Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
DV
Tilvera
ROMANO?
Geöveik grínmynd!
„Saturday Night Live stjarnan
Chris Kattan breaöur sérí
dulargervl sem FBI fulltrúinn
Pissant" til aö nó í sönnunargögn
sem geta komiö fööur hans í
tugthúsiö.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
N iCOll KIDMAN
enga husð ma opna
FVRR EN AÐRAR ERU LOKAÐAI
★ ★★
H.Ö.J. kvikmynciir.com
★ ★★★
• ■Eg spái The Othe
Óskarsverðlaun
leik í aðal- og aukaht
kvikmyndatöku, teikstjóm, naHWÍI
svo nokkuð sé nefnt. k* S.V. ffim
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6. ísl. tal kl. 2 og 4.
Frá framleiðendum
Big Daddy kemur
drepfyndin
jkjamar.mynd um
Kkkaðar kærustur
K>g vitiausa vinil
Þú trúlr ekki
Óínum e»gin
augum.
Hún þekkir aTWlit fions,
hún |>ekkir snertingu hans,
en hún þekklr ekki sannieikann.
Frá framleiðendum
Big Daddy kemur
drepfyndin
Lyamanmynd um
Kkkaðar kærustur
■bg vitlausa vini!
Sýnd kl. 4. Síðasta sýning.
P4l»u-
FV-iÍio» kiiUuítiin
MYNDIN SEM FOR BEINT Á TOPPINN í
BANDARÍKJUNUM.
Jusíin Tim Mena
Chambers Roth Suvari
Hér er kiassíska sagan um
skv'hurnar þrjár fœrö í nýjan búning
meö störkosíiegum bardaga- og
chœttuatriðum, meö aðstoð eins
virtcstc slagsmálahönnuöar i Hong
Kona
Emmy og
nagladekk
Bein útsending frá Emmy-verð-
laununum var ekki sú skemmtun
sem ég hafði ímyndað mér. Ellen
deGeneres var reyndar bæði
fyndin og sjarmerandi, og reynd-
ar svo mjög að ég botna ekkert i
því að Anne Heche hafi farið frá
henni. Anne Heche er sennilega
húmorslaus. Enginn sem hefur
vott af húmor yflrgefur skemmti-
lega manneskju.
Annars var þessi skemmtun
hálfmisheppnuð frá mínum bæj-
ardyrum séð því ég þekkti engan
verðlaunahafa. Þarna streymdi á
svið fólk úr Sopranos, Malcolm
in the Middle og Sex in the City
(eða heitir þátturinn Sex and the
City?). Ég var að sjá flest af þessu
fólki í fyrsta sinn. Þetta sýndist
ágætasta fólk en var samt ekki
mitt fólk.
Auðvitað hefði ég átt að gera
mér grein fyrir því að fleiri þætt-
ir en Frasier geti unnið til
Emmy-verðlauna. Ég hélt samt
að það yrði ekki alveg svona
mikið um það. Ég verö sennilega
að hætta að horfa á Emmy-verð-
launin. Allavega fer ég ekki að
horfa á aðra þætti en Frasier. Ég
hef reynt að horfa á Sopranos en
þá finnst mér eins og ég sé að
stunda framhjáhald og fyllist af
sektarkennd. Algjörlega ónauð-
synlegt að vera að horfa í aðrar
áttir þegar maður veit hvar
manni líður best.
Og meðal annarra orða. Hvern-
ig stendur á því að sú dásamlega
leikkona sem leikur Daphne í
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar um
fjölmiöla.
Frasier-þáttunum var ekki til-
nefnd til verðlauna? Furðulegt.
Það sama má segja um leikarann
sem leikur pabbann. Hann er svo
góður að það er einkennilegt að
leikur hans skuli ekki skila sér í
verðlaunastyttu.
Hvað var þetta ágæta fólk í
Kastljósi að hugsa með því að
leggja heilan þátt undir umræður
um nagladekk? Nagladekk! Er til
eitthvað sem er meira ósexý í
sjónvarpi en einmitt umræða um
nagladekk. Ég var fljót að skipta
yfir á Stöð 2. Ég veit að maður á
ekki að dæma það sem maður
hefur ekki séð en ég bara get
ekki orða bundist. Það sama á
við um vini mína sem ég borða
með hádegismat. Daginn eftir
höfðum ekki við að fordæma
þessar umræður sem ekkert okk-
ar hlustaði þó á.
Sennilega hafa þetta verið
bráðfjörugar og upplýsandi um-
ræður. Sennilega hefur Kristján
Kristjánsson spurt ansi gáfulega.
Sennilega hefur Evu Maríu tekist
að setja notkun nagladekkja í
húmanískt samhengi. Sennilega
hefur Gísli Marteinn fyllt um-
ræðuna af léttum húmor. Senni-
lega hefur viðmælandinn farið á
kostum. Sennilega er ég full af
fordómum vegna þess að hafa
ekki haft þolinmæði til að bíða
eftir öllu þessu. Sennilega hef ég
misst af miklu. Sennilega er mað-
ur mjög takmarkaður.
Viö mælum
Virginía
og Karíus
Við mælum með því að fólk sjái
Hver er hræddur við Virginíu
Woolf? í Þjóðleikhúsinu. Leikur
Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur og
Ingu Maríu Valdimarsdóttur er í
hæsta gæðaflokki og uppsetning eft-
irminnileg enda löðrandi í
fíngrafórum Kjartans Ragnarssonar
leikstjóra.
Við mælum með því að fólk sæki
Kvikmyndahátíð. Sérstaklega má
benda á undarlega heimildarmynd
um norskan karlakór, Cool and Cr-
azy og Story Telling eftir Todd
Solondz sem gerði hina umtöluöu
Happiness.
Viö mælum með að fólk fari og
sjái Karíus og Baktus i Þjóðleikhús-
inu en þessi gimsteinn Egners verð-
ur frumsýndur á sunnudaginn.
Brynhildur Guðjónsdóttir og Stefán
Jónsson leika hina önugu tann-
maura í húsnæðishraki sem ásækja
piltinn Jens. Ef þið eigið ekki sjálf
barn þá fáið það lánað einhvers
staðar. Þetta er klassík.
Við mælum með því aö fólk sé
gott hvert við annað.
B0NUSUIDE0
MENof
HONOFE
w