Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Blaðsíða 28
32
Tilvera
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001
I>V
Sýning í Gallerí
smíöar og skart
Birna Smith opnar á morgun sýn-
mgu i Gallerí Smíöar og skart á Skóla-
vörðustíg 16A. Þar eru 20 verk, öll
unnin meö olíu á striga og gerð á
þessu ári. Birna er Reykvíkingur og
stundaði myndlistarnám á sínum
heimaslóðum á árunum 1990 til 1996.
Einnig hefur hún lagt stund á por-
trettmálun í Flórens undanfarið. Þetta
er þriðja einkasýning Birnu og hún er
opin frá 10-18 alla virka daga en frá 10
til 16 á laugardögum.
Iþrjótandi
formgerðir og
litadýrð
Tékknesk glerlistasýning verður
opnuð á Kjarvalsstööum í dag, fóstu-
dag. Þar eiga verk nokkrir af eftirtekt-
arverðustu glerlistamönnum Evrópu
um þessar mundir. Sýningin ber yfir-
skriftina „Leiðin að miðju jarðar“ og
listamennirnir sem þar eiga verk eru
þau Stanislav Libenský og Jaroslava
Brychtová, ásamt meðlimum Rúbí-
kon-hópsins, þeim Bohumil Eliá,
Jaroslav Matoua, Jan Exnar og
Jaromír Rybák. Sýningarstjóri er Ivo
Kyen, grafískur hönnuður, safnvörð-
ur og hugmyndafræöingur Rúbíkon-
hópsins.
Efnistök listamannanna eru ólík og
endurspegla sérstöðu hvers og eins.
Þannig gefur að líta fjölbreyttan þver-
skurð af þeim óþrjótandi formgerðum
og litadýrð sem glerið hefur upp á að
bjóða, ýmist eitt og sér eða með öðr-
um efnum.
Fróðleikur um
faldbúninginn
Elsa E. Guðjónsson, textíl- og bún-
ingafræðingur, mun fjalla um ís-
lenska faldbúninginn í máli og mynd-
um á morgun á Laufásvegi 2. Fyrir-
lesturinn er á vegum Heimilisiðnaðar-
skólans og hefst kl. 14. íslenskar kon-
ur klæddust faldbúningnum á seinni
hluta 18. aldar og fyrri hluta þeirrar
19. Elsa gerir grein fyrir hinum ýmsu
ílíkum sem búnipgnum tilheyra, heit-
um þeirra, gerð og efni. Svo gefin séu
smásýnishorn af heitum má nefna
fald, kraga, treyju upphlut, hálsklút,
handlínu og höfuðklút.
Gönguleiðir
Gengið um Seltjarnarnes:
Angan af sjó, þangi og fuglum
Á Seltjarnarnesi eru göngustígar
sem gaman er að þræða. Um það
geta þau borið hjónin Amþór Helga-
son og Elín Árnadóttir. Þeirra upp-
áhaldsleiðir eru stígarnir utan viö
byggðina vestast á nesinu, úti við
Gróttu, meðfram Seltjörn og hring-
inn í kring um golfvöllinn. Þau fara
ýmist gangandi eða hjólandi, jafnvel
svo snemma morguns að fuglarnir
eru ekki komnir á fætur! Arnþór
rifjar upp eina slíka ferð: „Mér er
ógleymanlegur einn morgunn þegar
við hjónin komum hjólandi að
Bakkatjörn. Þá var fjöldi fugla sof-
andi á bakkanum og hrökk upp með
látum. Ég spurði Elínu hvað væri á
seyði og hún sagði mér að fugla-
skarinn væri allur að foröa sér und-
an okkur út á tjörnina. Síðan skil ég
vel hugtakið „Það varð uppi fótur
og fit.“
Njóta náttmyrkurs og
stjörnuskins
Þau hjón eru ekki bara á ferð um
nesið snemma morguns heldur líka
seint á kvöldin þegar stjörnurnar
skína og norðurljósin dansa um
hvolfið. Þá elska þau að fara út í
Suðurnes þar sem Elín lýsir fyrir
Arnþóri fegurð himinsins. Þau við-
urkenna að vissulega sé ljósmengun
frá byggðinni en þarna séu þau þó
komin út úr skærustu birtunni.
„Hér á Seltjarnarnesi gilda næstum
því þau skilyrði sem Vinstri grænir
orðuðu svo fallega í ályktun lands-
fundarins: „að nauðsyn beri til að
varðveita aðstæður í nágrenni þétt-
Ganga um nesiö sitt seint og snemma
Arnþór Helgason og Elín Árnadóttir.
Gönguleiöakort sem umhverfisnefnd Seltjarnarness lét gera fyrr á þessu ári og dreiföi í öll hús á svæöinu.
býlis til að menn geti notið nátt-
myrkurs og stjörnuskins!““ segir
Arnþór sposkur á svip.
Þau segja að gönguleiðakerfi á
nesinu hafi verið gert vel úr garði
og nú sé hægt aö ganga og hjóla
meðfram allri strönd nessins. Stíg-
urinn meðfram golfvellinum sé að
vísu ekki hjólafær en greiðfær gang-
andi fólki. Elín segir að það pirri
þau stundum hversu mikiö af tak-
mörkuðu landi Seltjamamess fari
undir golfvöllinn og að þau séu ekki
allskostar ánægð með umgengni
golfklúbbsins við ýmsar náttúru-
minjar á svæðinu.
Sagan horfin óþarflega hratt
Talið berst að Gróttu. „Grótta er
dýrðareyja sem liggur hér undan
landi og er tengd með granda við
nesið," segir Amþór. Elín segir
betra að vera vel skóaður þegar
haldið sé þangað þvi um hála steina
sé að fara. „Maður getur lent í að
labba í blautum þara,“ segir hún.
En kostinn við Gróttu segja þau að
þar sé allt tiltölulega ósnortið, nefna
til dæmis gamlan grjótgarð sem ef-
laust hafi verið hlaðinn sem girðing
kring um túnið. Fyrir nokkrum ára-
tugum hafi verið talsvert um grjót-
garða á Seltjarnarnesi en þeir eru
því miður horfnir. Varirnar séu
flestar farnar líka, Nýjabæjarvör,
Nesvör, Nýlenduvör Pálsvör og
Bollagarðavör því grjóti hafi verið
hlaðið meðfram ströndinni til að
verjast sjávargangi. „Sagan hefur
horflð óþarílega hratt,“ segir Elín
en bætir við: „Nesstofa og Ráða-
gerði eru þó gamlar byggingar. Búið
er að gera Ráðagerði upp í sinni
upprunalegu mynd og einnig að
dytta að gömlum hákarlaskúr sem
stendur þar rétt hjá.“ Arnþór bætir
því við að meðal minja á nesinu sé
líka gamalt útsýnisskýli frá stríðs-
árunum. „Þar voru hermennimir
með aðstöðu til að fylgjast með
skipaferðum," segir hann til skýr-
ingar.
Borðið að komast á kaf
Arnþór segir sólarlagið fegurra á
Seltjarnarnesi en víðast annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu og
fuglalíf sé fjölskrúðugt að sumrinu.
Þar hafi sést um 100 tegundir og
milli 20 og 30 tegundir verpi þar.
Elín bætir við að það sem geri nes-
ið sérstakt líka sé þessi sterka ang-
an af sjó, þangi og fuglum. Margs
konar náttúruupplifanir sem höfði
til allra skilningarvita. Hún segir að
á einum stað við Seltjörnina sé borð
með bekkjum, næstum grafið ofan í
jörðina. Þangað hafi þau nokkrum
sinnum farið með morgunmatinn
sinn. „Stundum erum við með smá-
fólk með okkur. Því þykir mikið
sport að fara í fjöruferð með mat!“
segir hún og bætir við að gjarnan
mætti fjölga borðum og bekkjum
meðfram stígunum.
Tilkomumikið brim
Meðfram Seltjörninni, milli
Gróttu og Suðurness, segir Elín
yndislega skeljasandsfjöru og á Suð-
urnesinu útsýni bæði til Snæfells-
ness og Reykjaness. „Vestast á Suð-
urnesinu finnst mér alltaf gaman að
staldra við í hvernig veðri sem er
því við klappirnar þar er alltaf til-
komumikið brim,“ segir hún. Arn-
þór tekur i sama streng. „Það er
vissulega stórkostlegt að geta kom-
ist á hálftíma göngu það langt frá
byggðinni að maður heyrir ekki
annað en hljóð náttúrunnar." -Gun.
í fjöruferð með mat
Hringur Árnason og Birkir Karlsson hlakka til að taka til matar síns úti við
Seltjörn.