Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Qupperneq 5
5
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001
DV Fréttir
Tvö fyrirtæki deila hart um réttmæti reiknings sem hleður á sig kostnaði:
Fokdýrar kynningarviðræður
- segir annar aðilinn - réttmæt innheimta segir hinn
„Það er ótrúlega ósvífið að senda
okkur himinháan reikning sem eng-
ar forsendur eru fyrir, enda engin
vinna á bak við hann,“ sagði Isar
Logi Arnarsson hjá Undirtónum
ehf. vegna óvenjulegrar deilu sem
fyrirtækið á í við Viðskiptamiðlun-
ina. Forráðamenn Undirtóna áttu
tvo fundi með fulltrúum Viðskipta-
miðlunarinnar á dögunum. Hinir
fyrmefndu töldu að einungis væri
um kynningarfundi að ræða sem
gætu verið undanfari frekari við-
skipta. Síðan fengu þeir reikning
frá Viðskiptamiðlun upp á tæplega
28 þúsund krónur. Þeir neita að
borga og er reikningurinn nú kom-
inn upp í 45.500 krónur með inn-
heimtukostnaði.
Að sögn ísars Loga ákváðu for-
ráðamenn Undirtóna að kaupa sér
bókhaldsþjónustu. Þeir leituðu til
nokkurra fyrirtækja til að kynna
sér þjónustu þeirra, þ.á m. Við-
skiptamiðlunarinnar. Yfirleitt
fóru Undirtónamennirnir í heim-
sókn í fyrirtækin og ræddu við
fulltrúa þeirra. Var m.a. farið í
Viðskiptamiðlunina. Isar Logi
Dýrt spaug
Isar Logi Amarsson segir ekki koma til greina að Undirtónar greiöi reikning-
inn frá Viðskiptamiðluninni, enda sé engin vinna á bak við hann. Hér hampar
ísar Logi reikningnum umdeilda sem vefur upp á sig dráttarvöxtum og inn-
heimtuþóknunum frá degi til dags.
sagði að þeir hjá Undirtónum Fulltrúar Viðskiptamiðlunarinnar
hefðu þurft frekari upplýsingar hefðu þá endilega viljað koma til
þaðan og ætlað í aðra heimsókn. þeirra. Það hefði orðið úr.
„Þeir komu tveir og það var set-
ið í innan við hálftíma," sagði Isar
Logi. „Þetta var eina fyrirtækið
sem rukkaði okkur fyrir kynning-
arviðræðurnar. Það var aldrei á
neinum tímapunkti komið þannig
að við værum í einhverjum við-
skiptum við Viðskiptamiðlunina,
enda vorum við ekki búnir að
senda á þá eitt einasta plagg sem
þeir hefðu getað lagt vinnu í. Við
höfum reynt að fá leiðréttingu
okkar mála hjá fyrirtækinu en
þeir standa harðir á reikningn-
um.“
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Viðskiptamiðlunarinnar,
sagði að þaðan hefðu tveir menn
farið til Undirtóna og verið þar í
eina og hálfa klukkustund við að
sækja bókhaldsgögn og fara yfir
málin.
„Þegar kynningarfundir við fólk
sem leitar eftir þjónustu eiga sér
stað þá er að öllu jöfnu ekki rukk-
að,“ sagði Jón. „En þegar við erum
boðaðir til framhaldsfundar um
sama mál þá er klukkan farin að
tikka.“ -JSS
DV-MYND ORN ÞORARINSSON
í sláturhúsinu
Ásta Einarsdóttir og Camilla Sören-
sen við störf í sláturhúsi KS í haust.
Rýrari dilkar
Meðalþungi dilka í sláturhúsi Kaup-
félags Skagfirðinga á Sauðárkróki var
15,35 kg í haust. Það er um 400 grömm-
um lakari meðalþungi en í fyrra en þá
voru dilkar líka með alvænsta móti. Ef
gert er ráð fyrir að kjötmáltíð vegi 200
grömm, sem er venjuleg viðmiðun, þá
vantar máltíð fyrir tvo á hvern einasta
dilk í haust. Alls var slátrað 45.869
lömbum á sláturhúsinu í september og
október í haust. Það er liðlega 13 þús-
und dilkum fleira en á síðasta ári. Eitt-
hvað mun vera geymt af gimbrarlömb-
um sem ætlunin er að slátra á næstu
vikum.
Aukin slátrun stafar af því að nú
var flutt fé til slátrunar á Sauðárkrók
af Vestfjörðum og úr Vestur-Húna-
vatnssýslu. Gengu þeir flutningar vel
og stóri flutningavagninn, sem keypt-
ur var í haust, reyndist ágætlega, að
sögn Ingótfs Helgasonar sem annaðist
fjárflutningana. -ÖÞ
íslendingar ofurseldir flugsamgöngum:
Aðeins 6 farþegar
geta ferðast með
farþegaskipum
— verðum að hafa fleiri en eina flutningsleið
Katrín Fjeld-
sted (D) spurði
samgönguráð-
herra, Sturlu
Böðvarsson, á Al-
þingi í gær hvort
hann teldi rétt að
tryggja skipafólks-
flutninga allan
ársins hring til
landsins. Fyrir-
spumin varðaði
öryggismál íslendinga. Þingmaðurinn
benti á að þjóðin hefði að mestu
treyst á Flugleiðir til þessa en nú
hefðu veður skipast skjótt í lofti sbr.
hryðjuverkin 11. sept sl. íslendingar
væru ofurseldir fluginu sem flutn-
ingsmáta og það væri áhyggjuefni.
Sem dæmi nefndi Katrín að hún hefði
grennslast fyrir hjá Eimskip og kom-
ist að því að þar væru aðeins tvö skip
sem gætu siglt með farþega, Dettifoss
og Goðafoss. Samanlagður farþega-
fjöldi með þessum tveimur skipum er
hins vegar aðeins sex.
Samgönguráðherra tók undir að ís-
lendingar ættu mikið undir greiðum
samgöngum en
sem betur færi
væri flugþjónust-
an mikil og góð.
Vöxtur íslenskrar
ferðaþjónustu
væri einkum
vegna tíðra flug-
ferða og svo yrði
áíram. Hins vegar
myndi ný og öfl-
ugri ferja leysa
Norrænu af innan tíðar og það skref
yrði í þágu allrar þjóðarinnar. Hugs-
anlegt væri að lengja siglingartimann
jafnvel þannig að nýja ferjan gæti
siglt til og frá íslandi flesta daga árs-
ins.
Sigríður Jóhannesdóttir (Sf) sagð-
ist hafa orðið vör við að fólk veigraði
sér við flugferðum og það væri gott ef
hægt væri að lengja þjónustutíma
Norrænu.
Tómas Ingi Olrich (D) varaði við að
byggð væri upp vantrú á flugsam-
göngum. Þótt áfall hefði orðið yrði að
styrkja flugið og tryggja forsendur
þess að þvi yrði viðhaldið. -BÞ
Katrín
Fjeldsted.
Tekur vinnuna með sér á spítalann
Hinn kunni sjónvarpsmaður Jón Ársæll Þórðarson er ekki af baki dottinn þó kappinn eigi við gigt aö stríða i bakinu.
Hann tók klippigræjurnar með sér upp á spítala nú í vikunni þegar hann fékk þar meðferð meina sinna og klippti þar
saman sjónvarpsþætti sína um Sjálfstætt fólk á milli þess sem hjúkrunarfólkið sinnti honum. Þættir Jóns hafa notið
vinsælda í haust, enda vanur spyrill á ferð framan við kunna samferðamenn.
Hafsteinn Númason á hægum batavegi eftir bílslys:
er bara allur að braggast
- erfið endurhæfing eftir slysið fram undan
„Ég kom heim
fyrir mánuði og
er bara allur að
braggast. Þó er
langt í land með
fullan bata,“ seg-
ir Hafsteinn
Númason bif-
reiðastjóri sem
lenti i bílslysi í
Þrengslunum að
kveldi 18. septem-
ber. Honum var haldið sofandi í
viku eftir slysið og um tima var
honum vart hugað líf.
Bíll Hafsteins lenti út af veginum
við mót Svínahrauns og Þrengsla-
vegar og steyptist ofan í gjótu. Far-
þegi sem var með í for slasaðist
nokkuð en Hafsteinn stórslasaðist.
Hafsteinn
Númason.
Hann beinbrotnaði á vinstri hendi,
hægra hné og rifbeinsbrotnaði. Þá
hlaut hann augnskaða og meiddist
mikið á höfði. Höfuðkúpubrotnaði á
hnakka hægra megin. Spengja
þurfti kjálka hans og kinnbein. Haf-
steinn sem upplifði miklar hörm-
ungar þegar hann missti þrjú börn
sín í snjóflóðinu í Súðavík er nú
heima hjá sér á Kjalarnesi og bíður
þess að komast í erfiða endurhæf-
ingu sem búist er viö að taki allt að
ár. Hann og Berglind M.Kristjáns-
dóttir kona hans eiga tvær stúlkur,
þriggja og fimm ára.
„Ég vonast til að geta farið að
vinna aftur seint á næsta ári. Ég
gefst aldrei upp og hlakka til þess að
byija að keyra aftur," segir Haf-
steinn. -rt
DV, MYND KO
Bílslysiö
Hafsteinn Númason var milli heims og helju eftir að hann lenti í bíisiysi í
Þrengslunum í septembermánuði.
Norræn bóka-
safnsvika á
Akureyri
Norræna bókasafnsvikan er hald-
in hátíðleg á Amtsbókasafninu á
Akureyri í þessari viku. Amtsbóka-
safnið er eitt af rúmlega 1000 söfn-
um á Norðurlöndum sem taka þátt í
vikunni að þessu sinni en þema vik-
unnar er orð og tónar i norðri.
Nokkrir dagskrárliðir eru á
hverjum degi í Amtsbókasafninu og
má nefna að í dag kl. 14.30 er sögu-
stund þar sem lesinn verður kafli úr
„Sagan af bláa hnettinum" og stutt-
ir kaflar úr sögum Astrid Lindgren.
•Þá verður myndin „Vi pá Salt-
krákan" sýnd kl. 15.30. Á morgun
fóstudag verður myndin Jón Oddur
og Jón Bjarni sýnd kl. 15, en kl.
15.30 verður verðlaunaafhending í
Smásagnasamkeppni Amtsbóka-
safnsins.
-gk