrt.
Hann er lfka mjög hugrakkur. Ég myndi
ekki vilja eiga hann að andstæðingi og
því síður að andstæðingar mínir ættu
hann að lögfræðingi."
Finnur ekki fyrir umtali
- Þú varst að lýsa umdeildum mönn-
um. Sjálfur ertu umdeildur maður og
ert á milli tannanna á fólki. Hvemig
snertir það þig?
„Ég verð að segja eins og er að ég finn
ekkert fyrir því. Þetta fólk sem þú ert að
vísa til þorir að minnsta kosti ekki að
segja þessa skoðun við mig.“
- Velurðu þér vini eftir stjómmála-
skoöunum þeirra?
„Ég held að menn velji sér ekki vini.
Málin þróast þannig að menn verða vin-
ir. Minn kunningja- og vinahópur
myndaðist á löngum tíma, í harðri bar-
áttu okkar margra fyrir auknu frelsi á
íslandi. Ég gekk ungur á hönd frjáls-
hyggjunni og hef barist ótrauður fyrir
henni. Það má segja að minn vinahópur
hafi myndast kringum áhugamál og bar-
áttumál mín. Þegar ég lít yfir þann
fama veg finnst mér að við megum vel
við una. Atvinnufrelsi hefur aukist á Is-
landi og þjóðfélagið er orðið opnara,
skemmtilegra og víðsýnna."
- Áttu enga vini á vinstri vængnum?
„Ég man ekki eftir neinum, satt að
segja. En á vinstri væng stjórnmála á ég
kunningja og hef mætur á nokkram rit-
höfundum sem kenndir em við vinstri
vænginn. Þar get ég nefht Þórarin Eld-
jám og Einar Má Guðmundsson sem
em mjög góðir rithöfundar og afbragðs
ljóðskáld. Mér fmnst líka Guðmundur
Andri Thorsson vera mjög stílfimur en
mér finnst hann misnota sína stflfimi í
því skyni að uppskera hlátrasköll í
kafllstofúnni."
Veikir stjórnmáiaflokkar
- Lítum í lokin yfir svið stjómmál-
anna. Hvað sérðu vera að gerast þar?
„Það er auðvitað óumdeilt að hér á
landi hafa átt sér stað miklar þjóðfé-
lagsbreytingar síðustu áratugina og
þær eiga eftir að halda áfram. Þær fel-
ast í því að sífellt fleiri flytjast á suö-
vesturhorn landsins en á sama tima og
Kjördæmaskipan er að breytast í sam-
ræmi við það hafa allir aðrir flokkar en
Sjálfstæðisflokkurinn kosið að gufa
upp í höfuðborginni, bjóða ekki fram í
eigin nafni. Þetta veldur því að ímynd
þeirra veikist stórkostlega í hugum al-
mennings. Það var vafalaust snjallt
skammtímabragð fyrir mið- og vinstri
flokkana að bjóða fram undir einu
nafni í Reykjavík og felia Sjálfstæðis-
flokkinn, en til langs tíma litið held ég
að það borgi sig ekki fyrir þá vegna
þess að þeir veikjast. Við sjáum aö þeir
em allir veikir, hver á sinn hátt. Þó að
skoðanakannanir spái Vinstri grænum
miklu fylgi þá hef ég ekki trú á því að
það verði jafn mikið þegar á hólminn
er komiö. Samfylkingin er í reiðileysi
og stefnuleysi og ímynd hennar er
mjög veik. Framsóknarflokknum hefur
ekki tekist að ná þeirri fótfestu á suð-
vesturhominu sem hann þarf, ef hann
ætlar í framtíðinni að hasla sér völl
sem frjálslyndur miðflokkur. Ef þessir
flokkar ætla að verða sterkir flokkar
verða þeir að skerpa imynd sína og
vera til á Reykjavíkursvæðinu, sem
þeir em ekki í dag.“
-KB
Á Akranesi
Akranes er einn af myndarlegri
kaupstöðum landsins. Útgerð er
hryggstykkið í atvinnulifinu þar
sem og Sementsverksmiðjan. Verk-
smiðjan var byggð í kringum 1960
fyrir peninga frá Bandaríkjamönn-
um sem veittir voru sem efdr-
stríösaðstoð. Hvað var þessi bú-
hnykkur nefndur?
Karíus og
Baktus
Við Amarfjörð
í Herðubreiðar-
lindum
Fyrir austan
Bakkagerði er eitt af minnstu
kauptúnum landsins, enda þótt það
gangi raunar oftast undir öðru
nafhi og hvert er það? Á leiðinni
þangað er farið um snarbrattar
skriður og í þeim hefúr um langan
aldur staðið kross með latnesku
letri þar sem var venja að fólk
bæðist fyrir á ferð sinn um skrið-
umar, sem heita hvað?
Sem gróðurvin í miðri eyðimörk
eru Herðubreiðarlindir. Þar koma
margar lindir fram með hraun-
röndinni og sameinast allar í
Lindá. Á þessum stað blasir viö hin
ægifagra Herðubreið, 1.682 metra
há. Er formfagur móbergsstapi sem
er hömrum girtur hið efra. Hvað
hefur fjallið stundum verið nefnt?
Sturla brosir
Fyrir ári síðan
opnaði Sturla
Böðvarsson sam-
gönguráðherra
nýjan veg sem
tengir enn betur
saman Norður- og
Austurland. Veg-
urinn, sem kom í
stað leiðarinnar
yfir Möðrudalsöræfi, er mun snjó-
léttari en fyrri vegur - svo nú er
orðið rennifæri árið um kring á
þessari leið, sem nefhd er hvað?
SVÖR:
OiaiBOBtssijajBH , EiptlJ Bjjisuaisi
Suiuwoja , 'UiooisoB iiBtisjBUi , 'JEiuiBÍH-niga
uin ijnds ja jan , jnoiJJIsjni|!AOJErN um qijej
J3 OnSuB^ U3 [JISAO JBOJEfjJÐÍÍJOa UJEU 0BUUB
J3 !QJ33BlIiIEa , '10^3 I UmUIOlI tlU J3 JpujSUJB
-0IS ps U3 SjgfqBujEJH So jBjmEquii)oa jjujiæq
nja mss jEq ‘jniBpBJUiBquiiioa jb uuuniBQ ,
Sr. Hjálmar
Dómkirkju-
presturinn sr.
Hjálmar Jónsson
er einn af fimustu
hagyrðingum
landsins og hefur
þess oft sést stað,
ekki síst á meðan
hann sat á þingi.
Sr. Hjálmar sést hér við minnis-
merki forfoður síns og nafita, sem
bjó í Skagafirði og var einnig hag-
yrðingur en einnig þekktur fyrir
útskurðarlist. Hver var hann?
Við norðan-
verðan Amar-
fjörð utarlega
standa tveir
bæir í litlum
dal. Torleiði er mikið í þennan
ægifagra dal sem er ef til vill
þekktastur fyrir að þar fæddist fyr-
ir rúmum hundrað árum Guð-
mundur G. Hagalín rithöfundur og
telja margir að sögusvið sumra
bóka hans sé í dalnum, sem heitir
hvað?