Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Síða 7
7 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 _________________________________________________ I>V Fréttir Sérfræðingurinn sem býður heimilisvitjanir fyrir 5000 kr. til umræðu á Alþingi: Hvalfjörður: Gefðu þér tíma Þegar þú þarft að gera allt sem þú átt eftir að gera. Eða þegar þig langar að gera ekkert sérstakt. Stundum er gott að vera bara á rölti í bænum. Við mælum með P3 miðastæðunum þegar þú vilt gefa þér góðan tíma. P3-bílastæðin við hafnarbakkann, Skúlagötu og Landakot eru hagkvæmustu langtímastæði miðborgarinnar. Ðlil Bílastæðasióður kJ / ...svo í borg sé leggjandi Héraösdómur Karlmaöur hefur verið dæmdur í Vveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni. Tveir teknir fyrir glæfra- akstur Hann var heldur betur að flýta sér ökumaðurinn sem lögreglan í Borgar- nesi mældi á 161 km hraða skammt frá Fannahlíð í Hvalfirði í gærkvöldi. Ökumaðurinn sem var tekinn í gærkvöld er hins vegar ekki einn um að stunda glæfraakstur á þessum slóðum. Fyrir nokkrum dögum var annar ökumaður stöðvaður á 163 kílómetra hraða. Hann gaf lögreglu þær skýringar að hann hefði talið að vaktaskipti stæðu yfir hjá lögreglunni. Því hefði ekki verið yfirvofandi hætt á að hann yrði stöðvaður við aksturinn. -gk Lágheiði: Lenti út af og valt eina veltu Bílvelta varð á Lágheiði, milli Ólafsfjarðar og Fljóta, í fyrrakvöld. Jeppabifreið sem var þar á ferð lenti út af veginum og fór eina veltu. Ökumaðurinn var einn á ferð og meiddist lítils háttar. Bíllinn slapp hins vegar ekki eins vel og er ónýtur eftir veltuna. Sumarfæri er á Lág- heiði þessa dagana, enda heiðin auð eins og aðrir fjallvegir landsins. -gk ítrekaðir glæpir kynferðisafbrotamanns í Eyjafirði: Tveggja ára fangelsi fýrir kynmök við telpu Karlmaður í Eyjaflrði hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart stúlkubami. Hann er einnig dæmdur til að greiða stúlkunni kr. 600.000 í miskabætur. Málið var dómtekið í september og var ákært fyrir nokkur brot á áranum 1994-1995 fyrir kynferðismök við telpuna. Samkvæmt gögnum málsins barst Barnavemdamefhd Eyjafjaröar tilkynning frá skólahjúkrunarfræðingi 5. desember 2000 vegna ætlaðra kyn- ferðisbrota. Tilefnið var frásögn telpunnar i venjubundnu sjálfs- matsviðtali hjúkrunarfræðingsins. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akur- eyri barst formlegt kæruerindi vegna þessa 7. desember í fyrra og var ákærði handtekinn fimm dögum síðar og í framhaldi vistaður í fangahúsi. Samkvæmt vætti vitna, frásögn ákærða og öðrum gögnum málsins var telpunni komið í fóstur haustið 1995 hjá hjónunum og var tilefni þess að einstæður faðir hennar hafði langar útiverur vegna sjómannsstarfa. Faðir teipunnar hóf sambúð með núverandi sambýliskonu sinni haustið 1995 og fór telpan þá á ný á heimili hans. Dóttur- dóttir fósturmóður telpunnar dvaldi tíðum á heimiii hennar á árabilinu 1993-1996. Er upplýst að telpumar bundust vináttuböndum og fengu á stundum að gista á heimili hvor ann- arrar. Hófust þannig kynni með telp- unni og ákærða en hann er faðir nefndrar vinkonu. Fyrir dómi, líkt og við skýrslugjöf hjá lögreglu, játaði ákærði sakarefni ákæraskjalsins og taldi að fjöldi tilvika hefði getað verið allt að fimm sinnum. Hann lýsti athæfi sínu þannig að mök- in hefðu ávallt gerst seint að kveldi ellegar á nóttunni þegar dóttir hans var sofnuð og eiginkona fjarverandi af heimilinu. Kvaðst ákærði hafa látið telpuna krjúpa nakta á hjónarúminu, en hann síðan komið sér fyrir fyrir aft- an líkama hennar og nuddað stífum lim á milli fóta hennar, við kynfæri, stutta stund. Telpan var 10-11 ára göm- ul þegar þetta var og minntist ákærði að telpan hefði grátið í eitt eða tvö skipti. Héraðsdómur Norðurlands telur brotin alvarleg. Maðurinn hefur ekki áður gerst sekur um kynferðisbrot. -BÞ Heilbrigöisráðherra líst illa á einkaheimsóknir - utan almannatryggingakerfisins - lögmæti kannaö Bryndís Hlöðversdóttir (Sf) gerði einkaþjónustu i heilbrigðiskerfinu að umræðuefni í utandagskrárumræð- um á alþingi í gær. Hvatinn að um- ræðunni varðaði ekki síst sérfræðing- inn í heimilislækningum sem boðið hefur einkaheimsóknir á heimili án þess að Tryggingastofnun ríkisins niðurgreiði þjónustuna. Bryndís lýsti áhyggjum yfir skorti á heimilislækn- um og sagði að þúsundir fólks væra án læknis á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiskerfið hefði lengi verið deilumál meðal stjórnmálaflokka og Sjálfstæðisflokkurinn hefði mjög tal- að fyrir tvöfóldu kerfi, þ.e.a.s. að efn- aðir gætu keypt sér forgang. Því vildi hún vita hvort búast mætti við rofi á þeirri þjóðarsátt sem hér hefði ríkt um jöfnuð og gott almannatrygginga- kerfi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra viðurkenndi að uppbygging heilsugæslu hefði gengið hægar en hann hefði gert sér vonir um en það væri alveg skýrt að heilsugæsluþjón- ustan yrði áfram hluti af grunnþjón- ustunni. Um mál heimilislækninga- sérfræðingsins sagði ráðherra að honum hugnaðist ekki ef heimilis- læknar væru farnir að bjóða upp á vitjanir i heimahúsum fram hjá sam- eiginlegu kerfi landsmanna. Hann ■cr? Jón Kristjánsson. Bryndís Hlöóversdóttir. hygðist kanna hvort það stæðist lög og landlæknisembættið myndi fylgj- ast með málinu. Ráðherra sagði ennfremur að grunnþjónusta heilsugæslunnar væri sterkari en svo að einn hgimilislækn- ir í Reykjavík ógnaði þvi fyrirkomu- lagi. Varðandi skortinn á heimilis- læknum hefði hann skipað nefnd til að fara yfir málin og komið hefðu fram vísbendingar um að áhugi lækna á heilsugæslu væri mjög að glæðast. Heilbrigðisráðherra varaði við umræðu um bág launakjör heim- ilislækna. Fréttir af slíku væru ýktar. Ýmsir þingmenn kvöddu sér hljóðs í umræðunni og m.a. Ásta Möller (D) sem sagði að fjölmargar stofnanir væru reknar af einkaaðilum innan heilbrigðiskerfisins og þær ættu það sameiginlegt að vera kunnar að áreið- Sigríöur Sverrir Jóhannesdóttir. Hermannsson. anlegri og góðri þjónustu. Heilbrigð- isþjónustuna ætti að mestu að fjár- magna úr sameiginlegum sjóðum en einnig bæri ríkinu að semja við einkaaðila til að létta á. Stjórnarand- staðan væri að gera stefnu flokksins tortryggilega en það væri rangt að tala um að sjálfstæðismenn vildu tvö- falt kerfi. Sverrir Hermannsson (F) talaði á öðrum nótum en aðrir stjórnarand- stöðuþingmenn. Hann sagði vanda heilbrigðisþjónustunnar risavaxinn og stjórnvöld hefðu ekki náð að taka Asta Möller. á honum. Þörf væri á endurskoð- un á Trygginga- stofnun ríkisins því þar væri pott- ur brotinn. Biðlistar væru allt of langir og það væri óeðlilegt að hann þyrfti að bíða í 2 ár ef hann kenndi sér fóta- meins og gæti ekki gengið. Eðlilegt væri að hann gæti keypt sér einka- þjónustu til að ráða bót á ef hún væri í boði á öðrum stað. Sigríður Jóhannesdóttir (Sf) sagði að búið væri að rifa gat á það örygg- isnet sem sátt hefði verið um. Sjálf- stæðisflokkurinn væri með heilsu- gæsluna í svelti þannig að biðlistar lengdust og neikvæð umræða skapað- ist. Einstæðar mæður eða öryrkjar yrðu örugglega ekki í hópi unga sér- fræðingsins sem áður er getið. -BÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.