Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Page 56
i m bílum
Utsölulok
nú um helgina
* * *
níl A Ul ICin i húsl Ingvars Helgasonar hf.
DlLiMrllJOIli# Sœvarhofða 2
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Níels á Bjarma BA:
Segi ekki neitt
- aö svo komnu máli
„Ég ætla ekki
að segja neitt að
svo komnu máli,“
sagði Níels Ár-
sælsson, skip-
stjóri og útgerðar-
maður Bjarma
BA frá Tálkna-
firði. Eins og
fram kom í DV í
Ársæisson. gær voru umtal-
aðar myndir af
brottkasti afla sem sýndar voru í
Ríkissjónvarpinu í fyrrakvöld að
hluta teknar um borð í Bjarma.
í DV í gær er haft eftir Níels að
hann muni fara í mál við blaðið
haldi það þvi fram að hann hendi
afla. Þegar blaðið ræddi svo við Ní-
els í gærkvöldi þvertók hann fyrir
að hafa nokkru sinni hótað blaðinu
málsókn. „Þið eruð búnir að segja
að brottkastsmyndirnar hafi verið
teknar um borð í mínum báti og
birtið mynd af honum. Er ekki nóg
komið?“ spurði Níels - og telur sök-
ina á þeirri umræðu sem nú er um
brottkast afla vera hjá fjölmiðlum.
Lögreglurannsókn er hafin vegna
brottkastmálanna. -sbs
0,8% vaxtalækkun:
11 krónur á dag
Vaxtalækkun Seðlabankans mun
aöeins hafa óveruleg áhrif á skuldir
hins almenna borgara. Ef bankamir
bregðast við með 0,8% vaxtalækkun,
líkt og Seðlabankinn, þýðir það að
greiðslubyrði einstaklings á 500.000
króna skuldabréfsláni lækkar um
4000 krónur á ári. Þaö jafngildir að-
eins 11 krónum á dag eða 330 krónum
á mánuði.
Þórður Guðlaugsson, Sambandi ís-
lenskra sparisjóða, segir alveg ljóst
aö vextirnir verði lækkaðir hjá bönk-
unum í kjölfar ákvörðunar Seðla-
bankans.
Þórður segir lægri verðbólgu hafa
miklu meiri áhrif á skuldir almenn-
ings. „Þessi lækkun fer fyrst og
fremst á óverðtryggð lán en ekki á
þau verðtryggðu. Lánin hjá mér og
þér og öllum hinum eru verðtryggð,
s.s. húsbréfalán og þar ræður verð-
bólguskrattinn. Hún er mesti óvinur-
inn í þessu.“
Verðbólga mælist um 8,5% á árs-
grundvelli sem þýðir í raun 8,5%
álag ofan á aðra vexti. Fyrir vikið
fara heildarvextir t.d. á yfirdrætti
upp yfir 20% og munar um minna en
að ein króna af hverjum fimm fari í
vaskinn. -BÞ
F]órir slösuöust í höröum árekstri dv mynd hilmar þór
Fólksbíll og jeppi rákust saman á mótum Suöurgötu og Brynjólfsgötu á sjötta tímanum í gær. Áreksturinn var mjög haröur og þurfti aöstoö tækjabíls
slökkviliösins viö aö ná tveimur farþega fólksbílsins út. Ökumenn beggja bifreiöa ásamt tveimur farþegum fólksbílsins voru fluttir meö sjúkrabíl á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi. Ekki lá fyrir hversu alvarleg meiösl fólksins voru þegar blaöiö fór í prentun.
Notaði 16 fölsuð kreditkort til að lifa hátt á íslandi:
Nígeríumaður sveik
út 5,3 milljónir króna
- tekinn með þrjár fullar ferðatöskur af lúxusvarningi
Breskur ríkisborgari af nígerísk-
um uppruna, sem gengur undir
tveimur nöfnum, játaði fyrir fram-
an dómara í gær fjársvik og skjala-
fals upp á 5,3 milljónir króna.
Hann lifði hátt í þremur ferðum
sínum til íslands í lok sumars og
byrjun hausts og notaði falsaðar
eftirgerðir af 16 kreditkortum til
að svíkja féð út. Lögreglan lagði
hald á þrjár fullar feröatöskur með
ýmsum lúxusvarningi þegar mað-
urinn var handtekinn í Leifsstöð
um miöjan september. Hann var
þá einnig með 15 þúsund Banda-
ríkjadali á sér, um eina og hálfa
milljón króna. Maðurinn var að
kaupa sér farseðil hjá Flugleiðum
í fjórðu ferðina tii íslands þegar
upp um hann komst. Athugull
starfsmaður tók þá eftir að nafnið
á kreditkorti mannsins passaði
ekki saman við nafnið á farseðlin-
um. Maðurinn gengur nefnilega
undir tveimur nöfnum, ann-
ars vegar Gregory Oraka
Bazunu frá London, fæddur
11. desember 1968, og Regin-
ald Aghogho Mafemi frá
London, fæddur 18. nóvem-
ber 1968. Maðurinn hefur
setið í gæsluvarðhaldi frá
því eftir handtöku en réttað
verður í máli hans á næst-
unni.
Maðurinn tók 47 sinnum
út á fölsuðu kreditkortin hér
á landi, meðal annars pen-
ingaúttektir upp á hundruð
þúsunda króna, einkum í
Landsbankanum í Leifsstöð
og á Hótel Loftleiöum. Hann
sló einnig um sig á Club Clinton
þar sem hann sveik út tugi þús-
unda til að njóta funda við kven-
fólk. Einnig fór hann í verslunina
Leonard í Kringlunni. Þar keypti
hann dömuúr fyrir 182 þúsund
krónur og sveik aðrar vörur út
fyrir 380 þúsund krónur. Maður-
inn greiddi gistingu á Hótel Sögu
fyrir 42 þúsund, keypti sér Nokia-
sima fyrir 115 þúsund hjá Tal hf. í
Kringlunni, annan GSM-sima fyrir
26 þúsund i Fríhöfninni, herraföt,
Hugo Boss, fyrir 92 þúsund,
skófatnað fyrir 43 þúsund og
fieira.
VISA ísland fer fram á að mað-
urinn verði dæmdur til að greiða
fyrirtækinu skaðabætur upp á 3,9
milljónir en Kreditkort hf. fara
fram á tæpar 1,2 milljónir. Efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra
gefur út ákæru og sækir málið fyr-
ir dómstólum. -Ótt
i
4
i
(
i
i
Hert viöurlög gegn þeim harðsvíruðustu:
Dómsmálaráðherra í brottkast
Ámi Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra hefur ákveðið að
ræða við dómsmálaráðherra,
Sólveigu Péturstíóttur, vegna
viðurlaga við brottkasti á fiski-
miðum landsins. Eins og fram
kom í DV í gær gagnrýnir sjáv-
arútvegsráðherra sýslumenn
og lögreglu fyrir að sinna ekki
rannsóknarskyldu sinni. Hann
segir að meint lögbrot séu litt
eða ekkert rannsökuð. Kærur
frá Fiskistofu séu afgreiddar með því að
lögreglan spyrji skipstjóra hvort þeir
hafi hent fiski og ef þeir neiti því sé
málið úr sögunni. Nálægðin í dreifbýl-
inu hafi þama eitthvað að segja. Þetta
séu erfið mál í litlum
samfélögum en sýslu-
menn eigi að vera yfir
það hafnir að láta
slíkt stöðva sig.
Árni segir sérstakt
áhyggjuefni að sam-
kvæmt könnunum
teiji 40% sjómanna
réttlætanlegt að kasta
fiski. Stundum sé vís-
að til neyðarréttar í
þvi samhengi sem sé fráleitt sjónarmið
hjá jafn vel stæðri þjóð Árni tekur fram
að hann telji að þorri sjómanna standi
sig vel í þessum efnum og bendir á að
ráðuneytið hafi sett reglur sem auð-
veldi úgerð að bregðast við
afla utan kvóta. Framsalið eitt
og sér sé ekki blóraböggull í
þessu samhengi.
„Hins vegar er mjög erfitt
að nálgast þá sem gera gagn-
gert út á þessi brot nema með
lögregluaðgerðum og auknu
eftirliti," segir Ámi sem gerir
mikinn greinarmun á þeim og
hinum sem ekki geti gert að
því hvað þeir fái á krókinn eða
i netin. „Það þarf breytt vinnubrögð og
ég mun tala við dómsmálaráðherra um
þessi mál,“ segir ráðherra.
DV náði ekki tali af dómsmálaráð-
herra. -BÞ
Árni
Mathiesen.
Sólveig
Pétursdóttir.
jólakort
STYÐJUM’KRABBAMEINSFÉLAGIÐ í STARFI
WWW.NYJARVID0IR.IS
Utiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800